Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1990, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1990, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1990. Iþróttir Sportstúfar Golfklúbbur Garöa- bæjar vígöi á dögunum nýjan golfvöll og skála viö Vífllsstaöi. Golf- völlurinn er 9 holur en gerð hafa verið drög að 18 holu velli á svæö- inu og verður frekar unnið að því máli í náinni framtíö. Golfklúb- bur Garðabæjar var stofnaður árið 1986 og voru stofnfélagar hð- lega 100 en þá hafði klúbburinn ekkert land til umráða. Á síöasta ári tókust svo samningar við stjórn Ríkisspítala um afnot til 20 ára af Vífilsstaðatúni fyrir starfsemina. Atkinson seldur til Real Sociedad Dalian Atkinson, sem lék meö hði Shefíield Wednesday á síðasta keppnistímabih, hefur verið seldur til spænska 1. deildar hðsins Real Sociedad á 170 mihj- ónir króna, Atkinson er svartur á hörund og leikur í stöðu ffarn- herja og hefur leikið með B- landsliði Englands. Atkinson er þriðji enski leikmaðurinn sem gegnur tíl íiös viö Real Sociedad en fyrir hjá félaginu er John Aldridge og nýlega var Kevin Ric- Iiardsson seldur frá Arsenal til spænska hðsins á 75 milljónir króna, Sounness kaupir Hollending Graham Sounness, fram- kvæmdastjóri hjá skoska knatt- spymufélaginu Glasgow Ran- gers, gekk á dögunum ffá kaup- um á hollenska útherjanum Piet- er Huistra frá Twente Enschede. Huistra er 23 ára og gerði hann tveggja ára samning við skoska liðiö. Hann hefur leikið fáeina landsleiki lýrir Hohand en meiðsli komu í veg fyrir að hann væri valinn í hollenska landsliðið sem lék í heimsmeistarakeppn- inni á Ítalíu. Aleinikov til Lecce ítalska knattspymuliðið Lecce, sem leikur í 1. deildiruii þar í landi, hefur fest kaup á Sovét- manninum Sergei Aleinikov frá Juventus og skrifaði hann undir tveggja ára samning við félagiö. Nýr þjálfari er nú tekinn við störfum hjá Lecce og er það fýrr- um Jandsliðsmaður Pólverja í knattspymu, Zbigniew Boniek. Lecce hafði ákveðið að kaupa rúmenska landsliðsmanninn og Gheroghe Popescu, sem lék í stöðu aftasta varnarmanns í landshði Rúmena á Ítalíu, en hann ákvað að ganga að tilboði hollenska félagsins PSV Eind- hoven. Ingesson til Mechelen Sænski landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Klas Ingesson, hef- ur gert þriggja ára samning við belgíska félagið Mechelen en hann lék áður með Gautaborg í Svíþjóð. Hinn 21 árs Svíi lék aha þrjá leiki sænska landsliðsins í heimsmeistarakeppninni á Ítalíu og vakti þar mikla athygli og voru nokkur ensk lið á hötunum eftir honum þar á meðal Aston Viha, Man. Utd og Arsenal. Bayern Munchen tapaði fyrir liði í 3. deild Bayern Munchen fékk óvæntan skell þegar liðið tapaði fyrir 3. dehdar liöinu Weinheim í fyrstu umferð þýsku bikarkeppninnar í knattspymu á laugardaginn. Leikurinn fór fram á heimavelh Weínheim en síðari leikurinn fer fram á ólympíuleikvanginum í Múnchen. Sigurmark Weinheim kom úr vítaspyrnu sem dæmd var á Júrgen Kohleer, einn af landsliðsmönnum Þjóöverja, á 27. mínútur og þar við sat. ítalir unnu blakkeppnina á friðarleikunum Itaha sigraði í karla- flokki í blakkeppninni á friðarleikunum í Se- attle. ítalir báru sigur-: orð af Sovétmönnum, 3-1. Sovét- menn unnu fyrstu lotuna, 15-9, en töpuðu næstu þremur, 15-7, 15-7 og 15-10. í keppni um þriðja sætið sigruðu heimsmeistarar Kúbumanna hð Bandaríkjanna, 3-0. Gunnar og félagar í efsta sæti Gunnar Gíslason og félagar hans í Hácken eru í efsta sæti í 1. deild sænsku knattspymunnar eftír mikilvægan sigur á Frölunda um helgina. Leiknum lauk með stór- sigrí Hácken sem skoraði 4 mörk gegn einu marki Frölunda. Hác- ken hefur ekki tapað leik á keppnistímbilinu, hefur unnið 8 leiki og gert 7 jafntefli og er raeð 31 stig en Helsingborg og Frö- lunda fýlgja fast á eftir og era með 29 stig. • Karen Sævarsdóttir, sigurvegari í meistaraflokki kvenna á landsmótinu í golfi, fagnar íslandsmeistaratitlinum. Með henni á verðlaunapallinum eru þær Ragnhildur Sigurðardóttir, sem hafnaði í öðru sæti, og Þórdís Geirs- dóttir sem varð þriðja. DV-mynd GK Hraðmót í knattspyrnu Firmakeppni í knattspyrnu fer fram á Víkurvelli, Vík í Mýrdal, 11. ágúst. Uppl. og skráning ísíma 98-71279. Síðasti skráningardagur fímmtudagurinn 9. ágúst. ísland í 5.sæti íslenska drengjalandsliðið í knattspymu hafnaði í 5. sæti á Norðurlandamótinu sem lauk í Finnlandi á mánudag. íslenska liðið sigraði Norð- menn, 2-1, í síðasta