Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1991, Síða 13
1
c VSS^sSgS^^SSSSli
KVIK
Myndform
MY\D
SIMI 65 12 88
ÓTGA'
í=SBaloaiu— ,Qi
^dag^17'
FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1991.
dv Sviðsljós
Ævintýrið um prinsinn og prinsess-
una ætlar að enda á annan veg en
við erum vön að lesa um í ævintýra-
sögum þar sem þau lifa hamingju-
söm til æviloka.
KarlogDíana:
Hjóna-
bandið
molum
Undanfarin misseri hefur alltaf af
og til komið upp kvittur um að köldu
andi í hjónabandi Karls og Díönu.
Nú er farið að tala um verulegan
næðing í því sambandi.
Prinsinn er sagður hafa flutt úr
húsi þeirra í London og haldi að
mestu til á sveitasetri þeirra, High-
grove, sem er um 160 kílómetra fyrir
utan borgina. Þess á milli er hann
sagður eyða töluverðum tíma í Skot-
landi þar sem látið er liggja að því
að hann eigi vinkonur.
Díana prinsessa er sögð miður sín
yflr ástandinu í hjónabandinu sem
kunnugir segja að sé nú ekki annað
en nafnið eitt. Skilnaður kemur að
sjálfsögðu ekki til greina hjá hinu
konunglega fólki.
Vinir Kalla segja að hann kvarti
sáran yflr því hversu mikið sam-
kvæmisljón kona hans sé. Hún setji
sig ekki úr færi að sækja alla þá
mannfagnaði og veislur sem í boði
séu og gefi sér engan tíma til að rækja
hlutverk sitt sem eiginkona og móð-
ir. Allur tími hennar fari í veislur,
skemmtanir og þaö áhugamál henn-
ar að þræða dýrustu tískuverslanir
í heimi. Það hafa reyndar fleiri en
eiginmaður hennar gert athuga-
semdir við hversu dýr hún sé í
rekstri.
Karl prins er hins vegar minna fyr-
ir sviðsljósið og líður best í kyrrðinni
í sveitinni þar sem hann spilar póló
og fer á veiðar.
Það er því líkast til ekki eins auð-
velt og margur hyggur að vera kon-
ungborinn. Fyrir utan allt annað má
svo vesalings fólkið ekki snúa sér við
án þess að allur heimurinn viti af því
andartaki síðar. Við hér uppi á skeri
megum vera þakklát fyrir það frelsi
sem viö höfum til að vera bara ósköp
venjulegir Jónar og Jónur og geta
soðið okkar slátur í hádeginu án þess
að fyrirsagnir um það birtist í dag-
blöðunum. H.Guð.
2 magnaðar bíómyndír frumsýndar á myndbandí
Fást á öllum betrí mvndbandaleíöum
OTGAFUU^---
Video-spólan sf.
Holtsgötu 1, sími 16969
SKEMMTISKREPP IJM HELGI TIL...
KAIIPMAIAHOFN
Söluskrifstofur Flugleiða: ■■■■■
Laekiargötu 2, Hótel Esju og Krinqlunni. Upplýsingar og farpantamr í síma 6 90 300.
Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskriftofum_
HELGARFERÐ
FÖSTUDAGUR TIL MÁNUDAGS
ADMIRAL / SOPffiE AMALIE
TVEIR í HERB. KR. 36.390 Á MANN
FLUGLEIÐIR
Þjónusta alla leið