Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1990, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1990, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 23. MAI 1990. 7 Sandkom Fréttir Ekkert vinstrisnakk í Víkurbiaðinu fráHúsavíkraá lcsaklausuum fimdahöld fjár- málaráðherra þarnyrðra.Sá erritarklaus- unaveltiríþví sambandi vöngum yfir því að orðið „vinstri" sé nánast horfið úr stjórn- málaumræðu á islandi. Efþað er ein- hvers staðar að ftnna þá sé þaö einna helst á síðum Moggans. En um fund Ólats Ragnars segir Víkurblaðið: „Þannigtókst ÓlafiRagnari Gríms- sy ni að tala í tæpa tvo tíma á fundi hér síðastliðinn sunnudag án þess að taka sér orðið „vinstri" i munn. í máli hans var allt löðrandi afjafnað- armönnum, félagshyggjufólki og jafnvel jafnaðaröflum en aungvir vinstrimenn. Villta vinstrið er horfið í hina miklu miðju." Peningar í handboltanum Nú gangaþær sögurtjöllum hærra. sem Sandkornsrit- ariselurekki dýraraenhann keypti.aði'in- hverjirfræknir handknattleiksmenn fái Ijárf úlgur. misstórar þó, fyrir þaö að koma heim og leika með þessu félagi en ekki hinu. Þannig heyrðíst því fleygt að handboltaslání nokkur sem fer að koma heim muni fá heilar fimm milljónir beint og óbeint fyrir að koma heim að leika með ákveðnu félagi. Þessi hármál munu vera opin- bert leyndarmál í handboltageiran- um en þar sem viðkvæmnin og „hyst- erían" er óskapleg vegna þeirra skirrast skríbentar við að nefna ákveðin nöfn og félög í þessu sam- hengi. Hins vegar er fullyrt að meiri peningur sé í sportinu en menn grunar. Skammstöfunar- Þegarlands- málablöðunum erflettblasa oftarenekkí viðmanniein- kennilegarfyr- irsagnirsem virðastekki eiga neitt skylt við íslensku. Þannig mátti lesa þessa fyrirsögn í Degi á fóstudaginn: „Hvorki smekklegt eöa eðlilegt að MSKÞ hafi áfram umboð fyrir MS - segir forstjóri MS.“ Nú er þessi ekki sú versta cn nógu slæm samt. Svo gerist það ósjaldan að skýr- ing á skammstöfun í fyrirsögn fæst ekkimeðlestrifréttarinnar. Hvernig í ósköpuntun eiga lcsendur Dags, sem eíga behna annars staðar en á hlað- inu fyrir utan ritstjórnarskrifstofur blaðsins, að skilja svona lagaö og hvernig í ósköpunum er hægt að ætl- ast til þess að áhugi maima vakni við að lesa einhverjar torráðnar skamm- stafanir í fyrirsögnum? Á Suðurnesj- um mega menn lika passa sig á þess- um endalausu SSS-skammstöfimum. Kókosbollur Konanokkur komeíttsinntil geðlæknisog vildi fá vottorð uppáaöhún væri alveg jés w normal. Læknirinn rannsakaði konuna hátt og lágt og gaf siðan út umbeöið vottorð. Hann sagðí að konan gæti verið hin ánægð- asta þar sem hún væri cðlilegri en flest fólk. En hvers vegna kom konan og vildi vottoröið. Hún gaf þá skýr- ingu að maðurinn sinn héldi því fram að eitthvað meira en lítið væri að á „efstu hæðinni" hjá konunni. „Hugs- iö yður læknir, það er bara vegna þess að mér finnst kókosbollur svo góðar." „Kókosbollur," átlæknirinn eftir konunni. „Mér finnst þær líka æðislega góðar," Viðþessi orðlifnaði heldur betur yfir konunni sem sagði: „Komíð heim meðmérlæknir.