Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1990, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1990, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 1990. Afmæli Róbert Hlöðversson Dr. Róbert Hlöðversson fóðurfræð- ingur, Fjarðarseli 33, Reykjavík, er fertugurídag. Starfsferill Róbert fæddist í Reykjavík og ólst þar upp til ársins 1960 en átti síðan heima að Skálmholti í Flóa í tvö ár og loks í Ey í Vestur-Landeyjum til ársins 1970. Hann lauk stúdents- prófi frá MR1973, varð búfræði- kandidat frá búvísindadeild Bænda- skólans á Hvanneyri 1977 og lauk doktorsprófi frá fóðurfræðideild Landbúnaðarháskólans í Uppsölum í Svíþjóð 1985. Róbert vann öll almenn störf til sjávar og sveita til ársins 1978. Hann stundaði rannsóknarstörf við fóður- fræðideild sænska Landbúnaðar- háskólans á árunum 1978-83 og starfaði síðan í eitt ár sem aðalkenn- ari á grunngreinasviði við búvis- indadeild Bændaskólans á Hvann- eyri. Hann flutti síðan aftur til Sví- þjóðar og starfaði þar sem sérfræð- ingur við fóðurfræöideild sænska Landbúnaðarháskólans til ársins 1987. Þá flutti hann heim og starfaði í eitt ár sem forstöðumaður gæðaeft- irlits hjá EWOS hf. í Reykjavík. Róbert er einn af stofnendum Rann- sóknarþjónustunnar hf. og var framkvæmdastjóri hennar til 1989 er hann varð sölustjóri hjá Gróco hf. í Reykjavík. Róbert hefur svo verið ráðinn fóðurfræðingur hjá Jötni hf. í Reykjavík frá næstu mán- aðamótum. Róbert hefur ritað fjölda vísinda- greina um búvísindi í erlend vís- indarit, auk þess sem hann hefur ritað fjölda greina um landbúnað í innlend og erlend landbúnaðarrit. Fjölskylda Róbert kvæntist27. september 1974 Ingibjörgu Garðarsdóttur, f. 12.10.1952, auglýsingastjóra Stöðvar 2, en hún er dóttir Garðars Sigurðs- sonar, rafvirkja í Reykjavík, og Ingu Benediktsdóttur, verslunarstjóra í Reykjavík. Börn Róberts og Ingibjargar eru Bárður Steinn, f. 20.5.1973, nemi við MS; Garðar Örn, f. 2.6.1977, og Helga, f. 14.9.1978. Systkini Róberts eru Binna, f. 29. október 1946, skrifstofumaður í Vestmannaeyjum, gift Torfa Har- aldssyni verkstjóra og eiga þau tvö böm; Erna, f. 28. ágúst 1948, hjúkr- unarfræðingur í Reykjavík, gift Ni- els Ch. Nielsen svæfingarlækni og eiga þau tvö börn; Valþór, f. 6. apríl 1952, blaðamaður og bæjarfulltrúi í Kópavogi, kvæntur Guðrúnu Gunn- arsdóttur fóstru og eiga þau þijú böm; Jódís, f. 16. júní 1958, verslun- armaður í Kópavogi, gift Einari Óla- syni ljósmyndara og eiga þau þrjú börn; Bryndís, f. 8.10.1960, laganemi í Reykjavík; Jón Hrafn, f. 26. maí 1962, húsasmiður í Reykjavík, í sam- búð með Elsu Dóru Gísladóttur myndlistarkonu; Orri Vignir, f. 20. júní 1964, háskólanemi í alþjóða- tengslum í Sacramento í