Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1990, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1990, Page 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 1990. Merming______________________________pv Hef ndin er sæt - sár Ný sjónvarpsmynd Ásgríms Sverrissonar fjallar um samband tveggja vina við sömu stúlkuna, hinn sígildi þríhyrningur ástar meö ívafi haturs og hefndar sem óhjákvæmilega leiðir til uppgjörs. Stúlkan, Herdís, hafði átt í ástarsambandi við Ketil hinn bjarta. Vinur hans, Eyjólfur svarti, er líka hrifinn af henni án þess að það sé endurgoldið. Og þó. Hans tækifæri kom. Hann sagði Herdísi frá hliðarspori Ketils og komst með því yfir hana eina nótt. Eftir það hverfur hún til síns heima, í afdahnn til fóður síns og vill við hvorugan piltinn tala. Þar elur hún síðan barn í fyllingu tímans, barn sem er ávöxtur þessarar einu nætur með Eyjólfi. En ekkert af þessu veit áhorfandinn, þegar hann fylgist með þeim félögum í upphafi myndar, þar sem þeir hossast á fámálugu ferðalagi í leigubíl til þess að reyna að ná tali af stúlkunni. Eyjólfur hefur af flátt- skap hvatt til fararinnar því að nú ætlar hann að ná fram hefndum á Herdísi sem ekkert vill við hann kann- ast. Ketill veit sem sé ekkert heldur um það sem gerst hefur og „vinur" hans ætlar að upplýsáhann um stað- reyndir á dramatískan hátt. Uppgjörið verður með nokkuð öðrum hætti en til var stofnað og eins og við var aö búast snúast vopnin í höndum hefnandans. Hann hefur á endanum þaö eitt að hugga sig við aö eftir standa þau öll þrjú nokk- um veginn jafnóhamingjusöm. Hefndin er sæt, en hún er líka sár. Herdís er líka á milh tveggja elda þar sem togast á ást hennar annars vegar á fóðumum, sem ekki vih sleppa henni, og hins vegar á Katli sem hún vill helst fara tU aftur. Samtölin í myndinni eru heldur sundurslitin og inni- haldslítil og málfariö oft flatneskjulegt. Þar við bætist þaö sem virðist vera iUviðráðanlegt vandamál við vinnslu íslenskra mynda en það er tal og hljóðsetning. Framsögnin var oft þvinguö og óeðhleg og óþarfa „stúdíóhljómur“ í talinu en atburðir fara að mestu frarn úti undir bem lofti. óbreyttum endurtekningum. Það virðist meginregla i verkum þessum að setja fram stefin með því að tví- taka þau eða þrítaka óbreytt í striklotu. Endurtekning- ar eru að sönnu mikilvægar í tónhst og rétt er það að Njáll á Bergþórshvoh lét segja sér tíðindi þrisvar, en þó aðeins einu sinni og af ærinni ástæðu. Þannig á aö nota endurtekningar. Þrátt fyrir þessa gagnrýni er ekki þar með sagt að etýður Rachmaninoff séu alveg ónýtar. Sú nr. 4 hljóm- aði ágætlega og eitthvað mátti frnna í nr. 2 og nr. 7 líka. Síðast en ekki síst em þær allar mjög erfitt og hollt tæknilegt viðfangsefni fyrir píanóleikara og sennUega liggur aðdráttarafl þeirra fyrst og fremst í því. Þarf mikið áræði og dug til að flytja svo mikið af Tónlist Finnur Torfi Stefánsson fingurbrjótum á einum tónleikum. Að auki þarf mikla hæfileika til þess að skUa því verki eins vel og Þor- steinn Gauti gerði á þessum tónleikum. Hann hefur mjög faUegan tón, einnig þegar sterkt var spilað og vald hans á styrkmun hinna ýmsu radda var oft með ágætum. Þar sem tónlistin bauð upp á túlkun, eins og t.d. í Skrjabín, var hún mjög góð. Hinn stálfingraði skírleiki, sem kvað vera aðalatriðið á píanókeppnum nútímans, var misjafn , en oft býsna góður. Það sem þá furðaði mest, sem óvanir em íþróttum af þessu tagi, var að píanistinn skyldi enn halda öllum fingmm þegar átökin voru afstaðin. Þrekvirki Þorsteinn Gauti Sigurðsson lék einleik á píanó á tón- leikum í íslensku óperunni í gær. Tónleikar þessir voru haldnir á vegum Evrópusambands