Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1990, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1990, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 1990. 13 Lesendur rlVAR ERU PENINGARNíR Eru verkalýðsfélög og almennir lífeyrissjóðir gengin sér til húðar? Leysusn upp iífeyrissjóðina Helgi Jónsson skrifar: Nú er nokkuð í tísku að þingmenn og stjómarmenn lífeyrissjóða þykist taka undir með lífeyrisgreiðendum sem em sem óðast aö krefjast þess að endurskoða þetta staönaða kerfi, sem er orðinn dragbítur á að menn fái notið þeirra flármuna sem þeir hafa lagt í sjóðina á starfsævinni. - Þingmenn siunir, ásamt stjórnar- mönnum lífeyrssjóða reyna að veij- ast, vegna þess að þeir hafa hags- muni af því að sitja í stjórn sjóð- anna. En það getur varla verið nema tímaspursmál héðan af hvenær líf- eyrissjóðirnir verða hreinlega leystir upp og fjármunum greiðenda komið fyrir á einkareikningum þeirra sjálfra, líkt og fyiírkomulagið er varðandi skylduspamað ungmenna. Það þarf enga nýja nefnd til að fjalla um lífeyrissjóðina, síst af öllu ef sú nefnd er skipuð fuUtrúum þing- flokkanna og aðúum vinnumarkað- arins. Þetta mál á einfaldlega að vera mál launþegans og vinnuveitandans - með ströngu aðhaldi stéttarfélags launþega á vinnustað og án afskipta einhverra aðila frá ASI eða öðmm stórum samsteypum sem ekkert er- ' indi ættu að eiga í svona mál. „Einn sjóður fyrir alia landsmenn" er ekki vænlegur til að sætta sjónar- mið launþega. Þar er sama súpan og áður, aðeins með nýju bragði. Þetta slagorð, „fyrir alla landsmenn", sem sífelldlega er teygt og togað á ekki upp á pallborðið á þessum tímum. Minni einingar og helst einstaklings- bimdinn sparnaður fyrir hvern og einn er það sem fólk aðhyllist. - Ekki samkruU með margra manna stjórn og nefndum sem maka krókinn af sama Ufeyrissjóönum. Leggja á verkalýðsfélög niður og í stað þeirra komi staðbundin stéttar- félög fyrir hvern vinnustað fyrir sig þar sem aUir á viðkomandi vinnu- stað eru í sama lífeyrissjóðnum. Þá þarf heldur ekki að styðjast við nein utanaðkomandi stéttarfélög. FuUtrú- ar vinnuveitanda og launþega á vinnustaðnum geta annast allt eftir- Ut. - Þetta eru mál nútímans að gUma við, afnám almennra lífeyrissjóða og afnám stéttarfélaga eins og þau eru byggð upp í dag. Langbesta útvarpsstöðin Þórhallur Már skrifar: Langbesta útvarpsstöðin á íslandi í dag er hvorki rás 1 eða 2, Bylgjan, Stjarnan, FM 95,7, Útrás eða Aðal- stöðin. - Ég taldi ekki upp eina sem ber af þeim öllum eins og gull af eiri, og á ég þá bæði við „professionaT vinnubrögð og framsetningu efnis - 1485, eða öðru nafni gamla góða Kanaútvarpið. Og hvemig vU ég svo rökstyðja þessar fuUyrðingar í stuttu máU? - Jú, ég-vU henda fólki á að bera sam- an vinnubrögð og framsetningu á töluðu máU hjá íslenskum útvarps- mönnum eins og t.d. Bjama Hauki, Valdísi, Jóni Axel, Jóhönnu og Evu Ásrúnu og fleiri annars vegar, hins vegar Shadow Stevens, Mary Tum- er, Lorrie AUen, Dick Clark, B.B. King og Paul Harvey. - Munurinn er sláandi. íslensku útvarpsmennimir eru eins og vandræðalegir amatörar samanborið við áðurnefnda banda- ríska útvarpsmenn. Á meðan hinir íslensku stama, hiksta og framleiða aUs konar aukahljóð aUan daginn heyrir maður slíkt aldrei frá hinum „professional“ bandaríksu starfs- bræðmm þeirra enda em aUt aðrar kröfur gerðar tU þeirra. íslenskir útvarpshlustendur virð- ast láta bjóða sér nánast hvaða lág- kúm sem er eins og t.d. „ódýrar“ auglýsingar (beinar og óbeinar) frá vissum matvörukaupmönnum og gjafamiða frá kvikmyndahúseigend- um. - Einn kunningi minn kaUar þessar stöðvar