Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1990, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1990, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1990. 9 r>v Útlönd Norma Major hefur kosið sér það hlutverk að standa við bak manns síns. Hún þykir feimin og gamaldags i trú sinni á húsmóðurhlutverkið. Simamynd Reuter Nýtt fólk í sviðsljósi breskra stjórnmála: Glistrup í framboð utan f lokka Þrátt fyrir aö tími kraftaverkanna sé ekki liðinn gera fæstir stjórn- málafræðingar ráð fyrir að hinum nýja flokki Mogens Glistrup, Hag- sældarflokknum, takist að safna nær 20 þúsund undirskriftum til þess að flokkurinn geti boðið fram í þing- kosningunum í Danmörku 12. des- ember. Fyrir helgi höfðu safnast 68 undirskriftir svo að það er langt í land. Ef Glistrup fer einn í framboð þarf hann að fá tvöfalt fleiri atkvæði til að halda sæti sínu á þingi, að því er kemur fram í dönskum fjölmiölum. Hann kveðst ekki verða í vandræð- um með það. Glistrup sagði sig nýlega úr Fram- faraflokknum ásamt þremur flokks- bræðrum vegna ágreinings um fyrir- komulag ákvarðanatöku í þing- flokknum. Helsta stefnumál hins nýja flokks Glistrups virðist vera heilagt stríð gegn múhameðstrúarmönnum. Flokkurinn segir að stefna yfirvalda í innflytjendamálum ryðji brautina fyrir alþjóðlega hryðjuverkamenn í Danski stjórnmálamaóurinn Mog- ens Glistrup. Símamynd Reuter Danmörku. Það er einnig áht flokks- ins að stefnan eyðileggi efnahag Dan- merkur og danska skólakerfið. Hag- sældarfiokkurinn hefur jafnframt lýst yfir andstöðu sinni við alls kyns boð og bönn. Ritzau Kemur aldrei fyrir fólk eins og okkur - sagöi Norma Major um flutningana 1 Downingstræti 10 Norma Major var spurð að því hvað henni fyndist ef John, maður hennar, yrði forsætisráðherra. Þá svaraði hún: „Shkt kemur ekki fyrir fólk eins og okkur.“ Nú er stundin runnin upp og fólk eins og Majorhjónin er að koma sér fyrir í Downingstræti 10. Norma hef- ur ekki tekið þátt í pólitískri baráttu manns síns heldur haldið sig heima og sinnt um börn og bú. Vinir henn- ar segja að húnn sé feimin og hafi alltaf verið staðráðin í að halda sig við húsmóðurhlutverkiö á meðan eiginmaðurinn leitaði sér frama. Norma er 45 ára gömul og þau hjón- in eiga tvö börn á unghngsaldri, þau Ehzabeth og James. Hún þykir ekki mikh sundurgerðarmanneskja í klæðaburði þótt Bretar spái því að það eigi eftir að breytast þegar hún er komin í sviðsljósið. „Ég veit að það er fremur einfeldn- ingslegt hjá mér aö halda enn eftir umstang síðustu 18 mánaða að við getum haldið áfram aö lifa eins og hingað til,“ sagði Norma við frétta- menn. í viðtali sagði Norma að hún horfði með söknuði til þess að hún og John hefðu getað lifað ósköp venjulegu lífi ef hann hefði ekki ákveðið að brjót- ast til frama í stjórnmálunum. „Þetta hefur stundum kostað mig grát og ekki alltaf gengið hljóðalaust,“ sagði Norma. Vinir hennar segja að hún óttist um öryggi manns síns. Hún hefur talað um að hðsmenn írska lýðveld- ishersins hafi reynt að myrða Mar- gréti Thatcher. Fyrir skömmu fannst dauðahsti hjá IRA-mönnum með nöfnum allra ráðherranna. Norma og John gengu í hjónaband árið 1970. I tilhugalífinu varð John oftsinnis að fara með henni á óperur sem eru í miklu uppáhaldi hjá Normu. Og oftar en ekki notaði John tímann í óperunni til að sofa, unn- ustu sinni til sárrar gremju. Norma hefur fengist við ritstörf og skrifaði árið 1987 ævisögu söng- konunnar Joan Sutherland. Hún ætl- aði sér líka að skrifa sögu Jessey Norman en lagði þau áform á hilluna þegar John varð utanríkisráöherra. Reuter Vantaði aðeins tvö atkvæði John Major vantaði aðeins tvö sigraða og lýstu yftr stuöningi við kvæðisrétt. atkvæði upp á að hjjóta hreinan Major. Því varð ekkert af þriöju Heseltinelýstiþvi yfirþegareftir meirihluta í annarri umferð Ieið- umferö kosninganna, eins og allt að talningu lauk að hann teldi ein- togavalsins í breska íhaldsflokkn- benti þó til. ingu flokksins mikilvægasta og þvi um. Hann fékk 185 atkvæði en Heseltine var ekki langt aö baki hlyti persónulegur metnaður hans þurftil87tilaðgeraútumkosning- Major Qg fékk 131 atkvæðL Fylgis- að víkja. Heseltine hefur þó um úna. menn Hurd höfðu margir ákveðið árabil stefnt aö æðstu völdum í Baráttunnivarþólokiðmeðþess- að kjósa Major til að koma i veg íhaldsflokknum