Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1990, Side 24
MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1990.
24
Fréttir
Ökuleikni á Patreksfiröi:
Sigurvegarar í ökuleikni á Patreksfirði.
Stúlkurnar í
meirihluta
Brynjar M. Valdimarsson, DV, Ökuleikni ’90:
Konumar létu sig ekki vanta í öku-
leikni eins og í fyrra þegar lögreglu-
þjónninn á staðnum var settur í
kvennariðil. Keppnin fór fam í ágætu
veðri við slökkvistöðina á staðnum.
Sigarvegari í kvennariðli varð Þóra
Sif Kópsdóttir með 237 refsistig, önn-
ur varð Kristín Fjeldsted. Jafnar í
þriðja sæti urðu Kristín Gísladóttir
og Katrín Anna Eyvindardóttir með
292 refsistig.
í karlariðli sigraði Eyvindur
Bjarnason með 177 refsistig, annar
varð Ágúst Ólafsson með aðeins 6
refsistigum meira eða 183 refsistig
og þriðji varð Ólafur B. Baldursson
með 235 refsistig. í riðli byijenda var
Silja Björg Jóhannsdóttir með 443
refsistig. Viö hefðum gjarnan viljað
sjá fleiri 17 ára ökumenn keppa í
ökuleikninni.
Börnin kepptu á hjólunum á sama
tíma, þar sigraði í riðli 9-11 ára Gísli
Ásgeirsson með 72 refsistig, annar
varð Ámi Freyr Valdimarsson með
79 refsistig og þriðji Gunnar Oddur
Halldórsson með 101 refsistig. í eldri
riðli sigraði Magnús Björnsson með
77 refsistig, annar varð Grímur Grét-
arsson með 90 refsistig og þriðji
Leiknir Kristjánsson með 102 refsi-
stig.
Gefandi verðlauna var Vátrygg-
ingafélag íslands. Gefandi verðlauna
í reiðhjólakeppni vár að vanda Fálk-
inn hf.
Ökuleiknin í Stykkishólmi:
Hörð keppni í reiðhjólakeppni
- sjö refsistig skilja að fyrsta og fjórða keppanda
Biynjar M. Valdimarsson, DV, Ökuleikni 90:
Vegna Ökuleikni 9Þ0 höfum við nú
ekiö yfir 3 þúsund km um misjafna
vegi Islands. Allt eru þetta vegir sem
tengja saman byggðir landsins. Vegir
hafa verið mjög mismunandi og höf-
um við oft spurt okkur hvort við
væmm komnir í óbyggðir, svo slæm-
ir hafa vegir oft á tíðum verið. Verst-
ir hafa vegir verið á Austfjörðum og
Vestfjörðum. Þrátt fyrir þetta er bæði
A bíll og tjaldvagn í góðu lagi en bOhnn
er af gerðinni Mitsubishi L 300, lengri
gerð, og tjaldvagninn er Combi
Camp.
Ökuleikni í Stykkishólmi fór fram
við bestu aðstæður og var þátttaka
þokkaleg. Sigurvegari í karlariðli var
Kolbeinn Bjömsson með 182 refsi-
stig, annar varð Jóhann Gunnlaugs-
son með 191 refsistig og þriðji Guð-
mundur Hreiðarsson með 222 refsi-
stig. í kvennariðli var Edda Sóley
Kristinsdóttir með 269 refsistig og í
riöli byrjenda var Guömann Már
Guðmannsson með 280 refsistig.
í reiðhjólakeppni var hart barist í
riðh 9-11 ára og skildu aðeins sjö
refsistig fyrsta og fjórða keppanda
að. Sigurvegari varð Birkir Pálsson
með 66 refsistig, annar Helgi Reynir
Guðmundsson með 68 refsistig og
jafnir í þriðja sæti urðu Marinó Ingi
Emilsson og Daníel Hans Hlynsson
með 73 refsistig. í eldri flokki sigraði
Ágúst Jensson með 49 refsistig, ann-
ar varð Þorgeir Snorrason með 53
refsistig og þriðji Gunnlaugur Einar
Kristjánsson með 76 refsistig.
Gefandi veölauna var Búnaðar-
bankinn.
