Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1991, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1991, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1991. Menning Háskólabíó - Nikita Leigumordingi skaltu verða Luc Besson á þrátt fyrir ungan aldur glæsilegan fer- il að baki í evrópskri kvikmyndagerð. Hann var rétt rúmlega tvítugur þegar hann leikstýrði Le Dernier Combat sem vakti strax athygli á honum. Subway, hans næsta mynd varð til þess að hann komst í fremstu röð leikstjóra í Frakklandi. The Big Blue gerði hann síðan í samvinnu við bandaríska aðila. Myndin varð einhver vinsælasta kvikmynd sem sýnd hefur verið í Frakklandi en féll ekki Bandaríkjamönnum jafn vel í geð. Það kom þvi fáum á óvart að Besson skyldi gera nýjustu kvikmynd sína Nikita eingöngu fyrir franska peninga og með frönskum leikurum. Sem fyrr" ytir Besson vel við manni með áleitinni kvikmynd sem segir heilmikið en skilur þó einnig áhorfandann eftir með spurningar sem hann hefði viljað fá svar við. Aðalpersónan er ung stúlka sem er sú eina eftirlif- andi af eiturlyfjagengi sem drepur þrjá lögreglumenn, er koma að þeim í innbroti í apótek. Stúlkan sem kveðst heita Nikita er hin versta viðfangs og reynir hvað sem hún getur til að litillækka þá sem handtóku hana. Hún er ákærð fyrir morðin á lögreglumönnun- um og dæmd í ævilangt fangelsi. Fangelsisvistin verður þó engin. Leyniþjónusta Frakka sér í henni starfskraft sem hún getur haft not fyrir og setur sjálfsmorð hennar á svið. Nikita er síðan sett í harðan skóla þar sem gerður er úr henni leigu- morðingi fyrir franska ríkið... Nikita á það sammerkt með Subway að atburðarásin er hröð. Og eins og svo oft hjá Besson eru það áleitnar nærmyndir sem eru áhrifamestar. Söguþráðurinn er vissulega reyfarakenndur en markvisst settur fram á sjokkerandi hátt. Myndinni er hægt að skipta í tvennt, fyrir og eftir nám. í fyrri hlutanum er Nikita, sem hvorki er henn- ar rétta nafn eða verður hennar nafn, undir smásjá Bobs sem hefur umsjón með þjálfun hennar. Það er virkilega gaman að fylgjast með því taugastríði sem á sér stað á milli þeirra. Nikita, sem hafði gert sér ró- mantískar hugmyndir um Bob, verður fyrir miklu áfalli þegar hann etur henni út í prófverkefnið rétt eins og örlög hennar skipti hann engu máli. Sú Nikita, sem við-kynnumst eftir að náminu lýkur, er allt önnur manneskja. Lífsglöð stúlka sem þráir félagsskap, kannski mun meira en henni var ætlað. Hún vinnur sín verk af samviskusemi í byrjun en eft- ir því sem lengra líður frá þjálfun hennar verður erf- iðara fyrir hana að sinna starfmu. Sú Nikita kynnist Marco, verður ástfangin og fer að búa með honum. Þama fer aðeins að hrikta í sögunni en þó aldrei svo að spennan hverfi. Gallinn í sögunni er Marco. Hann er sú eina af aðal- persónunum sem er óljós og ekki nógu vel skrifaður frá hendi Bessons. Persónan er þokukennd og aldrei eru gefnar neinar fullnægjandi skýringar á flestu sem Nikita (Anne Parillaud) fær hér óvænt skipun um fyrsta verkefni sitt frá Bob (Tcheky Karyo). Kvikmyndir Hilmar Karlsson tilheyrir honum. Marco er ótrúlega granlaus um stöðu sambýliskonu sinnar, trúir henni blint en sýnir þó ótrúlegan skilning þegar hann kemst að hinu sanna sem áhorfandinn fær mjög óljóst að vita hvemig hann uppgötvar. Þegar svo Victor, hinn samviskulausi atvinnumorð- ingi, kemur til sögunnar fer heldur betur að hitna í kolunum. Er þar kominn karakter sem hægt er að meðtaka athugasemdalaust, en koma hans verður til þess að sýna Nikitu fram á að hún er ekki á réttri hillu í lífmu. Leikur er í heild góöur. Langmest mæðir að sjálf- söeðu á Anne Parillaud sem leikur Nikitu. Parillaud veldur vel hlutverkinu sem býður upp á mikið tilfinn- ingabrölt. Af öðrum leikuram er Jean Reno í hlut- verki Victors sá sem verður eftirminnilegastur. Þessi ágæti leikari hefur leikið í öllum myndum LuC Bes- sons og