Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1990, Qupperneq 27
MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1990.
27
x>v
Lífsstm
DV kannar verð á gosdrykkjum:
Allt að 62% munur
milli landshluta
í gær, þriöjudag, geröi DV verð-
könnun á gosdrykkjum í eins og hálfs
lítra umbúöum. Mikinn verömun
var að fmna milli verslana. Mestan
verðmun var aö finna á Pepsi og 7-
Up, allt aö 62%. Getur þessi mikli
munur að nokkru leyti skýrst af því
að lágt verð var boðið víða fyrir
verslunarmannahelgina og að ekki
hafi verið búið að hækka það á ný.
Leitað var upplýsinga um sjö gos-
drykkjategundir í 10 verslunum víðs
vegar um landið.
Lægsta verð á ís Cola frá Sól var
að finna hjá Samkaupi í Keflavík en
þar kostaði 1 'A htri 89 krónur. Dýr-
astur var drykkurinn í Fjarðarkaupi
þar sem hann kostaði 118 krónur. í
Skagaveri á Akranesi, Höfn í Selfossi
og Miklagarði við Sund í Reykjavík
var hann alls staðar á sama verði,
"99 krónur. Hagkaup í Kringlunni
seldi flöskuna á 107 krónur. Munur
milli hæsta og lægsta verðs var því
33%. Drykkurinn var ófáanlegur á
flórum stöðum af tiu.
Kannáð var verð á appelsíni frá
Sanitas og var ekki tekið tillit til þess
hvort það var sykurlaust eða ekki.
Um 10% munur var á hæsta og
lægsta verði. Er það minnsti verð-
munur sem kom í ljós í könnuninni.
Dýrast var að kaupa drykkinn á
ísafirði en þar kostaði hann 180 krón-
ur. Ódýrastur var hann í Miklagarði
við Sund en þar kostaði hann 164
krónur. Meðalverð var tæpar 170
krónur.
Verðmunur á Pepsi og 7-Up frá
Sanitas var mestur af þeim drykkj-
um sem kannaðir voru. Var hann
62% sem hlýtur að teljast verulegt.
Dýrast var að versla hjá Kaupfélagi
Austur-Skaftfellinga á Höfn í Horna-
firði en þar kostaði flaskan af Pepsi
190 krónur. Hins vegar kostaði sami
Verð á Pepsí 1,5 lítri
ísafjörður
Akranes Q7Í
Keflavík
Hafnarfjörður
Egilsstaðir
Ö9Q)
Höfn
Geysimikill munur er á verði gosdrykkja á milli verslana. Er listinn hér á síðunni til glöggvunar þeim sem fylgjast
vilja með þessum málum.
drykkur og sama magn 117 krónur
hjá Fjarðarkaupi í Hafnarfirði. Með-
alverð var í kringum 165 krónur.
Annars staðar á landsbyggðinni var
verð þó nokkuð undir því hæsta og
má nefna að hjá Skagaveri á Akra-
nesi var það 171 króna.
20% verðmunur var á appelsíni frá
Agh Skahagrímssyni og var verð
hæst á Austurlandi. Aftur var það
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga sem
var með hæsta verð en ekki var
verslunin ein á báti og hafði Kaup-
félag Héraðsbúa á Egilsstöðum með
í för en á báðum þessum stöðum var
verðið 195 krónur. Mikhgarður við
Sund var hins vegar meö lægsta
verðið og léttist buddan um 163 krón-
ur þar.
Verð á gosdrykkjum frá Vífilfelli
var einnig hæst hjá Kaupfélagi Aust-
ur-Skaftfelhnga og kostaði l'A lítri
af Sprite frá Vífilfelh 205 krónur.
Lægst
Neytendur
var verðið í höfuðborginni hjá Hag-
kaupi í Kringlunni, 149 krónur. Mun-
urinn var 38%.
Coca Cola frá Vífilfelh var einnig á
205 krónur austur á Höfn. í Mikla-
garði við Sund kostaði sama magn
174 krónur og var verðmunur í þessu
tilfelh 18%.
Ekki verður þeirri spurningu svar-
að hér í hverju þessi mikli verðmun-
ur á mihi verslana á einstökum vöru-
tegundum er fólginn. Skýringu má
þó að einhverju leyti finna i því að
flutningskostnaður hefur áhrif til
hækkunar. Einnig eiga framleiðend-
ur það til að bjóða verslununum vör-
una á sérstökum kjörum og skilar
það sér til neytandans í lækkuðu
verði. Þetta getur orsakað skekkju í
samanburði. Fleiri skýringar, sem
ekki er minnst á hér, eru að öllum
líkindum einnig th staðar en bent
skal á að frjáls álagning er á gos-
drykkjum.
