Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1990, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1990, Qupperneq 34
42 MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 1990. Afmæli Sigurður M. Sólmundarson Sigurður Magnús Sólmundarson, handavinnukennari og listamaöur, Dynskógum 5, Hveragerði, er sex- tugurídag. Starfsferill Sigurður fæddist í Borgamesi og ólst þar upp í foreldrahúsum. Sig- urður stundaði iðnnám í húsgagna- smíði í Borgamesi og lauk þar sveinsprófi 1952. Hann starfaði síð- an við húsgagnasmíði í Ólafsvík og síðan hjá Trésmiðjunni Víði í Reykjavík, var starfsmaður hjá Kaupfélagi Ámesinga og starfaði síðan við byggingu Menntaskólans á Laugarvatni og víðar auk þess sem hann stundaði búskap að Akurgerði í Ölfusi á ámnum 1960-70. Hann kenndi handavinnu í Hvera- geröi og á Stokkseyri í nokkur ár og er nú handavinnukennari í Þor- lákshöfn. Sigurður hefur haldið tólf einka- sýninga á myndum gerðum úr nátt- úrulegum efnum og öðrum hstmun- um, m.a. fjórar sýningar í Hvera- gerði, auk sýninga á Selfossi, Höfn í Homafirði, í Borgamesi, á Hvammstanga, á Hellissandi tvisvar og í Vestmannaeyjum. Fjölskylda Sigurður kvæntist 16.12.1956, Auði Guðbrandsdóttur, f. 1.6.1932, framkvæmdastjóra þvottahússins Hveralín, en Auður er dóttir Guð- brandar Magnússonar frá Tröð í Kolbeinsstaðahreppi, og konu hans, Bjargeyjar Guðmundsdóttur. Sigurður og Auður eiga fimm börn. Þau em Sólmundur Sigurðs- son, f. 2.6.1956, bifvélavirki og verk- taki í Hveragerði, í sambúð með Margréti Ásgeirsdóttur og eiga þau einn son, Óla Steinar, auk þess sem Sólmundur á með fyrri konu sinni, Hólmfríði Hilmisdóttur, þrjá syni, þá Daða Sævar, Sigurð Magnús og Sólmund Hólm; Anna Kristín Sig- urðardóttir, f. 5.8.1957, kennari á Selfossi, gift Magnúsi Ógmundssyni trésmið og eiga þau þrjú böm, Auði, Ögmund og Katrínu; Guðbrandur Sigurðsson, f. 14.7.1960, trésmiður í Hveragerði, kvæntur Sigríði Helgu Sveinsdóttur og eiga þau þrjú börn, Ástu Maríu, Auði og Þórð; Bryndís Sigurðardóttir, f. 9.3.1962, kerfis- fræðingur á Selfossi, var gift Jóni Ámasyni blikksmið og eiga þau tvö böm, Lottu og Sigrúnu, en sambýl- ismaður Bryndísar er Laurids Kent kerfisfræðingur; Steinunn Margrét Sigurðardóttir, f. 28.2.1964, húsmóð- ir í Hveragerði, gift Andrési Úlf- arssyni verkamanni og eiga tvö böm, Sólveigu Dröfn og Úlfar Jón. Sigurður á fjögur systkini sem öll eru á lífi. Þau eru Kári, f. 4.4.1926, klæðskerameistari í Reykjavík; Þór- dís, f. 19.9.1927, verlsunarmaður í Kópavogi; Elín, f. 28.8.1929, húsmóð- ir í Reykjavik, og Magnús, f. 14.10. 1939, húsamálari og skákmaður í Reykjavík. Foreldrar Sigurðar: Sólmundur Sigurðsson, f. í Smiðj uhúsveggj um í Álftaneshreppi, 1899, d. 1985, skrif- stofumaður hjá Kaupfélagi Borg- Sigurður Magnús Sólmundarson. firðinga og síðar bóndi í HUðar- tungu í Ölfusi, og kona hans, Stein- unn Magnúsdóttir, f. í Laufási í Álftaneshreppi 1902, nú vistmaður á GrundíReykjavík. Sigurður tekur á móti gestum að heimili sínu eftir klukkan 19:00 á afmæhsdaginn. Sólveig Sigurbjörg Jóna