Bandaríkj- unum, í sambúð með Helgu Dagnýju Árnadóttur háskólanema, og Hlöð- ver, f. 26. mars 1966, nemi í vélvirkj- un í Reykjavík, í sambúð með Margréti Sigríði Sævarsdóttur iðn- skólanema og eiga þau eitt bam. Foreldrar Róberts: Hlööver Kristj- ánsson, f. 11. desember 1925, örygg- isfulltrúi hjá íslenska álfélaginu, og kona hans, Ester Jónsdóttir, f. 5. mars 1927, sjúkraliði. Ætt og frændgarður Hlöðver er sonur Kristjáns Jóns- sonar og Jónínu Guðríðar Sigfús- dóttur, b. og sjómanns í Vatnsnesi og Tröð í Njarðvíkum, Jónssonar, b. á Vatnsnesi, Nikulássonar, b. þar um 1790, Jónssonar. Móðir Sigfúsar var Kristín Magnúsdóttir, b. í Áma- gerði í Fljótshlíð, Jónssonar, en móðir Kristínar var Signý Vigfús- dóttir, b. í Kornhúsum, Jónssonar. Móðir Jónínu Guðríðar var Sigríð- ur Jónsdóttir, útvegsb. í Tumakoti á Vatnsleysuströnd, bróður Magn- úsar Waage, skipherra í Stóm- Vogum, ættföður Waageættarinnar. Móðir Jóhönnu Maríu var Guðríður Steindórsdóttir, prests á Staðar- hrauni, Jónssonar, b. á Búðum á Snæfellsnesi, Eiríkssonar. Móðir Guðríðar Steindórsdóttur var Hólmfríður, systir Jóns, prests og skálds á Bægisá, Þorlákssonar. Systir Esterar er Jenný, móðir Úlfars Antonssonar vatnalíffræð- ings. Önnur systir Esterar er Krist- ín, móðir Jóns Vals Jenssonar ætt- fræðings. Ester er dóttir Jóns, verkamanns í Reykjavík, bróður Einars, foður Þorsteins, útgerðar- manns í Garði. Systir Jóns var Sig- ríður, amma Róberts Magnússonar verkfræðings. Jón var sonur Helga, b. á Ósabakka á Skeiðum, Jónsson- ar, b. á Iðu, Vigfússonar. Móðir Jóns var Aldís Jónsdóttir, b. á Galtalæk, Jónssonar og konu hans, Rannveig- ar Jónsdóttur, b. á Spóastöðum, Guðmundssonar, b. á Kópsvatni, Þorsteinssonar, ættfoður Kóps- vatnsættarinnar. Móðir Jóns Helga- sonar var Kristjana Einarsdóttir, systir Kristjáns, foður Jóhanns læknis og Sigurhða, kaupmanns í Silla og Valda. Móðir Kristjönu var Vigdís Diðriksdóttir, b. í Neðradal í Biskupstungum, Stefánssonar, b. i Neðradal, Þorsteinssonar, langafa Páls, langafa Markúsar Arnar Ant- onssonar og Björns Bjamasonar Róbert Hlöðversson. aðstoðarritstjóra. Móðir Stefáns var Guðrún Guðmundsdóttir, systir Jóns á Spóastöðum. Móðir Diöriks var Vigdís Diðriksdóttir. Móðir Vig- dísar var Guðrún Högnadóttir „presta-foður“, Sigurðssonar. Móðir Esterar var Valdís, systir Maríu, móður Jóns Gíslasonar, formanns Ættfræðifélagsins. Önnur systir Valdísar var María yngri, amma Kristins Ág. Friðfinnssonar prests. Valdís var dóttir Jóns, b. í Selja- tungu í Flóa, Erlendssonar, b. í Am- arholti, Þorvarðssonar, b. í Stóra- Klofa, Erlendssonar, b. í Þúfu á Landi, Jónssonar. Móðir Erlends í Þúfu var Halldóra Halldórsdóttir, b. á Rauðnefsstöðum, Bjarnasonar, b. á