Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1990, Qupperneq 18
26
FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1990.
Iþróttir
Útreikningar SSP veðbankans í London um gengi íslensku liðanna í EM í knattspymu:
Möguleikar KA, Fram og
FH á sigri nánast engir
-1 á móti 2000 að Fram vinni Evrópukeppni bikarhafa. Liverpool spáð sigri í Englandi
Samkvæmt útreikningum SSP
veöbankans í London eiga íslensku
félögin ekki beint mikla sigurmögu-
leika í Evrópumótunum í knatt-
spymu, enda varla viö því að búast.
Möguleikarnir á því að KA verði
Evrópumeistari era taldir vera 1 á
móti 5000, möguleikarnir á aö Fram
sigri í Evrópukeppni bikarhafa 1 á
móti 2000 og möguleikar FH á að
vinna UEFA-bikarinn 1 á móti 3000!
AC Milan líklegast í
Evrópukeppni meistaraliða
Evrópumeistarar AC Milan frá Ítalíu
eru taldir líklegir til að hampa Evr-
ópubikamum þriðja árið í röð.
Möguleikar þeirra eru taldir 1 á
móti 3,2. Bayern Múnchen frá Vest-
ur-Þýskalandi er í öðra sæti með 1 á
móti 5 en síðan koma Napoli frá ítal-
íu og Real Madrid frá Spáni með 1 á
móti 5,5. Næstu lið þar á eftir eru
Marseille (1/10), Glasgow Rangers
(1/15), Dinamo Bukarest og Porto
(1/20). KA er næstneðst ásamt La
Valetta frá Möltu en Union frá Lux-
emburg neðst með 1/10000. Mótherjar
KA, CSKA frá Búlgaríu, eru í 14.-15.
sæti með 1/80.
Juventus á toppnum
í Evrópukeppni bikarhafa
Juventus frá Italíu þykir sigur-
stranglegast í Evrópukeppni bikar-
hafa með möguleikana 1 á móti 3,25.
Barcelona frá Spáni er næst með 1 á
móti 5 og síðan Sampdoria frá Ítalíu
með 1 á móti 5,5. Þá koma PSV Eind-
hoven (1/6,5), Manchester United
(1/10), Steaua og Dinamo Kiev (1/15).
Fram er í 29.-31. sæti ásamt Sliema
frá Möltu og Famagusta frá Kýpur
en fyrir neðan eru Bray frá írlandi
með 1/5000 og Hesperange frá Lúx-
emborg með 1/10000. Djurgárden frá
Svíþjóð, sem mætir Fram, er í 18.-19.
sæti með 1/100.
Inter efst í
UEFA-bikarnum
ítalir þykja líka sennilégir til afreka
í UEFA-bikaraum því þar er Inter
Milano á toppnum með 1 á móti 6,5.
Köln frá Vestur-Þýskalandi er næst
með 1 á móti 8 og síðan Bayer Lever-
kusen frá sama landi með 1 á móti
12. Síðan koma Frankfurt, Mechelen,
Dortmund, Aston Villa, Anderlecht,
>/<' ' , U, y'ívú.: '
* V * ' -t. -
|jg|J| f j|i
• Pétur Arnþórsson Framari sést hér i leik gegn KR. Pétur og félagar eiga ekki mikla möguleika á sigri i Evrópukeppni bikarhafa ef marka má útreikn-
inga SSP veðbankans í London.
DV-Brynjar Gauti
Beniica og Roma, öll með 1 á móti
15. FH er í 61.-62. sæti en fyrir neðan
eru Hibemians frá Möltu með 1/5000
og Avenir Beggen frá Luxemborg
með 1/10000. Andstæðingar FH,
Dundee United frá Skotlandi er í
20.-23. sæti með 1/40 og er samkvæmt
því metið það öflugasta af þeim liðum
sem mæta íslensku félögunum.
Liverpool spáð
yfirburðum í Englandi
Miðað við útreikninga SSP ætti Live-
rpool að hafa mikla yfirburði í ensku
knattspymunni í vetur. Það gefur
lítið í aðra hönd að veðja á meistar-
ana, þeir eru með möguleikana 1 á
móti 1,8.
Annars er röðin í ensku 1. deildinni
þessi: Liverpool (1/1,8), Tottenham
(1/7), Arsenal (1/9), Manchester Un-
ited (1/12), Everton (1/14), Aston Villa
(1/15), Nottingham Forest (1/16),
Chelsea (1/30), Leeds (1/33), Manc-
hester City (1/66), QPR (1/66), South-
ampton (1/66), Norwich (1/66), Derby
(1/80), Coventry (1/100), Crystal
Palace (1/100), Wimbledon (1/150),
Shefíleld United (1/150), Luton (1/200)
og Sunderland (1/250).
í 2. deild er Shefíield Wednesday
spáð sigri en í næstu sætum ættu að
verða West Ham, Newcastle, Old-
ham, Swindon og Millwall, en Hull,
Plymouth og Brighton er spáð botn-
sætunum.
Borgar sig ekki að
veðja á Rangers
Fyrir þá sem fylgjast með skosku
knattspyrnunni er Ijóst að enginn
sem veðjar á Glasgow Rangers verð-
ur ríkur. Möguleikar skosku meist-
aranna eru taldir enn meiri en hjá
Liverpool í Englandi, eða 1 á móti
1,45. Annars er röðin þar þessi: Ran-
gers (1/1,45), Celtic (1/4,5), Aberdeen
(1/8), Dundee United (1/16), Hearts
(1/20), Hibernian (1/100), og síðan
koma St. Mirren, Dunfermline, St.