píanókenn- ara, EPTA. Á efnisskránni voru verk eftir Alexander Skriabín og Sergei Rachmaninoff. Etýður Skriabíns em ljúfar tónsmíöar og reikandi svo sem vera ber í rómantíkinni. Hljóma þær mjög í anda Liszts og Chopins, ef til viU má segja að þær séu eins konar flæktur Chopin. Þegar tók að líða á feril Skrjabíns gerðist tónamál hans persónulegra, djarfara og sífellt smástígara. Hefur það stundum veriö kallað atónaU impressjónismi. Ýmis einkenni þessa stíls mátti heyra í Sónötu nr. 5, sem er frumlegt og áhri- farík't verk, þar sem tónskáldinu virðist takast ágæt- lega að sameina hljómfræðilegar nýjungar sínar hefð- bundinni formbyggingu. Tónlist Sergei Rachmaninoffs, sem virðist njóta tölu- verðra vinsælda hér á landi, hefur áður verið gagn- rýnd í pistlum þessum fyrir að vera meir umbúðir en innihald. Sú skoðun gagnrýnanda breyttist ekki á þess- um tónleikum en þarna voru fluttar níu Etudes-table- aux op. 39 . Ágallamir eru að mestu þeir sömu og í sumum öðrum verkum þessa vinsæla höfundar. íburð- urinn ber innihaldið ofurhði og mikið af efninu hljóm- ar eins og það sé fengið láni hjá öðrum og endurútgef- ið í skreyttri mynd. Eitt af því sem stuðlar aö því að gera þessa tónlist hjakkkennda er hve mikið er af Leiklist Auður Eydal í tveimur aðalhlutverkunum eru óreyndir leikarar, þau Þormar Þorkelsson (Hjálmar Hjálmarsson leggur honum til rödd) og Ylfa Edelstein en aðrir í stórum hlutverkum eru atvinnuleikarar, þeir Róbert Am- fmnsson og Skúh Gautason. Myndatakan byggist mikiö á skotum sem sýna fólk í mismunandi mikilli geðshræringu og hér fer eins og fyrri daginn að mikill munur (allt of mikill) er á þeim sem reynsluna hafa og hinum. Róbert er sérstaklega heilsteyptur í hlutverki Hann- esar, föður Herdísar, og hefur hvert svipbrigöi á valdi sínu. Persóna Eyjólfs er heldur einlit ímynd skúrks- ins. Skúh er yfirlætisfull og sleip Jagó-manngerð, og kemst langt með að túlka tærandi afbrýðisemina og hatrið, sem hvetur Eyjó til uppljóstrana. Þaö er mikiö gælt við útlit þeirra Þormars og Ylfu í myndatökunni svo aö stundum minnti frekar á auglýs- ingar eða myndefni á tónlistarmyndböndum. Þaú myndast bæði vel en minna fór fyrir leikrænum til- þrifum. Þrátt fyrir hádramadískan efnivið varð útkoman heldur rýr, mest hróp og köll. Kannski hefði verið ráð að fá einhvern utanaðkomandi til að fara yfir eða jafn- velskrifahandritið. AE Rikisútvarpiö - Sjónvarp sýnir: VIRKID Framleiöandi: Alvara Kvikmyndataka og lýsing: Rafn Rafnsson Hljóöupptaka: Tindur Hafsteinsson Hljóövinnsla: Böövar Guömundsson Tónlist: Styrmir Sigurösson Klipping: Skafti Guömundsson, Ásgrímur Sverrisson Leikmynd og tœkníbrellur: Úlfur Karlsson Handrit og leikstjórn: Ásgrimur Sverrisson Fundir Kvenfélag Hallgrímskirkju Fundur veröur haldinn í safnaðarsal kirkjunnar finuntudaginn 1. nóvember kl. 20.30. Frú Steinunn Jóhannesdóttir leikkona les upp. Þá kynnir frú Áslaug Stefánsdóttir Indlandsstarflö sem er ný starfsgrein innan Hallgrímskirkju. Jó- hannes Pálmason, formaöur sóknar- nefndar Hallgrímskirkju, kemur á fund- inn. Söngur, kaffl og að lokum verður hugvekja sem sr. Ragnar Fjalar Lárusson flytur. Fundur um forngríska siðfræði Grikklandsvinafélagið Hellas boðar til fyrsta fræðslufundar vetrarins flmmtu- daginn 1. nóvember kl. 20.30 í Risinu, Hverfisgötu 105,4.h. Þar mun Vilhjálmur Ámason, lektor í heimspeki, flytja erindi er hann nefnir „Fomgrísk siðfræði og kristin" og gera grein fyrir siðferðis- hugmyndum sem riktu meðal griskra heimspekinga á síðari hluta fomaldar og þeim breyttu viöhorfum sem tilkoma kristindómsins haíði í fór með sér. Fyrir- lesari mun svara spurningum fundar- gesta en einnig verða til