Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1990, Page 17
16
MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 1990.
fþróttir
Tekur Jordan
við Celtic?
Forráðamerm skoska knattspyrnu-
liðsins Celtic eru nú orðnir þreyttir
á slöku gengi liðsins undanfarin ár
og breytingar eru fyrirhugaðar hjá
liöinu.
Erkifjandi Celtic, Glasgow Rangers, hefur
veriö alls ráðandi í skosku knattspyrnunni
undanfarin ár og unnið skoska meistaratitil-
inn íjórum sinnum síðustu fimm árin. Þetta
líkar forráðamönnum Celtic eðlilega illa og
nú eru taldar miklar líkur á því að Joe Jord-
an, fyrrum leikmaður meö Leeds, Manchester
United, AC Milan, Verona, Southampton og
skoska landsliðinu, taki við liðinu af Billy
McNeiU.
Joe Jordan lék 52 landsleiki fyrir Skota og
býr yfir míkilli reynslu sem atvinnumaður til
margra ára. Hann er hins vegar tiltölulega
nýr af nálinni sem ffamkvæmdastjóri. Hann
hefur stjómað málum hjá Bristol City síðasta
keppnistímabil og náð frábærum árangri með
liðið. Bristol City færðist upp um deild og leik-
ur í 2. deild næsta vetur. Ef Jordan fer til
Celtic er talið liklegt að Bobby Gould, stjóri
Wimbledon, taki viö stjóminni hjá Bristol
City.
-SK
• Joe Jordan kom
Bristol City upp í 2.
deild i vetur og nú eru
líkur á því að hann
fari tii Celtic.
George Graham
í vondum málum
George Graham, framkvæmdastjóri Arsenal, er 1 slæmum málum
þessa dagana. Óhófleg kvensemi framkvæmdastjórans virðist ætla að
draga dilk á eftir sér. Yngismær nokkur sem Graham ku hafa farið
illa með notaði meirihluta sjöundu síðu enska blaðsins Sunday Mirr-
or um síöustu helgi til að ausa úr skálum reiði sinnar og fer fljóðið
ekki fögrum orðum um framkvæmdasfjórann.
Graham átti í ástarsambandi við 26 ára gamla hnátu, Paula Milton
(sjá mynd), og meðan á sambandi þeirra stóð og allt lék í lyndi lagði
Graham það í vana sinn að tryggja sér trúnað meyjarinnar með alls
kyns fagurgala og engín önnur kona átti að vera til í hans heimi.
En annað kom á daginn. Paula Milton trúði ekki sínum eigin augum
á dögunum er hún las um náið samband framkvæmdastjórans og
bandariskrar stúlku sem heitir Arianne Accristo í Sunday Mirror.
Ungfrú Milton trylltist og ber Graham ekki vel söguna í enska blaö-
inu. Hún segist meöal annars ekki geta skiliö það hvemig Graham
geti skammað og refsað leikmönnum Arsenal á sama tíma og hann
svívirði kvenfólk i löngum bunum. Þá segir Paula Milton eirrnig aö
það geti svo sem verið aö Arsenal sé fyrrverandi meistari í ensku
knattspyrnunni en framkvæmdastjóri liðsins sé ekkert ofurmenni í
rekkjunni.
Ekki er líklegt að samband Grahams og bandarísku stúlkunnar
Accristo verði langlíff. Hún er fráskilin og fyrrverandi eiginmaður
hennar segir að komist hún að einhverju óhreinu í sínu ástarsam-
bandi pakki hún samstundis niður og kveðji.
Hvort umtal stúlkunnar um Graham á við rök að styðjast skal ósagt
látið en víst er aö umfjöllun Sunday Mirror mun ef til vill skaða imynd
framkvæmdastjórans út á viö og jafnvel hins fræga félags einnig.
-SK
• Paula Miiton, 26 ára ensk yngismær, ber George Graham fram-
kvæmdastjóra Arsenal ekki vel söguna eins og fram kemur í grein-
inni hér að ofan. Framkvæmdastjórinn er á innfelldu myndinni.
