Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1990, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1990, Page 13
' ■ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 1990. Garðar og gróður um aö gróðurkassar séu steyptir nið- ur í gólfplötu." Garðhúsið stóreykur möguleika á allri ræktun. Vaxtarhraði plantna margfaldast og hægt er að rækta gróður sem vonlaust væri annars. Vegna gróskunnar er því aðalmálið að hafa hemil á gróðrinum þannig að hann verði ekki úti um allt og nreki fólk inn til sín aftur. Fólk verð- ur að átta sig á því að það er ekki síður verið að rækta mannfólkið en plönturnar. Góð loftræsting ,.Það er algjört aðalatriði að loft- ræstingin sé góð og það sé hægt að opna vel út,“ segir Símon Ólafsson húsasmiðameistari. „Maður nýtur ekki sólarinnar í gegnum gler því hitinn verður of mikill og ertandi. Maður er heldur ekki í beinni snert- ingu við náttúruna. Hitasveiflur geta verið mjög miklar inni í svona húsum og því mikilvægt að allt efni og loftræsting sé í lagi. Það skiptir miklu máh hvemig gler- efni er notað, hvort notað er plexí- gler, glært rúðugler eða reyklitað. Húsið þarf að vera úr efni eins og áh eða PVC prófílum sem eru ónæm fyrir hita- og rakasveiflum. Timbur þolir þær mun síður." Garðhúseigandi sem DV talaði við vísaði þessum fullyrðingum alger- lega á bug. Hann er með garðhús úr timhri og sagðist aldrei hafa lent í vandræðum með það og þekkti ekki dæmi um að slík vandræði hefðu komið upp. Þar að auki væri tréverk- Unnið að uppsetningu sólstofu. ið miklu náttúrulegra og hlýlegra og félh því mun betur inn í umhverflð. Til hverra á að leita? Óteljandi leiðir eru mögulegar þeg- ar byggja skal garðhús. Oft er fyrst látið hanna húsið og teikningar fengnar sem síðan þurfa samþykki byggingarnefndar. Þá er rétt að láta bjóða í gluggasmíði og glerverk. Því næst er hugsað um frágang hússins og efni í það og að lokum er talað við smið til að framkvæma verkið. Ráðgjöf um uppsetningu og að- íerðir við hana geta arkitektar og þeir sem selja húsin best gefið. Þá er einnig mjög gott að tala viö garð- skálaeigendur, sjá í hvaða vandræð- um þeir hafa lent og hvað þeir telja að betur mætti fara. Því þótt sérfræð- ingar hafi kannski mestu þekking- una þá eru þeir þó ahtaf að selja sína vöru og þjónustu. Hugguleg sólstofa kostar á við meðal fólksbifreið Verð á huggulegri sólstofu er svip- að og á meðal fólksbifreið. Verðið fer alveg eftir þeim fjármunum og kröf- um sem fólk gerir á sama hátt og sumir keyra um á Benz meðan aðrir eru hæstánægðir með Trabantinn sinn. Þá skiptir miklu máh hversu mikið fólkið vinnur sjálft. Heildarkostnaður fer þó varla und- ir hálfa mihjón. Þegar búiö er að taka saman kostnað við teikningu, undir- stöður, sólstofuna sjálfa, gler, frá- gang, hitalögn, flísalögn og húsgögn getur kostnaðurinn slagað hátt í mihjónina og jafnvel gott betur. -PÍ BLOMAMIÐSTÖÐIN H.F. Leiðbeiningar um meðferð afskorinna blóma. 1. Látið blómin standa stundarkorn í vatni áður en umbúðir eru fjarlægðar. 2. Vasinn þarf að vera vel hreinn, sápuþveginn og síðan skolaður. 3. Næringarefni, seld í blómabúðum, lengja líf blóma. 4. Skerið eða klippið af stöngulenda, áður en blómin eru látin í vasa. Ekki skal brjóta eða merja stöngul- enda. 5. Fjarlægið öll blöð, sem annars lenda í vatni. Þau auka gerlagróður og stytta líf blóma. ' 6. Bætið reglulega í vasann, en skiptið ekki um vatn, ef næringarefni er notað. 7. Geymið blómin á köldum stað um nætur og lengið þannig líf þeirra. 8. Blóm þola ekki beina sól eða dragsúg. Blómamiðstöðin leggur áherslu á góð blóm og sendir þau í verslanir um land allt. Hvernig væri að líta við í næstu blómaverslun, reyna þessi ráð og geyma auglýsinguna. Bætið lífið með biómum Blómamiðstöðin h.f. Stillum hraða í hóf og HUGSUM FRAM A VEGINN! Sælureitur fjölskyldunnar. Garðskálaeigendur segja að notkun gömlu stof- unnar hafi alveg dottið niður eftir að skálinn var byggður og stofan sé því í raun óþörf. IUMFERÐAR 'RAÐ Gullfalleg garðhúsgögn í sumarbústað- ínn, blómagarðinn eða garðstofuna. Sferk og góð. Þau eru litekta og þola að N standa úti allan órsins hring. Seljum n j , einnig bœði lítil og stór blómaker, ein ' i mest seldu blómaker í Evrópu. Gœðavara ó góðu verði. \ 'J ! Þriggja óra ábyrgð. STOLAR, BORÐ LEGUBEKKIR, BLOMAKER, HJOLABORÐ OG FLEIRA 0PIÐTILKL.4 LAUGARDAG (DCí&El • FAXAFEN 12 • SÍMI 38000 • L

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.