Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1990, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1990, Síða 10
MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 1990. SUZUKI SWIFT 1990 Glœsilegt útlit, ötrúlega spameytinn. Verð frá 613.000,- $ SUZUKI SUZUKIBÍLAR HF. SKEIFUNNI 17 • SlMI 68 51 00 Útlönd_______________________________________________dv Sjálfstæðisbaráttan í Litháen: Efnahagsþving- anir segja til sín Laus staða DEILDARSTJÓRA UPPLÝSINGA- OG FÉLAGSMÁLADEILDAR TRYGGINGASTOFNUNAR RÍKISINS Staöa deildarstjóra upplýsinga- og félagsmáladeildar Tryggingastofnunar ríkisins er laus til umsóknar. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist stofnuninni fyrir 15. júní 1990. Heilbrigðis- og tryggingamálaráöuneytið veitir stöö- una. TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS Kjörstaðir viö borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík þ. 26. maí 1990 verða þessir: Álftamýrarskóli, Árbæjarskóli, Austurbæjar- skóli, Breiðagerðisskóli, Breiðholtsskóli, Fellaskóli, Foldaskóli, Langholtsskóli, Laug- arnesskóli, Melaskóli, Miðbæjarskóli, Sjó- mannaskóli, Ölduselsskóli. Auk þess verða kjördeildir í Elliheimilinu Grund, Hrafnistu og Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12. Kjörfundur hefst laugardaginn 26. maí kl. 9.00 árdeg- is og lýkur kl. 23.00. Athygli er vakin á því að ef kjörstjórn óskar skal kjós- andi sanna hver hann er með því að framvísa per- sónuskilríkjum eða á annan fullnægjandi hátt. Yfirkjörstjórn mun á kjördegi hafa aðsetur í Austur- bæjarskólanum og þar hefst talning atkvæða þegar að loknum kjörfundi. Yfirkjörstjórnin í Reykjavík Guðmundur Vignir Jósefsson Helgi V. Jónsson Guðríður Þorsteinsdóttir - forsetar Eistlands og Lettlands hitta Gorbatsjov Forsetar tveggja Eystrasaltsríkja, Eistlands og Lettlands, ræddu í gær við Gorbatsjov Sovétforseta um sjálf- stæðisbaráttuna viö Eystrasalt. í fréttum í Eistlandi var skýrt frá því að á fundinum hefði Gorbatsjov ítr- ekað þá kröfu sína að öll þrjú Eystra- saltsríkin dragi til baka sjálfstæðis- yfirlýsingar sínar og láti af baráttu sinni fyrir fullveldi. Haft var eftir Arnold Ruutel, forseta Eistlands, að fundurinn heföi ekki verið ánægju- legur. Barátta Eystrasaltsríkjanna þriggja fyrir endurheimt sjálfstæðis síns fer nú harðnandi. Talið var að , Litháar myndu ef til vill fallast á að fresta gildistöku sjálfstæðisyfirlýs- ingar sinnar frá 11. mars til aö auð- velda samningaviðræður við Moskvustjórnina. En ráðamenn í Litháen og flestir fulltrúar á þingi lýðveldisins hafa vísað slíkum hug- myndum alfarið á bug. Þing lýöveld- isins hefur enn til umfjöllunar hug- myndir um tilslakanir af hendi Lit- háa til að auðvelda samningaviðræð- ur og hefur enn ekki samþykkt næsta skref í sjálfstæðisbaráttunni. Sovét- forseti setur sem skilyrði fyrir við- ræðum að Litháar falli frá sjálfstæð- isyfirlýsingunni eða fresti gildistöku hennar að sinni. Efnahagsþvinganir Moskvustjórn- arinnar eru farnar að segja alvarlega til sín í Litháen. Skrúfað verður fyrir heitt vatn og rafmagn til flestra íbúa lýðveldisins í lok vikunnar og verða aöeins sjúkrahús og einstaka fyrir- tæki sem fá að njóta þess eilítið leng- ur. Litháar hafa nú mátt sæta efna- hagslegum þvingunum af hendi Moskvu í tvo mánuði. Reuter Efnahagsþvinganir Sovétmanna eru farnar að segja alvarlega til sín í Litháen. Skrúfað verður fyrir heitt vatn og rafmagn til flestra íbúa lýðveldisins í lok vikunnar og þá verður flestum verksmiðjum lokað vegna skorts á oliu og bensíni. Símamynd Reuter Jóhannes Inga Backman Svavar Guðmundur LISTA- OG MENNINGARHÁlfÐ G-listans ííslensku Óperunni Uppstigningardag, 24. maíkl. 20.30. Húsið opnar kl. 20. Kynnir: Ragnheiður Ásta Pétursdóttir, auk Sigurjóns Péturssonar. Stutt ávörp flytja: Ástráður Haraldsson, Guðrún Kr. Óladóttir, Sig- þrúðurGunnarsdóttir, Birna Þórðardóttir, GuðrúnÁgústsdóttirog SvavarGestsson. Tónlist og söng flytja: Kolbeinn Bjarnason, Bjartmar Guðlaugsson, Inga Backman, Ólafur Vignir Albertsson, EinarGunnarsson, Hólm- fríður Sigurðardóttir, Hreiðar Pálmason og djass-kvartett Guðmundar Ingólfssonar. Eftirhermur: Jóhannes Kristjánsson Ljóðalestur: Viðar Eggertsson Maddama Karen Krusenstjerna og frú Soffía Eggerts komaíheimsókn. FJOLMENNUM A BARATTUHATIÐINA Bjartmar Birna Sigþrúður Viðar GERUM REYKJAVÍK AÐ FÉLAGSLEGRI FYRIRMYNDARBORG!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.