ávallt með miklum glæsibrag. Aðall Luc-Bessons liggur í geysisterku myndmáli sem nýtur sín vel á breiölinsu eins og hami notar hér. Hann á einnig hægt með að búa til áhugaverðar persónur en vinnur svo ekki nógu sannfærandi úr handritinu. Besson hefur sagt að hann hafi fengið hugmyndina að Nikita þegar hann varð vitni aö fjölda- slátrun á höfrangum. Sú hugmynd kemur fram í boð- ‘skap myndarinnar sem er hversu mannslífiö getur verið lítils virði. NIKITA. Leikstjóri og handritshöfundur: Luc Besson. Tonlist: Eric Serra. Aðalhlutverk: Anne Parillaud, Jean-Huges Anglade, Tcheky Karyo, Jeanne Moreau og Jean Reno. Laugarásbíó-Skólabylgjan ★★1/2 Reiði, f eimni maðurinn Skólabylgjan (einkennilegt nafn) fjallar á mjög blátt áfram hátt um einstaklega feiminn ungan mann, sem læðist meðfram veggjum í skólanum og talar ekki við aöra nema í ýtrastu neyð. Á kvöldin, stundvislega kl. tíu, umtumast hann hins vegar í Harða Harry (Happy Harry Hard On). Útvarpsgeggjari, sem rekur eigin stöð og hellir úr skálum reiöi sinnar yfir samnemendur sína, sem era famir að hlusta með aukinni ákefð á einkennilega blöndu hans af fálmkenndri þjóðfélagsádeilu, framúr- stefnutónlist (miðað við Arizona), vel meintri en Kvikmyndir Gísli Einarsson gagnslausri sálfræðihjálp og hvers kyns búkhljóðum. Brátt fara hinir fullorðnu líka aö hlusta og þeim líkar flestum miður hvað þeir heyra, enda er Harði Harry engin engill. Með góðum ásetningi og hæfilegri fjarlægð frá sögu- efninu tekst myndinni bæði að skemmta og vekja mátulega til umhugsunar. Hún fellur ekki í þá gryfju að vera með einhverjar háfleygar predikanir heldur beinist reiði Harða Harrys að sínu nánasta umhverfi, skólanum og í minna mæli foreldranum. Harði Harry hefur í sjálfu sér engar lausnir á þeim vandamálum er hrjá táninga yfirleitt og það er broslegt hvemig hann á engin svör við vandamálum hlustenda en reyn- ir samt. Það er ekki fyrr en skólayfirvöld og loks Qöl- miölarnir fara að gera vandamál úr honum aö hann gerir sér ljósa þá ábyrgð sem því fylgir að tala þegar aðrir hlusta. Hinn ungi Christian Slater er að færa sig upp á skaft- ið í hlutverkum og þótt hann sé efnilegur þá á enn eftir að koma í ljós hvort hann geti leikið annað en uppreisnargjarna táninga. Þetta hlutverk er ekki nægileg áskoran fyrir hann og honum tekst ekki á fullnægjandi hátt að sýna tvöfeldnina sem býr í Harða Harry heldur er það aðeins handritið sem leggur hon- um til hin ýmsu uppátæki til að sýna fram á þaö. Hann er þvílíkur rati í samskiptum við annað fólk að það jaðrar við hið ótrúlega. Sorglegt er að sjá hvemig hin geysigóða Eileen Gre- en fær hér enn eitt núll-hlutverk sem bókmenntakenn- ari sem fær samúð með Harða Harry. Það er kominn tími til aö hún slái í gegn. Ekki má gleyma að minnast á tónlistina sem á stór- an hlut í myndinni. Hún er ansi víðfeðm, allt frá seið- andi Larry Cohen til svörtustu rapplaga. Hún er vel notuð sem tákn fyrir það hve stórt kynslóöarbilið er í raun alltaf hveiju sinni. Þrátt fyrir ýmsa vankanta er Skólabylgjan athyglis- verð tilraun til að gera annað en dæmigerða ungUnga- mynd. Pump Up The Volume (band-1990) Handrit og Leikstjórn: Alan Moyle (Times Square). Leikarar: Christian Slater (Young Guns 2, Tales/Darkside), Samantha Mathis, Eileen Greene (Little Shop of Horrors, Talk Radio). Andlát Egill Ástbjörnsson, Álftamýri 22, lést í Landakotsspítala 12. janúar. Guðrún Kristjánsdóttir, HUðarhjalla 6, áður Smárahvammi, Kópavogi, andaðist á Borgarspítalanum laugar- daginn 12. janúar. Bjarni I. Karlsson rafeindavirki, YstaseU 1, lést þann 10. janúar. Karles Tryggvason, Þórunnarstræti 134, Akureyri, andaðist sunnudaginn 13. janúar. Jarðarfarir Þórður Finnbogason rafverktaki, EgUsgötu 30, Reykjavík, sem andað- ist laugardaginn 5. janúar sl., verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mið- vikudaginn 16. janúar kl. 13.30. Gunnar S. Guðmundsson trésmiður, áður Karfavogi 33, lést 12. janúar á Droplaugarstööum. Jarðarforin fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudag- inn 17. janúar kl. 15. Útför Nikólínu Konráðsdóttur, Hrafnistu, áður Austurbrún 25, fer fram frá Áskirkju fimmtudaginn 17. janúar kl. 13.30. Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði. Ragnheiður Björnsdóttir frá Hólum, sem andaðist á Skjóli þann 12. janúar sL, verður jarðsungin frá Fossvogs- kapellu fóstudaginn 18. janúar kl. 15. Jón H. Vilhjálmsson, Boðahlein 3, Garðabæ, áður Ægissíðu 96, er lát- inn. Útforin hefur farið fram í kyrr- þey að ósk hins látna. Útför Ólafíu Sólveigar Guðnadóttur, Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, áður til heimilis í Völvufelli 22, verð- ur gerð frá Fossvogskapellu mið- vikudaginn 16.'janúar kl. 15. Stefanía Björnsdóttir, frá Hvoli í Vesturhópi, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu í dag, þriðjudaginn 15. janúar, kl. 13.30. Safnaöarstarf Breiðholtskirkja. Bænaguösþjónusta í dag kl. 18.30. Fyrirbænaefnum má koma á framfæri viö sóknarprest í viðtalstím- um hans þriðjudaga til fóstudaga kl. 17-18. Dómkirkjan. Eldri-bamastarf (10-12 ára) í safnaðarheimilinu í dag kl. 17. Mömmumorgnar í safnaðarheimilinu miðvikudaga kl. 10-12. Hallgrimskirkja. Fyrirbænaguðsþjón- usta í dag kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Opið hús fyrir aldraða á morgun, mið- vikudag, kl. 14.30. Langholtskirkja. Starf fyrir 10 ára og eldri miðvikudag 16. janúar kl. 17. Óskar Ingi Óskarsson og Þór Hauksson leiða starfið. Seljakirkja. Mömmumorgunn. Opið hús kl. 10. Fundir ITC deildin Irpa heldur fund í kvöld kl. 20.30 að Brautar- holti 30. Oddur Albertsson frá Krabba- meinsfélaginu sér um fræðslu. Nánari upplýsingar hjá Guðrúnu í síma 656121 og Ágústu í síma 656373. THkyiuungar Kvenféiag Kópavogs Spilað verður í kvöld í félagsheimili Kópavogs. Byrjað verður að spila kl. 20.30. Allir velkomnir. 3. hefti íslenskra dægur- laga komiö út Félag tónskálda og textahöfunda hefur sent frá sér nýtt hefti af íslenskum dæg- urlögum og er útgáfan í ár með svipuðu sniöi og á síðasta ári. í bókinni eru vin- sæl íslensk dægurlög, útsett fyrir píanó eða hljómborð, ásamt söng eða sólóhljóð- færaleik.-Magnús Kjartansson tónlistar- maður hefur yfiramsjón með útgáfunni. Meðal efnis í bókinni má nefna: Eitt lag enn, Álfheiður Björk, Sjómannavalsinn, Ég er á leiðinni, Danska lagið, Bláu augun þín, Ég bið að heilsa, Betri tíð o.fl. o.fl. Alls er aö finna 25 lög og texta í þessu hefti eftir rúmlega 30 höfunda, en það er 108 blaðsíður að stærð. Skífan hf. sér um dreifingu á 25 íslenskum dægurlögum. Félag eldri borgara Opið hús í dag, þriðjudag, í Risinu, Hverf- isgötu 105, frá kl. 14, frjáls spilamennska. Pétur Snæland verður með kynningu á nýjum heilsurúmum í Risinu, Hverfis- götu 105, á morgun, miðvikudag, kl. 15.30. Námskeið Phil Laut á íslandi Phil Laut, höfundur metsölubókarinnar yPeningar era vinir þínir“, heimsækir Island í febrúar. Hann hefur ferðast víða um heiminn með námskeið og fyrirlestra og þannig hjálpað þúsundum til að auka tekjur sínar og öðlast raunsætt viðhorf til peninga. Hann heldur fyrirlestur 7. febrúar í Vinabæ, Skipholti 33 (Tónabíós- húsið). Verð kr. 500. Lyrirlesturinn stendur frá kl. 19-21 (húsið opnað kl. 18.) Miðasala er hafm hjá Lífsafli og Betra lifi, Laugavegi 66. Þá verður haldið nám- skeið 8. og 9. febrúar. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður svo ráðlegt er að skrá sig sem fyrst. Verð aðeins kr. 7.500. Skráning á námskeiðið hjá Lífsafli, Laugavegi 178, sími 622199. Innilegustu þakkir færi ég öllum þeim sem glöddu mig með skeytum, gjöfum og heimsóknum á 90 ára af- mæli mínu 1. janúar sl. Guð blessi ykkur öll. EINAR GUÐBJARTSSON Endurskinsmerki stórauka öryggi í umferðinni. yUMFERÐAR RÁÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.