Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1990, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1990, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 1990. 3 Fréttir Vistunargjald fyrir kött í einangrunarstöðinni í Hrísey: 33 þúsund krónur fyrir 32 daga Mörgum þykir það ansi dýrt að geyma gæludýr í einangrunarstöð- inni í Hrísey. Eins og meðfylgjandi reikningur sýnir kostar það yfir þús- und krónur á dag að vista köttinn sinn þar. Daggjaldið er 450 krónur en kattaeigendur segja að fæði fyrir kött kosti í mesta lagi 50 krónur á dag. Ofan á daggjaldið bætist skoð- unargjald upp á 7000 krónur og virð- isaukaskattur sem er 24,5%. Þá er ótalinn flutningskostnaður. Samkvæmt þessum reikningi kostar það 5000 krónur að flytja köttinn frá Akureyri til Hríseyjar og aftur til baka. Síðan kostar það 1200 krónur að senda köttinn með flugi frá Reykjavík til Akureyrar - aðra leið. Það skyldi þó ekki vera hár hótel- kostnaöur sem var ástæðan fyrir því að kötturinn stakk af úr vistinrii um daginn? Samkvæmt lögum er bannað að flytja til landsins hvers konar dýr, tamin og villt. Undanþágur getur landbúnaðarráðherra veitt ef yflr- dýralæknir samþykkir innflutning- inn og ef dýrunum er haldið í ein- angrun eins lengi og nauðsyn er talin á. Ákveðið hefur verið að reisa ein- angrunarstöð fyrir gæludýr í Hrísey við Eyjafjörð í tengslum við einangr- unarstöð holdanauta sem þar er fyr- ir. Bráðabirgðaeinangrunarstöð er rekin þar núna en enn vantar um fimm milljónir til þess að stöðin verði fullkláruð. -PÍ 19 9 0 Texti (3) 16.07 Vistunargjald fyrir kött Daggjald Í32 daga (11.06.-12.07 °90) Flutningsgjald Skoöunar- og sýbagjald 450 24m5% VSK Greitt Samtals kr. Reikningurinn sýnir sundurliðaðan kostnað við að vista kött í einangrunarstöðinni í Hrísey. Þessi ungi maður var ákveðinn í að komast út í tjarnarhólmann í Hafnar- firði þar sem hann ætlaði að veiða siiung. Fyrst reyndi strákur að tipla á steinunum en sá að það mundi ekki takast áfallalaust. Fói*'hann þvi úr skóm og sokkum og óð beint út í. Ekki fylgir sögunni hvort eitthvað veidd- ist þegar út í hólmann var komið. DV-mynd JAK Noröurland vestra: Sáttanefnd í netadeiluna Þórhailur Asmundsson, DV, Norðurl. vestra: Ekkert þokaðist í samkomulagsátt á fyrsta fundi sáttanefndar í netaveiði- deildinni í Miðfirði sem haldinn var nýlega. Það var stjórn átaksverkefnis V-Húnvetninga sem kom því til leið- ar að sáttanefndin var stofnuð. Báðir sóknarprestarnir eru meðal þeirra sex sem í nefndinni eru, séra Guðni Þór Ólafsson á Melstað og Kristján Bjömsson á Hvammstanga. Auk þeirra era í nefndinni Gunnar Tómas Sæmundsson í Hrútatungu, formaður búnaðarsambandsins, Ól- afur B. Óskarsson, Víðidalstungu, formaður héraðsnefndar, og oddvit- amir Guðmundur Haukur Sigm-ðs- son, Hvammstanga, og Eggert Ólafs- son, Fremri-Torfustaðahreppi. Oft hafa menn deilt um netalagnir hér á landi en deilurnar við Mið- fjörðinn eru sjálfsagt með þeim harð- vítugri sem upp hafa komið. Klögu- mál um netalagnir við ósa Miðfjarð- arár em árviss, en aldrei hefur kom- ið til jafnalvarlegrar brýnu og hlaust af upptöku veiðieftirlitsmanns á 13 netum í síðasta mánuði. Lögreglan á Blönduósi er með málið til rannsókn- ar og reynir að hafa uppi á öllum eigendum netanna. Tumi Tómasson, starfsmaður Norðurlandsdeildar Veiðimálastofnunar, hefur úrskurð- að að nokkur netanna, sem tekin vom, séu ólögleg. Félag silungsveiði- bænda við Miðfjörð, sem endurvakið var í sumar eftir að hafa legið í dvala á annan tug ára, hefur fordæmt að- gerðir veiðieftirlitsmanns og íhugar jafnvel að leita réttar síns hjá mann- réttindadómstólnum í Haag dugi ekki annað tii. Með tilkomu sáttanefndar er þess vænst að endi verði bundinn á árleg- ar deilur veiðirétthafa í Miðfjarðará og netaveiðimanna við ströndina. Það sem gengur átakshópnum til með stofnun samninganefndarinnar er að aðilar slíðri sverðin fyrir fullt og allt og vinni saman að hinum ýmsu þjóðþrifamálum fyrir héraðið, en slíkt sé útiiokað í skugga þeirra deilna sem nú eiga sér stað. Noröurland vestra: Heyf engur betri en jaf nan áður ÞórhaDur Asmundsson, DV, Norðurl. vestra: Heyskapm- er nú víöast hvar að enda í Norðurlandskjördæmi vestra. Bændur virðast sammála um að sumarið sé með betri heyskaparsum- rum sem komið hafa og heyfengur meiri og betri en jafnan áður. Óvenjumikið er um háarslátt nú og kemur rúllupökkunaraðferðin þar í góðar þarfir. Hentugt er að pakka hánni svo seinþurrkuð sem hún er. Rúllupökkunin hefur sett mikinn svip á heyskapinn í sumar og er talið að hún hafi rúmlega tvöfaldast frá síðasta ári. Þá voru margir að prófa þessa aðferð með því að láta rúlla lítinn hluta heyjanna. Mikið hefur verið að gera hjá eigendum rúllu- bindivéla síðustu daga og dæmi þess að vaktir séu á vélunum. Menn voru margir hveijir að keppast við að klára í þurrkinum um helgina. Annars var sprettutíð ekkert sér- stök fram eftir sumri. Þurrkatíð hef- ur hins vegar verið með albesta móti í allt sumar um land aUt, enda sum- arveðráttan í heild sú besta sem komið hefur lengi. Útgerðarfélag Akureyringa: Heimalöndunarálag hækkar um 18 prósent Gylfi Kristjánsson, DV, Akuxeyii: Samningar hafa tekist milli stjórnar Útgerðarfélags Akureyringa og sjó- manna á togurum félagsins um hækkun heimalöndunarálags. Fimm af 6 togurum, sem UA hefur gert út, eru á ísfiskveiðum og hefur öllum afla þeirra verið landað til vinnslu á Akureyri. Sjómönnunum hefur fundist hlutur þeirra vera lítiLL borið saman við starfsbræður þeirra á öðrum togurum sem landa einnig í gáma til útflutnings og einnig gagn- vart þeim sem eru á togurum sem sigla við og við með afla. Því hafa sjómenn ÚA fengið það sem kallað hefur verið heimalöndun- arálag og hefur það verið 12%. Sam- kvæmt samkomulaginu hækkar þessi prósenta verulega og verður nú 30%.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.