Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1990, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1990, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 23. MAI 1990. dv Lesendur Blönduósingar gangast undir próf Snorri Bjarnason, Blönduósi, skrifar: Á liðnu kjörtímabili breyttist Blönduós í bæ. í viðtali við oddvita kom þá fram að litlu breytti þetta fyrir staðinn en sagði í spaugi að við fengjum þó bjórinn - sem og varð. Öllu gamni fylgir nokkur alvara. Nýráðinn bæjarstjóri lýsti því yfir í viðtali að hann væri því fylgjandi að hér yrði opnuð áfengisútsala og taldi það mikinn ávinning og sérstaklega fjárhagslega. - Hefur þá sennilega haft í huga lögreglu og sjúkrahús! Bæjarstjórn hefur ákveðið að kosið verði um hvort opnuð skuli áfengis- útsala. Vegna þess að ég lenti í því með afstöðu minni í áfengismálum að vera skipaður formaður áfengis- varnanefndar, þá datt mér í hug að framkvæma smá skyndipróf. - Ég fór til vinkonu minnar í Lionessu- klúbbnum og spurði hvort þær myndu ekki vilja fylgja eftir góðum árangri Lionsmanna á vímuvarnar- daginn, þann 5. maí sl., meö því að birta áskorun um að hafna áfengisút- sölu. - Hún taldi það af og frá, því um það væru svo skiptar skoðanir! Þær höfðu hka kvöldið áður komið saman og fengið sér í glas og fagnað árangri hðins vetrar. - Einkunn 0 stig! Þá frétti ég að samband kvenfélaga A-Hún. ætlaði að halda sinn árlega fund 12. maí. Ég skrifaði þeim fallegt bréf og fór með það til formannsins sem tók mér vel og þakkaði mér fyr- ir að leggja þetta erindi inn til þeirra. Formaðurinn las bréfiö og óskaði eftir umræðum. - Eftir því sem ég hefi frétt ræddu nokkrar konur ein- arðlega um að taka afstöðu eins og í bjórmálinu og skora á bæjarbúa að hafna áfengisútsölu. Aðrar lögðust þungt á móti. Útkoman varð sú að þær skyldu þegja. - Einkunnin á prófinu: fall. Það verður að teljast lélegt, en þetta var nú skyndipróf! - Nú eru aðeins fáir dagar þar til Blönduósingar gangast undir sitt próf og vonandi koma þeir stoltir með sín skírteini, sem alþjóð fylgist með, og þurfa ekki að skammast sín. Reiðhjól fyrir borgarstjóra? Jóhannes J. skrifar: í auglýsingu frá Nýjum vettvangi sá ég að sá flokkur vill fá reiðhjól fyrir borgarstjóra. Mér fmnst þetta stórkostlega sniðugt. - Reykjavik yrði örugglega fyrsta borgin í Evrópu þar sem reiðhjól hlýtur slíka virðing- arstöðu! Það þyrfti ekki matartíma og gæti verið til viðtals allan sólarhringinn. Þá gætum við einnig fengð svona tíu reiðhjól til að stjórna landinu, ef þessi tilraun í borginni gengi að ósk- um. - Fyrir umhverfisráðherra gæt- um við svo vel fengið fjallahjól. Burt með biðlistana - 500 íbúðir á ári í Reykjavík eru þúsundir fólks á biðlistum eftir húsnæði til að full- nægja frumþörf mannsins fyrir þak yfir höfuðið. í þeim hópi eru um 1350 aldraðir hjá Reykjavíkur- borg einni, hundruð öryrkja hjá þeirra samtökum og þúsundir námsmanna sem hýrast í leiguhús- næði af ýmsu tagi um alla borg. Hjá Búseta er talan um 2000 manns. Reykjavíkurborg er með langan biðlista eftir leiguhúsnæði og alhr þekkja biðröðina hjá Verkamanna- bústöðum. Biðröðin skiptir þús- undum. Engin stefna hjá borginni Þetta ástand má skrifa á reikning borgarinnar að stærstum hluta. Ekkert stórátak hefur verið gert í Reykjavík í húsnæðismálum í tvo áratugi. Það litla sem gert hefur verið er á vegum ýmissa félagssam- taka og dugar skammt. Hið fræga lóðaframboð fyrir alla hefur snúist um einbýlishúsalóðir sem eru hættar að ganga út. Fjölbýlishúsa- lóðum er fyrst og fremst úthlutað til „réttra“ aðila og í mjög takmörk- uðu magni. Leiguíbúöir borgarinn- ar eru orðnar gamlar og úrsér- gengnar flestar enda viðhald í lág- marki og borginni til skammar. Það má ætla að húsnæði þyki vera ölmusa á stundum en ekki sjálfsögð mannréttindi. Engar bitastæðar áætlanir hafa verið gerðar í áratugi um úrbætur og þegar stærstu árgangar íslands- sögunnar streymdu út á vinnu- markaðinn og unga fólkið þurfti htlar íbúðir þá var helst hægt að fá lóðir fyrir 2-3 hundruð fermetra