égá fullan fataskáp af kókosbollum. ‘ ‘ Umsjón: Haukur L. Hauksson Erfiðleikar hjá páfagaukaræktendum: Úrkynjun herjar á stofninn hér Áhugamenn um páfagauka og páfagaukaræktendur hafa þungar áhyggjur af ástandi stofnsins hér á landi. Mun úrkynjun herja á stofn- inn og eru sumar tegundir í útrým- ingarhættu. Áhugakona um páfagauka úr skáldastétt sagði í samtali við DV að ungur páfagaukur sem hún hefði átt og var af Dísartegund hefði skyndi- lega dottið niður dauður, langt fyrir aldur fram. Sagðist hún rekja ótíma- bært dauðsfall hans til erfðagalla sem komið hefði upp vegna skyld- leikaræktunar. Þá sagði hún að áber- andi væri að svokölluðum hvítingj- um (albinóum) hefði fjölgaö veru- lega. Þeir eru ófrjóir sjálfir. Þá mun vera orðið mjög erfitt að fá páfagauka því ræktendum hefur fækkað mikið að undanfórnu vegna Slippstöðin á Akureyri: margvíslegra erfiðleika við ræktun. Að sögn Hans Larsen, verslunar- stjóra í Dýraríkinu, þá er eftirspum eftir páfagaukum nú mun meiri en framboðið. Hann sagðist þó eiga von á því að það lagaðist með haustinu. Hans sagðist geta tekiö undir áhyggjuraddir þeirra sem óttast úr- kynjun enda hefði hér verið nánast sami stofn páfagauka í 15 til 18 ár. Lagafrumvarp sem felur í sér að innflutningur verði leyfður, með ströngum skilyrðum þó, var til með- ferðar á Alþingi en tókst ekki að ljúka afgreiðslu málsins. Aö sögn Brynjólfs Sandholts yfirdýralæknis á þetta lagafrumvarp að fela í sér aö hægt verði aö flytja inn fugla til und- aneldis en þá verður að geyma í ein- angrunarstöð áður. -SMJ Páfagaukum hefur fækkað mikið undanfarið og kenna menn um skyldleika- ræktun og úrkynjun. veiðasjóður smíði „sænska skipsins“? Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Svo kann að fara að ekki verði úr því að Slippstöðin á Akureyri smíði nýtt skip fyrir útgerðarmann afla- skipsins Þórunnar Sveinsdóttur í Vestmannaeyjum eins og samningar höfðu verið gerðir um. Samningar höfðu tekist milli aðila um að Shppstöðin keypti skrokk- hluta sem sænsk skipasmíðastöð var byrjuð að smíða fyrir annað fyrir- tæki í Vestmannaeyjum, en sænsku • skipasmíðastöðinni mun hafa veriö lokað vegna fjárhagserfiðleika. Átti að flytja skrokkhlutanna til Akur- eyrar og smíða síðan skipið þar fyrir útgerðarmann Þórunnar Sveinsdótt- ur og taka aflaskipið upp í. Það nýjasta í málinu mun vera að Fiskveiðasjóður vill lána þessum að- ila í Eyjum til að kaupa skipið sem Slippstöðin hefur nær lokið smíði á, en ekki hefur tekist að selja vegna þess að Fiskveiðasjóður hefur neitað kaupendum um fyrirgreiðslu í tví- gang til þessa. Skipið hentar hins vegar ekki þessum aðila í Eyjum. Grænt ljós hefur hins vegar ekki fengist frá Fiskveiðasjóði um fyrir- greiðslu til