Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1990, Blaðsíða 32
AS KO
I Ð
KZL
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
MIÐVIKUDAGUR 23. MAI 1990.
Kókið hækkar
um 6 prósent
Braut rúður í
Alþingishúsinu
Leitin í Ölfusá:
Stór krani til
Selfoss í morgun
Leitarmenn hófu aftur leit að bíl-
flakinu i Ölfusá í morgun. Einn af
stærstu krönum landsins kom til
Selfoss frá Reykjavík árla morguns
og mun hann aðstoða við leitina.
Að sögn lögreglu hafa hugsanlegir
^staðir verið lóðaðir út í ánni á síð-
ustu dögum. Þrátt fyrir það er ekkert
hægt að fullyrða ennþá hvort þar sé
um að ræða bíhnn sem fór út í ána
nýlega þegar tveir menn létust.
Björgunarsveitarmenn slysavarna-
félaganna og fleiri taka þátt í leitinni
í Ölfusá í dag. _órr
DV kemur næst út íostudaginn 25.
maí.
Smáauglýsingadeildin er opin í
dag, miðvikudag, til kl. 22.00.
Lokað á morgun, uppstigningar-
'^?fag.
Síminn er 27022.
LOKI
Þeir hjá Aðalverktökum
hafa vitað af hækkuninni
á kókinu.
„Það er um sex prósent hækkun frá
verskmiðjunni að ræða. Viö höfum
Wkki hækkað verðið frá því í október
síðastliðnum og þessi hækkun er
lægri en almennar verðhækkanir á
tímabilinu," sagði Bæring Ólafsson,
sölustjóri hjá Vífilfelli, við DV.
Kóka kóla hækkar nú um sex pró-
sent á verðlista. Að sögn Bærings
þýðir það að tveggja lítra flöskur
kosta 190-195 krónur, eins og hálfs
lítra um 175 krónur, dós 65-70 og
þessi litla klassíska um 45 krónur
innihaldið. Þessar tölur miðast við
25-30 prósent álagningu kaupmanns-
ins sem getur verið hærri. -hlh
Maður um þrítugt slapp á harða-
hlaupum frá eftirlitsmanni viö Al-
þingishúsið í gærkvöldi eftir að hafa
brotið tvær rúður og kastað steinum
að anddyri hússins. Rúðurnar sem
brotnuðu eru á norðurhlið Alþingis-
hússins, andspænis fatageymslum
þingmanna. Maðurinn kastaði einn-
ig steini að aðalhurðinni en hann
lenti á rimlaverki. Lögreglan leitar
nú að manninum.
Erlendur Sveinsson aðalþingvörð-
jjr sagði í samtali við DV í morgun
áð tveir sjónarvottar hefðu verið að
þessum skemmdarverkum. Því
stæðu vonir til þess að maðurinn
myndi nást enda hefur lýsing verið
gefin á honum til lögreglu. -ÓTT
Þjóðarsáttin í kjarasamningum rofin:
Verkamenn Aðal
verktaka fengu 23
nrÁQAnt hnÞlflrim
|#l Vvvl I m I liArlVIVMI I
Samkomulag tókst í gær milli
verkamanna og vinnuvélastjóra
annars vegar og Islenskra aðal-
verktaka hins vegar. Launadeila
hefur staðið nokkurn tima og í gær
var tillaga trá Aðalverktökum bor-
in upp á tveimur fundum - hjá
verkamönnum og vinnuvélastjór-
um. Áöur haíði verið gert sam-
komulag við iðnaöarmenn.
Verkamenn samþykktu tilboðið
með 40 atkvæðum gegn 20 og
vinnuvélastjórar samþykktu með
naumum meirihluta - eða fjögurra
atkvæða mun.
- að mati starfsmanna sem hafa samþykkt
„Við metum þessar hækkanir
sem 23 prósenta hækkun á yfir-
vinnuna cn dagvinna hækkar ekki.