Þórðardóttir Sólveig Sigurbjörg Jóna Þórðar- dóttir, yfirljósmóðir Fæðingar- heimilisins í Reykjavík, til heimilis að Tunguvegi 7 í Njarðvík, er fimm- tugídag. Starfsferill Sólveig fæddist í Keflavík og ólst þar upp. Hún lauk gagnfræðaprófi frá Flensborg 1974, ljósmæðraprófi frá Ljósmæðraskóla íslands 1978 og útskrifaðist frá Nýja hjúkruna- rskólanum 1981. Sólveig vann almenn verslunar- störf og síðan aðstoðarstörf á Sjúkrahúsi Keflavíkur. Hún var deildarstjóri á fæðingar- og kven- sjúkdómadeild sjúkrahússins í Keflavík 1982-89 en hefur verið yfirljósmóðir á FæðingarheimiUnu í Reykjavík frá því í október ‘89. Sólveig er stofnfélagi í Styrktar- félagi aldraðra á Suðurnesjum og var varaformaður þess 1976-77. Hún er félagi í Alþýðubandalaginu í Keflavík og Njarðvíkum frá 1965, situr í miðstjórn Alþýðubandalags- ins, sat í framkvæmdastjórn flokksins 1985-87, er stofnfélagi Félagshyggjufólks í Njarðvíkum og situr þar í bæjarstjórn fyrir sam- tökin. Þá er hún stofnfélagi Suður- nesjadeildar Ljósmæðrafélags ís- lands og formaður þar 1978-82. Fjölskylda Sólveig giftist 25.12.1960 Jónatan Bjöms Einarssyni, f. 30.7.1940, þungavinnuvélamanni, en hann er sonur Einars Jóelssonar, sem nú er látinn, og Torfhildar Torfadóttur sem nú er búsett á Hlíf á ísafirði. Sólveig og Jónatan eiga þrjár dætur en áður átti hún tvo syni með Eðvarð Vilmundarsyni úr Grindavík. Böm Sólveigar eru Helgi Björgvin Eðvarðsson, f. 21.8. 1957, kvæntur Steinu Þóreyju Til hamingju með afmælið 1. október 80 ára 50 ára Guðrún Sigurðardóttir, Hamarsgerði 2, Reykjavík. Kristín Hannesdóttir, Hamrahlið 27, Reykjavik. Hjörtína Steinþórsdóttir, Hólavegi 35, Sauðárkróki. Jóhann Helgason, Aðalgötu 29, Ólafsfirði. 70 ára 40 ára Þorbjörg Einarsdóttir, Kleppsvegi 4, Reykjavík. Hulda Ágú.Htsdóttir, , Kelduhvammi 9, Hafnarfirði. Guðný Vilborg Gunnarsdóttir, Þóristúni 9, Selfossi. Jón Árni Þórisson, Valhúsabraut 7, Seltjamamesi. 60 ára Tungusíðu 29, Akureyri. Höskuldur Benónýsson, Erla Þórðardóttir, Glerárholti, Akureyri. Sigurður Magnússon, Krókatúni 4A, Akranesi. Bæ II, Bæjarhreppi. Dúrótheá S. Róbertsdóttir, Kötlufelli 7, Reykjavík. Rannveig Guðmundsdóttir, Hálsaseli 50, Reykjavík. . ■ > Jón Þórðarson Jón Þóröarson, bóndi að Sölvholti í Hraungerðishreppi í Ámessýslu, erfimmtugurídag. Jón fæddist í Sölvholti, ólst þar upp og hefur alið þar allan sinn ald- ur. Hann tók við búi foreldra sinria í Sölvholti og heldur þar heimili með fóður sínum, sem nú er á nítugasta aldursári, en móðir Jón lést hins vegarásl.ári. Fjölskylda Jón á tvær systur. Þær eru Sól- veig Vigdís Þórðardóttir, f. 18.2. 1935, húsmóöir á Selfossi, gift Sig- fúsi Kristinssyni, f. 27.5.1932, bygg- ingameistara, og hafa þau eignast fimm böm, og Vilborg Guðrún Þórðardóttir, f. 3.2.1937, hjúkrunar- fræðingur að Ytra-Laugalandi í Eyjafirði, gift Hjörleifi Tryggvasyni, f. 25.5.1932, bónda þar, og hafa þau eignastsexbörn. Foreldrar Jóns: Þórður Jónsson, f. 22.4.1901, fyrrv. bóndi í Sölvholti, og kona hans, Þórhildur Vigfús- dóttir, f. 19.3,1903, d. 4.4.1989, hús- freyjaíSölvholti. Þórður