Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1990, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1990, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÖBER 1990. 9 Útlönd Gro Harlem Brundtland á tali við Jan P. Syse eftir að hann baöst lausnar í gær fyrir sig og ráðuneyti sitt. Simamynd Reuter Noregur: Brundtland aftur f orsætis ráðherra Miðflokkurinn í Noregi neitaði í gærkvöldi að styðja hreina hægri stjórn Jan P. Syse sem í gær baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt vegna ágreinings um afstöðuna til Evrópubandalagsins. Samtímis lýsti Miðflokkurinn því yfir að stærsti þingflokkurinn ætti að mynda stjórn. Forseti norska stórþingsins mun í dag mæla með því við Harald ríkis- arfa, sem nú gegnir störfum kon- ungs, að Brundtland verði falin myndun nýrrar stjórnar. Þykir því nú aht benda til að þriðja stjórn Gro Harlem Brundtiands verði mynduð fyrir lok þessarar viku. Jan P. Syse, leiðtogi Hægri flokks- ins, varð í gærkvöldi mjög vonsvik- inn er niðurstaöa fundar þingflokks Miðflokksins lá fyrir. Klukkustundu áður hafði Kristilegi þjóðarflokkur- hm, sem einnig var í stjórn Syse, lýst yfir stuðningi viö nýja stjórn Hægri flokksins. Ástæða samþykktar Miðflokksins er ágreiningurinn um hvaða afstöðu Noregur eigi að taka í samningavið- ræðum EFTA, Fríverslunarsamtaka Evrópu, og EB, Evrópubandalagsins. í samþykkt þingflokks Miðflokksins segir að flokkurinn muni halda fast við þá stefnu sína að Noregur eigi ekki að ganga í Evrópubandalagið og að samkomulag um evrópskt efna- hagssvæði eigi aö vera skýrt af- markað frá aðild. í samþykktinni segir einnig að aðild að Evrópu- bandalaginu sé pólitísk stefna Hægri flokksins. Á landsfundi flokksins hafi því verið lýst yfir að samkomu- lag um evrópskt efnahagssvæði „væri nauðsynlegur en ófullnægj- andi áfangi að takmarki flokksins að EB-aðild.“ Þaö væri erfitt fyrir Miö- flokkinn að styðja stjórn sem hefði slíkt markmið með samkomulaginu um evrópskt efnahagssvæði að þvi er lýst er yfir í samþykktinni. í'henni er einnig komið inn á afstöðu Verka- mannaflokksins til Evrópubanda- lagsins og vísað til þess að sterk öfl innan hans séu andvíg aðild Noregs. Gro Harlem Brundtland, sem fékk fregnina um samþykkt Miðflokksins frá blaðamönnum, kvaðst þurfa að ræða við Miðflokkinn til þess aö fá tryggingu fyrir því aö öruggur grundvöllur væri fyrir stjórnar- myndun Verkamannaflokksins. Hún ætlar ekki að krefjast stuðningsyfir- lýsingar flokksins en vill fá stuöning hans í mikilvægum málefnum. Brundtland vildi ekki svara því hversu fljótt stjórnarmyndun gæti verið lokið en heimildarmenn innan Verkamannaflokksins gáfu í skyn að ný stjórn gæti tekiö við þegar á fóstu- dag. Það eru hins vegar skiptar skoð- anir innan Verkamannaflokksins hvort rétt sé að taka viö stjórn núna því borgaralegur meirihluti verði áfram á þingi næstu þrjú árin. Brundtland hefur tvisvar áður gegnt embætti forsætisráðherra síð- ustu tíu árin. Fyrsta stjórn hennar sat frá janúar 1981 til október sama ár. Brundtland tók aftur við stjórnar- taumunum í maí 1986 þegar samstarf borgaraflokkanna fór út um þúfur og sat sú stjórn hennar þar til í októ- ber í fyrra. Þá tók stjórn Syse við að loknum kosningum. Evrópubandalagsmál hafa verið örlagarík í samstarfi borgaralegu flokkanna í Noregi allt frá því aö þau komu á dagskrá á sjöunda áratugn- um. Á meðan EB-aðild var ekki til umræðu gekk samstarfið vel. En vorið 1971, þegar Noregur stóð í samningaviðræðum við EB um aðild, féll stjórn Per Bortens vepia ósam- komulags innan stjórnarinnar. Tíu árum seinna komust borgaralegu flokkarnir aftur til valda. Þaö er álit sérfræðinga að langur tími geti liðiö áöur en þeir reyna samvinnu á