Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1990, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1990, Qupperneq 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 1990. íþróttir____________________ Sport- stúfar Sovétmenn vörðu á sunnudagskvöldið Evrópumeistaratitil sinn í sveitakeppni í júdó þegar þei'r sigruðu Erakka í úrslitaleik í júgóslavnesku borg- inni Dubrovnik. Sveitimar skildu jafnar, 2-2, en Sovétmenn sigr- uðu á stigum, 2(1-13. Bretar og Holiendingar deildu með sér bronsverðlaununum. Bretar unnu sveitakeppni kvenna eins og DV sagði frá í gær. Giants og 49ers áfram ósigruð New York Giants og San Francis- co 49ers héldu áfram sigurgöngu sinni í ameríska fótboltanum, NFL-deildinni, á sunnudags- kvöldið. Giants unnu þá Was- hington Redskins og 49ers mörðu sigur á Cleveland Browns. Úrslit leikjanna urðu þessi: Detroit - NO Saints..27-10 GreenBay - Minnesota..24-10 Ph.Eagles - Dallas...21-20 Miami -Indianapolis....27-7 Buffalo - NE Patriots.27-10 NY Jets - Houston....17-12 NY Giants - Washington.21-10 SÐ Chargers - Tampa Bay.41-10 SF 49ers - Cleveland.20-17 Chicago -Phœnix......31-21 Atlanta - Clncinnati....38-17 í AC-riðUnum eru Buffalo Bills og Miami Dolphins efst i austur- deild, Cincinnati Bengals í mið- deild og Los Angeles Raiders í vesturdeild. í NC-riðlinum er Giants efst í austurdeild, Chicago Bears í miðdeild og 49ers í vestur- deUd. Enn eittáfalliö hjá Marseille Pranski landshðsmið- herjinn, Eric Cantona, sem leikur með Mar- seiUe, veröur frá knattspymuiökun í tvo mánuði, að sögn lækna franska Uösins. Cantona meiddist á hné í viður- eign MarseiUe og Brest á sunnu- daginn, stuttu eftir að hann hafði jafhað metin en MarseiUe sigraði, 3-1. Cantona mun því ekki geta leikið með franska landsUðinu gegn Albönum 17. nóvemiber næstkomandi en bæði þessi Uð eru í riðU með íslendingum í Evr- ópukeppninni. Cantona er þriöji lykilmaöur MarseUle sem meiðist þvi aö Manuei Amoros og Dragan Stojkovic eru báðir frá vegna meiðsla. Snóker í Mjódd vann toppslaginn Snóker í Mjódd sigraði Fjarðar- bUUard, 4-2, í toppviðureign 1. deUdar keppninnar i snóker á dögunum og hefur nú átta vinn- inga forskot í deildinni. Snóker í Mjódd er með 65 vinninga en Fjarðarbillard og BiUiardstofan Klöpp koma næst með 57 vinn- inga. Önnur úrsUt í 17. umferð urðu þau að SeUyssingar sigruöu Suöumesjamenn, 4-2, Ingólfs- BiUiard vann Billiardstofuna, Skeifunni, 4-2, og BUUardstofan Klöpp vann Kópavog, 6-0. Valur og ÍR mætast í kyöld Valur og ÍR mætast í úrvalsdeUdinni í körfuknattieik í kvöld og hefst leikurinn að Hlíðarenda kiukkan 20. Vals- ' menn hafa 4 stig eftír fimm leiki en ÍR-ingar hafa tapað öllum fimm leUcjum sínum tU þessa. Aörir léikir í umferðinni fara fram á fimmtudagskvöld en þá mætast ÍBK og Haukar í Keflavík, KR og GrindavUt í Laugardals- hölUnni, Njarðvík og Tindastóll í Njarðvfk og Þór og SnæfeU á Akureyri. Héðinn skoraði þijú mörk • Héðinn Gilsson. Héðinn Gilsson skoraöi þrjú mörk þegar lið hans, Dússeldorf, sigraði Dortmund í gær, 28-20, í 2. deild þýska handknattleiksins. Héðinn gat lítið beitt sér í leiknum vegna tognunar í lærvöðva er hann hlaut á æfingu hjá liöi sínu en hann er nú í sprautumeðferð hjá lækn- - í sigri Dtisseldorf á Dortmund, 28-20 um liðsins. „Fyrri hálfleikurinn var mjög góður hjá okkur