Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1990, Page 16
16
MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1990.
íþróttir
Stúfarfrá
Englandi
Gurmar Sveinbjömssan, DV, Englandi:
• John Fashanu hjá
Wimbledon hefur
skrifað undir nýjan
samning við félagið til
næstu tveggja ára. Fashanu er
talinn fá 250 þúsund pund fyrir
samninginn og er nú kominn í
hóp hæst launuðu leikmanna í
enska boltanum.
Allen vill fara
frá Man City
• Clive Allen hefur óskað eftir
sölu frá Manchester City. Allen
kom frá Bordeaux fyrir tæpum
16 mánuðum og kostaði eina
milljón punda. Hann hefur alls
ekki náð sér á strik hjá Man City
og hefur reyndar átt í erfiöleikum
með að komast í liöið.
Don Howe vantar
varnarmann strax
• Don Howe, framkvæmdastjóri
QPR, vantar nú varnarmann í
hvelli eftir að Paul Parker meidd-
ist í leik QPR gegn Southampton
í ZDS bikarkeppninni. Fyrir á
sjúkralistanum hjá QPR eru Alan
McDonald og Danny Muddix.
Howe hefur augastað á Alan
McDonald hjá Millwall eða David
Linighan hjá Ipswich til að leysa
þennan skort á varnarmönnum.
Úlfarnir lána
• Úlfamir hafa lánað varamark-
vörð sinn, Tony Lauge, til Alders-
hot í einn mánuð. Úlfarnir keyptu
hann frá Aldershot á síðasta ári
fyrir 150 þúsund pund en hann
hefur ekki náð að vinna sér fast
sæti í liði Úlfanna.
Howell samdi til
5 ára við Spurs
• David Howells hefur skrifað
undir nýjan samning til 5 ára við
Tottenham þrátt fyrir að enn séu
eftir 2 ár af samningi hans við
félagið. Howells skoraði jöfnun-
armark Tottenham gegn Everton
á laugardaginn og var jafnframt
eini leikmaðurinn í byrjunarhði
Lundúnahðsins sem kostaði þá
ekki krónu en hann er uppalinn
hjá félaginu.
Birmingham reynir aftur
við Eamonn Dolan
• Birmingham er tilbúið að gera
aðra tilraun til að kaupa Eamonn
Dolan frá West Ham. Birming-
ham ætlaði aað kaupa Dolan í
sumar en hætti við er hann varð
fyrir meiðslum. Nú eru meiðslin
gróin.
Hvað gerir Chelsea?
• Chelsea hefur augastað á Paul
Elliott, miðverði hjá skoska lið-
inu Celtic. Elliott er allt annað
en ánægður á Parkhead og segir
að félagið skuldisér stórfé frá því
aö hann kom til félagsins frá ít-
alska liðinu Pisa.
Sunderland lánar
• Sunderland hefur lánað vam-
armanninn Reuben Agboola til
Port Vale í einn mánuð. Agboola
var fastamaður í liði Sunderland
í upphafi keppnistímabilsins en
varö fyrir meiðslum og missti þar
með sæti sitt og hefur ekki tekist
aö vinna þaö aftur.
David Barnes
sagði nei takk!
• Leikmenn eru ekki
alltaf sáttir við að fara
til annars félags. Á
dögunum hafði Bristol
City mikinn áhuga á að kaupa
vinstri bakvörð Sheffield United,
David Barnes. Bristol City bauö
100 þúsund pund í kappann.
Sheffield United samþykkti til-
boðið en Barnes sagði hins vegar
nei takk.
Handbolti:
Júlíus með
tíu mörk
- þegar ísland sigraöi Bandaríkin, 30-19
Ingibjörg Hinriksdóttir, DV, Stykkishólmi:
íslendingar báru sigurorð af
Bandaríkjamönnum, 30-19, í lands-
leik þjóðanna í handknattleik í
Stykkishólmi í gærkvöldi. Þetta var
600. landsleikur íslands í handknatt-
leik og fjölmenntu Snæfellingar á
leikinn og létu vel í sér heyra.
„Ég var frekar óhress með fyrri
hálfleik en í þeim síðari lagaðist leik-
ur liðsins. Það var einbeitingarleysi
í herbúðum okkar og óþai-fi að fá 19
mörk á sig gegn þessu hði. Þetta var
samt ágætis æfing fyrir mótið í Dan-
mörku en við veröum að klára svona
dæmi ef við ætlum okkur aö vera á
alþjóðamælikvarða,“ sagði Þorberg-
ur Aðalsteinsson í samtali við DV
eftir leikinn.
