Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1990, Qupperneq 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Askrift - Dreifing: Simi 2T022
ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 1990.
Stór tengivagn losnaði frá flutninga-
bil og valt á hliðina í mjög snörpum
vindi á Vesturlandsvegi á Kjaiarnesi
skömmu eftir miðnætti. Steinull var
á tengivagninum og var billinn að
koma frá Sauðárkróki.
DV-mynd JAK
AðildaðEB:
Þarfnast
rækilegrar
skoðunar
segir Þorsteinn Pálsson
„Eg tel eðlilegt aö sá kostur sé skoð-
aður rækilega eins og aðrir,“ sagði
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, þegar hann var
spurður álits á tillögu Ragnhildar
Helgadóttur, þingmanns Sjálfstæðis-
flokksins. Ragnhildur sagði á Alþingi
►í gærkvöldi að íslendingar ættu að
sækja um aðild að Evrópubandalag-
inu. Flokksbróðir hennar, Hreggvið-
ur Jónsson, tók undir það.
Þorsteinn sagði að hann hefði þeg-
ar bent á að hugmyndin um sameig-
inlegt evrópskt efnahagssvæði væri
hrunin og tími væri komin til þess
að ræða hvernig við tengdumst Evr-
ópubandalaginu til frambúðar. Þor-
steinn sagði að á þessu stigi væri
ekki tímabært að einblína á aðild að
bandalaginu en í shkum viðræðum
borgaði sig ekki að útiloka neina
kosti fyrirfram.
-SMJ
Akureyri:
Peningum stolið
úráhaldahúsi
bæjarins
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii
Lögreglan á Akureyri leitar nú
þess eða þeirra sem brutust inn í
áhaldahús bæjarins í fyrrinótt og
stálu þaðan hátt í 100 þúsund krón-
um í peningum og ávísunum.
Álitið er að einhver sem þekkir eitt-
hvað til á staðnum hcifi þarna verið
að verki en peningarnir, sem stolið
var, munu tengjast matarkaupum
bæjarstarfsmanna.
LOKI
Er nokkuð verra að gera
útá leigubíla?
frá þekktu loðnuskipi
,Ríkinu“
Miöaldra karlmaður frá sjáv-
arbæ á Norðurlandi var þrívegis
kærður fyrir að standa ekki í skil-
um við jafnmarga leigubílstjóra i
Reykjavík í síöustu viku. Maðurinn
hefur áður komiö við sögu lögreglu
vegna slíkra mála.
Umræddur maður var hinn
brattasti þegar hann kom inn í við-
komandi leigubíla. Hann kynnti sig
en notaði falskt nafn og lét það
fylgja með að hann væri skipstjóri
á einu þekktasta loðnuskipinu í ís-
lenska fiskiskipaílotanum.
Maðurinn fékk í eitt skiptið leigu-
bílstjóra til að keyra sig í Áfengis-
verslun ríkisins. Bað hann bílstjór-
ann um að fara inn fyrír sig og
kaupa veígar og spurði jafnframt
hvort hann vildi ekki leggja út fyr-
ir þeim. í ljósi þess að hér var um
mikla aflakió að ræða lagði bílstjór-
inn út fyrir víninu. Þegar kom að
því að borga átti maðurinn hins
vegar enga peninga.
Bílstjórinn kærði til lögreglu.
Tvær aðrar kærur komu í kjölfarið
frákollegum hans. Utanbæjarmað-
urinn skuldaði samtals um níu
þúsund krónur þegar hann var
„sendur" heim.
-ÓTT
Kirkjuþing sett
21. kirkjuþing Þjóðkirkju íslands
verður sett í Bústaðakirkju í dag.
Meðal mála sem kirkjuráð leggur
fram er áhtsgjörð um störf djákna,
áhtsgjörð um messutíma, áhtsgjörð
Rannsóknarstofnunar í siðfræði um
dauðaskilgreiningu og ígræðslu líf-
færa og álit nefndar sem ber saman
stöðu vígðrar og óvígðrar sambúðar.
-hlh
Vigdís af henti
sjónvarps-
verðlaun
Veiðiskipið Stefán Þór frá Reykjavík hefur siðan veiðar hófust i sumar aflað um 100 tonn af stórlúðu djúpt suð-
vestur af Reykjanesi. Kaupendur lúðunnar eru Norðmenn og hafa þeir greitt um 400 krónur fyrir kílóið. Myndin
er tekin við Faxagarð i gær þar sem hluta aflans var komið fyrir í frystigámi sem berast mun frændum okkar í Noregi
á næstunni. DV-mynd GVA
Samtök evrópskra sjónvarpsstöðva
stóðu í gær fyrir verðlaunaafhend-
ingu fyrir besta sjónvarpsleikritið |
1990. í forsæti dómnefndar var for-
seti íslands, Vigdís Finnbogadóttir. Á ,
myndinni er hún ásamt verðlauna-
hafanum, Patricku Aviolat frá Grikk-
landi. Aö aflokinni verðlaunaaf-
hendingunni, sem fór fram í Genf í
Sviss, hélt Vigdís til London en þaðan I
er hún væntardeg heim í dag.
i
Sjávarútvegurinn:
Snýst f rá tapi í hagnað
Samkvæmt úttekt Þjóðhagsstofn-
unar á afkomu sjávarútvegsins kem-
ur í ljós að sameiginleg afkoma veiða
og vinnslu hefur snúist úr 2 prósent
tapi í fyrra í 1 prósent hagnað í ár.
Miðað er við tölur um miðjan októ-
ber.
Hagnaður af bolfiskveiðum í ár er
3,6 prósent en í fyrra var tap upp á
1,5 prósent. Bátar eru reknir með 1
prósent hagnaði, togarar með 3,7 pró-
sent hagnaði og frystiskip meö 7,9
prósent hagnaði.
Fiskvinnslan er rekin með 1 pró-
sent tapi og eru þá greiðslur í verð-
jöfnunarsjóð teknar með í reikning-
inn. Án þeirra hefði verið um 1,1
prósenthagnaðaðræða. -S.dór
Veðrið á morgun:
Él við norð-
austur-
ströndina
Á morgun dregur úr norðanátt
og veður kólnar enn frekar. Dálít-
il él viö norðausturstöndina en
þurrt og víða bjart veður sunnan-
og vestanlands. Hiti á bilinu -4
til 6 stig.
Reutermynd
..n ■»>*■ i h ■ i im, h
— Hcildsöludreifing sími: 91- 41760
S liOM I k l
líStoryggfugar m
LÍI1RYGGINGARFLIAGIÐ HF.
I.ÁGMULI 5 - RL YKJAVlK
sinii 681644