Víkingslæk, Halldórssonar, ætt- fóður Víkingslækjarættarinnar. Öm Gústafsson Örn Gústafsson, framkvaemda- stjóri Vátryggingafélags íslands, Gljúfraseli 1, er fertugur í dag. Örn er fæddur í Reykjavík og ólst þar upp. Starfsferill Öm lauk viðskiptafræðiprófi í HÍ 1976 og var viöskiptafræðingur hjá Hagvangi hf. 1976-1978. Hann var viðskiptafræðingur hjá Iðnaðar- deild Sambandsins 1978-1988 og var markaðsstjóri ullar- og skinnaiðn- ardeildar Sambandsins 1980-1985. Öm var markaðsstjóri skipadeildar Sambandsins 1988-1989 og hefur verið framkvæmdastjóri Vátrygg- ingafélags íslands frá 1989. Hann var formaður kjarasamninganefnd- ar Akureyrarbæjar 1982-1986. Fjölskylda Örn kvæntist 14. júní 1971 Ámýju Benediktsdóttur, f. 4. maí 1950. For- eldrar Árnýjar eru Benedikt Kristj- ánsson og kona hans, Ólöf Jóns- dóttir. Böm Arnar og Ámýjar em: Benedikt, f. 1972; Valur, f. 1979; Öm, f. 1983, og Tinna, f. 1985. Systk- ini Arnar eru: Helgi, bifreiðarstjóri í Rvík, kvæntur Emu Guðmunds- dóttur og eiga þau þrjú böm; Ein- ar, símritari í fjarskiptastöðinni í Gufunesi, kvæntur Kristínu Ein- arsdóttur, verslunarmanni hjá Máli og menningu og eiga þau tvö böm; Gústav, leiðbeinandi á Pat- reksfirði, kvæntur Rannveigu Har- aldsdóttur og eiga þau þijú börn, og Drífa, gift Kristjáni Guðmunds- syni, fyrrv. stýrimanni í Bolungar- vík, og eiga þau þijú böm. Ætt Foreldrar Arnar em: Gústaf Ófeigsson, f. 18. nóvember 1920, bif- reiðarstjóri í Rvík, og kona hans, Ásdís Helgadóttir, f. 4. júlí 1921. Til hamingju með afmælið 30. október Inga Ásta Eiríksdóttir, 90 ára Sigurbjörg Elíasdóttir, Þómstöðum 2, Öngul.staðahreppi Bentína Jónsdóttir, Hafnarbraut 8, Suðuríjarðarhreppi 80 ára Hólmfriður Magnúsdóttir, Borgarbraut 22, Stykkishólmi 75 ára Efstasundi 53, Reykjavík Guðný Alberta Hammer, Lækjarbraut 2, Hoítahreppi Inger Sigfúsdóttir, Kmmmahólum 4, Reykjavík Erna Margrét Haraldsson, Mela8Íðu 100, Akureyri 50 ára Sigrún Jónsdóttir, Hombrekku, Ólafefirði Sigrún Sigurðardóttir, Skólavegi 21, Búðahreppi Jóhann Ágústsson, Skjólbraut 1A, Kópavogi. Hann tekur á móti gest- um á heimili dóttur sinnar á Kópa- vogsbraut 108 kl .15-18. 70 ára Svanlaug Halldórsdóttir, Króksseli, Skagahreppi 60 ára Guðrún Jacobsen, Bergstaðastræti 34, Reykjavík Petrína Gísladóttir, Kirkjuvegi 14B, Ólafsfiröi Sigurður Gunnarsson, Logafold 92, Reykjavík Guðlaugur Þ. Sveinsson, Knarrarbergi 5, Ölfushreppí Sigurður B. Sigurðsson, Hallveigarstíg9, Reykjavík Jóhannes Óskarsson, Hlugagötu 33, Vestmannaeyjum Helga Þórðardóttir, Álfaskeiði 94, Hafnarfirði Ásdís Guðmundsdóttir, Sundstræti30, ísafirði Úlfar Guðmundsson, Túngötu 20, Eyrarbakka 40ára Björn K. Björnsson, Blómvangi 4, Hafharfirði Gunnar J. Gunnarsson, Hraunbæ 144, Reykjavík