Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1990, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1990, Side 25
MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 1990. 49 Afmæli Bessi Bjamason Bessi Bjarnason leikari, Hlunna- vogi 13, Reykjavík, er sextugur í dag. Bessi er fæddur í Reykjavík. Hann lauk verslunarskólaprófi 1949 og var í námi í Leiklistarskóla Lár- usar Pálssonar 1949-1950 og var í fyrsta árgangi Leiklistarskóla Þjóð- leikhússins 1950-1952. Bessi vann í Kassagerðinni 1949-1952 og var bók- ari í Landssmiðjunni 1952-1962. Hann hefur verið leikari í Þjóðleik- húsinu frá 1952, var gestaleikari með Leikfélagi Hafnarfjarðar í Skím sem segir sex, 1953, og lék í Húrra, krakki, með Leikfélagi Reykjavíkur í Austurbæjarbíói. Bessi skemmti með Sumargleðinni 1971-1986 og með leikflokknum Lillý verður léttari 1973-1974. Hann skemmti með Gunnari Eyjólfssyni 1955-1970 og hefur staðið fyrir út- gáfu á bamaleikritum, lesnum barnasögum og ýmsu skemmtiefni á hljómplötum og snældum. Meðal helstu hlutverka Bessa eru: Jónatan (1960) og Kasper (1974) í Kard- imommubænum, Mikki refur í Dýr- unum í Hálsaskógi, Aldinborinn í Ferðinni til tunglsins, Gvendur í Skugga-Sveini, Palvek og Kovarik í Góða dátanum Sveijk, Hrólfur í Hrólfi, Peter í Hunangsilmi, Gvend- ur snemmbæri í Nýársnóttinni, prinsinn í Hvað varstu að gera í nótt?, Argan í ímyndunarveikinni, George í Á sama tíma að ári, Sveyk í Sveyk í síðari heimsstyrjöldinni, Harpagon í Aurasálinni, Jamie í My Fair Lady, litli kall í Stöðvið heiminn, Christopher Mahon í Lukkuriddaranum, Michael í Ég vil! Ég vil!, skemmtistjórinn í Kabarett, Nathan Detroit í Gæjar og píur, Cliff Lewis í Horíðu reiður um öxl, Mick í Húsverðinum, Perry í Allt í garðin- um, Gústaf í Hvernig er heilsan?, leikarinn í Náttbóhnu, Tómas í í öruggri borg, Gustur í Gusti, viðar- höggsmaðurinn í Rashomon og Baddi í Bílaverkstæði Badda. Bessi hefur sungið í mörgum óperettum, m.a. í Sumar í Tyrol, Kysstu mig, Kata, Betlistúdentinum, Sardas- furstynjunni og í óperunni Töfra- flautunni, 1956, ogtitilhlutverkið Mikado hjá íslensku óperunni, 1982. Hann hefur dansað dr. Coppelíus í Coppelíu, 1974, og leikið í kvikmynd- unumNiðursetningnum, 1953, Skilaboð til Söndru og Bílaverk- stæði Badda. Hann var gjaídkeri Félags íslenskra leikara 1954-1987 og í stjórn Lífeyrissjóðs leikara. Bessi kvæntist 30. desember 1952 Erlu Sigþórsdóttir, f. 19. júh 1931, bókasafnsfræðingi. Þau skhdu 1979. Foreldrar Erlu voru Sigþór Jó- hannsson, sjómaður í Rvík, og kona hans, Jóna Finnbogadóttir. Böm Bessa og Erlu: Sigþór, f. 9. maí 1952, d. 11. nóvember 1970; Kolbrún, f. 21. júní 1954, skrifstofumaður í Rvík, gift Pétri Jóhannessyni innkaupa- stjóra, ogBjarni, f. 24. júlí 1957, verk- fræðingur í Rvík, kvæntur Guðrúnu Baldvinsdóttur lækni. Bessi kvænt- ist 24. júní 1988 Margréti Guð- mundsdóttur, f. 22. nóvember 1933, leikkonu. Foreldrar Margrétar eru Guðmundur Bjarnason, b. á Hæli í Flókadal, og kona