og það má segja að við höfum gert út leikinn því staðan í leikhléi var 14-6,“ sagði Héðinn Gilsson í samtali við DV í gær. Dússeldorf er í öðru sæti í deild- inni með 11 stig en liö Hameln er á toppnum með 14 stig. Með Ham- eln leika þrír fyrrum landsUðs- menn Austur-Þýskalands, þeir Wieland Smith markvörður, Frank Wahl og Mathias Haan og án þeirra væri lið Hameln ekki á toppi deUd- arinnar. -GH Hörður og Karítas þjálfa hjá Þrótti - Karítas leikur með Þróttarstúlkum í 1. deild Hjónin Hörður Rafnsson og Karít- as Jónsdóttir hafa verið ráðin þjálf- arar meistaraflokka karla og kvenna í knattspymu hjá Þrótti úr Neskaup- staö fyrir næsta keppnistímabil. Hörður þjálfar karlaUðið, sem leik- ur í 3. deUd, og tekur við af Eyja- manninum Einari Friðþjófssyni. Hörður er fyrrum leikmaður með Þrótti en hefur einnig leikið með Skagamönnum í 1. defldinni. Karítas hefur tU þessa leikið með ÍA í 1. deildinni og er í hópi reynd- ustu knattspymukvenna landsins. Hún ætti að styrkja Þróttarstúlkum- ar verulega en þær leika í fyrsta skipti í 1. deUd næsta sumar eftir að hafa unnið 2. deildina í ár. lAmissirlíka RögnuLóu ÍA sér á bak annarri reyndri knatt- spymukonu því Ragna Lóa Stefáns- dóttir mun leika með Stjörnunni næsta sumar. Ragna Lóa þjálfaði ÍA í sumar og lék með liðinu, en hún hefur áður leikið eitt ár með Stjörn- uniii. Stjarnan hætti við þátttöku í íslandsmótinu í sumar en mætir tfl leiks á ný í 2. deild á næsta tímabili. -VS • Körfuknattleiksráö ÍBK og Samvinnuferðir-Landsýn skrifuðu fyrir skömmu undir tveggja ára samning og verður fyrirtækið styrktaraðili Kefla- víkurliðsins á þessu keppnistímabili og því næsta. Á myndinni skrifar Vikt- or Kjartansson, formaður körfuknattleiksráðs ÍBK, undir samninginn og Helgi Jóhannsson frá Samvinnuferðum Landsýn fylgist með. __________________________DV-mynd Ægir Már • Kári Arnórsson, formaður LH, afhenti Gunnari Bjarnasyni heiðursmerki fyrir framlag hans til hestamennsku á íslandi. DV-mynd EJ Ekki tekið á stðrmálum á landsþingi hestamanna - sem haldið var á Húsavik um helgina Landsþing hestamannafélaga var haldið á Húsavík dagana 26. og 27. október í boöi hestamannafélaganna Grana og Þjálfa. ÞingfuUtrúar voru um það bil 120 frá 49 hestamannafé- lögum. Fyrirfram var búist við átakasömu þingi en þrátt fyrir að þingfulltrúar létu gamminn geisa öðru hvoru skildu menn sáttir, enda var flestum stórmálunum vísað heim í hérað til umræðna. Helstu umræðumál þingsins voru stórmótahald, kynbótaræktun og skipulagsmál Landssambands hesta- mannafélaea. Nokkur ólga hefur verið meðal hestamanna vegna kynbótadóma í sumar. Á landsþinginu var sam- þykkt ályktun þar sem skorað var á þá aðila, söm fara með kynbótarækt- unarmál, að ná sáttum til heilla fyrir alla hestamenn. Þingið þakkaði hrossaræktarráðunautum fyrr og nú fyrir vel unnin störf og lýsti yfir trausti við fulltrúa LH í kynbóta- hrossanefndinni. Þá var og Gunnar Bjarnason heiðraður og honum þakkað fyrir framlag sitt til eflingar hestamennsku á íslandi. Milliþinganefnd skilaði inn tillög- um um breytingar á stórmótahaldi. Helstu breytingarnar gera ráð fyrir að landsmót verði á þriggja ára fresti í stað fjögurra. Auk þess voru lagðar fram róttæk- ar tillögur um að landsmótum veröi skipt í kynbótamót annars vegar en gæðingakeppni og kappreiðar hins