Ágúst Hilmarsson, Skútahrauni 16, Skútustaðahr. Smári Guðmundsson, Víðimel 69, Reykjavík Dóróthea Antonsdóttir, Norðurgarði 19,Hvolhreppi Gústaf er sonur Ófeigs, b. í Kols- holti, Jónssonar, b. í Eystra-Geld- ingaholti, Ólafssonar, b. í Eystra- Geldingaholti, bróöur Sigríðar, langömmu Ingigerðar, móður Guð- rúnar Helgadóttur alþingisforseta. Systir Ólafs var Margrét, móðir Brynjólfs Jónssonar frá Minna- Núpi. Ólafur var sonur Jóns, b. á Baugsstöðum, Einarssonar og konu hans, Sesselju Ámundadótt- ur, málara í Syðra-Langholti, Jóns- sonar, langafa Guðmundar, langaf- a Jóhanns Hjartarsonar stórmeist- ara. Móðir Jóns Ólafssonar var Gróa Jónsdóttir, b. á Hrygg í Flóa, Einarssonar og konu hians, Guð- laugar Helgadóttur, systur Bjama, langafa Guðbjarna, fóður Sig- mundar rektors. Móðir Ófeigs var Ingunn, systir, samfeðra, Vigdísar, langömmu Vigdísar Finnbogadótt- ur. Ingunn var dóttir Eiríks, b. í Vorsabæ, Hafliðasonar og konu hans, Ingveldar Ófeigsdóttur ríka á Fjalli, Vigfússonar. Móðir Ingveld- ar var Ingunn Eiríksdóttir, b. á Reykjum á Skeiðum, Vigfússonar, ættfóður Reykjaættarinnar. Ásdís er dóttir Helga, rafstöðvar- stjóra á Patreksfirði, bróður Krist- jönu, ömmu Sighvats Björgvins- sonar alþingismanns. Helgi var sonur Einars, b. á Einbúa í Suður- sveit, bróður Álfheiðar, móður Gunnars Benediktssonar rithöf- undar. Önnur systir Einars var Guðný, amma Einars Braga rithöf- undar. Bróðir Einars var Stefán, afi Stefáns Benediktssonar, þjóð- garðsvarðar í Skaftafelli. Einar var sonur Sigurðar, b. á Lambleiks- stöðum, bróður Guðnýjar, ömmu Þórbergs Þórðarsonar. Sigurður var sonur Einars, b. á Brunnum, Eiríkssonar, b. á Brunnum, Einars- sonar. Móðir Eiríks var Þórdís, systir Jóns Eiríkssonar konfer- ensráðs og Önnu, langömmu Bene- dikts, föður Einars skálds. Örn Gústafsson. Móðir Ásdísar var Soffia Jakobs- dóttir, b. á Bakka í Tálknafirði, Kristjánssonar, b. á Barmi í Gufu- dalssveit, Einarssonar. Móðir Kristjáns var Margrét Amfinns- dóttir, systir Ingibjargar, ömmu Bjöms Jónssonar ráðherra, fööur Sveins forseta. Móðir Jakobs var Anna, systir Ara, afa Lára, ömmu Láru Júlíusdóttur, lögfræðings ASÍ. Anna var dóttir Jóns, silfur- smiðs í Fremri-Gufudal, Eiríksson- ar og konu hans, Þuríðar Halldórs- dóttur, b. á Gauksmýri, Samsonar- sonar. Eiríkur Kjerúlf Eiríkur Kjerúlf, bóndi að Vallholti í Fljótsdal í Norður-Múlasýslu, er sjö- tíu og fimm ára í dag. Eiríkur fæddist að Hrafnkelsstöð- um í Fljótsdal og bjó þar með föður sínum til ársins 1948 en þá reisti hann nýbýlið Vallholt í landi Hrafn- kelsstaða og hefur búið þar síðan. Eiríkur dvelur nú um stundarsakir á Landspítalanum í Reykjavík, deild 14G. Fjölskylda Eiginkona Eiriks er Droplaug J. Kjerúlf