Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1990, Page 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Rlts
tj^rn
Auglýsinga- - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1990.
Skákþingíslands:
Héðinn
vann Þröst
( Skákþing íslands hófst á Höfn í
Homafirði í gær og var hart barist í
fyrstu umferð. Jón L. Ámason vann
Þröst Árnason, Margeir vann Björg-
vin Jónsson, Hannes Hlífar vann
Tómas Bjömsson og Snorri Bergsson
vann Sigurð Daða. Mesta athygli
vakti sigur Héðins Steingrímssonar
á Þresti Þórhalissyni. Þá er Halldór
Grétar taiinn hafa betri stöðu í bið-
skák gegn Árna Á. Árnasyni.
-SMJ
Alþjóðlegarallið:
Ásgeirog
Bragi með
forystuna
Ásgeir Sigurðsson og Bragi Guð-
mundsson á MS Metro 6R4 bifreið
sinni eru með forystuna að loknum
fyrsta degi alþjóðlega Kumho-ralls-
ins sem hófst í Reykjavík síðdegis í
gær. Eknir voru um 220 kílómetrar
frá Reykjavík um Suðumesin og þeir
Ásgeir og Bragi eru með 47 sekúndna
forystu á þá Rúnar Jónsson og Jón
Ragnarsson á Escort sem eru í öðru
sæti. í þriðja sæti eru síðan Stein-
grímur Ingason og Guðmundur
Jónsson á Nissan bifreið, 42 sekúnd-
um á eftir Rúnari og Jóni.
Rallið heldur áfram í dag og verður
lagt upp frá Hjólbarðahöllinni við
Fellsmúla í Reykjavík klukkan 16 og
komið þangað aftur um klukkan 22
í kvöld. Þá verður keppnin hálfnuð
en henni lýkur á laugardag.
-VS
Akureyri:
Skullu saman
á Leirubrúnni
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii;.
Geysilega harður árekstur tveggja
bifreiða varð á Leirubrú á Akureyri
seint í gærdag og voru allir úr bif-
reiðunum tveimur, alls fjórir, fluttir
á sjúkrahús.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu
hefur ökumaður annarrar bifreiðar-
innar misst vald á henni í miklum
vatnselg sem var á brúnni og lenti
bifreið hans framan á hinni. Einn
hinna fjögurra, sem fluttur var á
sjúkrahús, var mikið slasaður en í
morgun var ekki nánar vitað um
meiðsli hans. Bifreiðarnar tvær eru
gjörónýtar.
LOKI
Hvað er ein ríkisstjórn
á móti álveri?
Fórnum ekki álveri fyr
ir Alþýðubandalagið
„Alþýðubandalagið hefur í ár-
anna rás verið á móti stóriðju á
íslandi og staðið í vegi fyrir því og
heft framfarir. Þeir létu undan i
þessu máh vegna skynsamlegs
málatilbúnaðar iðnaðarráðherra
og þrýstings frá verkalýðssamtök-
unum. Nú hafa þeir fundið flöt til
að taka upp fyrri stefnu,“ sagði
Karl Steinar Guðnason, þingmaður
Alþýðuflokksins, um ummæli
Steingríms J. Sigfússonar land-
búnaðarráðherra í DV í gær um
að þingflokkur Alþýðubandalags-
ins hefði í raun hafiiað byggingu
álvers ef það verður á Reykjanesi.
- Hefur iðnaðarráðherra svo víð-
tæk völd í þessu máli að hann geti
knúið þaö í gegn án samþykkis
Alþýðubandalagsins í ríkisstjórn?
„Nei. En þá verða stærri atburðir
aö gerast. Við getum ekki fórnað
þjóðarliagsmunum fyrir setu Al-
þýðubandalagsins í ríkisstjórn,"
sagði Karl Steinar.
Að sögn Karls Steinars hefur
þingflokkur Alþýðuflokksins þá
stefnu að hlíta mati þeirra fyrir-
tækja sem að álverinu munu
standa. Það mat tekur mið af hag-
kvæmni og umhverfisþáttum til
margra ára. Alþýðuflokkurinn vill
ekki standa fyrir þvi að fóma gríð-
arlegum fjármunum i mörg ár til
að setja álver niður þar sem það
er óhagk\ræmt.
Það er því alls ekki ólíklegt að
álmálið geti leitt til stjórnarslita.
Talið er langlíklegast að Atlants-
ál-hópurinn vilji setja álverið niður
á Keilisnesi. Það sé bæði hag-
kvæmast út frá peningasjónarmiö-
um og eins sé mtnnst hætta á alvar-
legum afleiðingum mengunar þar.
Eins og Steingrimur J. Sigfússon
lajidbúnaðarráðherra sagði í DV í
gær þá mun Alþýðubandalagið
ekki samþykkja álver á Keilisnesi.
Karl Steinar, þingmaður krata,
segir nú að slik afstaða mundi nán-
ast sjálfkrafa leiða til stjórnarslita.
-gse
Það er vist óhætt að segja að gullið flæði um götur, slíkt er verðið á þorskkílóinu um þessar mundir. Þessi fisk-
verkandi hefur verið að flýta sér aðeins of mikið með farm sinn hjá Fiskmarkaði Hafnarfjarðar og misst hann
niður fyrir vikið. Á Hafnarfjarðarmarkaðnum hefur fiskverð verið geipihátt eins og á Faxamarkaði. DV-mynd S
Veðriö á morgun:
Norðlæg átt
um mestallt
landið
Norðlæg átt verður um mestallt
landið, víðast fremur hæg. Við
norðurströndina verður þokuloft
og dálítil rigning eða súld sums
staðar norðanlands en bjart veö-
ur að mestu sunnanlands og vest-
an.
Hiti verður 7-12 stig, hlýjast
sunnanlands.
Stútur stakk af
Þrír aðilar voru teknir fyrir ölvun-
arakstur í Reykjavík í nótt. Einn
þeirra var eitthvað óánægður með
gang mála og stakk af. Hann fór heim
til sín með lögregluna á hælunum.
Þar hélt hann uppteknum hætti og
skreið út um gluggann og hljóp af
stað. Hann náðist þó fljótlega og rétt-
vísinni varð framgengt.
-pj
Metverð á Faxamarkaði:
Þorskkílóið
í134 krónur
Metverð náðist á Faxamarkaði í
gær þegar þorskur komst upp í 134
króna meðÉdverð. Þetta var hluti af
stórum slægðum þorski sem var yfir
10 kiló að þyngd. Hér er um að ræða
svokallaðan „saltarafisk" sem á að
fara í saltfisk. Fiskurinn var úr Snæ-
björgu frá Ólafsfirði og var um að
ræða 5 tonn.
Samkvæmt upplýsingum frá Faxa-
markaði þá er feikilegur slagur um
fisk þessa dagana. Mikið er siglt með
afla og menn reyna því allt til að ná
til sín fiski til að standa við gerða
samninga. Það var til dæmis ekki
bara stóri þorskurinn sem komst í
gott verð í gær því smærri fiskurinn
fór einnig á mjög háu verði, eða á
milli 92 og 103 kr. kílóið.
-SMJ
Einn sá
ódýrasti
í bænum
ÍSVAL
v/Rauðarárstig
cöTjfTesNAKe
DAGAR