Johnstone og Motherwell, öll með
1/250.
Míianóliðin
efst á Ítalíu
í útreikningum fyrir ítölsku 1. deild-
ina koma fyrir sömu lið og eru á
toppnum í Evrópumótunum. Inter
Milano er spáð sigri með 1 á móti 3,5
en AC Milan er skammt undan með
1 á móti 3,75. Síðan koma Juventus
(1/4), Napoli (1/5,5), Sampdoria (1/12)
og Roma (1/16), en önnur lið eru langt
þar fyrir neðan. -VS
Kvennaknattspyma:
Helena varð
markahæst
-lokatölur úr 1. deild kvenna
Keppni í 1. deild kvenna lauk um
síðustu helgi en þá léku lið KA og ÍA
á Akureyri. Skagastúlkur sigruðu
með miklum yfirburðum, 1-7.
Júlía Sigursteinsdóttir skoraði þrjú
mörk fyrir Skagaliðið, Anna Lilja
Valsdóttir tvö og þær Sigurlín Jóns-
dóttir og Elín Davíðsdóttir eitt mark
hvor. Linda Hersteinsdóttir náði að
minnka muninn fyrir KA.
Lokastaðan
1. deild kvenna
10 8 0 2 19-5 24
10 7 1 2 20-9 22
Valur...........10 4 2 4 21-12 14
KR..............10 3 3 4 17-19 12
Þór.............10 3 1 6 11-16 10
KA..............10 1 1 8 6-33 4
Helena Ólafsdóttir
varð markadrottning
Helena Ólafsdóttir, KR..............7
Sigrún Óttarsdóttir, UBK............6
Guðrún Sæmundsdóttir, Val...........6
Júlía Sigursteinsdóttir, LA.........5
Ellen Óskarsdóttir, Þór.............5
Bryndís Valsdóttir, Val.............5
-ih
Sport-
stúfar
Tveir leikmenn 3. deildar liös
Reynis frá Árskógsströnd voru úr-
skurðaöir í þriggja leikja bann á
fundi aganeftidar KSÍ í fyrradag.
Það eru Kristján Sigurðsson, sem
á dögunum var rekinn af velli í
þriðja sinn á tímabilinu, og Friðrik
Magnússon sem fékk tveggja leikja
bann vegna bjottvísunar og eins
leiks bann vegna fjögurra gulra
spjalda. Tveir aörir úr 3. deild,
Trausti Hrafnsson h)á BÍ og Sigur-
jón Dagbjartsson úr Haukum, feng-
u eins leiks bann. Tveir leikmenn
4. deildar liðs Gróttu fengu tveggja
leikja bann, þeir Kristján V. Björg-'
vinsson og Kristján Pálsson. Þá var
Hjálmar HaUgrímsson, fyrirliði 2.
deildar liðs Grindvíkinga, úrskurð-
aður í tveggja leikja bann en ekki
eins leiks bann eins og sagt var í
DV x gær.
IrakogKúvæt
bæði á Asíuleikana?
írakar hafa tilkynnt að sameinað
lið íraks og Kúvæts muni keppa á
Asiuleikunum sem fram fara í Kína
í næsta mánuöi. Sendiherra íraks
í Japan skýrði frá þessu í gær og
sagöi ekki annað koma til greina
þar sem Kúvæt væri nú hluti af
Irak. SendiherraKúvæts sagði hins
vegar að þjóð sín tæki þátt í leikun-
um þótt þaö yrði karmski aðeins á
táknrænan hátt. Kínverjar hafa
sagt að bæði írakar og Kúvætmenn
væru velkomnir til leikanna.
Heyrst hefur að knattspyrnulands-
lið Kúvæt hyggi á þátttöku í leikun-
um en það var erlendis á keppnis-
ferð þegar írakar réðust inn í
landið þann 2. ágúst. Knattspyrnu-
liö íraks er þegar komið til Kína
og muft dvelja þar við æílngar og
keppni fram að leikunum.
Romario meiddur aftur
Brasiliski knattspymumaðurinn
Romario, sem leikur með PSV
Eindhoven í Hollandi, var borinn
af velli á lokarainútunum þegar
PSV lék við Utrecht í hollensku
úrvalsdeildinni á þriöjudagskvöld-
ið. Romario var þá að leika fyrsta
leik sinn með félaginu síðan hann
fótbrotnaði i mars og var búinn að
skora tvö mörk í 5-0 sigri, Hann
meiddist á hné og ekki er ljóst hve
alvarleg meiðslin eru en hann
verður ekki með PSV í næstu leikj-
um.
Reykjavíkurmótið í
handbolta að hefjast
Reykjavíkurmótið í handknattleik
hefst á laugardaginn kemur, 1.
september, bæði í meistaraflokki
karla og kvenria. Mótið fer allt fram
í Seljaskólanum. Byrjað verður
klukkan 13 á laugardag og þá eru
þrír leikir í kvennaflokki, Víking-
ur-ÍR, Valur-KR og Fram-
Árrnann. Að lokum mætast Fram
ogÁrmann í karlaflokki. Það vekur
athygli aö Valsmenn taka ekki þátt
í mótinu í karlaflokki að þessu
sinni.
UBK
ÍA....