einfaldlega „bingóút- varp“. Og hvað um móðurmáUð þegar þessar stöðvar em famar að auglýsa „lifandi steikhús", „Ufandi trúbad- ora“ sem skemmti í kvöld og að eitt- hvert ákveðið lag „sé farið að gera marga góða hluti erlendis"? - Þeir íslensku útvarpsmenn sem em að „reyna“ að taka viðtöl við fólk ættu að hlusta á vinnubrögð og framsetn- ingu Mary Turner, t.d. - Sem sé; í Kanaútvarpinu heyrir maður margt af því besta og vinsælasta af banda- rísku útvarpsefni, bæði frá fortíð og nútíð. Alþjóðlegar fréttir sem skipta ein- hverju máU heyrast á klukkustundar fresti og em þær aUtaf glænýjar og fluttar af fólki sem hefur góða lestr- arkunnáttu. Það eina sem íslensku útvarpsstöðvarnar hafa fram yfir Kanaútvarpið era sæmUeg stereo- hljómgæði. Hvenær skyldi fyrsti al- vöru íslenski útvarpsmaðurinn koma fram? - Vonandi þurfum við ekki að bíða í mörg ár í viðbót! í Kjörgarði f ékk ég kjólinn Guðný skrifar: Fyrir stuttu fór ég í Kringluna til að fá mér góðan kjól og til að skoða fatnað í verslunum þar. Mér brá hins vegar heldur í brún þegar ég las á verðmiðana. ÞvUíkt verð, drottinn minn! - Og ég fór kjóllaus heim. Daginn eftir þurfti ég að fara niður á Laugaveg að erinda í hanka. Rangl- aði ég m.a. inn í Kjörgarð og kom þá inn í verslunina Jennýju, sem er í kjallaranum Þar brá mér enn á ný í brún þegar ég las á verðmiðana en þó ekki af sömu ástæðum og áður heldur þvert á móti því þama var fatnaður á konur, fatnaður sem er frambærilegur \dö hvaða tækifæri sem er - og á verði sem getur taUst eðlUegt. Þama keypti ég t.d. sparikjól og síðbuxur og kostaði hvort tveggja innan við 15 þúsund krónur. Og svo fékk ég auk þess 10% afslátt vegna þess að ég er lífeyrisþegi. Stytta þurfti kjólinn og buxumar og var það gert á staðnum á meðan ég beið og mér algjörlega að kostnaðarlausu. Sú þjónusta sem ég fékk þama er því miður orðin mjög sjaldgæf en þótti hér á árum áður sjálfsögð. - VU ég hér með þakka þeim konum sem aöstoðuðu mig fyrir góða þjónustu og þoUnmæði og óska þeim velfam- aðar í framtíðinni. Dagvistun eða geymslustaður? Bréf Öldu, „Dagvistun eða geymslu- staður?" birtist í DV 25. okt. sl. Leiðrétting á nafhi: Alda Baldursdóttir varhöfundurinn Lesendasíða DV viU hér með leið- rétta þau mistök sem urðu við inn- skrift lesendabréfs frá Öldu Baldurs- dóttur sem birtist sl. fímmtudag að misrita nafn hennar. - Beðist er vel- virðingar á mistökunum. Miti hjartans mál Klukkustundarlangur þáttur á Aðalstöðinni í dag kl. 17 í umsjón Svavars Gestssonar menntamálaráðherra Hvað gerist? Fjárlagafrumvarpið 1991 - séð frá mismunandi sjónarhornum Ráðstefna Félags viðskipta- og hagfræðinga um frumvarp til fjár- laga 1991 verður haldin í Holiday Inn miðvikudaginn 31. október nk. kl. 15-18. Dagskrá: 1. Fjárlagafrumvarpið frá sjónarhóli stjórnmála: Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra. Pálmi Jónsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Fyrirspurnir/umræður. 2. Fjárlagafrumvarpið frá sjónarhóli hagfræði/efnahagsstjórnar: Már Guðmundsson, efnahagsráðunautur fjármálaráðu- neytisins. Markús Möller, hagfræðingur, Seðlabankanum. Fyrirspurnir/umræður. 3. Fjárlagafrumvarpið frá sjónarhóli vinnumarkaðarins og atvinnufyrirtækja: Ari Skúlason, hagfræðingur ASÍ. Hannes G. Sigurðsson, hagfræðingur VSÍ. Fyrirspurnir/umræður. Ráðstefnustjóri verður Þorsteinn Fr. Sigurðsson. Ráðstefnan er öllum opin. Þátttökugjald er kr. 1.000. Stjórnendur fyrirtækja - viðskipta- og hagfræðingar: Þetta er ráðstefna sem þið megið ekki missa af. FÉLj^G VjÐSKIPTAFRÆÐINGA OG HÁGFRÆÐINGA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.