Fyrri hálfleikur var frekar jafn en
íslenska liðið hafði þó alltaf yfir-
höndina. Varnarleikurinn í fyrri
hálfleik var ekki nógu góður og Berg-
sveinn Bergsveinsson, sem stóð í
markinu í fyrri hálfleik, varði ein-
ungis 2 skot.
Síðari hálfleikur var betri af hálfu
íslenska liösins. Vörnin lagaðist og
Jakob Sigurðsson, fyrirhði íslenska
liðsins, hvatti sína menn og íslend-
ingar gengu á lagið og sigruðu eins
og áður sagði meö 11 marka mun.
í heild léku íslensku landsliðs-
mennirnir ágætlega í sókninni og
vömin lagaðist þegar á leikinn leið.
Markvarslan var aftur á móti í mol-
um og vörðu þeir Bergsveinn og
Hrafn Margeirsson, sem kom í mark-
ið í síðari hálfleik, aðeins samtals 7
skot. Júlíus Jónasson var yfirburöa-
maður í íslenska liðinu jafnt í vörn
og sókn, Jón Kristjánsson var sterk-
ur í vörninni og Héðinn Gilsson náði
sér á strik í síðari hálfleik.
í liði Bandaríkjamanna var hinn
norskættaði Terje Vatne allt í öhu
og skoraði hann 10 af 19 mörkum
liösins.
• Mörk íslands: Júlíus 10/4, Sig-
urður 4, Skúh 4, Jakob 3, Héðinn 3,
Valdimar 2, Bjarki 1 og Einar 1.
Þjóöarleikvangur Dana í knattspymu:
Idrætsparken
endurbyggður
Fyrir skömmu var þjóðarleik-
vangi Dana í knattspyrnu, Idræts-
parken í Kaupmannahöfn, lokað.
Hann verður nánast endurbyggður
frá grunni og opnaður á ný eftir
hálft annað ár, sumarið.1992, en þá
tekur einmitt ghdi ný reglugerð um
knattspyrnuvelli. Frá og með þeim
tíma verður einungis heimilt að
selja aðgöngumiða í sæti á leikjum
í heimsmeistarakeppni og stæði
verða aflögð.
Idrætsparken hefur verið höfuð-
vígi danskrar knattspyrnu frá því
hann var opnaður árið 1911 en nú
verða landsleikirnir fluttir þaðan
um hríð.
í tilefni af þessum tímamótum
fékk danska blaðið Ekstra Bladet
nokkra fyrrverandi landshðsmenn
á ýmsum aldri til að rifja upp minn-
ingar tengdar vellinum. Þeirra á
meðal er Finn Laudrup, faðir Mic-
haels og Brians, sem gert hafa garð-
inn frægan með danska landshðinu
á undanfömum árum.
Finn Laudrup segir meðal ann-
ars: „Ég man sérstaklega eftir
tveimur leikjum, sem báðir fóru
fram árið 1967, gegn íslandi og
Hollandi. Við unnum ísland 14-2.
Þrátt fyrir að ísland sé ekki hátt
skrifað á alþjóðlegum mæhkvarða
vora það merkileg úrsht. Sama má
segja um sigurinn á Hollendingum
því að fyrirliði þeirra var Johan
Cruyfl'."
Annar leikmaður, Tommy Tro-
elsen, minnist líka á ísland en hann
var 19 ára nýliði þegar hann lék
meö danska landshðinu gegn því
íslenska í forkeppni ólympíuleik-
anna árið 1959. Hann nefnir þó ekki
úrslitin, 1-1 jafntefli, en man eftir
leiknum vegna þess að fyrir hann
hehsaði Friðrik konungur Dan-
merkur upp á leikmennina og einn
úr liðinu þekkti ekki þjóðhöföingj-
ann!
-VS
Reykjavíkurmótið í keilu:
Ragnar og Elín
sigurvegarar
Reykjavíkurmótið í keilu fór fram
fyrir skömmu. í karlaflokki sigraöi
Halldór Ragnar Halldórsson en hann
er núverandi íslandsmeistari í grein-
inni.
