Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1990, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1990, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 1990. 11 Útlönd Sovétríkin: Vaxandi effna- hagsörðugleikar Margir vestrænir útflytjendur fara nú fram á aö sovésk inn- flutningsfyrirtæki greiði vörur sinar aö fullu áður en þær eru fluttar til Sovétríkjanna, að því er fram kom i fréttum Reuter- fréttastofunnar. Mörg fyrirtæki, sem eiga viðskipti við Sovétríkin, hafa þegar stöðvaö vörusending- ar þangað, samkvæmt sktjðana- könnun á vegum Reuters. í sömu könnun kom fram að flest þessi fyrirtæki hafa ekki fengið greitt fyrir viðskipti i sex mánuði. Kaupsýslumenn segja að skort- ur á erlendum gjaldmiðli í Sovét- rikjunum sé ein ástæða fyrir því hversu greiðslur fyrir vörur hafi dregist. Að auki segja þeir að í kjölfar þess að sovésk fyrirtæki geti nú átt viöskipti beint við vestræn fyrirtæki panti mörg þeirra meira en þau geti ráðið við að greiða. Sovésk yfirvöld vinna nú aö því að leysa sívaxandi efnahags- vanda þjóðarinnar en ráðgjafar- nefnd Sovétforseta samþykkti í gær áætlun um umbætur í efna- hagsmálum sem felur í sér breyt- ingar frá miðstýringu til mark- aðshagkerfis. Áætlunin, sem verður lögð fyrir þing Sovétríkj- anna í dag, hefur verið harðlega gagnrýnd af sovéskum almenn- ingi sem og mörgum þingmönn- um löggjafarþingsins. Hvað hún felur í sér nákvæmlega er ekki ljóst en í útvarpi í Moskvu í gær var skýrt frá því að hún gerði ráð fyrir aö verö á matvælum tvö- faldaðist. Talið er að slík verð- hækkun á brauðvörum komi til framkvæmda strax 1. júlí næst- koraandi. Flest það sem gert er ráð fyrir í áætlun forsetanefndar- innar kemur ekki til fram- kvæmda fyrr en í fyrsta lagi í haust. Róttækir þingmenn á sovéska löggjafarþinginu segja að al- menningur muni ekki sætta sig við eins miklar verðhækkanir eins og gert er ráö fyrir í áætlun- inni Router * Lyktarlaus * Allícíní auðugur * Hi-Potency * Lægra verð .© ISLENSKA VÖRUSALAN BORGARTÚNI 28 - 104 REYKJAVÍK SÍMI: 624522 Útsölustaðir: apótekin, heilsumarkaðir, stærri matvöruversl. Urval Ráðherra barinn Árás á einn af ráðherrum Ion IUes- cus, forseta Rúmeníu, í gær skyggði á gleði forsetans yfir stórsigri í kosn- ingunum sem fram fóru á sunnudag- inn. Síðdegis í gær sendi Petre Roman forsætisráðherra tvo ráðherra til miðbæjarins í Búkarest til að ræða við stjórnarandstæðinga í hungur- verkfalli. Annar ráðherranna, Sever Georgescu, þurfti hins vegar að taka til fótanna er mótmælendur hræktu á hann og kýldu hann. Maður nokk- ur er sagöur hafa tekið ráðherrann hálstaki. Þegar búið var að telja nær 90 pró- sent atkvæða í gær hafði Iliescu hlot- ið 86 prósent. Samkvæmt spám virt- ist sem flokkur forsetans, Þjóðfrels- ishreyfingin, myndi hljóta 261 sæti af 387 í neðri deild þingsins og 80 af 119 sætum í efri deild. Næststærsti flokkurinn á þingi verður Lýðræðis- bandalag Ungverja með um 7 prósent atkvæða. Bandalagið er flokkur ung- verska minnihlutans í Rúmeníu. Frjálslyndir hlutu 6 prósent atkvæða en Bændaflokkurinn 2 prósent. Ásakanir um víðtækt kosninga- svindl héldu áfram að berast í gær. Bandarísku eftirhtsmennimir til- kynntu Bush forseta að kosning- arnar hefðu verið heiðarlegar en það var skoðun margra annarra