Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1990, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 1990.
25
Tippað á tólf
Geir Kristjánsson tekur við tæpiega þriggja milljóna króna ávísun frá Há-
koni Gunnarssyni, frsmkvæmdastjóra íslenskra getrauna. DV-mynd E.J.
Tólfurnar loða
við Sæbjörgu
Hreinsunarátaki íslenskra get-
rauna lauk á laugardaginn með þre-
fóldum potti auk Sprengipotts. Heild-
arvinningar voru 3.655.721 króna.
Sem fyrr voru úrslit snúin. Einungis
ein tólfa fannst. Það var fyrrverandi
markvörður Fram, Geir Kristjáns-
son sem vinnur í fiskbúðinni Sæ-
björgu, sem náði tólfunni ásamt
tveimur vinnufélögum sínum. Geir
var heldur betur á heimavelli er
hann tippaði, því hann setti get-'
raunaseðilinn sinn i sölukassa í
Framheimilinu í Safamýri. Á seðlin-
um voru 17 r-aðir. Ein þeirra var með
tólf réttum en að auki voru þrjár ell-
efur á seðlinum. Geir og félagar hans
Jakob Júlíusson og Garðar Einars-
son hljóta því samtals 2.945.606 krón-
ur í vinning.
Úrslit voru ekki mjög snúin. Helst
kom sigur Stjörnumanna í Garðabæ,
á Þór á Akureyri á óvart. Einnig
voru tipparar óhressir með sigur
AaB á Næstved. Það er frekar líklegt
að Vestmannaeyingar hafi tippað á
sitt lið, Akurnesingar á sitt lið, og
Víkingarnir úr Hæðargarði á sitt lið.
Það gafst ekki vel að þessu sinni en
þessi lið munu auðvitað vinna marga
sæta sigra í sumar.
Fyrsti vinningur var 2.874.598
krónur. Annar vinningur 781.123
krónur skiptast milli 44 raða með
ellefu rétta og hlýtur hver röð 17.752
krónur. Nú verður hlé á starfsemi
íslenskra getrauna þangað til Heims-
meistarakeppnin í knattspyrnu hefst
8. júní næstkomandi.
Fylkismenn fengu flest áheit í síð-
ustu viku 42.023 raöir. Framarar
fengu áheit 28.143 raða. Á tímabilinu
1. júlí 1989 til 1. maí 1990fenguFylkis-
menn flest áheit fyrir 1.048.720 raðir.
Fram fékk áheit 981.866 raða, K.R.
fékk áheit 621.103 raða,‘Valur fékk
áheit fyrir 440.059 raðir og Í.A. fékk
áheit fyrir 417.623 raðir.
Það skiptir okkur máli að í borgarstjórn Reykjavíkur sitji
kona sem er traustur fulltrúi félagshyggju og vinstri stefnu.
Guðrún Ágústsdóttir er slíkur fulltrúi. Hún er þekkt úr
kvennabaráttunni, fyrir störf sín að umferðar- og samgöngu-
málum og menningarmálum. Þá hefur hún unnið dyggilega í
þágu bárna og unglinga og aldraðra Reykvíkinga. Við undirrit-
aðar skorum áykkur, Reykvíkingar góðir, að tryggja Guðrúnu
Ágústsdóttur setu í borgarstjórn Reykjavikur.
Kristbjörg Kjeld
leikkona
Lena Bergmann
meinatæknir
Adda Bára Sigfúsdóttir
veðurfræðingur
Guðrún Hallgrímsdóttir
matvælafræðingur
Sjöfn Ingólfsdóttir
bókavörður
Guðrún Stephensen
leikkona
Margrét Guðnadóttir
prófessor
Olga Guðrún Árnadóttir
rithöfundur
Anna Guðrún Þórhallsdóttir
beitarþolsfræðingur
Silja Áðalsteinsdóttir
bókmenntafræðingur
Sigurveig Sigurðardóttir
hjúkrunarfræðingur
Kristrún Ágústsdóttir
húsmóðir
Svava Jakobsdóttir rithöfundur
Guðrún Ásmundsdóttir
leikkona
I fyrsta skipti:
Sameiginlegur
getraunaseðill
vrvL -mj
Vins-fri
Alþýðu-
bandalagid
Sérstakur heimsmeistaraseðill hef-
ur verið tekinn í notkun. Nýr hug-
búnaður fyrir íslenskar getraunir
var vígður í gær. Seðillinn er með
þrettán leikjum. íslendingar eru með
sameiginlegan pott með Dönum og
Svíum og tippa á tvo seðla á meðan
á riðlakeppninni á HM stendur. Búist
er við geysistórum potti og hafa
menn tippað á að potturinn verði
eitthundrað milljónir króna.
Þetta er í fyrsta skipti í sögu heims-
ins, að tippaö er á sameiginlegan seð-
il, þar sem þrenns konar gjaldmiðill
er notaður. Verð raðarinnar er mið-
að við tvær sænskar krónur sem
gerir tuttugu íslenskar krónur.
Danir og Svíar opna fyrir sölu hjá
sér í næstu viku. íslendingar geta
tippað til klukkan 14.55 laugardaginn
9. júní næstkomandi, en Danir loka
fyrir sölu hjá sér miðvikudaginn 6.
júní og Svíar 7. júní. Heildarupphæð
vinninga í Danmörku og Svíþjóð ætti
að liggja fyrir föstudaginn 8. júní.
Það er til mikils að vinna og má
búast við mikilli þátttöku á íslandi.
Leikir fyrra seðilsins eru:
Sovétríkin-Rúmenía
Ítalía-Austurríki
Bandaríkin-Tékkóslóvakía
Brasilía-Svíþjóð
V-Þýskaland-Júgóslavía
Kosta Ríka-Skotland
Frantz Howitz, framkvæmdastjóri Dansk Tipstjeneste AS, Hákon Gunnars-
son, framkvæmdastjóri íslenskra getrauna og Richard Frigren, fram-
kvæmdastjóri AB Tipstjánst, búast viö mikilli þátttöku tippara, enda freista
eitt hundrað milljónir margra. DV-mynd E.J.
helgi og því sé það vis kostur.
Þrír leikir eru leiknir í 1. deildinni
íslensku 22. júlí: Í.A.-Valur, Víking-
ur-K.R. og Fram-Í.B.V. Þaö skyldi
þó aldrei vera að íslensk hð tylli sér
á danska getraunaseðilinn.
- ekkibara heppni
England-írland
Belgía-S Kórea
Uraguay-Spánn
Argentína-Sovétríkin
Júgóslavía-Kólombía
Kamerún-Rúmenía
Austurríki-Tékkóslóvakía.
Tippa Danir á íslenska leiki?
Danskir knattspyrnumenn fara í
frí yfir hásumarið. Dansk Tipstjen-
este hefur þá þurft að grípa til þess
ráðs aö nota leiki úr TOTO keppn-
inni á getraunaseðla sína. Reyndar
eru TOTO leikirnir leiknir beinlínis
fyrir getraunafyrirtæki víða um Evr-
ópu, á meðan frí er hjá þeim. Dönsk
hð taka þátt í TOTO keppninni.
Nú hafa komiö upp erfiðleikar hjá
Dönum. TOTO leikir 21. og 22. júlí
næstkomandi, hafa verið færðir til
og því eiga Danir í erfiðleikum meö
að fá nógu marga leiki á getraunaseð-
ilinn sinn þá helgi. í danska Tips-
bladet hefur verið bent á að leiknir
séu leikir á Norðurlöndunum sömu