leik sínum. Það var hinn stórefnilegi Akur- eyringur, Guðmundur Bene- diktsson, sem skoraði bæði mörk íslenska hðsins eftir að Norð- menn höfðu náð forystunni í leiknum snemma í fyrri hálfleik. Danir urðu Norðurlandameist- arar, hlutu 7 stíg, Englendingar komu næstir með 6 stig, Svíar fengu 5 stíg og Noregur, ísland og Finnland luku keppni með 4 stig en markatalan ákvað sæta- röðina. íslenska liðið stóð sig þokkalega þegar á hehdina er litið. íslend- ingar voru eina þjóðin sem bar sigurorð af Norðurlandameistur- unum, Dönum, og var það mjög glæsilegur sigur. Hins vegar átti hðið einnig slaka leiki eins og 0-4 tapið gegn Englendingum. Þess má geta að Guðmundur Benediktsson, besti maður ís- lendinga á mótínu, varð 3. markahæsti leikmaður keppn- innar. -RR • Bobby Robson, þjálfari PSV Eindhoven og fyrrum landsliðseinvaldur Englei son hefur keypt til hollenska liðsins. Þetta eru þeir Erwin Koeman, Johny Bos Popescu. Tveir Kanar til Hauka „Ég var að fá það staðfest fyrir nokkrum mínútum að til okkar koma tveir Bandaríkjamenn, þjálfari og leikmaöur," sagði Ingvar Krist- insson, formaður körfuknattleiks- deildar Hauka, í samtali við DV í gær. Nokkur hð í úrvalsdeildinni í körfuknattleik hafa nú ráðið th sín erlenda leikmenn og þjálfara og önn- ur era með máhn í vinnslu. Keppnin í úrvalsdeildinni hefst þann 7. októb- er. „Leikmaðurinn, sem kemur th okkar, heitir Mike Noblik og er 25 ára, hvítur og 1,96 metrar á hæð. Hann þykir mjög sterkur varnar- maður og hefur leikið með Maimi háskólanum og verið þar aðstoðar- þjálfari síðustu tvö árin. Þjálfarinn heitir Glenn Thomas og er 27 ára. Hann hefur meðal annars verið þjálf- ari hjá sænska liðinu Alvik og þekk- ir því nokkuð th körfuboltans í Evr- ópu. Viö eram nokkuð bjartsýnir á komandi keppnistímabil en í kjölfar kynslóðaskipta í liðinu geram við okkur ekki vonir um toppsæti næsta vetur,“ sagði Ingvar Kristinsson. Tveir leikmenn, sem léku með Hauk- um í fyrra, verða ekki með liðinu í vetur, þeir Ingimar Jónsson og ívar Webster sem mun leika með UÍA í 1. deild. Frábær sovéskur þjálfari tekurvið Valsliðinu Auk Hauka hafa Valur, Tindastóh og Grindavík gengið að fullu frá sín- um málum fyrir næsta keppnistíma- bil. Sovétmaðurinn Vladimir Obuk- hov mun þjálfa Valshöið en hann á sérlega glæshegan ferh að baki sem þjálfari og þjálfaði meðal annars so- véska landsliðið fyrir fimm árum. Undir hans stjórn varð sovéska hðið Evrópumeistari landsliða 1985 og í 2. sæti á HM1986. Bandaríkjamaður- inn David Grissom, sem lék með Reyni Sandgerði í úrvalsdehdinni í fyrra, mun leika meö Val. • Tékkneskur þjálfari og leikmað- ur eru mættir th Sauðárkróks og Grindvíkingar hafa ráðið th sín leik- mann frá Puerto Rico eins og DV skýrði frá á dögunum. Gunnar Þor- varðarson mun þjálfa hð Grindvík- inga. • ÍR-ingar hafa ekki gengið frá ráðningu leikmanns en heyrst hefur að þeir hafi jafnvel áhuga á að fá Tommy Lee aftur. Jón Jörundsson þjálfar lið ÍR. • KR-ingar hafa ráðið Pál Kol- beinsson sem þjálfara og einhveijar líkur eru á því að Johnatan Bow, sem lék með Haukum í fyrra, leiki með KR. • Suðurnesjahðin, ÍBK og UMFN, hafa ekki enn gengið frá ráðningu leikmanna og þjálfara og sömu sögu er að segja af nýhð^um í Snæfelh í Stykkishólmi. • Þórsarar frá Akureyri höfðu samið við Patrick Releford, sem lék með UMFN í fyrra, en nú heyrast þær raddir að kappinn hafi hætt við ahtsaman. -SK Islandsmet hjá Mörtu í5000 m hlaupi - íslendingar stóðu sig vel 1 Menden og Köln Marta Emstdóttir, hlaupakona úr ÍR, setti nýtt glæshegt íslandsmet í 5000 metra hlaupi á fijálsíþróttamóti í Menden í Vestur-Þýskalandi um helgina. Martha sigraði í hlaupinu og hljóp á tímanum 16:07,% mínútum og bætti eldra met sitt um heilar 15 sekúndur en það var sett fyrir rúmu ári. Hópur 5 frjálsíþróttamanna keppti á mótinu í Menden og einnig í Köln. Gunnlaugur Skúlason, UMSS, náði besta árangri ársins í 3000 m hlaupi, 8:39,58 mín. í 800 m hlaupi kepptu Margrét Brynjólfsdóttir, UMSS, Hulda Pálsdóttir, ÍR, og Lillý Viðars- dóttir, UÍA, Margrét fékk tímann 2:17,43, Hulda 2:18,66 og Lihý 2:23,34. Þetta er besti árangur Margrétar og Huldu. í Köln varð Marta önnur í 3000 m hlaupi og bætti árangur sinn ffá því fyrr í sumar en hún hljóp nú á 9:24,42. Gunnlaugur náði sínum besta tíma í 5000 m hlaupi, 14:51,26, og er það besti árangur íslendings í greininni í ár. -GH/RR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.