Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1990, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1990.
11
Utlönd
Saddam Hussein sér glóru í Persaflóadeilunni. - Hugmynd Luries um stöðu íraka.
Dregur úr spennu við PersafLóa eftir hraða hemaðaruppbyggingu:
Næsti leikur Saddams
Olían er að lækka í verði og verð-
bréfin hækka. Þetta er einn mæli-
kvarðinn á stríðshættuna við Persa-
flóa og segir okkur að nú um stund
sé friðvænlegra en var meðan
Bandaríkjamenn og stuðningsríki
þeirra voru að koma herafla sínum
fyrir.
Bandaríkjamenn fóru geyst og aðr-
ir fylgdu á eftir - Bretar sýnu ákaf-
astir, þá Frakkar en aðir hafa hikað
og beðið. Nýsjálendingar hættu til
dæmis við að senda herlið en töldu
sig geta séð af nokkru af mjólkur-
dufti fyrir flóttamenn. Það er hvort
eð er offramleiðsla á því.
Núna standa stríðsmennirnir gráir
fyrir jámum andspænis hvor öðrum
við landamæri Kúvæts og bíða. Þetta
er ekki pattstaða heldur ótefld skák
þótt menn þykist vita hvernig fer ef
annar aðilinn ákveður að hefja leik-
inn og ýta fram peði.
Brögðóttur refur
Enn sem komið er verður Persa-
flóadeilan að teljast taugastríð þar
sem Bandaríkjamenn eru í hlutverki
hins sterka með hramminn á lofti en
Saddam sér um óvæntu leikina.
Hann er brögðótti refurinn sem getur
sig þó hvergi hrært.
Hemaðaráætlun Bandaríkja-
manna er að svelta Saddam inni -
Wállenbergmálið:
Vonbrigði
í upphaf i
Wallenbergnefndin, sem nú er
stödd í Sovétríkjunum, varð fyrir
vonbrigðum við upphaf rannsóknar
sinnar. Engar upplýsingar var að fá
um erlenda fanga í fangelsinu í bæn-
um Vladimir en nefndin hefur undir
höndum nöfn átta erlendra fanga
sem segjast hafa hitt eða heyrt talað
um sænska stjórnarerindrekann
Raoul Wallenberg.
Sovésk yfirvöld segjast nú reiðubú-
in að opna öll þau skjalasöfn sem
varpað gætu ljósi á hvarf Wallen-
bergs. Hann bjargaði lífi þúsunda
gyðinga í síðari heimsstyrjöldinni og
sást síðast í Búdapest í janúar 1945 á
leið til fundar við sovéskan herfor-
ingja. Hingað til hafa sovésk yfirvöld
haldið því fram að Wallenberg hafi
látist úr hjartaslagi í fangelsi í
Moskvu 1947. Svíar hafa ekki trúað
þeirri fullyrðingu.
í Vladimir fengu nefndarmenn þær
upplýsingar að öll skjöl um útlend-
inga séu hjá sovésku leyniþjón-
ustunni, innanríkisráðuneytinu eða
utanríkisráðuneytinu.
bíða þar til eitthvað brestur í liði
herstjórans og þeir geta þurft að bíða
lengi. Það kom því nokkuð á óvart
þegar- ýmsir herforingjar í liði
Bandaríkjamanna fóru að tala um
hemaðaráætlanir og skyndisóknir. í
fljótu bragði virtist þetta ganga þvert
á augljós markmið herfararinnar til
Persaflóa.
Sérfræðingar fóru að rifja upp að
þessir sömu herforingjar voru í eld-
línunni í Víetnamstríðinu, þá sem
ungir og efnilegir liðsforingjar. Gat
það verið að þeir væm orðnir óþolin-
móðir og hugsuðu sem svo: „Þetta
er þó í það minnsta rétt stríð á með-
an Saddam er hataðasti þjóðarleið-
togi heims.'“
Gælt við leiftursókn
Herforingjarnir töluðu um að þeir
kærðu sig ekkert um hálfkák og
sögðu að leiftursókn væri skynsam-
legust í stööunni. Málið gekk meira
að segja svo langt að upplýst var að
áætlun Bandaríkjamanna væri í
fimm liðum og að háþróaður raf-
eindabúnaður yrði notaður til að
mgla öll fjarskipti írakshers.