Ökuleikni Sauðárkróki:
Næstbesti árangur sumars-
ins í karla- og kvennariðlum
t j BrynjarMValdiinarsson,DV-ökuleikiú’90:
Rúnar Gíslason var með aðeins 128
refsistig samanlagt sem er aðeins 3
refsistigum frá besta árangri í sumar
í karlariðh, annar varð Bergur Hólm
Aðalsteinsson með 169 refsistig og
þriðji Róbert Jacob með 184 refsistig,
hann hefur aðeins búið hér á landi í
eitt ár en hafði aðeins 20 refsistig í
'*• umferðarspurningum sem er mjög
gott.
í kvennariðli var Jódís Einardóttir
best með 199 refsistig sem er annar
besti árangur í kvennariðh í sumar.
Önnur var Halla Guðmundsdóttir
með 223 refsistig, þriðja var Katrín
M. Andrésdóttir með 240 refsistig.
í riðli byrjenda var Ásta Einars-
dóttir með 289 refsistig.
Hjólreiðakeppni fór fram á meðan
keppendur í ökuleikni svöruðu
spurningum. í eldri riðh sigraöi
Andri Sigurgeirsson með 49 refsistig,
annar varð Hólmar Logi Sigmunds-
son með 57 refsistig og þriðji Hreiðar
Örn Steinþórsson með 58 refsistig. í
riöh 9-11 ára sigraöi Garðar Víðir
Gunnarsson með 117 refsistig, annar
varö Skarphéðinn Stefánsson með
121 refsistig, þriðji Einar Björgvin
Eiðsson meö 145 refsistig.
Gefandi verðlauna var bifreiða-
verkstæði Kaupfélags Skagfiröinga.
Ökuleikni á Selfossi:
Hjólreiðakeppnin
geysihörð
- eitt stig á miILi fyrsta og annars keppanda
Brynjar M Valdimarsson, DV-ökuleikni ’90:
Aöeins eitt stig var á milli Benjamíns
Árnasonar, sem fékk 64 refsistig, og
Björns Daða Björnssonar meö 65
refsistig en þeir kepptu í riðh 9-11
ára í reiðhjólakeppninni, þriðja var
svo Kristín Arna Bragadóttir með 105
refsistig. í eldri riðli sigraði Guð-
brandur Sigurðsson með 63 refsistig,
annar varð Hlynur Einarsson með
70 refsistig og þriðji var Bent Larsen
meö 78 refsistig.
Þegar hjólreiðakeppni lauk fór
fram ökuleikni. í karlariðli sigraði
Bjarni Ólafsson með 188 refsistig,
annar varð Þórarinn Bjarnason með
200 refsistig og þriðji Steindór Guð-
mundsson með 210 refsistig.
Kvennariðh vann Sigurborg Ólafs-
dóttir með 235 refsistig, önnur varð
Guðbjörg Sigurðardóttir með 275
refsistig og þriðja Sigurlín Bjarna-
dóttir með 315 refsistig.
Gefandi verðlauna var Tótasam-
lokur og Guðnabakarí.
Ökuleikni á Hvammstanga:
Hjón sigruðu
Brynjar M. Valdimarsson, DV-ökuleikni ’90:
Hjónin Jóhanna Sigurða Ágústsdótt-
ir og Guðmundur Vilhelmsson sigr-
uðu hvort í sínum riðli í ökuleikni á
Hvammstanga og koma þau þvi sam-
an th úrshtakeppni í Reykjavík dag-
ana 1. og 2. september. Guðmundur
sigraði í karlariðhnum með 166 refsi-
stig, annar varð Brynjólfur Magnús-
son meö 181 refsistig og þriðji varð
Bragi Arason með 216 refsistig.
Jóhanna sigraði í kvennariðlinum
með 295 refsistig, önnur varð Rósa
D. Benjamínsdóttir með 304 refsistig
og þriðja varð Ásdís Jónsdóttir með
351 refsistig én hún kom akandi frá
Steinadal á Ströndum eingöngu til
að taka þátt í ökuleikninni.
í riðh byijenda sigraði Stefán Grét-
arsson með 239 refsistig sem er átt-
undi besti tími byijanda í sumar,
annar varð Ólafur Björnsson með 242
refsistig.
í hjólreiðakeppni0 fil ll ára sigraði
Egih Sverrisson með 52 refsistig,
annar varð Sveinn Ingi Bragason
með 129 refsistig, þriðja varð Hólm-
fríður Birna Guðmundsdóttir með
135 refsistig. í riðli eldri en 11 ára
sigraði Einar Valur Gunnarsson með
56 refsistig, annar varð Arnar Karl
Bragason með 60 refsistig og þriðji
varð Hörður Gylfason með 65 refsi-
stig.
Sigurvegarar í reiðhjólakeppni.