Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1990, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1990, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1990. Lesendur Verslunarráö boöar til EB-umræðna: Vandræðaþögn á morgunverðarfundi Magnús Ólafsson skrifar: Okkur íslendingum ætlar seint að hugnast almennir mannasiðir, að ekki sé nú talað um sæmileg hegðun og kurteisisreglur á opin- berum fundum og mannamótum. Ekki vantar það að menn séu kjaft- gleiðir og spámannlegir í kunn- ingjahópi, þá vita menn allt og sjá fyrir hveija lausn fyrir sig og þjóð- félagið. - En þegar þessir sömu menn koma saman á fundum sem þeir jafnvel kaupa sig inn á til að fræðast og leggja fram fyrirspurnir þrýtur kjarkinn og þeir sitja með samanklemmdar varir og hegða sér eins og drengir á fyrstu jóla- skemmtun sinni. Þannig var því farið þegar Versl- unarráð íslands boöaði til eins af morgunverðarfundum sínum ný- lega og ekki ómerkari maður en varaforseti framkvæmdastjómar Evrópubandalagsins var fundar- gestur. íslenskir athafna- og kaup- sýslumenn flykktust á fundinn. - Væntanlega til að afla sér fróðleiks og vitneskju um EB en ekki síður til að láta í sér heyra um þetta bandalag sem getur skipt sköpum um stöðu íslands í verslun og við- skiptum. Því var reiknað með að menn Varaforseti framkvæmdastjórnar EB, Frans Andriesen. Náði ekki að vekja áhuga íslenskra kaupsýslumanna á morgunverðarfundi Verslunar- ráðsins. myndu, strax að loknu framsögu- erindi varaforsetans, biöja um orð- ið og leggja fyrir hann spurningar, sem hann var meira en fús til að svara, og heyra þá um leið ofan í þessa helstu framámenn í íslensku viðskiptalífi. - En ónei. Skyndilega hafði enginn áhuga á að opna munninn, hvað þá meir. En hvað þetta er nú líkt okkur! Alveg eins og á fundum í stjórnmálaflokkun- um þar sem enginn þorir að hefja máls að loknum framsöguræðum. Hvað skyldum við íslendingar eiga marga frambærilega kaup- sýslu- eða viðskiptafrömuði, þótt ekki sé nú miðað við annað en sæmilega tungumálaþekkingu? - Þá má örugglega telja þá á fingrum annarrar handar. Ég held að Versl- unarráð og önnur íslensk hags- munasamtök í verslun og viðskipt- um ættu að sleppa fleiri morgun- verðar- og fræðslufundum með er- lendum gestum. Lions-, Kiwanis- eða golfklúbbarnir eru sennilega besti vettvangurinn fyrir íslenska kaupsýslumenn til skrafs og ráða- gerða um verslun og viðskipti. í versta falli kútmagakvöldin hjá Lions. - Á slíkum stundum eru menn í essinu sínu. Þar eru menn á heimavelli. Kosningar yrðu kærkomnar Spumingin Drekkur þú mikið gos? Haukur Jóhannesson: Nei. Maður drekkur bara mjólk og vatn. Margrét Ingibergsdóttir dagmamma: Já, ég get ekki neitað þvi. Ingi Sveinn Jónsson, 9 ára: Soldið mikið en líka djús og mjólk. Mér finnst gos gott. Einar Jakob Jónsson, 11 óra: Ekki mikið. Ég drekk frekar vatn og mjólk. Gos er ekki vont en ég veit að það er óhollt og skemmir tennurn- ar. Ragnar Sigurðsson skrifar: Þar sem auðséð er að ríkisstjómin getur ekki tekið á þeim málum sem nú brenna heitast á þjóðfélaginu get ég ekki séð að hægt sé aö komast hjá kosningum á allra næstu vikum og ekki síðar en í septembermánuði nk. - Allt það fjaðrafok sem búið er að vera í deilumáli BHMR og ríkisins, og ekki síst í kjölfar Félagsdóms, er þó aöalástæöan fyrir þvi að ríkis- stjórnin á að segja af sér og boða til kosninga. Hvemig sem málin skipast í málum BHMR sé ég ekki að aðrir launþega- hópar hér geti sætt sig við að verða skildir eftir án kjarabóta þegar verð- bólgan er á uppleið og verðlagið stíg- ur og hefur verið að hækka í allt sumar. Og hvernig getur ASÍ forust- an leyft sér að taka afstöðu til samn- inga BHMR nema þá með