Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1991, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1991.
13
Meiming
Dýrðarsöngur
englaskara
Á mínu heimili er til siðs að spila kórverk eftir bar-
okktónskáld eins og Hándel, Haydn og Bach um jóhn,
sem er sjálfsagt ekkert einsdæmi. Um síðustu jól
brugðum við út af þeirri venju og tókum til hlustunar
nokkra diska með eldri kórverkum, sem gefnir eru
út af litlu bresku fyrirtæki er nefnist Gimell. Þetta
fyrirtæki gefur einvörðungu út upptökur með söng
tólf manna hóps er nefnist The TalUs Scholars, í höfuð-
ið á einu helsta tónskáldi Endurreisnar í Bretlandi,
Thomas TalUs (1505-1585), enda sérhæfir hópurinn sig
í túlkun á kórverkum frá því tímabili. Kórstjórinn
heitir Peter PhilUps, og er hann einnig annar tveggja
eigenda útgáfufyrirtækisins.
Á tíu ára tímabiU hefur Gimell sent frá sér rösklega
tuttugu geisladiska með söngverkum gamaUa meistara
á borð við Palestrina, Gesualdo, Josquin, Allegri, Byrd,
Taverner og svo auðvitað TalUs. Auk þess hafa PhiUips
kórstjóri og söngvarar hans vakið verðskuldaða at-
hygU á verkum eftir lítt þekkt tónskáld og sérvitringa
eins og John Sheppard, Clemens Non Papa, Tomás
Luis de Victoria og Orlandus Lassus.
Tær og samræmdur söngur
Tvennt er það sem vakið hefur athygU tónUstarunn-
enda á diskunum frá Gimell, annars'vegar einstaklega
skýr, tær og fagurlega samræmdur söngur, hins vegar
gagnvönduð upptökutækni. Upptökurnar fara venju-
lega fram í Merton College kapellunni í Oxford, sem
rómuð er fyrir góða heyrð.
Fyrir fjórum árum sló Gimell risunum í hljómplötu-
útgáfunni við er upptaka þess á tveimur messum eftir
Josquin, Missa Pange Ungua og Missa La sol fa re mi,
var kjörin hljómplata ársins af tímaritinu Gramo-
phone, sem þekkt er fyrir vandfýsi. Ég var einmitt
Tónlist/Geisladiskar
Aðalsteinn Ingólfsson
með þessa upptöku til hlustunar og get heilshugar
tekið undir meðmæU þeirra Gramophone-manna. Sjálf
tónUstin er eins og maður ímyndar sér dýrðarsöng
englaskara, fábrotin að samsetningu, en óendanlega
tjáningarrík innan sinna takmarka.
Messur og mótettur
Palestrina þekkja alUr unnendur góðra kórverka.
TalUs Scholars hafa sungið öll helstu kórverk hans inn
á geisladiska, þar á meðal Missa Assumpta est Maria
in caelum, sem samin er fyrir tvær tenórraddir og
tvær sópranraddir. Þá upptöku er að fmna á diski með
kórverki frá yngri árum tónskáldsins, Missa Sicut Ul-
ium inter spinas, sem ekki hefur áður verið tekið upp.
Með þessum „messum" báðum fylgja mótetturnar sem
þær eru byggðar á. Þessi upptaka er aldeiUs frábær,
skýr í smáatriðum, vel blönduö en aldrei köld og vél-
ræn, eins og svona hástemmd tónlist getur stundum
veriö.
Einnig hafði ég mikið yndi af upptökum TalUs
söngvaranna á ævagömlum þýskum og enskum jóla-
lögum og mótettum.
Eitt er það í viðbót sem ég vil telja diskunum frá
Gimell til tekna, nefnilega upplýsingabæklingarnir
sem þeim fylgja. Þeir eru einstaklega greinargóðir og
á fjórum tungumálum. Diskarnir frá GimeU fást að-
eins hjá Japis og kosta um 1600 krónur.
The Tallis Scholars, Peter Phillips yst til hægri.
______________________________Menning
Súld-Blindflug:
Fjölbreyttur og
Iff legur spuni
Súld hefur tekið þónokkrum breytingum frá því fyrsta plata hennar,
Bukoliki, kom út. Breytingar hafa bæði orðið á tónlistinni og hljómsveit-
inni. Súld hefur smám saman verið aö skapa sér nafn erlendis og er varla
hægt að hugsa sér betri fulltrúa íslenskra tónUstarmanna heldur en hina
fjölhæfu meðUmi Súldarinnar.
Fyrstu áhrifin af BUndflugi, nýjustu plötu þeirra, er hversu létt yfir-
bragð hún hefur þrátt fyrir að tórdistin sé langt í frá að vera einfóld. Það
er greinilegt að frá fyrsta til síðasta lags hafa meðUmirnir fimm gaman
af því sem þeir eru að gera. Fjölbreytnin er í fyrirrúmi.
Þótt djassinn sé undirstaðan í tónUst Súldar er víða komið við. Áhrifa
gætir frá suður-amerískri tónlist sem og rokki, svo eitthvað sé nefnt.