er sonur Jóns Ögmunds- Jón Þórðarson. sonar, b. í Vorsabæ, og Sólveig Nikulásdóttir. Þórhildur var dóttir Vigfúsar Jónssonar frá Iðu í Biskupstungum og Sólveigar Snorradóttur frá Þóm- stöðum í Olfusi. Vigfús var sonur Jóns, b. í Iðu, Vigfússonar Jónsson- ar, af ætt Einars, sálmaskálds í Heydölum. Sólveigvar dóttjr Snorra, b. á Þórustöðum, Gíslason- ar, og konu hans, Kristínar Odds- dóttur. Móðir Snorra var Sólveig, dóttir Snorra, „ríka“ í Engey. Ragnarsdóttur, f. 29.11.1964, og eiga þau einn son; Ingi Rúnar Eðvarðs- son, f. 21.12.1958, kvæntur Þor- björgu Jónsdóttur, f. 2.10.1960, og eiga þau einn son; Elín Hildur Jón- atansdóttir, f. 7.9.1960, gift Hjalta Ástþóri Sigurðssyni, f. 22.9.1956, og eignuðust þau þrjú börn; Guö- björg Kristín Jónatansdóttir, f. 21.12.1962, gift Gísla Lúðvík Kjart- anssyni, f. 21.11.1960, og eiga þau eina dóttur, og Þórlaug Jónatans- dóttir, f. 30.12.1965, og á hún eina dóttur með Ólafi Thordersen, f. 18.5.1966. Systkini Sólveigar: Guðmundur Haukur Þórðarson, f. 4.4.1930, kvæntur Magneu Aðalgeirsdóttur og eiga þau fimm börn; Alda Þórð- ardóttir, f. 18.9.1932, giíftist Agnari Braga Aðalsteinssyni er lést af slysförum og áttu þau þrjú börn en sambýlismaður Öldu er Jóhann Páll Halldórsson; Einar Hörður Þórðarson, f. 27.9.1947, kvæntist Jóhönnu Óladóttur, f. 11.7.1947 en þau shtu samvistum og eignuðust þau einn son en seinni kona Einars Harðar er Steinunn Pálsdóttir, f. 22.12.1946; drengur, f. 15.10.1953, d.samadag. Foreldrar Sólveigar: Þórður Ein- arsson, f. 7.5.1899, d. 19.10.1979, frá Blönduhlíð í Hörðudal í Dalasýslu, Sólveig Sigurbjörg Jóna Þórðar- dóttir. og Sigurlaug Guðmundsdóttir, f. 16.11.1911, d. 2.3.1987, frá Núpi í Haukadal í Dalasýslu. Andlát Bjartmar Kristjánsson Bjartmar Kristiánsson, fyrrv. prófastur í Álfabrekku í Önguls- staðahreppi í Eyjafirði, andaðist 20. september. Bjartmar fæddist 14. apríl 1915 á Ytri-Tjörnum í Önguls- staðahreppi. Starf Hann varð stúdent frá MA1941 og lauk embættisprófi í guðfræði frá HÍ1946. Bjartmar var sóknarprest- ur og bóndi á Mælifelli í Skagafirði 1946-1968 og sóknarprestur á Syðra- Laugalandi í Eyjafirði 1968-1986. Hann var símstöövarstjóri á Mæli- felli 1946-1963, þjónaði í Sauðár- króksprestakahi 1964-1965, í Sval- barðssókn 1978-1979 og í Laufás- prestakalli 1982. Hann var prófastur í Eyjafjarðarprófastsdæmi 1984- 1986. Bjartmar var forfallakennari við Barnaskóla Lýtingsstaðahrepps 1957 og 1961 og hefur verið stunda- kennari við eftirfarandi skóla: Ungl- ingaskóla Lýtingsstaðahrepps 1965-1968, Barnaskóla Öngulsstaða- hrepps 1969-1971, Unghngaskóla Öngulsstaðahrepps 1969-1970, Bamaskóla Hrafnagilshrepps 1972- 1975, Húsmæðraskólann á Syðra- Laugalandi 1968-1975 og Hrafnagils- skóla frá 1971. Þá hefur Bjartmar verið prófdómari við fjölda skóla. Bjartmar var í hreppsnefnd Lýt- ingsstaöahrepps 1954-1968 og vara- oddviti 1966-1968. Hann var formað- ur Sjúkrasamlags Lýtingsstaða- hrepps 1955-1968, var formaður skólanefndar 1952-1958, sat í skatta- nefnd 1961-1962 og í kjörstjórn 1953-1968. Hann