Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1991, Side 8
FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1991.
Útlönd
Leiftursókn
fj ölþj óðaher sins
Fjölþjóöaherinn hóf lofthernaö skömmu fyrir miönætti aö okkar tíma. Taliö er aö
í nótt hafi falliö fleiri sprengjur á írak en nokkra aöra nótt í hernaöarsögunni
Meira en 1000 herflugvélar tóku þátt í lofthernaðinum.
Irakar gjörsigraðir
í mikilli loftorrustu
Hernaðarsérfræðingum ber saman
um að loftárásirnar, sem gerðar voru
á írak í nótt, séu einhverjar þær
mestu sem um getur í sögu hernaðar
á jörðinni. Hundruð herflugvéla tóku
þátt í fyrstu árásinni sem hófst
skömmu fyrir miðnætti að okkar
tíma.
Tvær lotur í lofthernaðinum
Þegar morgnaði hófst önnur lota,
einnig með viðtækum árásum á skot-
mörk í írak og í Kúvæt þar sem úr-
valssveitir íraka höfðu komið sér
fyrir. Hernaðaraögerðirnar ganga
undir nafninu „Eyðimerkurstorm-
urinn“.
Fyrstu árásirnar miðuðu að því að
eyðileggja flugher íraka á jörðu
niðri. Það virðist hafa tekist því ekki
hafa borist fréttir af bardögum í lofti
yfir landinu. Þá var höfuöáhersla og
lögö á að eyða eldflaugabirgðum ír-
aka áður en þeir næðu að senda þær
á loft. Það tókst einnig og þótt nokk-
ar flaugar kæmust á loft var því af-
stýrt að þær næðu að skotmörkum.
Hátæknibúnaður var notaður til að
trufla stjóm þeirra.
Náðu ekki að ráðast á ísrael
Mestur ótti ríkti við að írakar næðu
að gera alvöru úr þeim hótunum sín-
um aö gera árásir á borgir í ísrael. í
morgun var allt með kyrrum kjörum
þar en ísraelsmenn voru látnir vita
af árásinni klukkustund áður en hún
hófst þannig að her þeirra gæti verið
flugfloti þeirra eyöilagöur á jörðu niðri
Allar áætlanir miðuðust viö að flugherinn næði algerum yfirburðum í lofti
þegar í upphafi átakanna. Það hefur tekist. Símamynd Reuter
vorum sendir til að vinna.“
Allt frá því árásin hófst hefur írök-
um aftur og aftur verið gefmn kostur
á að koma í veg fyrir frekari átök
með því að gefast upp skilyrðislaust
og láta Kúvæt af hendi. Þegar eftir
að árásin hófst var útvarpað í írak
ávarpi frá Saddam þar sem hann
sagði að írakar gæfust aldrei upp og
að nú væri hafi orrusta sem væri
meiri en allar aðrar orrustur. Hann
sagði að írakar hlytu að sigra.
I morgun báust fréttir af almennu
herútboði í írak. Þar var talið að í
þ'að minnsta milljón menn væru
undir vopnum og nú virðist eiga aö
fjölga í hernum. „Við ætlum að
kenna Bandaríkjamönnum og lepp-
um þeirra lexíu sem þeir gleyma
aldrei,“ sagði í yfirlýsingu í útvarp-
inu um leið og menn voru hvattir tii
að ganga í herinn.
viðbúinn gagnárás. Til þess kom
ekki.
„Fyrstu fréttir benda til þess að við
höfum náð góðum árangri, mjög góð-
um,“ sagði Dick Cheney, vamar-
málaráðherra Bandaríkjanna, í
Washington um árangurinn af her-
förinni.
Þungi árásarinnar hvíldi á banda-
ríska flughemum en einnig tóku þátt
í henni flugvélar frá Bretlandi,
Saudi-Arabíu og sá hluti flughers
Kúvæta sem komst undan við inn-
rásina í landið 2. ágúst. Frakkar hafa
hins vegar ekki látiö til sín taka enn
sem komið er. Stuðningur Frakka er
þó alger en þeir hafa einkum Mirage
F1 herþotur á svæðinu en þær era
sérbúnar til árása að degi tÚ. Því er
búist við að Frakkar blandist í átökin
áður en langt um líður.
Höfum beðið í fimm mánuði
„Við erum að skapa söguna,“ sagði
Ray Davis, ofursti í flughernum, þeg-
ar hann skýrði fréttamönnum frá
framgangi mála frá höfuðstöðvum
sínum í Saudi-Arabíu. „Við höfum
beðið í fimm mánuði og erum nú loks
famir að vinna þau verk sem við
Öll helstu árásarvopn
íraka eyðilögð
Nú þykir hins vegar ljóst að um
árásir af hálfu íraka verður ekki að
ræða. Flugher þeirra er lamaður og
öll árásarvopn ónýt eftir því sem
best er vitað. Þá voru gerðar harðar
loftárásir á sérþjálfað lið íraka í Kú-
væt. Þetta eru svokallaðir þjóðvarð-
hðar og eru sá hluti hersins sem
besta þjálfun hefur hlotið og hefur
mikla bardagareynslu eftir að hafa
barist í átta ár við írana.
Þessi hluti hersins er að því er best
er vitað óvirkur og verður ekki beitt
í bráð nema írakar nái að endur-
skipuleggja hann. Það var þó þessi
hluti hersins sem einn náði að beita
sér í nótt. Stórskotaliði og eldflaug-
um var beitt gegn olíuhreinsistöð
Saudi-Araba nærri landamærunum
við Kúvæt.
Þessi árás mistókst þó því í morgun
bárust fréttir af því að hreinsistöðin
væri enn í gangi og þar heföu óveru-
legar skemmdir orðið ef frá er talið
að einn birgðatankur varð fyrir skot-
um. Þetta er eina umtalsverða gagn-
árásins sem írakar náðu aö gera i
upphafi stríðsins.
Mikið mannfall í írak
Útlagar frá Kúvæt segja að vélar
frá þeim hafi í morgun gert sjálfstæö-
ar árásir á skotmörk í írak. Að sögn
vora 12 orrustuvélar sendar til árás-
ar og sneru þær allar heilar heim.
Eftir því sem best er vitað hefur
mannfall verið óverulegt í liði banda-
manna. Bretar hafa sagt að allar vél-
ar þeirra hafi snúið aftur heilar og
John Mayor forsætisráðherra sagð-
ist í morgun ekki vita um mannfall
í liði þeirra.
Bandaríkjamenn hafa látið svipað-
ar fréttir frá sér fara en þó ekki úti-
lokað að einhverjir hafi falliö. Um
mannfall í írak er ekkert vitað, þó
verður að gera ráð fyrir að það sé
mikið þegar haft er í huga hve víö-
tækar árásimar eru og vopnin öflug
sem notuð eru.
Reuter og TT