Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1991, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1991, Blaðsíða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1991. LOKI Ætlar Þorbjörn að senda herinn á CNN og Stöð 2? v* > C 72177 \ SMIÐ JUKAFFI SBHDUHH FRÍTT HBiM OPNUM KL. 18VIRKA DAGA OG KL. 12 UM HELGAR 25 ■> A R A » ||| ALÞJÓÐA LÍFTRYGGINGARFÉLAGIÐ LÁGMÚLA 5 • REYKJAVÍK • S. 681644 Veðriðámorgun: Hæg sunn- an-og suðaustan- átt Á morgun verður hæg sunnan- og suðaustanátt. Smáél eða slydduél verða sunnan- og vest- anlands en úrkomulaust norðan- lands. Frost á bilinu 0 til 5 stig. Eldar í Bagdad enlitlar skemmdir Litlar skemmdir virtust vera í mið- borg Bagdad, höfuöborgar íraks, í morgun þrátt fyrir loftárásirnar í nótt, að því er fréttamaður CNN- sjónvarpsstöðvarinnar bandarísku greindi frá í morgun. Fáir bílar voru sagðir vera á götum borgarinnar þeg- ar þokunni tók að létta og nær engir fótgangandi sáust. Fréttamenn sáu að mikinn reyk lagði um miðbæinn í nótt en ekki var ljóst hvort hann væri af völdum sprengjuárásar eða hvort írakar hefðu sjálfir kveikt einhvers staðar í. Slökkviliðsbíll sást á ferð og nokkr- irlögreglubílar. Reuter Evrópubandalagið: Vonir um stutt stríð „Við hörmum að stríð skyldi hafa brotist út við Persafióa. Við vonum hins vegar að þetta verði stutt stríð og að leiðtogar íraka geri sér ljós hin hrapallegu mistök sín og hegði sér samkvæmt því,“ sagði meðal annars í tilkynningu frá Lúxemborg, sem 1 nú er í forsæti í Evrópubandalaginu. , Sagði ennfremur að einungis hörf- un íraka frá Kúvæt gæti afstýrt frek- ari hörmungum við Persaflóa. Var harmað að Irakar skyldu ekki hafa sýnt vilja til að koma í veg fyrir átök- in en þeir hefðu hvorki haft hugrekki né forsjá til að snúa aftur á stefnu sinni. Reuter Öll NATO-ríkin styðja árásina „írakar geta forðast frekari eyði- leggingu ef þeir hverfa tafarlaust frá Kuvæt,“ sagði fulltrúi Bandaríkj- anna, William Taft, á neyðarfundi sem NATO boðaði til á fjórða tíman- um í nótt. Hann bætti einnig við aö markmiðið væri ekki að sigra íraka heldur að frelsa Kúvæt. Allir sextán fulltrúarnir, sem sóttu fundinn, lögðu áherslu á að verja þyrfti landamæri Tyrklands, en það er eina NATO-ríkið sem liggur aö landamærum íraks. í NATO-sam- þykkt frá 1949 segir að verði eitt NATO-ríkja fyrir árás jafngildi það árás á öll önnur bandalagsríki. Fundinum stjórnaði framkvæmda- stjóri NATO, Manfred Wörner og var samþykkt einróma sú ályktun að öll NATÖ-ríkin stæðu einhuga á bak við þær aðgerðir sem fjölþjóðaherinn hefur hafið við Persaflóann. Fundur- inn harmaði einnig að ekki skyldi hafa fundist friðsamleg lausn og lýsir yfir þeirri von sinni að stríðið verði Stutt. Reuter mo morgun: Her íraka lamaður eftir loftarasirnar Allur flugher íraka er nú lamað- ur og bróðurparturinn af land- hernum einnig eftir að Bandaríkja- menn og bandalagsþjóðir þeirra gerðu víðtækar loftárásir á írak í nótt og morgun. Talið er að þetta séu einhverjar mestu loftárásir sem um getur í sögunni. Eyöileggingin er gríðarleg í írak. Talið er fullvíst aö vamarmála- ráðuneytið í Bagdad hafi orðið fyr- ir sprengju en þó er ekki talið að skemmdir séu eins