hans, Stefanía Amórsdóttir. Systkini Bessa eru: Inga, f. 5. júní 1923, starfsmaöur Félags eldri borgara á Selfossi, gift Kjartani Ögmundssyni, fyrrv. mjólkurbílstjóra; Snorri, f. 24. sept- ember 1925, kennari á Blönduósi, kvæntur Erlu Aðalsteinsdóttur, og Björgvin, f. 5. maí 1928, bifvélavirki í Rvík, kvæntur Hrefnu Jóhannes- dóttur. Foreldrar Bessa voru Bjarni Sig- mundsson, f. 26. febrúar 1898, d. 1979, bílstjóri í Rvík, og kona hans, Guðrún Snorradóttur, f. 13. ágúst 1896, d. 31. desember 1989. Bjarni var sonur Sigmundar, b. á Hvalskeri á Rauðasandi, Hjálmarssonar, b. á Sjöundá á Rauðasandi, Sigmunds- sonar, b. á Stökkum á Rauðasandi, Jónssonar, b. á Stökkum, Magnús- sonar. Móðir Hjálmars var Björg Helgadóttir, b. í Gröf, Jónssonar og konu hans, Guðrúnar Bjarnadóttur. Móðir Sigmundar á Hvalskeri var Guðrún Lýösdóttir, b. á Þverá á Barðaströnd, Guðmundssonar, b. á Hamri á Barðaströnd, Jónssonar. Móðir Lýðs var Guðrún Ólafsdóttir frá Brjánslæk. Móðir Bjarna var Ingibjörg Einarsdóttir, b. í Flatey, Einarssonar, b. á Hvallátrum, Guð- mundssonar, b. í Miðhúsum í Reyk- hólasveit, Sveinssonar. Móðir Ein- ars var Guðrún Torfadóttir, b. á Kinnastöðum í Reykhólasveit. Móð- ir Einars Einarssonar var Ingibjörg Pétursdóttir, b. í Flatey, Jónssonar og konu hans, Guðrúnar Einars- dóttur. Móðir Ingibjargar var Krist- ín Magnúsdóttir, b. á Efri-Vaðh á Barðaströnd, Magnússonar, b. á Auðshaugi, Erlendssonar. Móðir Magnúsar á Vaðli var Kristín Þor- grímnsdóttir. Móðir Kristínar var Hervör ljósmóðir Ásgeirsdóttir, b. á Litlanesi, Bjamasonar, ogkona hans, Kristín Guðbrandsdóttir, b. á Laugarbóli. Guðrún var dóttir Snorra, b. í Garðakoti í Hjaltadal í Skagafirði, Bessasonar, b. í Kýrholti, Steinsson- ar. Móðir Bessa var Herdís Einars- dóttir, systir Guðrúnar, langömmu Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi. Móðir Guðrúnar var Anna Björns- Bessi Bjarnason. dóttir, b. í Enni í Viðvíkursveit, 111- ugasonar, b. í Marbæh, Björnsson- ar, b. á Óslandi, Björnssonar, ríka á Hofsstöðum, Illugasonar, fóður Gunnlaugs, langafa Páls Einarsson- ar borgarstjóra. Móðir Önnu var Helga Jónsdóttir, b. í Stóragerði, Vigfússonar, b. á Þröm, Erlendsson- ar. Móðir Vigfúsar var Hahdóra Þorláksdóttir, lögréttumanns á Sól- heimum, Björnssonar og konu hans, Guðrúnar Jónsdóttur, sýslumanns á Sólheimum, Magnússonar, bróður Áma prófessors. Móðir Jóns var Valgerður Jónsdóttir, b. á Skegg- stöðum, Jónssonar, ættföður Skegg- staðaættarinnar. Bessi tekur á móti gestum í skrúðgaröi heimilis síns kl. 16-19 á afmælisdaginn. amingju Daníel Guðjónsson, Norðurgötu 39B, Akureyri. 