vegar og yröu mótin haldin annað hvert ár til skiptis. Þar með yrðu fiórðungsmót úr sögunni. Öllum þessum tillögum var vísað til hesta- mannafélaga, sem eiga að ræða mál- íh í héraði, og verða þau tekin fyrir á ný á næsta ársþingi sem haldið verður í Kópavogi í boði Gusts. Milliþinganefnd skilaöi inn grein- argerð sem tillögu að breyttum lög- um fyrir LH. Frá því lög LH voru endurskoðuð síðast hefur Hesta- íþróttasamband íslands (HÍS) verið stofnaö og íþróttaráð LH lagt niður. Vegna þessa varð að gera breytingar á nokkrum greinum laga LH. Einnig var stungið upp á stofnun fiórð- ungsráða sem sæju um að efla sam- starf hestamannafélaga í hvetjum fjórðungi. Hvert hestamannafélag ætti einn fulltrúa í fiórðungsráöi. Landsþing yrðu haldin á tveggja ára fresti en á milli kæmu öll fiórð- ungsráðin saman og héldu þing. Þá ættu og formenn fiórðungsráðanna sæti í stjóm LH. Þessari greinargerð var vísað til umræðna í hestamannafélögum og verður hún tekin fyrir á næsta lands- þingi. Hvernig hest vilja hestamenn? Auk þessara stórmála komu fram önnur mál. Má þar nefna samþykkt um könnun á því hvemig íslenskir, jafnt og útlendir hestamenn vilji að íslenski hesturinn sé. Töluvert var rætt um þessa skoðanakönnun og sýndist sitt hverjum. Kári Arnórsson var endurkosinn formaður LH en aörir í sfióm em Gunnar B. Gunnarsson gjaldkeri, Guðmundur Jónsson ritari, Skúli Krisfiónsson varaformaður og með- stjórnendur Jón Bergsson, Ingimar Ingimarsson og Halldór Gunnarsson. Þeir Halldór og Ingimar koma í stað Kristbjargar Eyvindsdóttur og Sig- urðar Hallmarssonar sem báðust lausnar úr embætti. -EJ Stúfar frá Englandi Gunnar R. Sveinbjömsson, DV, Englandi: Terry Venables, stjóri Tottí ham, var í sjöunda himni eí • | sigur sinna manna á Forest laugardaginn. Enginn fékk meira hrós en David Howells en Venab' sagði hann vera einn albesta miðvallarsf arann af yngri kynslóðinni. Venables ba því við að Howells væri einn sá besti 1 félaginu í að klára færi sín. Liverpool hefur augastað á Rod Wallace Liverpool hefur augastað á Rod Wallai leikmanni Southampton. Kenny Daglish s Walace sem heppilegan arftaka John B; nes en vandinn er sá að Southampton ekki æst í að selja. Eina smugan fyrir 1 verpool er að láta Steve McMahon fara Southampton sem hluta af kaupverðinu suðurstrandarliðið sér hann sem heppilí an arftaka Jimmy Case sem á varla mil eftir í 1. deildinni. Meiðsli Whiteside verri en haldið var Svo gæti farið að ferill Normans Whitsi sé á enda. Whiteside gekkst undir aðgerC hné fyrir skömmu og þá kom í ljós að meið in eru mun verri en talið var í fyrstu. Wh eside fór til Everton fyrir tæpu ári og féla ið borgaði Man. Utd 750 þúsund pund fyi kappann. Everton mun þó ekki tapa þessa upphæð því þeir létu tryggja Whiteside f> ir tæpa. eina milljón punda og þá trygf hann sig sjálfur fyrir nokkrum árum og i gæti það komið sér vel fyrir hann. Verður stjóri Watford látinn fara? Cohn Lee, sfióri Watford, er orðinn væ sagt valtur í sessi. Gengi liðsins á kepf tímabilinu hefur verið afar slakt svo - sér meira sagt og nú er mikið spáð 1 taki við. Nöfn þriggj manna eru þar el baugi en þeir eru: Steve Perryman, fyr leikmaður Tottenham, Pat Rice, fyr leikmaður Arsenal og Watford, og D, Webb, framkvæmdastjóri Southend.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.