Verðbréf féllu í verði við þetta tal.
Síðan kom í ljós að það voru ekki
gömlu stríðsjálkarnir sem áttu svona
erfitt með aö halda aftur af sér held-
ur var þetta liður í taugastríðinu.
Saddam var einmitt á sömu stundu
að þrengja að sendiráðum erlendra
ríkja í Kúvæt og Bush Bandaríkjafor-
seti taldi rétt að vara hann við. Sendi-
ráðin eru jú enn opin þótt aðþrengd
séu.
Saddam veit jafnvel og áður að
Bandaríkjamenn ætla ekki að sleppa
honum frá deilunni án þess að hann
verði að gjalda fyrir uppátækið. Her-
foringjar Bandaríkjamanna hafa lýst
því í smáatriðum hvernig þeir ætli
að eyðileggja flugflota íraka og taka
Kúvætborg á einum degi. Öll spjót
standa því á Saddam og hann verður
að finna næsta leik í stöðunni.
Undankomuleið
með hryðjuverkum
Talið er að sá leikur gæti orðið
óvæntur. Einn möguleikinn er að
hefja hryðjuverk víða um heim.
Saddam hefur lengi haldið hlífiskildi
yfir hópum hryðjuverkamanna,
einkum frá Palestínu. Flestir hafa
þeir að vísu hallað sér að íran á síð-
utu árum en heimildir herma aö allt
frá því í vor hafi þeir verið að færa
starfsemi sína yfir til íraks.
Það þykir í það minnsta engin til-
viljun að jafn alræmdir hryðjuverka-
menn og Mohammed Abbas, Abu
Nidal og Ahmed Jabril hafa sést í
Bagdad. Þetta eru menn sem hafa
ýmis voðaverk á samviskunni. Abb-
as bar ábyrgðina á ráninu á
skemmtiferðaskipinu Achille Lauro
árið 1985. Nidal stóð fyrir mann-
skæðum skotárásum á flugvöllunum
í Róm og Vínarborg fyrir jóhn 1985
og árás á bænahús gyðinga í Istam-
bul árið eftir. Jabril er tahnn bera
ábyrgð á sprengingunni í PanAm
þotunni yfir Locherby skömmu fyrir
áramótin 1988.
í allt er áætlað að um 1400 hryðju-
verkamenn eigi nú hæli í írak þótt
þéir hafi ekki allir jafnmikið á sam-
viskunni og þeir þrír sem hér hafa
verið taldir. Abbas hefur reyndar
þegar skipað mönnum sínum að ráð-
ast gegn Bandaríkjamönnum í
Saudi-Arabíu þótt slík yfirlýsing sé
ekki tekin alvarlega ein og sér. Abbas
hefur hka úr ýmsum þægilegri skot-
mörkum að velja.
Skiluóu árangri í Líbanon
Tilgangurinn með víðtækum
hryðjuverkum er sá að fæla þjóðir
heims frá því að veita Bandaríkja-
mönnum lið gegn írak og losna þann-
ig úr herkvínni. Menn minnast þess
að eftir röð hryðjuverka í Líbanon
árin 1983 og 1984 ákváðu Bandaríkja-
menn að hörfa með herafla sinn frá
landinu og hafa ekki látið til sín taka
þar efttr það.
3UWAFELL
RAFMAGNSVATNSHITARAR
þrjár mismunandi gerðir,
verð frá 12.100,-
MALNING
Innimálning,
útimálning,
þakmálning
i PaiYTfX
;É;
20% ódýrara í 10 lítra
umbúðum
IREINLÆTISTÆKI
WCkr. 16.100,-
WC + handlaug
kr. 19.000,-
WC + handlaug í
borði kr. 22.500,-
PARKET
Verð frá kr. 2.225,-
massíft eikarparket
lakkað og tilbúið
BÍLSKÚRSHURÐIR
frá kr. 25.000»~"
50% afslátturaf
blöndunartækjum.
Útlitsgallaðir stálvaskar
Mottur 1000 kr. stk.
Góðarvörur
á góðu verði
A 3URSTAFELL
Bíldshöfða 14, s. 676840 og 672545
TT