Bo Johansson valdi sterkan hóp:
Atvinnumenn
uppistaða
landsliðsins
- fyrir leikinn gegn Albaníu
Bo Johansson, landsliðsþjálfari í
knattspyrnu, tilkynnti á blaða-
mannafundi í gærkvöldi hvaða 16
leikmenn skipa landsliðshópinn fyr-
ir landsleikinn gegn Albaníu í for-
keppni Evrópukeppni landsliða þann
30. maí næstkomandi. Þetta verður
200. landsleikur íslands í knatt-
spyrnu. í landsliðshópnum eru tíu
leikmenn sem leika með erlendum
félagsliðum en liðið kemur fyrst
saman til æfmga laugardaginn 26.
maí. Þetta verður fyrsti leikurinn í
Evrópukeppninni á þessu ári en ís-
lendingar og Albanir hafa aldrei
mæst á knattspyrnuvellinum áður.
„Ég sá Albani leika gegn Svíum í
september í fyrra og kom þá í ljós
aö þeir eiga sterku landsliði á að
skipa. Albanir hafa sýnt miklar
framfarir á síðustu fjórum árum
þannig að við eigum fyrir höndum
erflðan leik. Á góðum degi á þó ís-
lenska liðiö góða möguleika á sigri,“
sagði Bo Johansson á blaðamanna-
fundinum í gærkvöldi.
Albönum hefur gengið erfiðlega að
sigra á útivöllum en í síðustu 29 leikj-
um liðsins hafa 28 leikir tapast en
einu sinni hefur liðinu tekist að ná
jafntefli. Nokkrar breytingar hafa
orðið á liöinu síðan í undankeppni
heimsmeistarakeppninnar og hafa
ungir og óreyndir leikmenn komið í
staö reyndari leikmanna.
16 manna landsliðshópurinn sem
Bo Johansson valdi í gærkvöldi lítur
annars þannig út en landsleikjafjöldi
hvers leikmanns er aftast í sviga:
Bjarni Sigurðsson........Valur (33)
Birkir Kristinsson.............Fram (3)
Arnór Guðjohnsen.... Anderlecht (29)
Atli Eðvaldsson..Genclerbirligi (60)
Eyjólfur Sverrisson...Stuttgart (1)
Guðmundur Torfason.St. Mirren (23)
Guðni Bergsson......Tottenham (31)
Gunnar Gíslason........Hácken (45)
Krisfján Jónsson..........Fram (10)
Ólafur Þórðarson.........Brann (34)
Ormarr Örlygsson.................KA (6)
21 árs landsliðið
valið gegn Albaníu
- fyrir undankeppni ólympíuleikanna
íslenska landsliðið í knattspymu
skipað leikmönnum 21 árs og yngri
leikur gegn Albaníu á Kópavogsvell-
inum á þriðjudaginn kemur, 29. maí.
Leikurinn er liður í undankeppni
ólympíuleikanna. Auk íslands og
Albaníu leika Spánverjar, Frakkar
og Tékkar í þessum riðli. Marteinn
Geirsson, þjálfari liðsins, hefur valið
16 leikmenn fyrir þennan leik og eru
þeir eftirtaldir:
Anton Markússon............Fram
Bjarki Pétursson..............ÍA
Bjarni Benediktsson......Stjarnan
Grétar Steindórsson......:...UBK
Haraldur Ingólfsson............í A
Helgi Björgvinsson.......Víkingur
Ingólfur Ingólfsson......Stjarnan
Kristján Finnbogason...........KR
Kristján Halldórsson...........ÍR
Ólafur Pétursson..............ÍBK
Ríkharður Daðason............Fram
Rúnar Kristinsson..............KR
Steinar Adolfsson...........Valur
Valdimar Kristófersson...Stjarnan
Þormóður Egilsson..............KR
-JKS
England tapaði heima
- fyrir Uruguay, 1-2, í gærkvöldi
Enska landsliðiö í knattspyrnu
beið í gærkvöldi sinn fyrsta ósigur í
17 leikjum þegar það tapaöi, 1-2, fyr-
ir Uruguay á Wembley-leikvangin-
um í London.
Leikurinn þótti lítið fyrir augað.
Uruguay lék stífan varnarleik en átti
stórhættulegar og vel útfærðar sókn-
ir inn á milli. Santiago Ostolaza kom
gestunum yfir í fyrri hálfleik en John
Barnes jafnaði snemma í þeim síð-
ari. Það var síðan Jose Perdomo sem
skoraði sigurmark Uruguay.