kaupa á „sænska skip- inu“. Krían farin aö verpa: Vorið óvenju- snemma á ferð - segir Guömundur Ólafsson „Ég held að það sé óhætt að segja að vorið sé óvenjusnemma á ferðinni hérna. Sonur minn fann kríuegg niðri í fjöru enda er komiö mikið af kríu. Við sjáum að hún er farin að vinna við hreiðurgerð og lætur ófrið- lega“ sagði Guðmundur Ólafsson bóndi á Höfn í Melasveit í Borgar- ftrði. Guðmundur sagði að vorið hefði verið gott í sunnanverðum Borgar- firði þó enn væri mikill snjór á Snæ- fellsnesi eins og hann varð var við í ferð þangað nýlega. Guðmundur sagði að krían væri óvenju snemma á ferðinni og menn væru að vonast eftir góðu sumri. -SMJ KOSNINGASKRIFSTOFUR sjAlfstædisflokksins ÍREYKimriK mm Nes- og Melahverfi:| Sími: 626485 Skrifstofa: Austurstræti lOa Starfsmenn: Kolbrún Ólafsdóttir Helga Jónsdóttir Kosningastjóri: Þórólfur Halldórsson Veslur- og Midbœjarh verfi:WS$B&SSÍk Sími: 626492 Skrifstofa: Austurstræti löa Starfsmaður: Brynhildur Andersen Kosningastjóri: Kristján Guðmundsson Austurbœr og Nordurmýri: Sími: 626487 Skrifstofa: Austurstræti lOa Starfsmaður: Dagný Lárusdóttir Kosningastjóri: Kári Tyrfingsson Hiíða- og Holtahverfi:\ Sfmi: 83295 Skrifstofa: Valhöll, 2. hæð Starfsmaður: Árni Jónsson Kosningastjóri: Jóhann Gíslason Sími: 83571^*’ Skrifstofa: Valhöll, 2. hæð Starfsmaður: Unnur Ingimundardóttir Kosningastjóri: Ásgeir Hallsson Smáíbúða-, Bústaða- og Fossv.hvetfi: Sími: 82055 Skrifstofa: Valhöll, I. hæð Starfsmaður: Sóphus Guðmundsson Kosningastjóri: Óðinn Geirsson Laugamesh verfi:SMMHIMI&WS88MlSE8i Sími: 82328 Skrifstofa: Valhöll, I. hæð Starfsmaður: Hrafnhildur Brynjólfsdóttir Kosningastjóri: Garðar Ingvarsson Langholtshveifi:\ Sími: 679308 Skrifstofa: Faxafeni 5 Starfsmaður: Linda Róbertsdóttir Kosningastjóri: Lúðvík Friðriksson Árbœjar-, Seláshverfi og Ártúnsholt:M Sími: 672162 Skrifstofa: Hraunbæ 102b Starfsmaður: Ásta Gunnarsdóttir Kosningastjóri: Jóhannes Óli Garðarsson Breiðholtshveifi:\_________ Bakka- og Stekkjahverfi Sími: 670297 Skóga- og Seljahverfi Sími: 670349 Fella- og Hólahverfi Sími: 670359 Skrifstofa: Þönglabakka 6 Starfsmenn: Bertha Biering Hjördís Alfreðsdóttir Kosningastjóri: Jón Sigurðsson Sími: 675349 Skrifstofa: Gunnlaugsbúð, Hverafold 1-3 Starfsmaður: Ragnhildur Sandholt Kosningastjóri: Agúst ísfeld U tankjörstaðaskrifstofa:\____ Opið kl. 9:00-22:00 alla daga Skrifstofa: Valhöll, 3. hæð Starfsmenn: Kristinn Antonsson Sími: 679054 Gísli Jensson Sími: 679032 Kosningastjóri: Óskar V. Friðriksson Sími: 679053 Kosningaskrifstofurnar eru opnar alla virka daga milli kl. 16:00 og 22:00 og um helgar milli klukkan 14:00 og 18:00. Frambjóðendur Sjálfstœðisflokksins verða til viðtals á kosningaskrifstofunum alla daga frá kl. 17:30 til 19:00 og um helgarfrá kl. 14:00 til 15:30. Nánari upplýsingar á kosningaskrifstofunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.