Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1990, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1990, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER1990. . 50 Sviðsljós ZsaZsa Gabor sloppin úr fangelsi Leikkonan Zsa Zsa Gabor er slopp- in úr fangelsi eftir að hafa setið bak við lás og slá í þrjá daga fyrir að slá lögregluþjón. Gabor, sem er 72 ára gömul, fagnar nú frelsi sínu og ætlar að slá upp veislu í tilefni þess. Hún segir það hafa verið hræðilega lífsreynslu að vera svipt frelsi í þrjá sólarhringa og neyðast til þess aö dúsa í saggafullum og köldum klefa með hrossaábreiðu eina til skjóls. „Ég hélt að refsifangar fengju að viðra sig úti á hverjum degi en ég fékk aldrei ferskt loft,“ segir leikkon- an. „Ég myndi ekki einu sinni geyma hundana mína á slíkum stað því þeir myndu fljótlega deyja úr lungna- bólgu." Gabor fagnar hundunum sinum sem eru fegnir að sjá eiganda sinn á ný. Quaylefjölskyldan á skemmtiferð. Varaforsetafrú féll í ána Dan Quayle, varaforseti Bandaríkj- anna. Eitt vinsælasta tómstundagaman Dans Quayle, varaforseta Bandaríkj- anna, og fjölskyldu hans er að sigla niöur straumharðar ár (whitewater rafting) sem er fólgið í því aö sigla eftir gljúfrum í hvítfyssandi straumkasti. Þetta er ekki með öllu hættulaus íþrótt og minnstu munaði að illa færi á dögunum þegar Marilyn Quayle, eiginkona varaforsetans, féll útbyrðis í einum slíkum leiðangri. Óhappið átti sér stað í Colorado- ánni í Grand Canyon-gljúfrunum sem eru einhver þau hrikalegustu í heiminum. Var Quayle-fjölskyldan að sigla gegnum einn erfiðasta hluta þeirra þegar Marilyn féll fyrir borð. Frúin var að sjálfsögðu í björgunar- vesti eins og varkárra er siður og bjargaðist því fljótlega ómeidd en hundblaut um borð á ný og mun henni ekki hafa orðið meint af volk- inu. Aðgangsharðir aðdáendur ógna lífi leikara 42 ára skrifstofumaður í Los Ange- les, Michael Shields, að nafni var nýlega fundinn sekur um að senda leikkonunni Stephanie Zimbalist 212 hótunarbréf sem hann undirritaði, Leynilegur aðdáandi. Aðdáandinn var dæmdur í skilorðsbundið fang- elsi og ennfremur til þess að hafa aldrei samband við 18 nafngreinda einstakhnga sem tengjast leikkon- unni og höfðu með rannsókn málsins að gera, að henni meðtalinni, og koma aldrei nær neinu þeirra en sem nemur 170 metrum. Zimbalist hefur verið vinsæl leik- kona í bandarískum sjónvarpsþátt- um um FBI og hafði um langa hríð ekki mátt um frjálst höfuð strjúka vegna hótana Shields. Ekki er ýkja langt síðan önnur vin- sæl sjónvarpsleikkona, Roberta Schaffer, var myrt og bíður einn aðdáenda hennar dóms vegna þess. Theresa Saldana, þekkt leikkona, varð fyrir harkalegri líkamsárás og var árásarmaðurinn einn af aðdá- andum hennar. Tina Nokkur Led- better var fyrir skömmu dæmd fyrir að senda leikaranum Michael J. Fox tæplega 6.000 hótunarbréf. Af þessu sést að frægðin hefur sín- ar skuggahliðar og aðdáendur geta verið beinlínis lífshættulegir. Margir frægir leikarar lifa í stöðugum ótta vegna þess og ráða sérstaka öryggis- verði sem fylgjast með pósti frá aðdá- endum og hafa auga með þeim sem gerast of nærgöngulir. Nancy Reagan, fyrrum forsetafrú, gekkst undir aðgerð vegna krabbameins i nefi nýlega. Hún er sögð á góðum batavegi. Harry