Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1990, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1990, Side 27
FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 1990. 35 LífsstOl PAPRIKA Mlkllgaröur Það hefur orðið 32% verðlækkun á tómötum á milli vikna en samt er 108% verðmunur á milli þeirra staða þar sem þeir eru dýrastir og ódýrastir. SVEPPIR DV kannar grænmetismarkaðinn: Tvöfaldur verðmunur á sveppum og tómötum Það er hvorki meira né minna en tvöfaldur verðmismunur á sveppum og tómötum þessa vikuna í þeim verslunum sem DV gerði grænmetis- könnun sína. Ef litið er fyrst á tómatana kemur í ljós að þeir hafa lækkaö um 32% frá því í síðustu viku, en þá var meðal- veröið 499 krónur. Dýrastir eru þeir nú í Nóatúni við Nóatún á 429 krónur kílóið en ódýrastir í Bónus í Skútu- vogi þar sem þeir eru seldir í 1/2 kg pokum á 103 krónur og kílóið því á 206 krónur. Mismunurinn er því 108%. Meðalverö á tómötum er nú 339 krónur og er ein önnur verslun undir meðalverði, Fjarðarkaup selur kílóið á 250 krónur sem verður að teljast mjög gott verð. Gúrkumar hafa lækkað um 2 krónur kílóið og er meðalverðið nú 110. Verðmismunurinn er þó 67% milli dýr- ustu og ódýrustu verslunarinnar. Mikligarður vestur í bæ, á Hringbraut- inni, selur kílóið á 149 krónur en Bónus á 89 krónur. í Hagkaupum í Skeifunni er gúrkuverðið komið niður í 95 krónur og það er fjórum krónum hærra í Fjarðarkaupum. í Nóatúni eru gúrk- umar á 119 krónur kílóið. Og þá er komið að sveppunum. Meðalverð á sveppunum er lægra en í síðustu viku þegar það var á 769 _____________^______ Sparigrís vikunnar: Verslunin HAGKAUP krónur kílóið, nú er það á 752 krón- ur. Hagkaup er með ódýrustu svepp- ina þessa vikuna þar sem hægt er að fá 250 g bakka á 135 krónur og gerir það 540 krónur á kílóiö. Nóatún aftur á móti var með 250 g bakkana á 100% hærra verði en Hagkaup, eða á 270 krónur, og gerir það 1080 kíló- ið. Fjarðarkaup selur sveppina á 590 krónur kílóið. og Mikligarður á 799 krónur kílóið. Vínberin eru ofurlítið lægri í verði núna en í síðustu viku. Ódýrustu berin fást í Hagkaupum þar sem þau eru á 344 krónur kílóið og fást einnig blá ber á sama verði. Bæði þau grænu og bláu voru 'falleg. Mikli- garður er 24% dýrari með græn vín- ber á 425 krónur kílóið. Meðalverð á vínberjum er 378 krónur og var Fjarðarkaup aftur undir meðalverði með kílóið á 345 krónur. Paprikan lækkar enn í verði og er meðalverðið nú 487 krónur á kílóið. Bónus auglýsir kílóið á grænu papri- kunni á 371 krónu en selur hana í stykkjatali, eins og fleira, á 45 krón- ur. DV keypti nokkrar meðalstórar paprikur sem hver um sig var rétt um 100 g. Hefði því hver paprika átt að seljast á 37 krónur. Kílóverð á papriku í Bónus reyndist því vera 450 krónur og var miðað viö það verð. Bónus er samt sem áður með lægsta verðið. Fast á eftir er Hagkaup með kílóið á 465 krónur og Fjarðarkaup með kílóið á 470 krónur. Og Nóatún seldi hana á 490 krónur. Dýrust er paprikan í Miklagarði á 559 krónur. Meðalverð á kartöflum er hærra nú en síðast vegna þess að nú eru þetta allt I. flokks kartöílur. Fjarðar- kaup er með 3 kg poka af úrvals- kartöflum á 225 krónur, eða 75 krón- ur kílóið. Mikligarður var með kart- öflur í lausu á 95 krónur og þar með dýrasta verslunin, en kartöflurnar þar voru ljósar og fallegar. Meðal- verð á I. flokks kartöflum er nú 86 krónur. -GHK Sértilboð og afsláttur: Túnfiskur og te Ef leitað er vel má alltaf finna eitt- hvaö sem er á tilboðsverði þessa dag- ana. Það er svo aftur á móti annað mál hvort maður hefur nokkra þörf fyrir það sem er á tilborðsverði þá stundina. í Fjarðarkaupum er nú hægt að fá 184 g af Neptuna túnfisk á 75 krón- ur, en túnfiskur þessi er mjög góður í túnfisksalat. Einnig er hálfdós af LibbysÞ ananas á 59 krónur og kvart dósin er á 29 krónur. 1 kg af Amo haframjöli er á 99 krónur, Kjarna appelsínumarmelaði á 98 krónur og Lipton-Earl Grey te á 122 krónur. Mikligarður selur nú gamla góða brauðostinn á 661 krónur kílóið. Þar býðst líka 11 Runkeby safi á 99 krón- ur og Bic rakvélar á 112 krónur. Sparr vörurnar eru á sérstöku til- boðsverði, uppvþottalögurinn er á 69 krónur og þvottaefnið á 359 krónur. í Nóatúni er nú hægt að fá 565 g af Life ananas á 65 krónur og 500 g af blönduðum áVöxtum frá Diadem á 119 krónur. Vörur frá Sól eru enn á sérstöku tilboðsveröi, 900 g franskar kartöflur á 259 krónur og sexpakki af Trópí á 279 krónur. Sælgætisunn- endur geta fengið sex Mars saman í pakka á 209 krónur. Þessa vikuna hafa staðið yfir svo- kallaöir íslenskir dagar í verslunum Hagkaups, en þeim lýkur á morgun. Eru það 66 íslensk fyrirtæki sem hafa kynnt framleiðslu sína fyrir við- skiptavinum verslananna. Átak þetta á rétt á sér á margan hátt og vonandi undirstrikar það enn frem- ur að varan þarf ekkert að vera neitt verri þó að hún sé íslensk. Það er- lenda er ekki alltaf best og sumt sem framleitt er hér á landi er fullkom- lega samkeppnishæft við innfluttar vörur. -GHK Okt. Nóv.Dos. Jan.Feb.MarsAprfl Maf

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.