miklar í höfuð- borginni eins og á hemaðarlega mikilvægum stöðum. Þó er vitaö að Bandamenn hafi farið þrjár ár- ásarferðir til Bagdad og varpað sprengjum á borgina þótt mið- borginni hafi verið hlift að mestu. Árásin var það öflug og snögg að írakar náðu ekki að verjast svo að teljandi væri. Flugher þeirra gat ekki beitt sér gegn árásarvélunum og eyðilagðist að mestu á jörðu niðri. Sömuleiðis tókst írökum ekki að gera árásir með eldflaugum eins og þeir höfðu hótað. Síöustu daga hafa þeir ítrekað að borgir í ísrael yrðu fyrsta skotmark þeirra. Þetta hefur ekki gengið eftir. Síðustu fréttir herma að herstöð íraka nærri landamærunum að Jórdaniu standi í ljósum logum. Þaðan var líklegast að gerðar væru árásir á IsraeL Enn hafa engar vísbendingar borist um bardaga á landi. í upp- haflegum áæflunum bandamanna var ætíð gert ráð fyrir að fyrst yrði barist í loffi þar til öll mótstaða þar væri úr sögunni. Talað var um að loftbardaginn gæti staðið í allt að viku en nú þykir ljóst að svo langan tíma þarf ekki til loftárása. Næsta skref á að vera að rjúfa varnarlinur íraka við landamærin milli íraks og Saudi-Arabíu. Hvort til þess kemur er þó ekki vitað þvi að enn gera menn sér vonir um að írakar gefist upp áður en til land- hernaðar kemur. Tilboð um stöðv- un árása gegn skilyrðislausri upp- gjöf hefur verið ítrekað við íraka i alla nótt og morgun. Stuðningur þjóðaheims við árás- ina er alger með þeim undantekn- ingum þó að Kúba og Norður-Kórea hafafordæmt hana. Þá heíur stjórn Jemens harmað að til þessa ráðs skyldi gripið. Sovétmenn hafa lýst yfir stuðningi en jafnframt hafa borist fréttir af viðbúnaði þeirra við suðurlandamæri rikisins. Fréttir af mannfalli eru litlar en þó er viöurkennt að Frakkar hafa tapað flugvélum nú i morgun. Bandaríkjamenn hafa gert lítið úr mannfalliísínuliði. Reuter Mörg hundruð flugvélar hafa verið í stöðugu árásarflugi yfir írak í alla nótt og morgun. Flug- og landher íraka er talinn lamaður eftir árásirnar sem eru einhverjar þær mestu sem um getur í sögunni. Símamynd Reuter Útsendingar CNN stöðvaðar í gærkvöldi kvað Útvarpsréttar- nefnd upp þann úrskurð að útsend- ingar Stöðvar 2 frá gervihnattastöö- inni CNN brytu í bága við reglur um sjónvarpsútsendingar. „Þessi sam- þykkt okkar er byggð á bókstafi reglugerðar um útvarp samkvæmt tímabundnum leyfum," sagði Þor- björn Broddason, formaður nefndar- innar. Páll Magnússon, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2, segir að eftir niðurstöðu útvarpsréttarnefndar muni stöðin laga útsendingar CNN-stöðvarinnar betur að reglum um sjónvarpsút- sendingar fremur en að hætta út- sendingunum. „Við breyttum þessu þegar í nótt. Þá sýndum við ekkert upptekið efni. Þetta voru allt beinar útsendingar. Það voru engin auglýsingahlé. Þá vorum við með okkar fréttamann sem endursagði fréttirnar á um 20 mínútna millibili." „Ég á eftir að skoða þennan úr- skurð og það getur vel verið að hann sé réttur samkvæmt reglugerðarbók- stafnum en það er hins vegar spurn- ing hvort hann standist að öðru leyti miðað við núverandi aðstæður,“ seg- ir Svavar Gestsson menntamálaráð- herra. -ns/JGH/HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.