Loksins vann Argentína leik
Heimsmeistaralið Argentínu vann í
gær sinn fyrsta sigur í tíu mánuði
þegar það lagði ísraelsmenn að velli
í Tel Aviv, 1-2. Sigurinn var þó langt
frá því að vera sannfærandi.
Diego Maradona kom Argentínu
yfir á 35. mínútu eftir skemmtilega
samvinnu við Jorge Burruchaga en
Tal Banim jafnaði fyrir heimamenn
aðeins tveimur mínútum síöar.
Claudio Caniggia, sem kom inn á sem
varamaður, skoraði síðan sigur-
markið eftir sendingu frá Burruc-
haga um miðjan síðari hálfleik.
-VS
Lukic til Leeds Utd
Leeds keypti í gær markvörðinn
John Lukic frá Arsenal fyrir eina
milljón punda eða 100 milljónir ís-
lenskra króna. Lukic hefur leikiö
með Arsenal í sjö ár en þangað kom
hann einmitt frá Leeds á sínum tíma.
Lukic er þriðji markvörðurinn í
ensku knattspymunni sem kostar
eina milljón punda eða meira. Arsen-
al keypti á dögunum David Seaman
frá QPR fyrir 1,3 milljónir punda og
í fyrra keypti Crystal Palace mark-
vörðinn Nigel Martyn frá Bristol
Rovers fyrir eina milljón.
Leeds leikur í 1. deild á ný næsta
vetur eftir átta ára dvöl í 2. deild og
hyggst greinilega freista þess að
halda sæti sínu þar.
-VS
• Eyjólfur Sverrisson, sem leikur með Stuttg-
art í Vestur-Þýskalandi, er í hópnum sem Bo
Johansson valdi í gær.
Pétur Ormslev........................Fram (34)
PéturPétursson.....................KR(39)
Sigurður Grétarsson................Luzern (28)
Sævar Jónsson.......................Valur (54)
Þorvaldur Örlygsson.........Nott. Forest (9)
Landsleikurinn verður á Laugardalsvellinum
og hefst kl. 20.00. Heiðurgestur á leiknum verður
frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands. Ásgeir
Sigurvinsson og kona hans munu einnig verða
sérstakir gestir KSÍ á leiknum og mun Ásgeir
verðaheiðraðurafKSÍ. -JKS
Islandsmótið:
2. umferðin
hefst á morgun
Önnur umferð 1. deildar íslandsmótsins í
knattspyrnu hefst á morgun með þremur
leikjum.
í Vestamannaeyjum leika heimamenn
gegn Þór frá Akureyri og hefst viðureign
þeirra kl. 20. Eyjamenn fengu skell í 1.
umferð gegn Fram og koma áreiðanlega
grimmir til leiks á morgun. Þórsarar töpuðu
einnig í sínum fyrsta leik gegn nýliöum
Stjörnunnar og ætla sér örugglega að gera
betur en í þeim leik.
Fram og ÍA leika væntanlega á Valbjarn-
arvelli kl. 16 þar sem ekkert verður leikið
á aðalvellinum í Laugardal fyrr en að lokn-
um landsleik íslands og Albaníu síðar í þess-
um mánuði. Framarar sýndu það í Eyjum
að lið þeirra er geysisterkt og þó svo að tveir
leikmenn liðsins séu frá vegna meiðsla
koma sterkir menn í staðinn.
Skagamenn voru óheppnir gegn Vals-
mönnum á Hlíðarenda á sunnudaginn og
áttu skilið að minnsta kosti annað stigið,
Haldi liðið áfram á sömu braut er það til
alls líklegt. Alexander Högnason, hinn
sterki leikmaður ÍA, var í leikbanni gegn
Val og styrkir hann örugglega Skagaliðið.
Stjarnan úr Garðabæ leikur sinn fyrsta
heimaleik í 1. deild gegn KR. Fer leikurinn
væntanlega fram á grasvelli þeirra Garð-
bæinga og hefst kl. 20. Stjörnumenn komu
nokkuð á óvart þegar liðið sigraði Þór á
Akureyri í fyrstu umferðinni. Liðinu var
spáð falh af förystumönnum félaganna í 1.
deild og vilja Stjörnumenn örugglega af-
sanna þá spá.