einbýlishús. Gamla fólkið hefur svo verið rekið í dýrar eignaríbúðir sem hefur kostað það aleiguna og oft á tíðum meira. Leiguíbúðir eru nánast bannorð. Byggingarfélag ungs fólks - Byggung, sem stofnað var í Heimdalli á sínum tíma, er horfið. Stórmerk lög frá Alþingi Á síðustu klukkutímum i störfum Alþingis á nýliðnu starfsári varð að lögum frumvarp um nýskipan félagslega húsnæðiskerfisins sem valda mun tímamótum í húsnæðis- KjaUarinn Reynir Ingibjartsson Er á framboðslista Nýs vettvangs málum. Leiguíbúðir eru lagðar að jöfnu við eignaríbúðir sem kostur ... og með því viðurkennt að sér- eignarstefnan, sem fylgt hefur ver- ið í gegnum þykkt og þunnt frá upphafi borgarbyggðar, gengur ekki lengur sem allra lausn. Hinir ýmsu kostir hafa verið felldir í eina heild og sveitarfélög gerð mun ábyrgari fyrir húsnæðismálunum, hvert á sínum stað, en nú er. Jafn- framt skapast mun betri tækifæri fyrir félagasamtök að byggja og reka húsnæði en verið hefur til þessa. Þessi nýju lög munu því kalla á aðgerðir af hálfu sveitarfé- laganna og auðvelda mjög að út- rýma biðlistunum eftir húsnæði. 2000 íbúðir í Reykjavík næstu 4 ár Undanfarin ár hefur nánast þurft að berja á forsvdrsmönnum Reykjavíkurborgar til að sækja um lán til kaupleiguíbúða og umsóknir í skötulíki. Litli gamli skammtur- inn af verkamannabústöðum hefur verið látinn nægja þrátt fyrir tí- falda biðröð... Nú dugar ekki leng- ur að draga lappirnar. Strax í sumar þarf að gera vand- aða áætlun um byggingu hundraöa íbúða á ári fyrir næstu 4 ár. Verð- ugt mark væri 500 íbúðir á ári en byggingarkostnaður þeirra ahra er svipuð upphæð og búið er að verja í ráðhúsiö og svokallað snúnings- hús á verðlagi þessa árs eða nærri 2600 milljónir. Hér verða borgin og hin ýmsu félagasamtök að stilla saman strengi sína og það á að vera sjálf- sagt mál aö félögin fái úthlutað lóð- um beint frá borginni og þurfi ekki að sitja uppi með „gæluverktaka". Þar sem það á við á borgin að sjá um þjónusturými og sjálf á borgin að leggja fram úr eigin sjóðuin verulega upphæð til að mæta því sem vantar upp á opinber lán sem verða i mörgum tilfellum um 90% byggingarkostnaðar í félagslega húsnæðiskerfinu. 250 milljónir á ári, svo einhver tala sé nefnd, er líklega helmingur af þeirri upphæð sem fasteignasal- ar fá í sinn hlut ár hvert fyrir íbúðaskipti og ekki nema hluti af hönnunarkostnaði ráðhússins væntanlega. Fyrir ungt fólk í dag eru hús- næðismálin eitt stærsta máhð. Her- skylda húsnæðisins er því miður enn í fullu gildi og heimilið gert að hornreku. Burt með biðlistana hjá ungum sem öldnum. Reynir Ingibjartsson „Gamla fólkið hefur svo verið rekið í dýrar eignaríbúðir sem hefur kostað það aleiguna og oft á tíðum meira. Leiguíbúðir eru nánast bannorð.“ 13 Nýr umboðsmaöur á STOKKSEYRI frá 22.5. ’90 Kristrún Kalmansdóttir Garði, sími 31302. Sjáandinn Suzanne Gerleit Námskeið Helgina 26-27. maí nk. í sal Templara „Hallarseli“ í Þarabakka, Mjóddinni (Vouge-húsinu), kl. 10-17. Upplýslngar í síma 675443 SUMARÚTSALA JJJÖIIJJl í FULLUM GANGI Rýmum fýrir nýjum vörum Sjónvörp Verð nú 20tommu litsjónvarpstæki m/fjarst. 37.950 21" litsjónvarpstæki, flatur skjár, m/fjarst. 49.950 21" stereo, flatur skjár, m/fjarst. 55.950 Verð áður Örbylgjuofnar 26 lítra, 600 vött Ferðatæki 872 stereo tvöfalt segulband ^ 2 200 873 stereo, lausir hátalarar, tvöfalt + segulb. -j 1 500 891 stereosegulbandoggeislaspilari 19 950 Útvarpsklukkur 428 m/tvöföldum vekjara Bílaútvörp m/segulbandi 523 20 vött 555 50 vött m/minni p11 Geislaspilari 292016 bita geislaspilari Bílahátalarar 40 vött, innfelldir 60 vatta boxhátalarar 100 vatta boxhátalarar 150 innfelldir 1.610 2.650 3.600 5.450 6.300 9-520 Tónjafnari fyrirbíla Finlux sjónvörp Aðeins örfá tæki á sértilboði 24" stereo m/teletext 28" stereo m/teletext verð nú 83.653 89.950 Hljómtækjasett TEC 2518 Magnari 50 vött, útvarp/tónjafnari tvöfalt kassettutæki, geislaspilari, plötuspilari, 2x35W hátalari. Fákafeni 11, sími 688005

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.