Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1990, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 1990.
5
Fréttir
Kvótasamdráttur 10 til 20 tonna báta:
Olíklegt að þeirra
staða verði bætt
- segir Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra
„Mér þykir afar ólíklegt aö þaö
náist samstaða um aö rífa þá
ákvörðun upp sem þegar hefur ver-
iö tekin varðandi úthlutun afla,“
sagði Halldór Ásgrímsson sjávar-
útvegsráðherra þegar hann var
spurður að því hvort unnt væri að
bæta á einhvern hátt aðstöðu
þeirra sem gera út 10 til 20 tonna
báta.
Eins og kom fram í DV í gær segja
eigendur þessara báta að útgerð
þeirra sé hrunin vegna helmings-
samdráttar á kvóta þeirra ef tekið
er miö af úthlutun næsta árs.
Halldór sagði að þeir væru búnir
að vera í kvótakerfinu um nokk-
urra ára skeið og hefðu rýrar afla-
heimildir eins og mörg önnur skip
í flotanum.
„Þaö sem hefur gerst á undan-
fórnum árum er einfaldlega það að
skipin undir 10 brúttólestum hafa
verið frjálsari en mörg önnur skip
í flotanum. Þau hafa fengið að veiða
án hámarka hluta af tímabilinu en
með ákveðnu hámarki undanfarið.
Það er alveg ljóst að margir bátar
undir 10 brúttólestum fá meiri
veiðiheimildir en margir bátar á
milli 10 og 20 tonn. Það var hins
vegar samþykkt í meðferð þessa
máls að sóknarmarksskipin fengju
helming þess afla sem yrði til út-
hlutunar umfram aflamarkið en
aflamarksskip fengju hinn helm-
inginn. Þessi skipting var staðfest
af öllum hagsmunaaðilum en hún
hefði að sjálfsögðu getað verið önn-
ur. Það hefði kannski leitt til þess
að þeir sem lítið hafa fengju meira
og þeir sem mikið hafa fengju
minna.
Mér þykir afar ólíklegt að það
náist einhver samstaða um það að
rífa þá ákvörðun upp. Ef einhver á
að fá meira verða aðrir að fá
minna,“ sagði sjávarútvegsráð-
herra. Halldór sagði að helstu
möguleikar þeirra sem gera út 10
til 20 tonna báta væru í tegundum
sem enn væru ekki í kvótakerfmu,
svo sem lúðu og steinbít. Hann
sagðist þó gera sér grein fyrir að
þar væru takmarkaðir möguleikar.
-SMJ
Kvótasala er mikil núna og sést það til dæmis glögglega af miklu magni
auglýsinga þar um. Þessar tvær auglýsingar héngu uppi i Kaffivagninum
á Granda. DV-mynd JAK
>ÁTUM KVOTANN f.KKI FASA
BORT ÚR RBVKJAViK
F:(UM KAW&VpUR AD
VARANLEOUM KVÓTA
ORANDi HF
.svitóiái
SIOURBJÖRN' SDA JÓN
Pressumálið:
Viljum
ekki
galdra-
veiðar
- segja Jónína og Ómar
„Við ætlum ekki að hjálpa Birgi
Dýrfjörð við að setja af stað ein-
hverjar galdraveiðar innan Alþýðu-
flokksins,“ sögðu brottreknir rit-
stjórar Pressunnar, þau Jónína Leós-
dóttir og Ómar Friðriksson, þegar
ályktun frá formanni Fulltrúaráðs
Alþýðuflokksins í Reykjavík, Birgi
Dýrfjörð, var borin undir þau.
í ályktuninni krefst Birgir þess að
Jónína, en ályktuninni er beint til
hennar þó að ritstjórarnir svari
þessu samstíga, nafngreini það fólk
úr forystu Alþýðuflokksins sem hún
segir að hafi reynt að hafa áhrif á
ritstjórnarstefnu blaðsins undir
þeirra ritstjórn. Segir Birgir að eng-
inn afstjórnarmönnum fulltrúaráðs-
ins og stjórna flokksfélaga í Reykja-
vik kannist við þetta, né heldur
neinn af þeim sem skipuðu sæti á
lista Nýs vettvangs.
Þess má geta að Jón Daníelsson,
blaðamaður á Alþýðublaðinu, hefur
veriö fenginn til þess að ritstýra
Pressunni fram til 1. október. Einnig
má geta þess að Blaðamannafélag
íslands hefur sent frá sér ályktun þar
sem þeim vinnubrögðum, sem við-
höfð hafa verið við uppsögn starfs-
fólks Pressunnar, er harðlega mót-
mælt. -SMJ
Fjórðungsþing Norðlendinga:
Álveri verði
valinn staður
við Eyjafjörð
- þingið skoraði á ríkisstjómina
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Staðsetning nýs álvers var mál mál-
anna á þingi Fjórðungssambands
Norðlendinga, sem haldið var á
Sauðárkróki um helgina, og skoraði
þingið á ríkisstjórnina að sjá til þess
að álverið yrði reist í Eyjafírði.
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra
fullyrti á þinginu að Eyjafjörður
væri enn inni í myndinni varðandi
staðsetningu álversins sem og hinir
staðirnir tveir, Keilisnes og Reyðar-
fjörður, og stefnt væri að því að taka
ákvörðun um staðarvalið í þessum
mánuði.
Þingmenn beggja kjördæma á
Norðurlandi, sem sátu þingið sem
gestir, voru ekki ánægðir með mál-
flutning ráðherrans og vildu greini-
lega fá afdráttarlausari yfirlýsingar
um staðarvalið sem ráðherra sagðist
ekki vera tilbúinn að gefa. Stefán
Valgeirsson alþingismaður upplýsti
að hann hefði setið fund stóriðju-
nefndar fyrir skömmu þar sem Jó-
hannes Nordal hefði lýst því yfir að
Reyðarfjörður væri út úr myndinni
varðandi staðsetningu álvers og
þeim bæri því ekki saman, honum
og iönaðarráðherra.
p)
Gabriel
HÖGGDEYFAR
STERKIR, ORUGGIR
ÓDÝRIR!
LAUGARDAGSRISAROKK
í REIÐHÖLLINNI 8. SEPTEMBER
Tiyggið ykkur miða á laugardagstónleikana
í tíma á meðan miðar eru til
Pantanasími fýrir landsbyggðina er 667556. Ath.: Forsölu á landsbyggðinni lýkur fimmtudaginn 6. sept.
Miðaverð kr. 3.500.
Forsala aðgöngumiða Reykjavík: Skífan, Kringlunni og Laugavegi 33, Hljóðfærahús Reykjavíkur, Laugavegi 96, Stein- ar, Austurstræti, Álfabakka 14, Glæsibæ, Rauðarárstíg 16 og Eiðistorgi. Myndbandaleigur Steina; Plötubúðin Laugavegi 20. Hafnarfjörður: Steinar, Strandgötu 37. Akranes: Bókaskemman. Borgarnes: Kaupfélag Borgfirðjnga. ísafjórður: Hljómborg. Sauðárkrókur: Kaupfélag Skag- firðinga. Akureyri: KEA. Neskaupstaður: Tónspil. Höfn: KASK. Vestmannaeyjar: Adam og Eva. Selfoss: Ösp. Keflavík: Hljómval.
Munið: Flugleiðir veita 35% afslátt mmmm af verði flugferða gegn framvísun ■> aðgöngumiða að risarokktónieikunum.