Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1991, Blaðsíða 18
26
FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1991.
Menning
Plötusalan minnkaði um 20-25% frá því sem var 1989:
\
Vaskurinn gerir sam-
keppni erf iða við bækur
Það hefur komið í ljós að plötusala
fyrir síðustu jól snarminnkaöi frá því
* sem var 1989. Plötuútgefendur eru
sammála um að orsakirnar séu að
miklu leyti þær að bækur lækkuðu
í verði þegar virðisaukaskatturinn
var tekinn af þeim.
Virðisaukaskattur er aftur á móti
á allri plötuútgáfu og hefur þvi verð
bóka nálgast það verð sem er á
geisladiskum í dag og í sumum tilfell-
um er um sama verð að ræða. Til aö
mynda kostaði geisladiskurinn með
Bubba Morthens það sama og kiljan
af bókinni um Bubba.
Steinar Berg framkvæmdastjóri,
sem er einn stærsti plötuútgefandi
landsins, sagði í stuttu spjalli aö sam-
drátturinn í sölu hljómplatna væri
20-25%. Hann sagði að fyrirframspár
s um mest seldu plötur hefðu að mestu
leyti ræst, þó hefðu barnaplötur
komið sterkari út í ár en búist hafði
verið við. Plötur, sem hefðu komið
seint út, hefðu aftur á móti ekki selst
vel. Aftur á móti gætu sumar þeirra
platna, sem síðast komu út, selst vel
á nýbyrjuðu ári.
„Sala á hljómplötu fyrir jól er eng-
inn endapunktur á sölu,“ segir Stein-
ar. „Sem dæmi má nefna Manna-
korn. Hún kom seint út og seldist
Út er komin hjá Máli og menningu
Rauðir pennar - bókmenntahreyfing
á 2. fjórðungi 20. aldar, eftir Örn Ól-
afsson. í bókinni fjallar höfundur um
bókmenntahreyflngu sósíalista þar
sem meðal annars komu við sögu
menn á borð við Halldór Laxness,
Stein Steinarr, Halldór Stefánsson,
Jóhannes úr Kötlum og Kristin E.
Andrésson. Rakin eru stefnumið
hreyfingarinnar og tengsl þeirra við
bókmenntasköpun höfundanna
sjálfra, alþjóðleg tengsl eru dregin
fram og mikilvæg verk rædd. Órn
hefur stuðst við fjölmargar heimild-
ir, þar á meðal margvísleg gögn sem
aldrei hafa birst áður.
„Rauðir pennar er doktorsritgerð-
ekki jafnvel og búist hafði verið við.
Samt er ég viss um að sú plata tekur
vel við sér í sölu á næstunni og þetta
á við um fleiri plötur. Sölutíminn
hefur lengst, er orðinn tveir til þrír
mánuðir, þannig að það er alveg ljóst
að plata, sem kemur á markaðinn
þremur vikum fyrir jól, er of seint á
ferðinni ef á að treysta á jólasöluna."
Erfitt hjá
einstaklingum
í heild eru það stóru fyrirtækin
sem koma best út úr jólasölunni. En
það eru margir tónlistarmenn sem
standa í eigin útgáfu og eftir að hafa
grennslast fyrir um hvernig þeim
gekk er ljóst er að margir hafa farið
illa út úr þeirri útgáfustarfsemi.
Kemur þar margt til, meöal annars
að oft hefur þessum sömu mönnum
verið hafnað af stóru útgáfufyrir-
tækjunum sem telja það sem boðið
er upp á ekki eiga erindi á markað-
inn. Þess í stað hafa stórú útgáfurnar
í mörgum tilfellum séð um dreifingu
á plötum sem einstaklingar eða
hljómsveitir eru að gefa út sjálfar.