-tlt
Samkaup Keflavík Skagaver Akranesi Kaupfél. ísf. Ísafirði Kaupfél. Eyf. Hrisalundi Akureyri Kaupfél. A-Skaft. Höfn, Hornaf. Kaupfél. Héraðsbúa Egilsstöðum Verslunin Höfn Selfossi Hagkaup Kringlunni Reykjavík Mikligarður við Sund Reykjavik Fjarðarkaup Hafnarfirði Munurá hæsta og lægsta verði
Is Cola, 1 'á I 89 99 99 107 99 118 33%
Sanitas appelsín, 1 'A I 165 171 180 165 178 170 165 164 165 10%
Pepsi, 1 'A I 165 171 180 165 190 178 170 165 151 117 62%
7-Up, 1 'h I 165 171 178 165 190 178 170 139 117 62%
Egilsappelsín, 1 'A I 178 185 192 181 195 195 175 174 163 175 20%
Sprite, 1 'h I 179 175 192 179 205 195 170 149 174 150 38%
Coke, 1 'h I 179 • 175 192 179 205 195 180 175 . 174 176 18%
Politiken:
Staðall á sólarkremum
ekki alls staðar sá sami
Þegar tími gefst og sól skín í heiði
er freistandi að leggjast léttklæddur
út og njóta bhðunnar. Léttur roði á
húðinni er oft fylgifiskur þessarar
vinsælu iðju, svo að ekki sé minnst
á þá sem virkilega hafa orðið illa úti
vegna sólbruna. Til að sjá við þessu
er víst betra að nota góöa vörn fyrir
húðina en hana er að finna í formi
sólarkrema sem seld eru undir ýms-
um vörumerkjum. Ef rétt er að mál-
um staðið eiga að finnast allar upp-
lýsingar á umbúðunum um hversu
sterk vörnin er og á hver og einn að
geta fundið það krem sem hentar
best hveiju sinni. Samkvæmt
danskri könnun virðist þó vera mis-
ræmi í þeirri vörn sem gefin er upp
á umbúðunum vegna þess að notaðir
eru tveir mælikvarðar til að ákvarða
styrkleika hennar.
Eitt sinn var hægt að ganga út frá
þeirri einföldu reglu að sólarolíur
eða krem með vamarstyrkleikann
fióra gáfu húðinni fiórum sinnum
meiri vöm gegn sólarljósi en þegar
ekkert var notað. Nú virðist sem
þumalputtaregla þessi sé úr sögunni
því þýska DIN-vömin er työfalt
áhrifaminni en bandaríska FDA-
vörnin. Það verður því að kanna
fyrst hvort verið sé að miða við
bandarískan eða þýskan staðal þegar
keypt er vörn gegn sóhnni og lesið
er á umbúðirnar.
Sólarolíur- og krem verja húðina
gegn útfiólubláum geislum og varna
því að hún brenni. Það er því nauð-
synlegt fyrir alla sem ekki eru vanir
sól og ætla sér að fá lit á húðina að
nota einhvers konar vörn.
Dæmi um þau krem sem nota þýsk-
an mæhkvarða (DIN), samkvæmt
könnuninni, eru: Cosmea, LdB, Nat-
Ekki virðist vera sama hvort keypt
er bandarísk eða þýsk sólarolía,
segir í umfjöllun danska dagblaðs-
ins Poiitiken.
usan, Biotherm og Lancome. Nokkur
dæmi um þau krem sem innihalda
mun sterkari vörn og nota FDA-
mælikvarðann eru: Clinique ogBuin.
-tlt
Nýttlyfvið
mjólkuróþoli
Frændur okkar Svíar munu í
haust setja á markaðinn töflur,
undir nafninu Kerutabs, sem vinna
eiga gegn mjólkuróþoh. Vonast er
til að þetta nýja lyf geri þeim sem
af þessu þjást lífiö léttara.
Skortur á ákveðnu ensími í melt-
ingarfærum veldur laktósaóþoh.
Mjólkursykur brotnar ekki niður í
hkamanum og mjólkin fer ómelt í
gegnum meltingarveginn. Getur
það valdið ýmiss konar verkjum í
kvið og magatruflunum.
Óþol sem þetta er aðallega að
finna hjá fuhorðnu fólki og hafa fá
tilfelli greinst meðal barna hér-
lendis. Hvatinn getur verið til stað-
ar í líkamanum á barnsaldri og
dugað fram á unglingsár. Á fuhorð-
insárum getur þessi hvati horfið
og veröa menn þá viðkvæmir fyrir
mjólkurvörum hvers konar. Er
mjög slæmt að neyta íss og súkkul-
aðis ef óþolið er til staðar.
Töflumar, sem væntanlegar eru,
innihalda ensímið sem vantar th að
mjólkursykur brotni niður í líkam-
anum. Miklar rannsóknir hafa ver-
ið gerðar og hefur hingað th verið
vandamál að búa th hvata sem gef-
inn er í töfluformi því hann hefur
ekki getað staðist aðra meltingar-
hvata og brotnað mjög fljótt niður.
Mun tíminn því leiða í ljós hvort
þetta nýja lyf gefst vel í framtíðinni.
Laktósaóþol er óalgengt á norð-
urhveli jarðar. Um það bil 3% Svía
hafa einkenni laktósaóþols og mun
hlutfalhð vera svipað hérlendis.
Hvatann vantar í um 80% kyn-
flokka af þeidökkum stofni.
-tlt