umræðu önnur mál er snerta félagsstarfið. Öllum er heimill aðgangur. Hagfræðistefnan á Kúbu í kvöld, 30. október, kl. 20 heldur kú- banski hagfræðingurinn dr. Carlos Ta- blada erindi og svarar fyrirspumum á Komhlöðuloftinu við veitingahúsið Lækjarbrekku í Reykjavik. Forlagið Pathfinder og Vináttufélag íslands og Kúbu gangast fyrir fundinum. Hann er öllum opinn. Tablada er á 6 vikna fyrir- lestrarferð og talar við helstu mennta- stofnanir á Norðurlöndum og Bretlandi um hagfræðistefnu á Kúbu, í Austur- Evrópu og önnur pólitísk efni. Fæðuofnæmi Samtök gegn astma og ofnæmi halda fræðslufund um fæðuofnæmi í Múlabæ, Armúla 34, 3. hæð, á morgun, miðviku- dag, kl. 17. Bjöm Árdal læknir, sérfræð- ingur í ofnæmissjúkdómum bama, held- ur erindi og svarar síðan fyrirspumum. Félagar, ekki síst foreldrar bama með ofnæmi, em hvattir til að fjölmenna og taka með sér gesti en allt áhugafólk er velkomið á fræðslufúndi SAO. Kaffiveit- ingar. Athugið breyttan ftmdartíma. Tilkyimingar Kvenfélag Kópavogs Spilað verður í kvöld kl. 20.30 í félags- heimili Kópavogs. Allir velkomnir. Félag eldri borgara Haldin verður skáldakynning í dag, þriðjudag 30. október, kl. 15 að Hverfis- götu 105. Lesið verður úr verkum Ólafs Jóhanns Sigurðssonar. Lesarar Baldvin Halldórsson og Þorsteinn Gunnarsson. Umsjónarmaður Helgi Sæmundsson rit- höfundur. Opið hús í dag að Hverfisgötu 105 kl. 13.30-17. Kvennadeild Barðstrendinga- félagsins Vinningar úr happdrættinu, sem haldið var á basarnum 14. október sl„ hafa ekki allir verið sóttir. Eftir era vinningar nr. 721, 128, 917 og 525. Upplýsingar gefur Erla í síma 46756. Tónleikar Hljómsveitin Edda Borg leikur á Púlsinum Ný hljómsveit, Edda Borg, leikur djass og blús á Púlsinum í kvöld. Tónleikamir hefiast kl. 21.30. Hljómsveitina skipa: Friðrik Karlsson, gítar, Pétur Grétars- son, trommur, Bjami Sveinbjömsson, bassi og Þórir Baldursson, hljómborð. Háskólatónleikar í Norræna húsinu Miðvikudagjnn 31. október kl. 12.30 mun Robyn Koh semballeikari koma fram á Háskólatónleikum. Á efnisskrá verða verk eftir ítölsku tónskáldin G. Fres- cobaldi (1583-1643), B. MarceUo (1686- 1739) og B. Galuppi /1706-1785). Robyn Koh er fædd í Austur-Malasíu og stund- aði nám við Chetham’s School of Music í Manchester, Royal Academy of Music í London, Royal Northem CoUege of Music í Manchester og hefur síöan 1988 verið nemandi Kenneth GUbert í Mozarteum í Salzburg. Fyrirlestrar Háskólafyrirlestur Dr. WiUiam Fitzhugh, forstöðumaður mannfræðideUdar Smithsonian-safnsins í Washington, flytur fyrirlestur í boði félagsvisindadeUdar í dag, 30. október, í stofu 101 í Odda, hugvisindahúsi Háskól- ans. í fyrirlestrinum veröur fiaUað um búsetu inúíta (eskimóa) í Alaska í fiósi nýjustu fomleifarannsókna. Fyrirlestur- inn verður fluttur á ensku og hefst kl. 17. Dr. Fitzhugh er sérfræðingur í menn- ingu inúíta og áhugamaður um mann- fheðirannsóknir á norðurslóðum. Hann er staddur hér á landi tU að sefia upp sýningu á gripum frá inúítum viö Ber- ingshaf. ÖUum er heimiU aðgangur. Tapað fundið Svartur köttur tapaðist úr Grafarvogi Svartur köttur með hvítan blett á bringu týndist í Grafarvogi 21. september sl. en hann var nýfluttur úr Hólahverfi í Breið- holti. Ef einhver hefur séð hann eða veif hvar hann er niðurkominn er hann vin- samlegast beðinn að láta vita í síma 671861. Kvenfrakki tapaðist á Hótel Borg Svartur kvenfrakki var tekinn á Hótel Borg aðfaranótt sunnudagsins sl. Sá sem hefur jakkann undir höndum er vinsam- legast beðinn að skUa honum í eldhús Hótel Borgar. Galsi er týndur Hann er svartur og hvitur fress og hvarf að heiman frá sér í Víkurási 410. október sl. Hann var með ól