Yfirvinnutaxtamir sjálfir hækka
ekki heldur er verkstjórum uppá-
lagt að skrifa fleiri tíma en unnir
eru til að ná fram hækkununum
án þess aö taxtar hækki. í því sam-
komulagi sem gert hefur verið
verður tilfærsla á vinnutíma -
sams konar og búið var að semja
um við iðnaðarmenn," sagði einn
starfsmanna íslenskra aðalverk-
taka.
„Þetta verður að vera þeirra mat.
En þetta er ekki svo gott. Þetta er
innan þess ramma sem hefur verið
til viðmiðunar. Starfsmenn hafa
haft rétt til að vinna sér inn bónusa
og fleira á sumrin og þetta er í því
formi. Meira hef ég ekki um þetta
að segja aö sinni," sagði Ólafur
Thors, starfsmannastjóri íslenskra
aðalverktaka.
„Ég vii ekkert segja um þetta fyrr
enn ég hef heyrt í Stefáni Frið-
finnssyni en hann hefur verið okk-
ar tengiliður í þetta fyrirtæki,“
sagði Einar Oddur Kristjánsson,
formaður Vinnuveitendasambands
íslands, þegar DV ræddi við hann
í morgun. Islenskir aðalverktakar
eru í Vinnuveitendasambandinu.
„Það eru miklar malbikunar-
framkvæmdir framundan, meðal
annars á flugbraut. Það er fyrirséð
að það þarf að vinna mikla yfir-
vinnu og því var staða fyrirtækis-
ins erfið. Við vitum líka að Varnar-
liðinu er illa við allar vinnudeilur
og Aðalverktakar hafa eflaust verið
undir miklum þrýstingi um að
semja við okkur,“ sagði starfsmað-
ur íslenskra aðalverktaka.
-sme
Gjaldþrot Nesco:
Nálgast milljarð í
töpuðum kröfum
Höggmyndir Ásmundar Sveinssonar draga jafnan að sér marga ferðamenn. Nokkrir ferðamenn vitu verk hans
fyrir sér í gær og er að sjá að höggmyndin Móðurást hafi vakið sérstaka hrifningu þeirra. Voru móðirin og barn-
ið mynduð í bak og fyrir með þar til gerðum græjum. DV-mynd GVA
Nesco fyrirtækin fjögur, sem eru
til gjaldþrotameðferðar, munu
hvergi nærri koma til með að eiga
fyrir kröfum. Láta mun nærri að
kröfur séu um einn milljarður.
Stærst fyrirtækjanna var Nesco
framleiðslufélag. Á núgildandi verð-
lagi eru kröfur í það þrotabú rúmar
700 milljónir. Skiptafundir voru
haldnir í tveimur fyrirtækjanna fyrr
í vikunni. Samtals voru kröfur í þau
110 milljónir króna.
Eignir eru nánast engar í öllum
fjórum tilfellunum. Rannsóknarlög-
reglan vinnur nú að rannsókn um
hugsanleg undanskot eigna og eins
hvort kröfuhöfum hafi verið mis-
munað. Stærsta fyrirtækið, Nesco
framleiðslufélag, á stórar kröfur á
hin fyrirtækin en þau eiga lítið eða
ekkert þannig að þaö er fátt sem
fæst upp í þær kröfur.
Kröfur framleiðslufélagsins á Nes-
co Laugaveg og Neco Xenon eru um
61 milljón. Eignir þeirra þrotabúa
eru nánast engar.
Rannsóknarlögreglan vill ekki
staðfesta hvort rannsóknin hafi leitt
í ljós undanskot eigna.
-sme
*
Veðrið á morgun:
Léttskýjað
og vægt
næturfrost
Á morgun verður hæg breytileg
átt, þurrt og yfirleitt léttskýjað
um allt land. Hiti 2-6 stig norðan-
lands en 7-12 stig syðra að degin-
um. Allvíða má búast við vægu
næturfrosti.
SAFARÍKAR
CRILLSTEIKUR
UrtiJ
Jarlíi
nn
TRYGCVAGÖTU SPRENGISANDI
BILALEIGA
v/Flugvallarveg
91-61-44-00