frá Amheiðarstöðum í Fljótsdal, dóttir Jörgens E. Kjerúlf, b. frá Melum í Fljótsdal, og Elísabet- ar J. Kjerúlf frá Brekkugerði í Fljótsdal. Böm Eiríks og Droplaugar eru Hjörtur, bóndi að Hrafnkelsstöðum í Fljótsdal, en böm hans era Lilja, Eiríkur Rúnar, Sólrún Júlía og Benedikt Logi en barnsmóðir Hjart- ar er Málfríður Benediktsdóttir frá Djúpavogi; Reynir, verslunarmaður á Egilsstöðum, kvæntur Guðbjörgu Bjömsdóttur frá Móbergi í Hjalta- staðarþinghá og eru synir hans Arn- þór Bjöm og Rúnar Snær; Sigurður, vélsmiður á Egilsstöðum, í sambýli með Málfríði Bjömsdóttur frá Haf- ursá í Suður-Múlasýslu en börn hans era Eva Hrand og Adam Snær; Rúnar Metúlsalem er lést 1958 og Elísabet, tannfræðingur í Reykja- vík, gift Sigurði D. Thoroddsen en böm hennar eru Droplaug Lára og Ulfur. Systkini Eiríks eru sextán auk tveggjafóstursystkina. Systkini hans: Bam, fædd andvana 1905; Aðalbjörg er lést 1949; Jónína er lést 1921; Þorbjörg er lést 1975; Sigurður er lést 1915; Jón er lést 1970; Andrés er lést 1913; Anna, búsett á Egils- stöðum; Hjörtur er lést 1919; Sigríð- ur, búsett á Egilsstöðum; Andrés Hjörtur er lést 1979; Ragnhildur Björg, búsett að Sauðhaga á Völlum; Guðrún, tvíburasystir Ragnhildar, búsett á Egilsstöðum; Stefán er lést 1968; Ásdís, búsett á Egilsstööum. Fóstursystkini Eiríks era Hrafn- kell Björgvinsson, búsettur á Reyð- arfirði, og Anna Björgvinsdóttir, búsett á Egilsstöðum. Foreldrar Eiríks vora Metúsalem J. Kjerúlf, b. á Hrafnkelsstöðum, og Guðrún Jónsdóttir, húsfreyja frá FelliíSuðursveit. Ætt og frændgarður Systir Metúsalems var Sigríður, amma Herdísar Þorgeirsdóttur, rit- stjóra Heimsmyndar, Eiríks Jóns- sonar fféttamanns og Ólínu Þor- varðardóttur borgarfulltrúa. Metú- salem var sonur Jóns Kjerúlf, b. á Melum í Fljótsdal, Andréssonar, b. á Melum, Jörgenssonar, læknis á Brekku í Fljótsdal, en sá kom til Eiríkur Kjerúlf. íslands árið 1819, föðurbróðir norska tónskáldsins Hálfdánar Kjerúlfs. Móðir Jóns Kjerúlf var Anna Jónsdóttir, b. á Melum, Þor- steinssonar, b. á Melum, Jónssonar, ættföður Melaættarinnar. Móðir Metúsalems var Aðalbjörg, systir Ragnhildar, móður Metúsal- ems búnaðarmálastjóra og Halldórs alþingismanns, föður Ragnars, stjómarformanns íslenka Álfélags- ins. Aðalbjörg var dóttir Metúsal- ems sterka, b. í Möðrudal, Jónsson- ar og konu hans, Kristbjargar Þórð- ardóttur, b. í Kjarna í Eyjafirði, Pálssonar, ættföður Kjarnaættar- innar. Guðrún, móðir Eiríks, var dóttir Jóns, b. á Felli í Suðursveit, Vigfús- sonar, b. á Felli, Jónssonar. Móöir Vigfúsar var Guðrún Þorsteinsdótt- ir. Móðir Guðrúnar Jónsdóttur var Guðrún Margrét Davíðsdóttir frá Rauðabergi í Fljótshverfi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.