þeim ein- um hætti að styðja við bakið á laun- þegum þess félags? Eg hef það á tilfinningunni að við launþegar, sem erum skikkaðir til að gjalda okkar hlut til verkalýðs- félaga innan ASÍ, séum einhvers konar aukapersónur sem einu gildi hvaða skoðanir hafi. Ég veit t.d. að það er ekki að undirlagi eöa skapi meirihluta félaga innan ASÍ að mót- mæla nýgerðum kjarasamningum BHMR- manna við ríkiö. ASÍ fomst- an hefur aldrei samið við sína við- semjendur með neinum viðlíka ár- angri og BHMR-menn gerðu. Það hefur margsinnis verið rætt að ASÍ forustan semdi t.d. um veru- lega launahækkun til handa þeim lægst launuöu en létu þá aðra, sem eru komnir vemlega yfir láglauna- taxta, eiga sig í það skiptið. En hvað skeður? Æ ofan í æ hefur forustan ekki treyst sér til að gera kröfu um þannig samninga. Krafan um 80 þúsund krónur sem lágmarks- laun til handa öllum ASÍ félögum eftir 3 ára samfellt starf væri t.d. eitt- hvað til að hrósa sér af. En engu slíku er að heilsa. í stað þess reynir ASÍ forustan að styðja við bakiö á ríkis- stjórninni allt hvað af tekur og lætur sitt verksvið lönd og leið - að gera skýlausa kröfu um hækkun launa til sinna umbjóðenda. Það sem yrði því kærkomnast nú fyrir alla landsmenn og ekki síst launþega alla sem einn er að boðað verði til kosninga sem allra fyrst og ríkisstjómin víki af sviðinu því kjarabætur til launþega hafa hvort sem er aldrei átt sér stað undir ríkis- stjórn sem kennir sig við vinstri flokka og styðst við hálaunaða verkalýðsforingja sem standa sjálfir í innbyrðis baráttu við að halda völd- um. Pétur Pétursson, lektor í félagsfræði: Ég er reyndar byrjaður aðeins á þvi eftir að ég kom heim frá Svíþjóð. Hér á íslandi er mikil gosmenning. Jóhann Traustason sölumaður: Nei, ég drekk ekkert gos bara sykurskert- an Svala. Gosið skemmir tennumar. Góð grillkol uppurin Pétur Sigurðsson skrifar: Ég get ekki á mér setið að senda ykkur nokkrar línur eftir að hafa leitað mig þreyttan að ákveðinni grillkolategund sem stundum hefur verið hér á markaðnum. Ég segi stundum því þaö er ekki heiglum hent að finna hvar þessi kol fást þá og þá stundina. Ég hef gegnum árin oröið að hringja beint til innflytjanda til að fá upplýsingar um hvar kolin fást. Þetta er kolategund sem heitir því frumlega nafni „Match Light“ og eru gædd þeim eiginleikum að ekki þarf neinar umsvifamiklar tiltektir til aö kveikja í þeim og halda í þeim loga. Aðeins eldspýtu og í þau er komin hin prýðilegasta glóð eftir nokkrar mínútur og tilbúin til að steikja við. Þetta kemur sér afar vel hér í Reykja- vík og á suðvesturhorni landsins þar sem alltaf er gola eða vindur og því erfitt að nota venjuleg grillkol til úti- eldunar. Þessi umræddu kol eru amerísk og era því miður afar sjaldfengin í versl- unum, hvað sem veldur. Ég trúi varla að hér sé um að ræða einhvem seinagang hjá innflytjanda þvi hér er um að ræða mjög eftirsótt kol af þeim sem mikið nota útigrill. Aldrei hef ég séð þessi kol auglýst og þaö er aðeins fyrir heppni ef maður sér þau í einum eða öðram matvöru- markaði. - Á bensínstöðvum minnist ég ekki að hafa séð þau. Nú langar mig til að láta reyna á áhrif DV í þessu máli. Annars vegar hvort þiö getið hreinlega komist aö því hvar þessi kol fást og þá hvort reikna megi með að þau fáist 1 fram- tíöinni. Hins vegar, ef þið ekki kom- ist að því, hvort einhver myndi ekki hringja til ykkar og gefa frekari upp- lýsingar um tilvist Match Light kol- anna og þá hvar þau kunni að fást. - Með fyrirfram þakklæti. Ekki sama hvaða grillkol eru notuð úti hér á landi. - Lesendasíða er mót- tækileg fyrir frekari upplýsingum um tilvist Match Light kolanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.