Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1990, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1990, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1990. Forystumenn Stéttarsambands bænda: Fréttir Ætla að taka þátt í mót- mælum bænda í Brussel mega ekki hafa hjálm á höföi né halda á bareflum Bændur víös vegar úr heiminum ætla aö fjölmenna til Brussel 3. des- ember næstkomandi til aö mótmæla áformum um lækkun styrkja til landbúnaðarframleiðslu. Um þaö er meðal annars verið aö semja í Gatt- viðræðúnum sem 107 þjóðir taka þátt í. Þennan sama dag hefst í Brussel fundur með ráðherrum þeirra ríkja sem taka þátt í viðræðunum. Á fund- inum verður reynt að ná samkomu- lagi um aukið tollfrelsi og afnám styrkja á ýmsum sviöum milliríkja- viðskipta með vörur og þjónustu, þar á meðal landbúnaðarvörum. Búist er við að allt að 30 þúsund bændur taki þátt í þessum aðgerðum, þar á meðal fulltrúar Stéttarsam- bands bænda, þeir Haukur Halldórs- son formaöur og Hákon Sigurgríms- son framkvæmdastjóri. Að sögn Hákons eru aðgerðirnar skipulagðar af Samstarfsnefnd bændasamtaka innan Evrópubanda- lagsins og hefur hún fengið leyfi stjórnvalda fyrir mótmælunum. Hann segir að þeir þátttakendur, sem hafi tilkynnt komy sína, hafi fengið skýr fyrirmæli um að aðgerðimar eigi að fara friðsamlega fram og að óheimilt verði að bera hjálma, bar- efli og önnur verkfæri. Að baki þessum fyrirmælum er ótti um að aðgerðirnar leysist upp í óeirðir eins og oft hefur orðið raunin þegar bændur í Evrópu hafa safnast saman til mótmælaaðgerða. Franski landbúnaðarráöherrann, Louis Mermaz, hefur lýst mikilli ánægju með þessar fyrirhuguðu mót- mælaaðgeröir og segir að þær muni styrkja Evrópubandalagið mikið í þeim samningaviðræðum sem nú eiga sér stað um landbúnaðarmál í GATT-viðræðunum. 'En telja forsvarsmenn íslensku bændasamtakanna rétt að taka þátt í stuðningsaðgerðum við stefnu Evr- ópubandalagsins? Hákon segir það sína skoðun að íslendingar og aðrar Norðurlandaþjóðir eigi mikla sam- leið með Evrópubandalaginu hvað varðar stefnuna í landbúnaðarmál- um. Því hafi þeir Haukur talið eðli- legt að taka þátt í þessum aðgerðum. Að sögn Hákons hefjast mótmæla- aðgerðirnar snemma morguns með fundi þar sem ráðgert er að um þús- und bændur mæti víðs vegar úr heiminum. Á fundinum verða um- ræður en að þeim loknum er ætlunin að samþykkja ályktun þar sem varað er _við of miklum niðurskurði á styrkjum. Hákon segir að í fyrirliggjandi drögum aö ályktun sé ekki verið að hafna þvi aö samkomulag milli þjóða sé nauðsynlegt til að koma á reglu og stöðugleika í alþjóðaviðskiptum með landbúnaðarvörur. í drögunum segir hins vegar að nálgast þurfi slíkt markmið á raunsæjan hátt því að það séu ýmis önnur grundvallaratriði en þau viðskiptalegu sem taka verði til- lit til. „Hugmyndin er síðan að fara í mótmælagöngu þar sem allt að 30 þúsund bændur víðs vegar úr heim- inum slást með í förina. Ætli það verði ekki gengnir einir 5 kílómetr- ar. í lok göngunnar verður fram- kvæmdastjóra Gatt-viðræðnanna síðan afhent ályktun fundarins," sagði Hákon. -kaa Gatt-viöræöumar: Mikil óvissa um hvort sam- komulag næst - ráöherrar 107 ríkja hittast í Brussel á mánudaginn Evrópubandalagið hefur legið und- ir miklli gagnrýni í GATT-viðræðun- um að undanfórnu fyrir að vilja ekki draga meira en 30% úr styrkjum til landbúnaðarins. Telja margir að breyti EB ekki afstöðu sinni muni viðræöurnar renna út í sandinn. Önnur lönd hafa hins vegar viljað skera þessa styrki mun meira niður. Til dæmis vilja Bandaríkjamenn skera þessa styrki nánast alfarið nið- ur og segjast jafnvel hafna öllum samningum nema EB breyti afstöðu sinni. Tilboð íslendinga hljóðaði upp á 50% niðurskurð á útflutningsbót- um og um 20% niðurskurð á heildar- styrkjum til landbúnaðarins á næstu sex árum. Að sögn Arthurs Dunkel, fram- kvæmdastjóra Gatt, er alls óvist hvort einhver niðurstaða eða samn- ingur næst í viðræðunum. Hann seg- ir að ef menn leysi ekki stærstu póli- tísku ágreiningsefnin þegar á fyrstu dögum ráðherrafundarins sé ekki að vænta neins árangurs í þessum við- ræðúm. -kaa/Reuter Það styttist til jólanna og að mörgu þarf að hyggja. A Akureyri hafa starfsmenn Kjarnafæðis verið að reykja jóla- hangikjötið af krafti að undanförnu og hafa þegar sett um 20 tonn af kjöti í ofnana. DV-mynd gt Alþjóðlegu þingmannasamtökin: Vilja bann við kjarna- vopnatilraunum - afhentuleiðtogumþriggjastórveldaundirskriílalista Ólafur Ragnar Grímsson fjármála- ráðherra er oddviti sendinefndar Al- þjóðlegu þingmannasamtakanna PGA sem afhentu Gorbatsjov Sovét- forseta og staðgengli forsætisráð- herra Bretlands undirskriftalista með áskorun um bann við tilraunum með kjamavopn á mánudag og í gær. í dag fer sendinefndin til Banda- ríkjanna þar sem sams konar áskor- un verður færð Bush Bandaríkjafor- seta. Ólafur Ragnar verður hins veg- ar ekki með.í þeirri ferð. Þingmannasamtökin hafa safnað undirskriftum meðal þingmanna um allan heim í tengslum við væntan- lega alþjóðaráðstefnu um bann við tilraunum með kjarnavopn. Yfir tvö þúsund þingmenn í rúmlega fjörutíu ríkjum skrifuðu undir áskorunina. Ráðstefna þessi verður haldin í jan- úar á næsta ári í New York og taka 118 ríki þátt í henni. -ns MUNIÐ JÚLAKORTI með þinni eigin mynd Pantið timanlega

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.