í kvennaflokki sigraði Elín Óskars-
dóttir en hún er núverandi íslands-
meistari. í parakeppninni sigruðu
þau Alois Raschhofer og Elín
Óskarsdóttir 3. skiptið í röð. Úrsht á
mótinu urðu þannig:
Konur
1. Elín Óskarsdóttir........KFR
2. Sólveig Guðmundsdóttir....KFR
3. Jóna Gunnarsdóttir........KFR
Karlar
1. Halldór R. Halldórsson....KR
2. Róbert Spanó..............KR
3. Halldór Sigurðsson.......KFR
Liðakeppni
1. Þröstur..................KFR
2. MSF......................KFR
3. Knattspyrnufélag Reykjavíkur
Parakeppni
1. Alois Raschhofer
Elín Óskarsdóttir
2. Tómas Tómasson
Jóna Gunnarsdóttir
3. Valgeir Guðbjartsson
Heiðrún Þorbjömsdóttir -GH
Ingunn Bernódusdóttir átti góðan leik með Fram þegar liðið bar sigurorð af Stj
er Ingunn að skora eitt af sex mörkum sínum í leiknum.
Kvennahandbolti:
Mikilvægur
Fram á Stjör
-1 Laugardalshöll 1 gærkvöldi, 22-20 -
íslandsmeistarar Fram unnu mikil-
vægan sigur á Stjörnunni, 22-20, í topp-
slag 1. deildar kvenna í handknattleik í
Laugardalshöll í gærkvöldi. Með þessum
sigri í gær hafa Framstúlkurnar tapað
fæstum stigum í deildinni en Stjarnan
er enn í efsta sæti þar sem liðið hefur
spilað fleiri leiki.
Fram hafði yfir allan leikinn gegn
Stjörnunni. Liðið byrjaði betur, komst í
4-1, og hafði tveggja marka forystu í leik-
hléi, 12-10.
í síðari hálfleik hélst þessi sami munur
og undir lok leiksins náði Fram mest
fjögurra marka forystu, 22-18, en Garða-
bæjarhðið náði að klóra í bakkann með
því að skora tvö síðustu mörkin.
Ingunn Bernódusdóttir og Inga Huld
Pálsdóttir voru bestar í liði Fram og
Kolbrún Jóhannsdóttir varði ágætlega í
markinu.
Hjá Stjörnustúlkum var Guðný Gunn-
steinsdóttir góð og Ragnheiður átti
ágæta spretti.
Mörk Fram: Ingunn 6, Ósk 4, Guðríður
4/3, Hafdís 4, Inga Huld 4.
Mörk Stjörnunnar: Ragnheiður 6/2,
Guðný 5, Margrét 3/2, Herdís 1, Ásta 1,
Sigrún 1 og Drífa 1.
Gróttusigur á Nesinu
Á Seltjarnarnesi sigraði Grótta lið Vals,
20-16, eftir að staðan í leikhléi var 9-8.
Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik og
liðin skiptust á aö hafa forystuna. í síð-
ari hálfleik misstu Valsstúlkur móðinn
og Grótta gekk á lagið og sigraði örugg-
lega. Valur átti í erfiðleikum með að
Hand LandslM bolti: tiðanr lÓt
í Danr nörku IHPI
-með Dönum,F rökkumoRl JSA
Þorbergur Aðalsteinsson, lands- Aórír leikmenn:
liðsþjálfari í handknattleik, hefur Jakob Sigurðsson.... Val
valiö 14 leikmenn sem leika munu Konráð Olavsson KR
fyrir íslands hönd á fjögurra landa Valdimar Grímsson.
móti í Danmörku. Mótiö hefst á Birgir Sigurösson....
föstudagskvöldið í Óðinsvéum en Geir Sveinsson Granohers
auk íslands keppa Danir, Frakkar GuðjónÁrnason FH
og Bandaríkjamenn á mótinu. ís- JónKristjánsson Val
lenska liðiö, sem valið var 1 gær, er SigurðurBjarnason .........Stjörnunni
þannig skipað: HéðinnGhsson Júlíus Jónasson Dusseldorf' ...Paris Asnieres
Markveröir: GuðmundurHrafnkelsson FH Bergsveinn Bergsveinsson FH Hrafn Margeirsson Víkingi EinarSigurðsson.... Selfossi -JKS