Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1990, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1990.
11
Utlönd
Gífurlegir þurrkar á Grikklandi:
Neyðarástand blasir við
Svona nokkuð félli embæftismönnum grísku vatnsveitunnar ekki í geð í Ijósi
þess mikla vatnsskorts sem nú ríkir i landinu. Þessi mynd var tekin sumar-
ið 1988 þegar hitabylgja gekk yfir Aþenu. Símamynd Reuter
Siumutílokkurinn á Grænlandi:
Barist um
embætti
formanns
Jonathan Motzfeldt, formaður
grænlensku heimastjórnarinnar,
hefur boðið sig fram í embætti for-
manns stjórnarflokksins, Siumut-
flokksins. Valdabaráttan innan
flokksins heldur því áfram þar sem
núverandi formaður flokksins, Lars
Emil Johansen, gefur einnig kost á
sér í formannsembættið. Formaður
verður kjörinn á landsfundi þann 24.
ágúst næstkomandi.
Árið 1987 háðu þessir tveir stjórn-
málamenn baráttu um embætti for-
manns Siumutflokksins. í það skipti
bar Lars Emil Johansen sigur úr
býtum og hlaut hann fjórtán atkvæði
en Jonathan Motzfeldt 11.
Motzfeldt var formaður flokksins
frá stofnun hans árið 1977 til ársins
1987 aö undanskildu stuttu tímabili
frá 1979 til 1980 er Johansen gegndi
formannsembættinu. Ritzau
Grænlensku stjórnmálamennirnir Lars Emil Johansen og Jonathan Motz-
feldt halda áfram baráttunni um embætti formanns Siumutflokksins.
Gífurlegir þurrkar hrjá nú Grikki
og segja sérfróðir menn að annað
eins hafi ekki sést í heila öld. Þurrk-
arnir ógna vatnsbirgöum íbúa
Aþenu sem og lífsviðurværi bænda.
Skemmdir á uppskeru eru metnar á
einn milljarð dollara og nú liggja all-
ir bændur á bæn og biðja um rign-
ingu til að geta bjargaö því litla sem
enn er von um að bjargað verði.
EYDAP, vatnsveita gríska ríkisins,
segir að fari ekki að rigna fljótlega
muni íbúar Aþenu einungis hafa
vatnsbirgðir til 1. nóvember, það er
nema neysla verði skorin verulega
niður eða aðrar leiðir til að auka
vatnsbirgðir finnist.
Uppskerubrestur
„Uppskerubrestur nemur þegar 1
milljarði dollara eða sem svarar 12,8
prósentum af framleiðslugetu land-
búnaðarins," segir Mihalis Papa-
konstaniou landbúnaðarráðherra.
Landbúnaður er ein helsta tekjulind
Grikkja, nemur 13 prósentum af
landsframleiðslu og veitir um íjórð-
ungi vinnuafls landsins atvinnu.
Veðurfræðingar segja að upphaf
þurrkanna megi rekja til nóvember-
mánaðar árið 1989 þó að úrkoma
hafl farið minnkandi jafnt og þétt
síðustu fjögur ár. Um miðbik Grikk-
lands, þar sem helstu landbúnaðar-
héruð landsins eru, er meðalúrkoma
um 410 millímetrar á ári en frá nóv-
ember á síðasta ári til maí á þessu
ári - sem eru hinir hefðbundnu votu
mánuðir - nam úrkoma einungis 199
millímetrum. Meðalúrkoma í Aþenu
og nágrenni er um 400 millímetrar á
ári en frá nóvember til maí fengu
höfuðborgarbúar bara 69 millímetra
úrkomu.
Neysla verður að minnka
Gríska stjórnin hækkaði vatnsverð
um þrjú hundruð prósent þegar hún
tók við völdum í aprílmánuði og það
varð til að neysla dróst saman um
fimmtán prósent. En litlar líkur eru
á úrkomu og vatn og tími af skornum
skammti. Því hafa grísk stjórnvöld
hafið herferð til að fá íbúa Áþenu til
að draga enn úr vatnsneyslu sinni,
um frekari fimmtán prósent, að öðr-
um kosti vofi yflr hörmungarástand.
Fjölmiðlar leggja sitt af mörkum
og hvetja fólk til að nota vatnsfotur
í stað vatnsslanga þegar það þvær
bíla sina og lóðir, að stytta tímann í
sturtunni og að spara vatn við hvert
tækifæri. „Ef við spörum ekki vatn
kemur brátt sá tími að við verðum
uppiskroppa með það,“ má sjá á
stóru veggspjaldi á áberandi stað í
Aþenu.
í Ilikivatni og Mornosvatnsþrónni,
sem sjá íbúum höfuðborgarinnar
fyrir vatni, hefur minnkað mikið.
Arið 1986 nam vatnsmagnið þar 545
milljónum rúmmetra en nam 150
milljónum rúmmetra í árslok árið
1989. Við eðlilegar kringumstæður
sóifnast 500 milljón rúmmetrar vatns
í Ilikivatn og þróna á ári hverju
vegna rigninga. En á síðasta ári söfn-
uðust einungis 145 milljónir rúm-
metra. Vatnsþörf Aþenu nemur um
milljón rúmmetrum dag hvern.
Búist er við regni í desember en
þangað til neyðast Grikkir til að
spara við sig eigi þeir ekki að verða
uppiskroppa með vatn löngu fyrr.
Reuter
Fjöldi bílasala, bíla-
umboöa og einstaklinga
auglýsa fjölbreytt úrval
bíla af öllum geróum og
í öllum veröflokkum meö
góöum árangri í DV-BÍLAR
á laugardögum.
Athugiö aó auglýsingar í
DV-BÍLAR þurfa aö berast
í síöasta lagi fyrir kl. 17.00
á fimmtudögum.
Smáauglýsingadeildin er
hins vegar opin alladaga
frá kl. 09.00til 22.00 nema
laugardaga frá kl. 09.001iI
14.00og sunnudaga frá
kl. 18.OOtil 22.00.
Smáauglýsing í
HELGARBLAÐ veröur aö
berast fyrir kl. 17.00
á föstudögum.
Auglýsingadeiid
WA1 Kodak
3C^ÍI3iC3CT3C!!H!!!!-lC!
■ ■ 11 b í 11 ■! i,i 11 rnrrjL,!111
Þú færð myndirnar á 60 mínútum
GÆÐAFRAMKOLLUN
I I I I M~t
ODDam
Opnum
______L kl. 8.30
!■■■■■■■ 111 ■ ■ ■
■ ■■■■■■■■TTTI
LJOSMYNDAÞJONUSTAN HF|
Laugavegi 178-Sími 68-58-11 (næsta hús við Sjónvarpið)