80 ára Margrét J ónsdóttir, Nóatúni 24, Reykjavík. Anne Marie H. Lamb, Túngötu 33, Reykjavík. Héðinn Kristófersson, Eyjalandi l.Djupavogi. FriðfmnurS. Ámason, Aðalstræti 13, Akureyri. Krisijana Sigurðardóttir, Hásteinsvegi 48, Vestmannaeyjum Karl Ottó Karlsson, Drápuhhð 2, Reykjavík. Hrafnhildur Aðalsteinsdóttir, Noröurgötu 34, Akureyri. Haukur Hallgrímsson, Vogalandi 2, Reykjavík. Jóna Guðrún Björnsdóttir, Hátúni 10A, Reykjavík. Jóhanna Kristjánsdóttir, Selsvöllum 18, Grindavík. PáUÞórElísson, Gimh, Reyðarfjaröarhreppi. Ragna Ólafsdóttir, Réttarbakka 5, Reykjavík. Gylfi Gunnarsson, Gijótaseh 8, Reykjavík. Ásgrimur Stefánsson, Stóru-Þúfu II, Miklaholtshreppi. Guðný H. Björnsdóttir, Austurgörðum II, Kelduneshi'eppi. Pálína Úranusdóttir, Miðskógum 7, Bessastaöaltreppi. Einar E. Guðmundsson, Giljaseh 9, Reykjavik. Sveinn O. Gunnarsson, Heiðarseli 25, Reykjavík. Hjördís Arnardóttir, Víkurströnd 16, Seltjamarnesi. Karl Runólfsson, Sigtuni II, Mýrdalshreppi. Maigrét Guðbergsdóttir, Fitiamýri.Vestur-Eyjafiallahreppi. Ásta Sigrún Guðjónsdóttir Ásta Sigrún Guðjónsdóttir hús- móðir, Eyjahrauni 1, Vestmanna- eyjum, er áttatíu og fimm ára í dag. Ásta Sigrún fæddist í Varmadal á Rangárvöhum en ólst upp í Krók- túni í Hvolhreppi. Hún fór til Reykjavíkur tuttugu og þriggja ára að aldri og var þar vinnukona í einn vetur en flutti síðan til Vestmanna- eyja þar sem hún hefur búið síðan. Ásta Sigrún var vinnukona í Eyjum í tvo vetur. Hún giftist 1.10.1929 Valtý Brandssyni, f. 3.6.1901, d. 1.4. 1976, verkamanni og sjómanni, en hann er sonur Jóhönnu Jónsdóttur og Brands Ingimundarsonar, verka- fólks. Ásta Sigrún og Valtýr bjuggu á Hvoh í fiórtán ár, þá bjuggu þau í bragga í Eyjum í þrettán ár en byggðu sér síðan hús að Strembu- götu 10 í Eyjum. Áriö 1981 fluttu hún að Eyjahrauni 1 í þjónustuíbúðir aldraðra. Ásta Sigrún eignaðist þrettán böm og ól upp eitt fósturbarn. Börnin era Helga, f. 21.7.1928, húsmóðir og póstur í Garðabæ, gift Birni Björns- syni og eiga þau tvö börn; Jóhanna, f. 17.6.1930, húsmóðir ogfisk- vinnslukona í Keflavík, gift Brynj- ari Þórarinssyni og eiga þau sex börn; óskírð, f. 1931, d. í júlí sama ár; Ása, f. 7.8.1933, d. 24.4.1981, húsmóðir í Vestmannaeyjum, var gift Georg Sigurðssyni og eignuðust þau fjögur börn; Vilborg, f. í mars 1936, d. 1938; Sveinn, f. 4.4.1937, bryti við Skíðaskálann í Hveradölum, búsettur í Hafnarfirði, kvæntur Sig- urrósu Jónasdóttur; Guðbrandur, f. 5.8.1939, skipstjóri og nú starfsmað- ur við Keflavíkurflugvöll, búsettur í Njarðvíkum, kvæntur Hrefnu Jónsdóttur og eiga þau tvö börn; Ástvaldur, f. 5.2.1941, fiskverkandi í Vestmannaeyjum, kvæntur Halld- óru Sigurðardóttur og eiga þau þrjár dætur; Auðberg Óli, f. 15.12.1944, verkamaður við Áhaldahúsið í Eyj- um, kvæntur Margréti Óskarsdótt- ur og eiga þau tvö börn; Kristín, f. 22.9.1946, húsmóðir ogfiskverka- kona, gift Gunnari Ámasyni og eiga þau þrjú böm; Jón, f. 17.4.1948, verkamaður við laxeldi í Eyjum, kvæntur Þórhhdi Guðmundsdóttur og eiga þau tvö börn; Sigríður, f. í maí 1949, d. 1953, og Óskar, f. 7.3. 