eftirlits- manna að þær hefðu ekki farið fram samkvæmt settum reglum og þá helst vegna reynsluleysis en ekki vegna þess að um skipulagt kosning- asvindl hefði veriö að ræða. Alþjóðlega Helsingsforsnefndin gagnrýnir framkvæmd kosning- anna. Einn fulltrúa hennar, Torstein Hjellum, prófessor í Bergen, sagði á fundi með fréttamönnum í Búkarest í gær að nefndin efaöist um að kosn- ingarnar hefðu veriö leynilegar og frjálsar. Nefndi hann sérstaklega framkvæmd kosninganna á lands- byggðinni í Moldavíu, Olteníu og Craiovu. í kjörstjórnum þar voru á mörgum stöðum einungis fulltrúar Þjóðfrelsishreyfingarinnar en engir frá öðrum flokkum. Auk þess tóku eftirlitsmenn Helsingforsnefndar- innar eftir því að á mörgum stöðum voru margir inni á kjörstað samtím- is. Sums staðar var þetta fólk sem borgarstjórar höfðu valið en annars staðar voru hermenn inni. Reuter og NTB Simamynd Reuter Aðstoðarmenn rúmenska ráðherrans Severs Georgescu bjarga honum undan árásarmönnum. Norður- og Suður-Yemen sameinast Bandaríkin lýstu í gær yfir ánægju sinni meö sameiningu Norður- og Suður-Yemen og kváðu hana myndu stuðla að stöðugleika og öryggi á Arabíuskaganum. Norður-Yemen, sem hefur verið hallt undir Vesturlönd, og Suður- Yemen, sem verið hefur sósíalískt, sameinuðust formlega í gær eftir þrjú hundruð ára aðskilnað og verða íbúar hins nýja ríkis nær þrettán milljónir. í síðasta mánuði tóku Bandaríkin upp stjórnmálasamband á ný við Suður-Yemen eftir þrjátíu ára hlé. En ríkið var áfram á lista Bandaríkjanna yfir þær þjóðir sem halda hlífiskildi yfir hryðjuverka- mönnum. Talsmaður bandaríska utanríkis- ráðuneytisins, Margaret Tutwiler, sagði í gær að Bandaríkin myndu nú endurskoða afstöðu sína en lagði jafnframt á það áherslu að ekkert ríki yrði tekið af listanum fyrr en það hætti stuðningi við hryðjuverka- menn. Uppstokkun í Varsjárbandalagið er ekki lengur ógnun við ríki Vestur-Evrópu, að mati vamarmálaráðherra aðildar- ríkja Nato, Atlantshafsbandalagsins, sem nú funda í Brussel. Ráðherrarn- ir samþykktu víðtæka endurskoðun á stefnu bandalagsins og þörfum þess í ljósi breyttra aðstæðna í Evrópu en í austurhluta álfunnar gengur nú yfir bylgja lýðræðis og frelsis. Þá samþykktu ráðherrarnir einnig að falla frá langtímatakmarki um þriggja prósenta árlega aukningu framlaga til vamarmála í aðildar- ríkjum bandalagsins en það takmark var fyrst sett árið 1977. Á fundinum kom fram að Bretar eru efins um að samningur um fækk- Nato un hefðbundinna vopna í Evrópu, en þær viöræður fara nú fram í Vín, liggi fyrir í árslok eins og vonir standa til. Tom King, varnarmála- ráðherra Bretlands, sagði að vegna hikandi afstöðu Sovétríkjanna til sameiningar þýsku ríkjanna gæti svo farið að slíkur samningur yrði ekki undirritaður á þessu ári. Reuter KflíUlM&AC/ Tlssues MÝKT ER OKKAR STYRKUR HEILDSÖLUB. JOHN LINDSAY H.F. Veiðimenn, nú geta allir eignast hinar óviðjafnanlegu OR- VIS flugustangir á sérstöku af- mælisverði vegna afsláttar frá verksmiðju á 10 ára afmæli ORVIS á íslandi og 5 ára afmæli Veiðivonar. 25 ára Dæmi: Orvis HLS-9 lína8. Kr. 36.140. Afmælisverð kr. 28.900. ábyrgð eiðivi Langholtsvegi 111, sími 687090. Orvis 13,6 lína 10. Kr. 48.515. Afmælisverð kr. 37.810. AFMÆLISTILBOÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.