en nú hefur hann ari niðurstöðu því að keppinaut- fyrir að Heseltine næði kjöri. Hurd misst af lestinni. Úr þessu kemur arnir, þeir Michael Heseltine og fékk aðeins 56 atkvæði. Alls höfðu vart til þess aö hann keppi um Douglas Hurd, ákvaðu aö játa sig 372 þingmenn íhaldsflokksins at- embætti leiðtoga. Reuter Major rýf ur hefðina John Major, verðandi forsætisráð- herra Breta, hefur hlotið skjótari frama í breskum stjómmálum en dæmi eru um áður og verður nú yngsti forsætisráðherrann á þessari öld. Frama sinn á hann öðru fremur Margréti Thatcher að þakka - og einnig því að hann þykir óvenju dug- legur og útsjónarsamur sem stjórn- málamaður. Til þessa hefur það þótt nauðsyn- legt að ganga í fína einkaskóla og síðan háskólana i Cambridge eða Oxford til að komast til æðstu met- orða í Bretlandi. Margrét Thatcher, dóttir skókaupmannsins, gerði það en Major afsannar regluna því skóla- göngunni lauk þegar hann var 16 ára. Við tók atvinnuleysi og lausa- mennska við byggingarvinnu. Major er nú 47 ára gamall, aðeins farinn að grána í vöngum, en mörg- um þykir hann fullstrákslegur til að verða leiðtogi þjóðar sinnar. Hann fæddist í Austur-London áriö 1943, sonur sirkusleikara. Faðir hans var 66 ára þegar John kom í heiminn og þá nær blindur. Það er því ekki vegna fjölskyldutengsla sem honum tekst að skjóta sér eldri og reyndari mönn- um ref fyrir rass. Major gerðist ungur bankamaður og þótti standa sig afburðavel. Á sama tíma og Thatcher var að brjót- ast til valda lagði hann grunninn að pólitískum frama sínum. Hann var kosinn á þing árið 1979, sama árið íhaldsflokkurinn vann fyrsta sigur- inn undir stjóm Thatcher. Major hefur alla tíð þótt Thatcher fylgispakur og hún hefur launað honum vel. Fjármálaráðuneytið varð fyrst starfsvettvangur hans en þaö kom verulega á óvart þegar Thatcher útnefndi hann utanríkisráðherra fyrir ári. í því embætti sat Major þó ekki nema nokkrar vikur áður en Thatch- er skipaði hann fjármálaráðherra. Nú er hann kominn alla leið á tind- inn, löngu áður en hann átti sjálfur von á. Reuter Svlþjóð: Vinsælir forstjórar stof na óánægjuf lokk Ekki er talið útilokað að Svíar fái óánægjuflokk svipaðan flokki Mog- ens Glistrup í Danmörku og Carls I. Hagen í Noregi. Samkvæmt niður- stöðum skoðanakönnunar, sem birt- ar voru í gærkvöldi, gátu 21 prósent aöspurðra hugsað sér að kjósa nafn- lausan flokk plötuútgefandans og skemmtigarðseigandans Berts Karlssonar og greifans og atvinnu- rekandans Ians Wachtmeister. Af þeim sem spurðir voru gátu 12 pró- sent hugsað sér Bert Karlsson sem forsætisráöherra. Niðurstöður þessar komu mjög á óvart en sérfræðingar segja þó ekki ástæðu til að taka þær alvarlega. Þó benda þeir á að samkvæmt síðustu skoðanakönnunum hafi fimmti hver Svíi veriö óákveðinn og því fylgi viss hætta. Auk þess benda sérfræðingar á að sífellt færra ungt fólk gangi að kjörborðinu. Karlsson og Wachtmeister hafa ekki viljað segja hvað nýi flokkurinn eigi að heita en lofa að það verði upplýst fljótlega. Karlsson hefur tek- ið þátt í umræðunni um verð á mat- vælum og fullyrt að með frjálsri sam- keppni sé hægt aö lækka verðiö veru- lega. Wachtmeister hefur ráðist á svindlið í sambandi við veikindadaga sem kostar þjóðina gífurlegar fjár- hæðir. „Við erum hraustasta fólk í heimi en samt eru hvergi fleiri veik- indadagar," segir hann. Wachtmeist- er var áður forstjóri Gránges en rek- ur nú eigið fyrirtæki. Forstjórarnir safna nú þeim fimmtán hundruð undirskriftum sem þarf til að hægt sé að skrá flokkinn. TT FUNDARBOÐ Fundur með forsætisróðherra Brú - félag áhugamanna um þróunarlöndin, Hjálparstofnun kirkjunnar, Jarðhitaskóli Sameinuðu þjóðanna, Samband íslenskra kristniboðsfélaga, Rauði kross íslands, Styrktarfélag Stofnunar Jónasar Jónssonar frá Hriflu og Þróunarsamvinnustofnun íslands, boða til fundar um: ÞRÓUNARAÐSTOÐ ÍSLENDINGA Framsögumenn: Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra og Árni Gunnarsson aiþingismaður Pallborðsumræður með þátttöku stjórnmálamanna, er svara munu fyrirspurnum frá fundarmönnum. Umræðum stýrir ögmundur Jónasson, formaður BSRB. Fundurinn verður haldinn í Borgartúni 6 (Rúgbrauðsgerðinni), fimmtudaginn 29. nóvember 1990 og hefst kl. 20.30 Aðgangur er öllum heimill. Undirbúningsnefnd

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.