Útgefendur líta virðisaukaskattinn
hornauga. í dag er tónlist eina menn-
ingar- og listgreinin sem er virðis-
aukaskattsskyld. Steinar Berg sagði
- segir Öm Ólafsson,
in mín að viðbættum einum kafla,“
sagði Örn Ólafsson í stuttu spjalli um
bókina. „Ég tek fyrir bókmennta-
hreyfingu sem spratt upp í Evrópu á
nítjándu öld og var útbreidd bæði
meðal sósíaldemókrata og kommún-
ista. Stefnan var sú að bókmenntir
ættu að vísa verkalýðnum veginn í
byltingarbaráttunni fyrir betri
heimi, meö því að sýna fyrirmyndar-
hetjur í stéttabaráttunni og sýna líf
verkcdýösins. Þessi stefna kemur til
landsins 1926 og það er Einar Olgeirs-
son sem ber hana hingað og það eru
aðallega kommúnistar sem boða
hana hér, þá er einnig flallað um
bókaútgáfu á þessum tíma og fyrsta
íslenska bókaklúbbinn."
að virðisaukaskatturinn skerti veru-
lega samkeppnisstöðu hljómplöt-
unnar. Taldi hann tvær ástæður fyr-
ir því að plötur hefðu selst illa fyrir
þessi jól: „Annars vegar hefur dregið
saman í verði á bókum og plötum og
hins vegar hefur lækkun í krónutölu
á bókum mikið að segja í markaðs-
setningu og það gefur visst vægi að
geta hamrað á því í auglýsingum og
viðtölum að bækur hafi lækkað í
veröi.“
Plötuúgáfa er
fjölbreytt
Um framtíðina sagði Steinar Berg
að sér fyndist það í meira lagi undar-
legt ef virðisaukaskattur yrði ekki
tekinn af útgefinni tónlist. „Þetta er
réttlætismál og samkvæmt stefnu-
skrá stjórnmálaflokkanna ættu þeir
allir að fylgja eftir jöfnuði á milli list-
greina og það er góður vilji að gera
eitthvað í málinu hjá Svavari Gests-
syni menntamálaráðherra."
Steinar kvaðst ásamt fleirum hafa
veriö í nefnd sem flallaði um þessi
mál og væri hún búin að skila áliti
til menntamálaráöherra. Þar koma
fram þær staðreyndir sem liggja til
grundvallar ef virðisaukaskatturinn
yrði tekinn af. í því áliti er bent á
höfundur bókarinnar
Öm Ólafsson, höfundur Rauðra
penna.
hvað það muni kosta og hvaða leiðir
þurfi að fara til að framkvæma þetta.
„Álitið liggur fyrir og nú er það ein-
göngu spurning um hvort það er
pólitískur vilji hjá ríkisstjórninni um
að framkvæma þessar tillögur," seg-
ir Steinar.
„Meðal annars sem hefur gert okk-
ur erfitt fyrir á undanförnum árum
er aö mönnum hættir við að líta á
hljómplötuútgáfu sem popp og dæg-
urlagatónlist. í þessu sambandi má
geta þess að útgáfan nú fyrir jólin
skiptist mjög. Sjálfsagt er það aðeins
um flórðungur af henni sem skil-
greina má sem popp. Mikið var gefið
út af barnaefni, bæði upplesnum sög-
um, leikritum og tónlist, og aldrei
hefur verið gefið út jafnmikið af
klassík og á síðasta ári. Eins var um
að ræða viðamikla útgáfu og endur-
útgáfu á gömlum perlum sem alls
ekki mega týnast."
Steinar Berg sagði að lokum að
plötuútgáfa í dag væri í heild útgáfa
á mjög flölbreyttu efni og með því til
dæmis gefa út upptökur með óperu-
söngvurum, sem voru ástsælir á
fyrri hluta aldarinnar, væri verið að
bjarga menningarverðmætum sem
annars myndu glatast."
Örn Ólafsson er lektor í íslensku
við Kaupmannahafnarháskóla.
Doktorsritgerð Arnar er samin á
frönsku og við spyrjum hann hvort
lengi hafi staðið til að gefa Rauða
penna út: „Ég hef verið að vinna aö
því að koma verkinu yfir á íslensku
og þá að lagfæra framsetningu og
fleira og unniö það meðfram öðru
allt frá 1984. Það má segja að það
hafi verið aukavinna hjá mér í sex
ár. Ég er nú að vinna að annarri bók
sem fiallar um módernisma í íslensk-
um bókmenntum á fyrri hluta tutt-
ugustu aldar og er rúmlega hálfnað-
ur með hana.
-HK
Dræmadsókn
aðRyði
íslenska kvikmyndin Ryð sem,
Lárus Ýmir Óskarsson leíkstýrir
og nú er sýnd í Regnboganum,
hefur ekki fengið þær viðtökur
sem búast hefði mátt við fyrir-
fram. Rúmlega sjö þúsund manns
hafa séð myndína en hún hefur
verið sýnd frá öörum dag jóla.