ný. NTB Finnsk yfirvöld um EB-EFTA-viðræðumar: Óttast neikvæðar af• leiðingar afsagnar Syse Utanríkisviðskiptaráðherra Finn- legt evrópskt efnahagssvæði sem nú átt í erfiðleikum meö undanþáguhst- lands, Pertti Salolainen, lýsti því yfir standa yfir. ann. Kvaöst ráðherrann því vonast í gær að afsögn norsku stjórnarinnar Sagði Salolainen að afleiðingamar til að Noregur gæti leyst vandann gæti haft afleiðingar fyrir samninga- gætu jafnvel orðiö neikvæðar. Benti sem fyrst. viðræður EFTA og EB um sameigin- hann á að norska stjórnin hefði áður fnb Utanríkisráðherra Svíþjóðar um EB-aðild: Umræður um sameig- inlega umsókn tíma- bærar eftir áramót „Finnland, Noregur og Svíþjóö geta byrjað að ræða sameiginlega umsókn um aðild að Evrópubanda- laginu, EB, þegar eftir áramót." Þetta segir Sten Andersson, utanríkisráð- herra Svíþjóðar, í viðtah blaðið Dag- ens Industri í morgun. Ráðherrann er bjartsýnn á mögu- leika ráðstefnunnar um öryggi og samvinnu í Evrópu, RÖSE, um að binda enda á skiptingu Evrópu í stór- veldablokkir. Þar með skapaðist grundvöllur fyrir umsókn Svía um aðild að Evrópubandalaginu. Andersson segir að á næsta ári komi betur í ljós hvað póhtísk sam- eining Evrópubandalagsins þýði í raun og þá liggi einnig fyrir árangur- inn af leiðtogafundi RÖSE sem hald- inn verður í nóvember. TT EB-aðild einnig vanda- mál í Svíþjóð Afstaðan til Evrópubandalagsins, EB, sem felldi norsku stjórnina, verður einnig vandamál fyrir borg- aralega stjórn í Svíþjóð ef shk kemst til valda eftir næstu kosningar, að því er stjómmálasérfræðingar segja. Vangaveltur eru nú hafnar um aöild Kristilegra demókrata að borgara- legri stjóm í stað Miðflokksins. Það er hins vegar enn markmiðið að fá Miðflokkinn með í stjórn, að því er Hægri flokkurinn og Þjóðarflokkur- inn fuhyrða. Sænski Miðflokkurinn er neikvæð- ari gagnvart aðild að Evrópubanda- laginu heldur en Hægri flokkurinn og Þjóðarflokkurinn sem hafa hug á að sækja um aðhd ef þeir sigra í næstu kosningum. Velta menn því nú fyrir sér hvort svipað því sem geröist í Noregi gæti gerst í Svíþjóð. Carl Bildt, leiðtogi Háegri flokksins, bendir á að sænski Miðflokkurinn sé ekki jafnandvígur Evrópubanda- laginu og systurflokkur hans í Nor- egi. Afstaða sænska Miöflokksins sé óljós en hann útiloki ekki lengur aðild. Kristilegir demókratar eru hlynnt- ir aðild að Evrópubandalaginu og vilja sækja um hana árið 1991. Flokk- urinn hefur einnig látiö af því mark- miði sínu að lokun kjarnorkuvera hefjist 1995 til 1996 og er því að nálg- ast stefnu Þjóðarflokksins. Hingað til hefur spurningin um kjarnorkuver verið talin stærri ógnun við samstarf borgaralegu flokkanna í Svíþjóð en Evrópubandalagsmáhn. Samkvæmt skoðanakönnunum komast Kristilegir demókratar á þing og innan Hægri flokksins og Þjóðarflokksins gerast þær raddir háværari sem vilja að flokkarnir segi skihð við Miðflokkinn og reyni sjálf- ir að mynda minnihlutastjórn eða leita stuðnings Kristilegra demó- krata. Svenska Dagbladet hefur mælt með slíku fyrirkomulagi en Carl Bildt hikar. Hann hefur áður sagt að hann muni ekki taka þátt í minnihluta- stjórn og hann er ekki reiðubúinn að segja skihð við Miðflokkinn. Menn úr rööum borgarlegu þing- flokkanna þriggja telja að Hægri flokkurinn og Þjóðarflokkurinn nálgist hvor annan en Miðflokkurinn marki sér eigin stefnu í mörgum málum. Auk Evrópubandalagsmála og orkumála eru það efnahagsmáhn semskiljaflokkanaað. TT Vinningstölur laugardaginn 27. okt. ’90 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 0 5.837.853 2. ri 311.095 3. 4af 5 161 6.666 4. 3af5 6073 412 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 10.035.345 kr. UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.