Nilsson ók fullur Æxli fjarlægt úr nefi Nancy Reagan Harry Nilsson, sem í eina tíð var þekktur tónhstarmaður, var nýlega gripinn undir stýri í Los Angeles og sakaður um að vera nokkuð blekað- ur. Lögregla fullyrti að áfengismagn í blóði söngvarans hefði numiö 2,3% eða þrefalt meira en hæstu mörk leyfa. Venjulegur maður, lítt vanur áfengi, hefði átt að vera meðvítund- arlaus eftir slíka drykkju. Lögfræð- ingur Nilssons mætti fyrir rétti og hélt ákaft fram sakleysi skjólstæð- ings síns og sagöi hann hafa verið edrú eins og templara. Ekkert mark var tekið á fullyrðingum hans og réttarhöld fara fram síðar í mánuðin- um. Frægustu lög Nhssons eru Without You og Everybody’s Talkin úr kvik- myndinni Midnight Cowboy. Frægö söngvarans hefur dalað verulega á undanlornum árum og regluseirti hans verið nokkuð ábótavant. Fyrrverandi forsetafrú Bandaríkj- anna, Nancy Reagan, gekkst fyrir skömmu undir minniháttar skurðað- gerð þar sem krabbameinsæxli var fjarlægt úr nefi hennar. Aðgerðin fór fram á Mayo sjúkrahúsinu í Ro- chester og hefur Nancy nú verið send til heimihs síns í Los Angeles og þarf ekki á neinni eftirmeðferð að halda. Meðan Ronald Reagan, eiginmaður hennar, var forseti þurfti hann einn- ig að ganga undir svipaða aðgerð við krabbameini í nefi. Hvort þetta er atvinnusjúkdómur í þessari stétt í Ameríku skal ósagt látið en forsetar þurfa óneitanlega að vera méð nefið niðri í öllu og það virðist ekki vera mjög hoht. Ólyginn sagöi... Darlanne Flugel Lögreglumaðurinn Hunter, sem er íslenskum sjónvarpsáhorfend- um að góðu kunnur, hefur fengið nýjan starfsfélaga. Það er Dar- lanne Flugel sem hefur verið val- in til þess að leika Joan Malinski sem koma mun í stað Dee Dee McCah sem félagi Ricks Hunter. Darlanne Flugel er ljóshærð kyn- bomba sem kom líthlega við sögu í kvikmyndinni Augu Láru Mars þar sem hún lék hlutverk fyrir- sætu, sem var myrt á hroðalegan hátt, og einnig lék hún á móti DeNiro í Once upon a Time in America. Sagt er að Fred Dryer, sem leikur Hunter lögreglumann, sé hæstánægður með skiptin því ■Darlanne minni hann mjög á fyrrum eiginkonu hans ^sem starfaði sem Playboy kanínu- stelpa. Elvis Presley Stjúpbróðir rokkgoðsins látna, David Stanley, fuhyrðir að Elvis hafi framið sjálfsmorö og andlát hans hafi verið undirbúið. Stan- ley fullyröir að ástæðurnar fyrir því að Elvis afréð að binda enda á líf sitt hafi einkum verið getu- leysi hans í rúminu, minnkandi vinsældir og sektarkennd vegna þess að hann hafi ekki rækt föð- urhlutverk sitt gagnvart Lisu Maríu dóttur sinni sem skyldi. Stanley staðhæfir að Elvis hafi einu sinni áður reynt að fremja sjálfsmorð og hann hafi kvatt stjúpbróður sinn hinstu kveðju tveim dögum áður en hann lést. Amold Schwarzenegger er klaufskari viö að skipta um bleiu á ungri dóttur sinni en að berjast við óvíga heri á hvíta tjaldinu. Arnold, sem er giftur Mariu Shriver Kennedy, telur sig vera talsvert jafnréttissinnaðan og leggur sitt af mörkum við umönnum reifabamsins. Honum tókst mjög óhönduglega að skipta á því þegar hann reyndi það fyrst og endaði með því að vööla blei- unni um háls barnsins. Arnold reynir nú ákaft að reka af sér slyðruorðið í þessum efnum og æfir bleiuskipti af kappi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.