Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1990, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1990, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 1990. 7 Fréttir Verklok framkvæmda við Blöndu: Bitnar hart á at- vinnulífi nyrðra Þórhallur Ásmundsson, DV, Nl. vestra: Veröi ekki gripiö til fyrirbyggjandi aðgerða munu verklok fram- kvæmda viö Blönduvirkjun, aö 2 árum liðnum, hafa alvarleg eftir- köst er harðast bitna á atvinnulífi í A- Húnavatnssýslu, sérstaklega á Blönduósi. Þetta kemur fram í skýrslu sem Öm Daníel Jónsson gerði að beiðni samstarfsnefndar um atvinnumál í Norðurlandi vestra, sem kynnt var þingmönn- um kjördæmisins og Steingrími Hermannssyni á fundi nýlega. Ófeigur Gestsson, bæjarstjóri á Blönduósi, segir von heimamanna þegar þessar niðurstöður liggi fyrir að strax verði bmgðist við. Niður- staðan komi ekki á óvart og stað- festi bókun ríkisstjórnar frá 1982. Þar skuldbyndu stjórnvöld sig til að stuðla að atvinnuuppbyggingu á virkjunarsvæði Blöndu, til að mæta þeirri lægð í atvinnulífi sem verklok virkjunarinnar yllu. Sam- dráttur í landbúnaði hefði síðan orðið til þess að kalla enn frekar á efndir stjórnvalda. Nægði þar að benda á þá staðreynd að slátrun í sláturhúsinu á Blönduósi hefði á fáum árum hrapað úr 70 þúsund fjár niður í 35 þúsund. „Það þarf að kortleggja æskilega þróun uppbyggingar á svæöinu og á ég allt eins von á því að hún nái í Skagafjörð, en Lýtingsstaða- hreppur og Seyluhreppur eru aöil- ar að virkjunarsamningnum. Það er búið að setja ýmsa hluti á blaö, sem ganga út á að dempa áhrif verkloka við Blöndu á bygginga- riðnað svæðisins fyrsta kastið. Annars býst ég við að Byggðastofn- un verði fahð aö vinna að fram- gangi þessara verkefna, og einnig hefur iðnráðgjafi Norðurlands vestra tekiö að sér að greina ná- kvæmar þær hugmyndir sem uppi eru, en ekki er vert að greina frá að svo stöddu,“ sagði Ófeigur Gestsson. Skilafrestur til að senda inn myndir tengdar ferðalögum og útivist i Ijós- myndasamkeppni DV og ferðamálaárs Evrópu 1990 rennur út þann 31. ágúst. Þátttakendur sendi myndirnar í umslagi merktu, Ijósmyndasam- keppni, DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík. Með myndunum skal senda lokað umslag sem inniheldur nafn, síma og heimilisfang þátttakandans. Þegar hafa borist margar myndir af öllum gerðum en heimilt er að senda svart- hvítar myndir, litmyndir og litskyggnur. Þessi keppnismynd sýnir ævintýra- legt stökk ungs manns. Gjögur: af svölum sumarbústaðar - og brenndist talsvert á höndum Regína Thorarensen, DV, Gjögri: Kristmundur Kristmundsson (Sörla- sonar) brenndist talsvert á höndum og hár hans sviönaði þegar eldur komst í olíubrúsa, sem hann var að hella úr í ofn í sumarbústað að morgni miðvikudags 22. ágúst. Atvikið átti sér stað í sumarbú- staðnum glæsilega hér á Gjögri, sem vígður var í fyrra með viðhöfn. Krist- mundur var með 5 lítra brúsa og helti extra-fínni olíunni á ofninn í eldstónni. Glóð var í ofninum og komst eldur í brúsann. Logaði strax glatt en Kristmundur stökk 5-6 metra út á svalir hússins og kastaði logandi brúsanum niður. Brenndist nokkuð við það á höndum, hlaut brunasár á þeirri vinstri og hár hans sviðnaði. Kona hans var með tveggja ára barn þeirra í öðru herbergi. Kom fram og setti blauta tusku á ofninn. Engar teljandi skemmdir urðu á bú- staðnum. Héraðslæknirinn var í hinni mán- aðarlegu vitjun hér á staðnum, aðal- lega til að kanna sálarlíf Árnes- hreppsbúa eftir að nýi presturinn var settur í embætti á dögunum. Hann gerði að sárum Kristmundar en fólki fannst að hann hefði mátt vera betur útbúinn með lyf og sárabindi. Loftnet lóranstöðvarlnnar málað: Gengur loftneta- klif ur í ættir? Stefan Þór Sigurðsson, DV, Hellissandi: Á síðastliðnu sumri og á því sumri sem nú fer að styttast hefur verið unnið við að skrapa flagnaða máln- ingu og ryð af loftneti lóranstöövar- innar að Gufuskálum, Snæfellsnesi, og það síðan málað. Er þetta mikil vinna og tímafrek, m.a. vegna þess að ekki er hægt að fara upp í netið nema í hægu og þurru veðri. Þar að auki er mastrið 412 m hátt og er því bæði tímafrekt og erfitt að fara alla leið upp með málningu og annan búnað. Við vinnuna eru menn í góðum öryggisbeltum sem minna helst á belti fallhlífarmanna. Eru þau þann- ig úr garði gerð að alltaf er hægt að krækja þeim í festu á a.m.k. einum stað í einu. Tveir ungir piltar, 19 og 20 ára, þeir Steinn Sigurðsson og William H. Clark, voru fengnir til að vinna verkiö og líkar þeim það vel. Er það enda varla nema von því ofan úr netinu er ægimikið útsýni í björtu veöri. Ætla má aö loftnetaklifur gangi í ættir því faðir Steins og afi Williams, Sigurður Steinsson, raf- virki lóranstöðvarinnar, vann við loftnet varnarliðsins á árum áður en nú hafa yngri ættliðirnir tekið við. Málararnir komnir á neðsta pall netsins. Myndin var tekin 21.ágúst sl. DV-mynd Stefán Þór £ Þrír ættliðir loftnetaklifrara. Frá vinstri Sigurður Steinsson, sonur hans Steinn og afabarn Sigurðar William H. Clark. DV-mynd Stefán Þór ' .‘iii -~"*f & Hjrn y | f j j . j 1: {.SwMíBÍ k ' ■ írWmKL Gjögur: Flugvöllurinn lengdur Regína Thorarensen, DV, Gjögii Að sögn Aðalbjöms Sverrissonar, sem er framkvæmdastjóri Stranda- verks hf„ sem stofnað var 1977 og hefur aðsetur á Hólmavík, tók fyr- irtækið að sér stækkun á flugvell- inum á Gjögri í sumar. Flugbrautin verður lengd um 200 metra í aust- ur. Verkinu hefur miöað vel og verk- stjórinn, Björn Sverrisson, reiknar með að það taki um einn mánuð með því að vinna 10 tíma vinnu- dag. Um síðustu helgi var unnið bæöi á laugardag og sunnudag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.