KR-ingar, nýkrýndir Reykjavíkurmeistar-
ar, voru ekki sannfærandi í sigurleik liðsins
gegn Víkingi um síðustu helgi. Rúnar Krist-
insson mun ekki leika með KR þar sem
hann var rekinn af velli gegn Víkingi. Á
síðasta ársþingi KSÍ var reglunum breytt á
þá vegu að leikmaöur sem fær rautt spjald
fer sjálíkrafa í eins leiks bann en í gömlu
reglunum fór leikmaður ekki í leikbann fyrr
enáhádegiáfóstudegi. -GH
Keppt um
Ameson-skjöldinn
Á morgun veröur haldið golfmót á Grafar-
holtsvellinum en keppt verður um hinn svo-
nefnda Arneson-bikar. Ræst veröur út frá
klukkan níu og verður leikinn 18 holu höggleik-
ur með forgjöf.
MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 1990.
17
Iþróttir
Sport-
stúfar
Lið Dinamo Tirana
varð um helgina al-
banskur meistari í
knattspyrnu í 15. sinn
þó svo að félagið hafi tapað sið-
asta leik sinum í deildinni gegn
Partizani, 2-0. Tirana hlaut sam-
tals 50 stig en Partizani varð í
öðru sæti með 49 stig. Eins og
kunnugt er þá leikur íslenska
landsliðið í knattspyrnu sinn
fyrsta leik í forkeppni Evrópu-
keppni landsliða gegn Albaníu á
Laugardalsvellinum 30. maí og
má fastlega gera ráð fyrir að
nokkir leikmenn úr þessum
tveimur liðum verði í albanska
liðinu.
Enn kaupir
Juventus leikmenn
ítalska liðið Juventus
sem á dögunum
tryggði sér sigur í
,...y UEFA keppninni i
knattspyrnu gekk í gær frá kaup-
um á Paolo Di Canio frá Lazio.
Kaupverðið á Di Canio var um
370 milljónir íslenkra króna. Ju-
ventus sló heimsmet á dögunum
þegar félagið keypti Roberto
Baggio frá Fiorentina á 1,3 millj-
arða íslenskra króna og fyrr í
vetur keypti félagið Thomas
Hássler frá Köln á 600 milljónir
króna.
Portland marði sigur
á Phoenix Suns
Portland Trailblazers
og Phoenix Suns léku
í fyrrinótt fyrsta leik
sinn í undanúrslitum
NBA-deildarinnar í körfuknatt-
leik. Lið Portland lék á heima-
velli og sigraði naumlega, 100-98,
í mjög jöfnum leik. Portland
tryggði sér sigur þegar 17 sekúnd-
ur voru til leiksloka. Clyde Drexl-
er var aö vanda stigahæstur hjá
Portland og skoraði 20 stig en hjá
Phoenix var Champers stiga-
hæstur með 29 stig og Kevin Jo-
hnson með 20 stig.
Tennismót í Fossvogi
FILA tennismótið verður haldið
á Víkingsvelli í Fossvogi dagana
31. maí til 4. júní. Skráning í
mótið er í síma 621130 frá kl. 13
til 16 á daginn fyrir 26. maí.
Gullitt framlengir samning
sinn hjá AC Milan
Hollenski landsliðs-
maðurinn Ruud Gul-
litt hefur skrifað undir
nýjan þriggja ára;
samning við ítalska félagsliðið
AC Milan. Gullitt sem lítið hefm*
getað leikið knattspyrnu á þessu
ári vegna meiðsla sagði eftir að
samningur hans var i hööi að
hann væri mjög ánægður með að
vera áfram hjá AC Milan. Hann
sagöi ennfremur að Milan liðið
væri frábært lið sem hjálpað
hefði honum mikið þegar hann
átti við meiðslin að stríða. AC
Milan verður i sviðljósinu i kvöld
en þá leikur Mðið til úrslita 1 Evr-
ópukeppni meistaraliða gegn
portúglaska hðinu Benfica og fer
leikurinn fram i Vínaborg.