þegar hann týndist en vantaði símanúmer hans. Ef einhver hefir séð hann eða veit hvar hann er nið- urkominn er hann vinsamlegast beðinn að hringja í síma 674393 effir kl. 18. Páfagaukurtapaðist úr Kópa- vogi Dökkgrænn stór páfagaukur með frekar litinn gogg tapaðist frá Digranesvegi í Kópavogi sl. sunnudag. Ef einhver hefur séð hann eða veit hvar hann er niður- kominn er hann vinsamlegast beðinn að láta vita í síma 41402 eða 37726. Andlát Vilborg Sigurbergsdóttir andaöist aö heimili sínu, Úthaga 10, Selfossi, þann 27. október. Erlendur Jóhannsson, Kleppsvegi 6, lést á Landakotsspítala 27. október. Guðfínna Jónsdóttir frá Deild lést á hjúkrunardeild Hrafnistu, Hafnar- firði, 29. október. Ársæll Karlsson, Reykjamörk 17, Hveragerði, andaöist á heimili sínu þann 26. október. Helga Hernitsdóttir, Lindahlíð, Aöal- dal, andaðist í Sjúkrahúsi Húsavikur 27. október. Margrét H. Steindórsdóttir, Hóla- vallagötu 5, Reykjavík, lést á öld- runarlækningadeild Landspítalans aðfaranótt 28. október sl. Jarðaifarir Ólafía Eyleifsdóttir andaðist að heimili sínu, Blikanesi 22,27. októb- er. Hún veröur jarðsungin frá Foss- vogskirkju föstudaginn 2. nóvember kl. 14.30. Utför Jakobs Helgasonar verður gerð frá Kópavogskirkju miövikudaginn 31. október kl. 13.30. Kveðjuathöfn um Guðbjörgu Vigfús- dóttur, Hrafnistu, Hafnarfirði, verð- ur í Fossvogskapellu fimmtudaginn 1. nóvember kl. 10.30. Jarðsett verður í Vilbngaholti, Vilbngaholtshreppi, kl. 13 sama dag. Útför Ingibjargar Guðmundsson, Sólheimum 25, fer fram frá Áskirkju miðvikudaginn 31. október kl. 13.30. Karen Elísabet Bjarnason lést 28. október. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudag- inn 2. nóvember kl. 13.30. Katharina Sybilla Magnússon, Ás- braut 15, Kópavogi, áður Grettisgötu 29, Reykjavík, verður jarðsungin frfi Kristskirkju, Landakoti, í dag, þriðjudaginn 30. október kl. 13.30. Fjölmiðlar Fyrir svef ninn Áður en farið er i háttinn á kvöld- in er hægt að sytta sér stundir viö að hlusta á alls kyns sögur frá fólki sem hringir inn tíl útvarpsstöðv- anna. Á einni stöðinni segja menn kvöldsögur úr einkalífinu og á ann- arri eru frásasgnir af draumum, allt fráþvííbamæsku. Undirrituöum kemur abtaf jafn- mikið á óvart hve margir eru tilbún- ir tíl að segja frá ýmsum leyndar- málum einkalífsins í beinni útsend- ingu i þessu Utla þjóðfélagi. Á stund- um verða Irásagnimar tregafuUar og tárvotar en oftar en ekkí eru það hláturtaugar hlustenda sem fá létt æðiskast. Kortcríþijúgæjar og píur takast á í beinni útsendingu og úr verður hin besta skemmtun. Það verður að segjast hér og nú að Eirík- ur Jónsson frá kóngsins Köben er engum líkur, frakkur og djarfur. Það er með óbkindum hvemig hann fær fólk til aðopna sig. Vandræðum losar hann sig úr á kænlegan hátt. Félagi Eiríks, nafni minn Hólm, mó tíl með að taka betur i taumana svo fóUc vaði ekki áfram og þátturinn endi sem enn ein þjóðarsábn. Á annarri stöð segir fóUc frá draumum og maður, sem ég kann bara ekki að nefna þar sem ég hlust- aði svo stutt, tekur sig tfi og ræður þá fyrir fólk. Ekki er hægt að gera lítið úr upplifunum fólks hvers eðlis sem þær em en með tilkomu ný- aldaræðisins og útvarpsstöðvanna hafa aUs kyns dulúöugir spekingar fengið kjörið tækifæri til að láta ljós sitt skína. Nú er þeirra gósentími. Þeir geta verið misjafnir eins og annað fólk en einhvern veginn hrýs manni hugur við þvi þegar allt sem þessir spekingar segja er lapið upp til agna í einhverri þakklætísgeðs- hræringu. En Uði fólki betur eftír á er kannski einhveijum tilgangi náð - jafnvel þó aUt sé þetta blekking ein. Huukur Lárus Hauksson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.