1951, plötusmiður í Eyjum, kvæntur Jóhönnu Þórðardóttur og eiga þau tvö börn. Fósturdóttir Ástu Sigrún- ar er Ásta María, f. 22.10.1947, hús- móðir og fiskverkakona, gift Hall- Ásta Sigrún Guðjónsdóttir. grími Júlíussyni og eiga þau þrjú börn. Fósturforeldrar Ástu Sigrúnar voru Jón Jónsson bóndi og Helga Runólfdóttir húsfreyja. Foreldrar Ástu Maríu voru Guð- jón Jónsson og Anna Kristín Jó- hanndóttir. Ásta Sigrún tekur á móti gestum í Týsheimihnu nk. laugardag klukk- an 18.00. Axelína Geirsdóttir Axehna Geirsdóttir, fyrrv. hús- freyja í Sveinbjarnargerði á Sval- barðsströnd, Smáratúni I á Sval- barðseyri, er áttatíu og fimm ára í dag. Axelína er fædd á Veigastöðum á Svalbarðsströnd. Axehna giftist 1. júh 1935 Halldóri Jóhannessyni frá Sveinbjarnargerði, f. 22. september 1904, d. 14. október 1982. Foreldrar Hahdórs voru Jóhannes Halldórs- son frá Garðsvík, f. 3. janúar 1876, og kona hans, Kristjana Jónsdóttir frá Sveinbjarnargerði, f. 30. júlí 1876. Axelína og Halldór bjuggu í Svein- bjamargerði í um það bh íjörutíu ár en hún býr nú í Smáratúni I á Svalbarðseyri. Þau hjónin eignuð- ust þijá syni og eina dóttur. Börn Axehnu og Hahdórs eru Jónas Eiríkur, f. 29. ágúst 1936, bóndi í Sveinbjarnargerði II, kvæntur Anny Larsdóttur frá Noregi og eiga þau einn son; Jóhannes Geir, f. 26. ágúst 1940, verkstjóri, búsettur á Vaðlafehi á Svalbarðsströnd, kvæntur Herdísi Jónsdóttur frá Fornastöðum í Fnjóskadal og eiga þau tvö börn; Haukur, f. 25. janúar 1945, bóndi í Sveinbjarnargerði I og formaður Stéttarsambands bænda, kvæntur Bjarneyju Bjarnadóttur og eiga þau þrjú börn; og Vigdís, f. 15. ágúst 1946, bóndi í Noregi, og á hún fimm böm. Axelína er elst fimm systkina en tvö þeirra eru látin. Systkini Axel- ínu: Elínbjörg, f. 23. aprh 1908, nú látin, var gift Pétri Jóranssyni, sjó- manni úr Keflavík, og eignuðust þau þrjú börn; Eiríkur, f. 19. september 1911, nú látinn, var bóndi á Veiga- stöðum; Hahdóra, f. 22. maí 1915; og Ragnar, f. 7. nóvember 1922, en þau bjuggu áður á Veigastöðum en búa nú í Smáratúni I á Svalbarðseyri. Axelína Geirsdóttir. Foreldrar Axelínu vom Jóhann Geir Jóhannsson, f. 17. febrúar 1882, b. á Veigastöðum, og kona hans, Kristjana Halldórsdóttir, f. 7. mars 1876. Jóhann Geir var sonur Jó- hanns, b. á Parti í Reykjadal í Suð- ur-Þingeyjarsýslu, Jóhannssonar. Móðir Jóhanns var Sesseha Finn- bogadóttir Sveinssonar, b. í Garðs- vík, Brandssonar. Móðir Jóhanns Geirs var Guðbjörg Eiríksdóttir, móöir Jóns, afa Guðmundar Bjarna- sonar heilbrigðisráðherra og lang- afa Péturs, fóðuirLindu sem var ungfrú heimur 1988. Kristjana var dóttir Halldórs, b. á Veigastöðum, bróður Sesselju, ömmu Jóns Benediktssonar, fyrrv. yfirlögregluþjóns á Akureyri. Hall- dór var sonur Eiríks, b. í Mógili, Halldórssonar og konu hans, Sesselju Hrólfsdóttur, b. oghrepp- stjóra á Þórisstöðum, Þórðarsonar. Móðir Sesselju Hrólfsdóttur var Sessilía Þorláksdóttir, systir Þor- láks, langafa Þórarins, foður Vil- hjálms Þórs, forstjóra SÍS. Móðir Kristjönu var Ehn Jóakimsdóttir, b. í Fífilgerði, Þorsteinssonar, b. á Jarlsstöðum, Þorsteinssonar. Vilmar Kristján Magnús- son Vilmar Kristján Magnússon frá Bolungarvík, nú th heimilis að Kópavogsbraut 5, Kópavogi, er sjö- tugurídag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.