Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1990, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1990.
Fréttir
Stuðmenn:
Fá frest til að greiða vask
„Stuömenn hafa frest til 5. október
til aö gera upp vask af rokkhátíðinni
sem haldin var í Húnaveri um helg-
ina, það er hinn lögbundni uppgjörs-
frestur sem allir skattskyldir aöilar
eiga,“ segir Ólafur Ólafsson, lögfræð-
ingur hjá ríkisskattstjóra. Þegar
tíminn verður útrunninn og ef Stuð-
menn hafa ekki gert upp tekur ríkis-
skattstjóri ákvörðun um hvert verð-
ur næsta skref í málinu.
Lauslega áætlað er talið að virðis-
aukaskattur af hátíðinni nemi tæp-
um fjórum milljónum króna.
Fjármálaráðuneytið sendi frá sér
reglugerð þann 9. júní síðastUðinn
og í henni er kveðið á um að inn-
heimtumenn ríkissjóös skuU inn-
heimta virðisaukaskatt af aðgangs-
eyri dansleikja og öðrum samkomum
sem eru tvímælalaust skemmtana-
skattsskyldar. Um miðjan júní sendi
ríkisskattstjóri frá sér tUkynningu tU
allra skattstjóra þar sem segir að
greiða beri vask af útihátíðum um
verslunarmannahelgina.
-J.Mar
italska herskipið San Giorgio lagðist að Ægisgarði í Reykjavikurhöfn á sunnudag og verður hér þar til á fimmtu-
dag. Um borð eru 457 menn, þar af 220 sjóliðsforingjaefni sem eru að fara sina fyrstu þjálfunarferð um Atlants-
hafið. Skipið er almenningi til sýnis í dag og á morgun milli klukkan 16 og 18. Þessi hópur leikskólakrakka kom við
á Ægisgarði til að skoða herskipið í gær. DV-mynd S
VíkíMýrdal:
Langþráður þurrkur
Páll Pétursson, DV, Vtk í Mýrdal'
Það var búin að vera vætutíð í Mýr-
dalnum í þijár vikur samíleytt þegar
breyting varð á fyrir síðustu helgi.
Þá kom langþráður þurrkur. Góður
kafli hafði verið fyrir vætutíðina, þá
álíka langur þurrkkafli.
Nokkrir bændur voru langt komn-
ir eða búnir með heyskap áður en fór
að rigna en einnig voru sumir ný-
byrjaðir eða ekki byijaðir að hirða.
Það hefur verið mikil spretta undan-
farið og orðið tímabært að ljúka
slætti áður en gras fer að vera of
sprottið.
Flestir bændur hér um slóðir unnu
alla verslunarmannahelgina við að
ná inn heyi og nýttu til þess góða
veðrið. Það veit enginn hvað það
endist lengi.
Eimskip hyggst auka
hlutaféð um 86 milljónir
Stjórn Eimskips hefur gert tillögu
um að auka hlutafé félagsins um 86
milljónir króna og efna til hlutafjár-
útboðs á sölu bréfanna. Hluthafa-
fundur hefur verið boðaður 28. ágúst
um þessa tillögu stjórnarinnar.
Heildarhlutafé í Eimskip eftir
þessa 86 milljóna hlutafjáraukningu
verður 930 milljónir króna. Núver-
andi hluthafar hafa forkaupsrétt að
nýju hlutafé en búist er við að um
helmingur hlutafjárins í útboðinu,
43 milljónir, komi til sölu á almenn-
um markaði.
-JGH
Uppfyllingarefni mokað á bila innan við Strákagöngin. DV-mynd Örn
Hjalti Einarsson í Hofi:
Ég þjóf starta ekki jólunum
„Þetta er ekki beint jólaskreyting.
Ég var að fá jóladúka sem er mikil
vinna við. Það getur tekið allt að
þijá mánuði að klára þá. Það stendur
enginn við þetta tíu tíma á dag. Dúk-
arnir eru úr filtefni og á þeim eru
palhettur, perlur og fleira.-Eins var
ég að fá jólasokka og fleira. Ég þjóf-
starta ekki jólunum," sagöi Hjalti
Einarsson, verslunarmaður í Hann-
yrðaversluninni Hofi við Ingólfs-
stræti í Reykjavík.
í síðasta mánuði voru settar jóla-
vörur í glugga verslunarinnar.
Hjalti Einarsson var á árum áður
þekktur handboltamarkmaður með
FH og landsliðinu. Hann var meðal
annars kjörinn íþróttamaður ársins
árið 1971 fyrir unnin afrek í hand-
boltanum.
„Áður fyrr þótti mér engin jóla-
stemning fyrr en ég fann eplalykt,"
sagði Hjalti Einarsson.
-sme
Sigluijarðarhöfn:
Jarðvegsskipti
vegna stálþils
Öm Þórarinsson, DV, Fljótum;
Búið er að vinna fyrir fjórar millj-
ónir króna viö höfnina á Siglufirði
í sumar. Þessu fjármagni var varið
til jarðvegsskipta undir og framan
við væntanlegt stálþil sem vonir
standa til að komið verði fyrir á
næsta ári.
Að sögn Þráins Sigurðssonar
bæjartæknifræðings er búið að
vinna fyrir þá fjárveitingu sem
veitt var til hafnarinnar á þessu
ári. Siglfirðingar vonast til að fá
aukið fjármagn þannig að hægt
verði að setja niður um 60 metra
langt stálþil til vesturs frá togara-
bryggjunni á næsta ári.
Krafa þingflokks sjálfstæðismanna:
Ríkisstjórnin víki
Vegna afnáms kjarasamninga
BHMR og setningar bráðabirgðalaga
hefur þingflokkur sjálfstæðisflokks-
ins sent frá sér ályktun. Þar segir
meðal annars:
„Með handarbakavinnubrögðum
og með því að ganga þvert á gildandi
samninga, sem ríkisstjórnin sjálf
hefur gert, og gegn ítrekuðum eigin
yfirlýsingum hefur hún glatað
trausti viðsemjenda sinna og virð-
ingu þjóðarinnar. Við þessar aðstæð-
ur er það skilyrðislaus krafa þing-
flokks sjálfstæðismanna að ríkis-
stjórnin víki þegar í staö og þjóðinni
verði gefinn kostur á að kjósa á ný
til alþingis svo mynda megi ríkis-
stjórn sem farið geti með stjórn
landsmála á trúverðugan hátt.“
-ÓTT
Jólavörur komnar í glugga verslunarinnar Hof við Ingólfsstræti.
DV-mynd JAK