var formaður skólanefndar Öngulsstaöahrepps 1969-1978, var í skólanefnd Hrafna- gilsskóla 1971-1983 og formaður hennar 1974-1982. Hann var formað- ur sáttanefndar Lýtingsstaðahepps 1950-1968 og Öngulsstaðahrepps frá 1970. Af ritverkum Bjartmars má nefna: Sjö hugvekjur, Kristnar hug- vekjur 1982 og greinar í Kirkjuritinu og öðrum tímaritum og blöðum. Fjölskylda Bjartmar kvæntist 9. október 1943 Hrefnu Magnúsdóttur, f. 3. mars 1920. Foreldrar Hrefnu voru Magn- ús Jón Árnason, jámsmíðameistari í Litla-Dal í Saurbæjarhreppi, og kona hans, Snæbjörg Sigríður Aðal- mundardóttir. Börn Bjartmars og Hrefnu eru Snæbjörg Rósa, f. 16. apríl 1945, gift Ólafi Ragnarssyni, b. í Fremri-Hundadal í Dalasýslu, Kristján Helgi, f. 7. júní 1947, raf- magnsverkfræðingur á Seltjarnar- nesi, kvæntur Halldóru Guðmunds- dóttur sjúkraliða; Jónina Þórdís, f. 30. desember 1948, aðstoðarmaður hjúkrunarfólks á Kristneshæli, Benjamín Garðar, f. 2. september 1950, læknir í Reykjavík, kvæntur Ólöfu Önnu Steingrímsdóttur sjúkraþjálfara; Fanney Hildur, f. 1. apríl 1953, sjúkraliði í Lundi í Sví- þjóð, gift Bert Ynge Sjögren háskóla- kennara, og Hrefna Sigríður, f. 2. apríl 1958, meðferðarfuUtrúi í Reykjavík, gift Aðalsteini Jónssyni kerfisfræðingi. Systkini Bjartmars: Laufey Sigríð- ur, f. 2. nóveniber 1899, húsmóðir á Akureyri; Benjamín, f. 11. júní 1901, d. 3. aprfi 1987, fyrrv. prófastur á Syðra-Laugalandi; Inga, f. 29. júlí 1903, d. 21. mars 1985, vann við versl- unarstörf, lengst af búsett á Ytri- Tjörnum; Auður, f. 14. desember 1905, d. 20. janúar 1976, húsmóðir í GimU í Manitoba í Kanada; Theod- ór, f. 12. mars 1908, b. á Tjamar- landi í Eyjafirði; Svava, f. 26. maí 1910, húsmóðir á Akureyri; Baldur Helgi, f. 7. júní 1912, b. ogfyrrv. hreppstjóri á Ytri-Tjörnum; Val- garður, f. 15. apríl 1917, fyrrv. horg- ardómari í Reykjavík, húsettur í Hafnarfirði; Hrund, f. 20. fehrúar 1919, húsmóðir á Akureyri; Dagrún, f. 1. maí 1921, fyrrv. húsmæðrakenn- Bjartmar Kristjánsson. ari á Akureyri, og Friðrik, f. 29. mai 1926, húsgagnasmiður á Hrafnagfii í Eyjafirði. Ætt Foreldrar Bjartmars voru Kristj- án Helgi Benjamínsson, f. 24. oktob- er 1866, d. 10. janúar 1956, b. og hreppstjóri á Ytri-Tjömum í Eyja- firði,ogkonahans,FanneyFrið- • riksdóttir, f. 6. janúar 1881, d. 13. ágúst 1955. Móðurforeldrar Bjartm- ars voru Friðrik Pálsson, b. á Brekk- u í Kaupvangssveit, og Yngveldur Bjarnadóttir. Kristján var sonur Benjamíns, b. og hreppstjóra á Ytri-Tjömum, Fló- ventssonar, b. á Hömmm í Eyja- firði, Þorsteinssonar, b. á Hömmm, Jónssonar. Móðir Kristjáns var Sig- ríður Jónsdóttir, b. á Bringu, Gott- skálkssonar, b. í Bitm, Oddssonar, b. í Hólshúsum, Gottskálkssonar. Móðir Sigríðar var Guðrún Stefáns- dóttir, b. í Bringu, Jónssonar halta Eyjólfssonar. Móðir Stefáns var Sig- ríður Tómasdóttir, b. og hreppstjóra á Tjörnum, EgUssonar, b. í Stóra- Dal, Sveinssonar, b. á Guðrúnar- stöðum, Magnússonar. Móðir Sig- ríðar var Katrín Sigurðardóttir, b. í Kristnesi, Þorlákssonar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.