Golfmót á Hólmsvelli i
Leiru um helgína
Opna Dunlop mótið í
golfi verður haldið á
Hólmsvelli í Leiru á
laugardag og sunnu-
dag og hefst keppni kl. 8. Mót
þetta er 2. stigamótið sem gefur
stig til landsliðs og gert er ráð
fyrir aö Jóhann Benediktsson,
landsliðseinvaldur í golfi, velji
eftir mótið þrjá keppendur til að
taka þátt á Evrópumeistaramót-
inu í golfi. Skráning í mótið verð-
ur i golfskálanum á Hólmsvelh á
flmmtudag og fóstudag frá kl. 16
til 19.
inn af velli í leik KR gegn Víkingi í
fyrstu umferö 1. deildarinnar í knatt-
spyrnu síðasta laugardag, og brot
bans var flokkað undir ofsafengna
framkomu, sem getur þýtt allt að sex
leikja bann.
Rúnur löglegur
á ný19. júní
Rúnar verður því ekki með KR í
næstu fjórum leikjum liðsins í 1.
deild - gegn Stjörnunni í Garðabæ
annað kvöld, gegn ÍBV á KR-velli 2.
júní, gegn Þór á Akureyri 6. júní og
gegn Fram á KR-velli 12. júní. Hann
getur byrjað að spila á ný með vest-
urbæjarliöinu þegar þaö mætir FH
þann 19. júní.
Mál Rúnars var það eina sem lá
fyrir aganefnd á fyrsta fundi hennar
á keppnistímabilinu í gær.
Þess skal geta að sú breyting hefur
verið gerð á starfsreglum aganefndar
að nú fara leikmenn sjálfkrafa í bann
í næsta leik eftir að þeir hafa verið
reknir af velli, í stað þess að bannið
taki gildi á hádegi næsta fóstudag
eftir fund nefndarinnar. Samkvæmt
gömlu reglunum heföi Rúnar getað
leikið gegn Stjörnunni en síðan farið
í bann.
-VS
Rúnar Kristinsson, landsliðsmað- fjögurra leikja bann af aganefnd
ur úr KR, var í gær úrskurðaður í KSÍ. Rúnar var sem kunnugt er rek-
• Rúnar Kristinsson var í gær úrskurðaður af aganefnd KSÍ í fjögurra
leikja bann. Hann leikur að nýju gegn FH 19. júní næstkomandi.
Rúnar dæmdur
4 leikja bann
- verður löglegur á ný gegn FH 19. júní
Hacken
tapaði í
úrslitum
Gunnar Gunnarsson, DV, Sviþjóó:
Djurgárden varð í gærkvöldi
sænskur bikarmeistari í knatt-
spyrnu með því að sigra Hácken
frá Gautaborg, 3-0, á heimavehi
sínum i Stokkhólmi. Gunnar
Gíslason gat ekki leikið með Hác-
ken vegna meiðsla og þulur
sænska sjónvarpsins sagði fyrir
leikinn að það væri skarð fyrir
skildi.
Djurgárden leikur í úrvalsdeild
en Hácken er í 2. sæti í suður-
riðli 1. deildar. Munurinn var þó
lengi vel lítill á liðunum en ódýrt
mark undir lok fyrri hálfleiks sló
Hácken út af laginu. Mikael
Martinsson skoraði tvö marka
Djurgárden og Krister Nordin
eitt.
Fylkir áfram
í bikarnum
Fylkir sigraði Grindavík, 2-1, í
fyrstu umferð bikarkeppni KSÍ á
Árbæjarvellinum í gærkvöldi.
Guðmundur Baldursson skoraði
fyrir Fylki í fyrri hálfleik og
Kristinn Tómasson bætti síðan
öðru marki við. Einar Daníelsson
náði að laga stöðuna fyrir Grind-
víkinga og þeir sóttu mjög undir
lok leiksins en tókst ekki að jafna
metin.
-VS
I NYJA IÞROTTAHUSINU KAPLAKRIKA
HAFNARFIRÐI
í kvöld kl. 20.30
Gestahljómsveit
Miðasala í öllum hljómplötuverslunum og vídeóleigum
Steinars og Skífunni Kringlunni
Miðaverð 1.500 kr. Börn yngri en 6 ára fá frítt inn í fýlgd með fullorðnum