Ryð hefur fengið mjög góðar við-
tökur gagnrýnenda og er óhætt
að mæla með myndinni fyrir alla
þá sem unna góðum kvi'kmynd-
um.
Ljóðabók
myndlistar-
nema
Öt er komin Ijóðabókin Ljóð,
myndir, pappírsflugvélar eftir
’ Hlyn Hallsson. Hlynur er Akur-
eyringur sem stundar nú nám í
fiöltæknideild Myndlista- og
handíðaskóla íslands. Ljóð,
myndir, pappírsflugvélar er
fyrsta flóðabók höfundar. Hún
inniheldur þrjátíu og sjö flóð
ásamtjafnmörgum myndum sem
Hlynur hefur gert við flóðin. Öll
eru ljóðin samin á síðustu tveim-
ur árum. Áður hafa birst flóð og
sögur í blöðum og tímaritum, en
auk þess var Hlynur einn að-
standenda bókarinnar Riíbein úr
siðum sem kom út fyrir ári og
innihélt flóð og smásögur átta
akureyrskra höfunda.
Óðurtil
sameinaðrar
Evrópu
Árlegir nýárstónleikar Sinfón-
íuhflómsveitar islands verða
haldnir í þessari viku. Þeir verða
í kvöld og endurteknir á laugar-
daginn. Auk þess verða þeir í
íþróttahúsinu á Selfossi á föstu-
dagskvöld. Á efnisskránni verða
flölmörg verk, flest í anda Vína-
tónlistarinnar. Flutt verða verk
eftir Mare-Antoine Charpentier,
Charles Gounod, Franz von
Suppé, Jóhann Strauss eldri og
yngri, Lucino Berio, Johannes
Brahms, Hans Christian Lumbye
og Leroy Anderson. Einleikarar
eru alls fimmtán.
Hljómsveitarstjóri er Peter
Guth, Hann hefur þrjú undanfar-
in ár komið hingað og stjörnað
Vínartónleikura og vakið mikla
hrifningu. Guth hefur valið verk-
in sem flutt verða á tónleíkunum
nú og sagt að efnisskrá þessi sé
óður til sameinaðrar Evrópu.
Guth segir að í Vínarborg finni
menn verulega fyrir því frelsi
sem fylgir opnun lándamæra ná-
grannaríkjanna og að tónlistin
endurspegli þessa sameiningu.
Peter Guth er þekktur viða um
heim fyrir þá alúð sem hann hef-
ur sýnt Vínartónlistinni. Hann
er einnig þekktur fiöluleikari og
tekur sér gjarnan fiðlu í hönd á
tónleikum.
ískugga
hrafnsinssýndí
Bandaríkjunum
Kvikmynd Hrafns Gunnlaugs-
sonar f skugga hrafnsins hefur
að undanförnu verið sýnd í kvik-
myndahúsum í Bandaríkjunum.
í Variety frá því 17. desember má
sjá aö hún er komin inn á lista
yfir mest sóttu kvikmyndirnar
þá helgi. Að vísu er hún mjög
aftarlega á merinni. Fram kemur
að heildaraðgangseyrir er kom-
inn upp í rún\a 90 þúsund dollar-
ar, sem eru rúmar fimm milljónir
íslenskra króna. Þess má geta að
í skugga hrafhsins er fyrsta ís-
lenska kvikmyndin sem fær
kvikmyndahúsadreifingu í
Bandaríkjunum.
-HK
íslenski dansflokkurinn mun frumsýna ballettinn Draumur á Jónsmessunótt i Borgarleikhúsinu á sunnudagskvöldið. Ballettinn er byggður á samnefndu
leikriti eftir William Shakespeare. Þetta er viðamikil sýning. í henni taka þátt 40 manns: íslenskir dansarar, fjórir erlendir sólódansarar, sex leikarar frá
Þjóðleikhúsinu og nemendur frá Listdansskóla íslands. Myndin er tekin á æfingu í Borgarleikhúsinu og má þekkja Spaugstofuleikarana Sigurð Sigurjóns-
son, Randver Þorláksson og Örn Árnason. DV-mynd BG
Rauðir pennar:
Vinsæl bókmenntastef na hjá sósíalistum