Blindflug byijar á grípandi stefr, Betra seint en aldrei eftir bassaleikara
hljómsveitarinnar, Pál E. Pálsson. Þótt lagið sé stutt er þetta mjög sterkt
Hljómplötur
Hilmar Karlsson
byijunarlag og má segja að vel sé kynt undir manni með þessu ágæta
stefi. Annars skiptast tónsmíðamar á aUa meðUmi sveitarinnar þótt hlut-
ur Lárusar Grímssonar sé stærstur, en helmingur laganna er eftir hann.
Lög Lárusar eru metnaðarfull og mikið lagt í þau. Lag eins og Flótti stiga-
mannsins yfir spýtnaakurinn er flókið og tormelt í fyrstu en vinnur á,
eins og lög Lárusar eiga sammerkt. Lög annarra í hljómsveitinni bera
oft sérkenni viðkomandi spilara. Má þar nefna lagið Kjarnorkulaus heim-
ur eftir Steingrím Guðmundsson og Bleikt og blátt eftir Tryggva J.
Hubner. Bæði þessi lög eru meðal betri verka á plötunni.
MeðUmimir flmm í Súld eru mjög flinkir á hljóðfæri sín og samspil
þeirra sem og einstaklingsframtak er með miklum ágætum.
Það vill svo til að kostur Blindflugs sem og hennar helsti galU felst í
þeirri miklu fjölbreytni sem lögin bjóða upp á. Fjölbreytnin gerir það að
verkum að ávaUt er spennandi að heyra hvert lag fyrir sig og hef ég stað-
ið mig að því að velja einstök lög til spilunar frekar en að leika plötuna
í heild. Finnst mér ég fá ’meira út úr tónlistinni með þessu móti.
Þrátt fyrir að lögin á Blindflugi séu sterkari hvert í sínu lagi heldur en
í heild hefur hljómsveitin Súld vissulega sín sérkenni og er örugglega ein
besta starfandi djasssveitin hér á landi í dag. Blindflug er nauðsynleg
eign öllum íslenskum djassunnendum sem vilja fylgjast með getu okkar
manna. Vonandi er að framhald verði á þeirri músíkgleði hjá Súld sem
einkennir Blindflug.
-HK
Stjömubíó: Vetrarfólkið ★★
Gamaldags en óvitlaus
Vetrarfólkið er einkennileg en athyglisverð tíma-
skekkja. Þegar ekkjumaðurinn Kurt Russel verður
strandaglópur ásamt ungri dóttur sinni meðal
fjallabúa blandast hann inn í illdeilur við nágranna-
fjölskyldu. Ung kona, sem hann kynnist (Kelly
McGillis), á barn með manni úr hinni ættinni og á
samband þeirra eftir að umturna ástandinu í héraðinu.
Efnið er næfurþunn dæmisaga, alltaf áhorfanleg og
þægilega laus við klisjur en þetta hefur allt sést áður.
Hinn skemmtilegi Kurt Russel er glerfínn í vel skrif-
uðu hlutverki friðsama klukkugerðarmannsins en
Kelly McGillis er aðeins þokkaleg, ólikt hlutverki sínu
í Witness. Aðrar persónur eru allgóðar og leikurinn
ágætur. Leikstjórinn Kotcheffhefur áður gert myndir
um lítil fjallasamfélög og er þar helst að nefna fyrstu
og bestu myndina um John J. Rambo, goðsögn níunda
áratugarins. Hvað Kotcheff hefur ætlað sér með þess-
ari mynd er alls ekki ljóst og hvernig þeir hafa ætlað
sér að ná aftur inn kostnaðinum er ráðgáta.
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
Myndin tekur aðeins nútímalegar á vel þekktu efn-
inu og gerir góðlátlegt grín að ríkjandi karlasamfé-
lagi. Þetta er óvenjulega mynd aðeins að því leyti að
svona lagað sést ekki lengur í bíó og ætti að höfða
eilítið til þeirra sem þurfa tilbreytingu, einhveija til-
breytingu.
Winter People (Band-1989) 110 min.
Leikstjóri: Ted Kotcheff (First Ölood, Switching Channels).
Leikarar: Kurt Russell (Overboard, Tequila Sunrise) Kelly
McGillis (Accused, Top Gun), Lloyd Bridges, Mitchell Ryan,
Amelia Burnette, Jeffrey Meek.
Fjármálaþjónustan
Námskeið & ráðgjöf
NÁMSKEID:
Úr skuldum. Námskeið fyrir hjón og einstaklinga
sem vilja öðlast skilning á stöðu sinni og tækni til
að vinna sig út úr skuldum.
Að halda jafnvægi. Hvernig höldum við utan um
fjármálin? Hvernig náum við tökum á stöðunni?
Leiðin til velgengni. Námskeið sem fjallar um
þroskaferil mannsins frá því að hann er ráðvilltur í
fjármálum sínum og þar til hann hefur öðlast fullan
þroska til að takast á við þau.
Að tryggja framtíð sína. Námskeið fyrir fólk með
tekjuafgang sem vill vita á hvern máta það skipulegg-
ur sig við að ráðstafa honum.
Fjármálaþjónustan veitir einnig eínstaklings-
og/eða hjónaráðgjöf.
Upplýsingar og innritun í síma 676212 um
helgina og á mllli 17 og 20 virka daga.