Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1991, Síða 28
36
FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1991.
ÞJÓNUSTUSAMBANO
V ÍSLANDS y
Þing ÞSÍ
1. þing Þjónustusambands íslands verður haldið á
Holiday Inn 17. og 18. mars 1991. Bréf þess efnis
hefur verið sent aðildarfélögum ÞSÍ.
F.h. framkvæmdastjórnar,
Sigurður Guðmundsson,
forseti ÞSÍ
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
Borgartún 3 - 105 Reykjavík - sfmi 26102
Frá Borgarskipulagi Reykjavíkur
Hvassaleiti
Á Borgarskipulagi er verið að vinna tillögu að hraða-
hindrunum í Hvassaleiti.
íbúum Hvassaleitis og öðrum sem áhuga hafa á
bættu umferðaröryggi í götunni er bent á að kynna
sér tillöguna á Borgarskipulagi Reykjavíkur, Borgar-
túni 3, 3. hæð, 105 Reykjavík, alla virka daga, milli
kl. 8.30 og 16.00 frá fimmtudeginum 17. janúar til
fimmtudagsins 31. janúar 1991.
Athugasemdum eða ábendingum skal skila skriflega
á sama stað fyrir 31. janúar 1991.
>
Fjármálaþjónustan
Námskeiö & ráögjöf
NÁMSKEIÐ:
Úr skuldum. Námskeið fyrir hjón og einstaklinga
sem vilja öðlast skilning á stöðu sinni og tækni til
að vinna sig út úr skuldum.
Að halda jafnvægi. Hvernig höldum við utan um
fjármálin? Hvernig náum við tökum á stöðunni?
Leiðin til velgengni. Námskeið sem fjallar um
þroskaferil mannsins frá því að hann er ráðvilltur í
fjármálum sínum og 'þar til hann hefur öðlast fullan
þroska til að takast á við þau.
Að tryggja framtíð sína. Námskeið fyrir fólk með
tekjuafgang sem vill vita á hvern máta það skipulegg-
ur sig við að ráðstafa honum.
Fjármálaþjónustan veitir einnig einstaklings-
og/eða hjónaráðgjöf.
Upplýsingar og innritun í síma 676212 um
helgina og á milli 17 og 20 virka daga.
Landspítalinn
Reyklaus vinnustaður 1. janúar 1991
HANDLÆKNINGADEILD 3 (11-G)
Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar.
Þann 1. febrúar nk. verður farið af stað með 6 vikna
námskeið í hjúkrun hjarta- og lungnasjúklinga.
Hér er um að ræða markvissa aðlögun með leiðsögn
reyndra hjúkrunarfræðinga á handlækningadeild 3,
ásamt fyrirlestrum einn eftirmiðdag í viku. Fyrirlestr-
arnir eru fluttir af hjúkrunarfræðingum og læknum
deildarinnar.
Handlækningadeild 3 er brjóstholsaðgerðadeild sem
er í örri þr'óun vegna fjölgunar hjartaaðgerða hér á
landi.
Nánari upplýsingar veita Lilja Þorsteinsdóttir, deildar-
stjóri, sími 601340 og Anna Stefánsdóttir, hjúkrunar-
framkvæmdastjóri, sími 601366 og 601300.
Merming
Upphaf félagsstarf-
semi í Reykjavík
Bók þessi segir frá félögum í höfuöstaönum á tíma-
bilinu frá því um 1840 til aldamóta. Höfundur gerir
grein fyrir því að á 18. öld og fram á 19. öld var félags-
starfsemi aðallega í kringum háttsetta embættismenn
og því eins konar framlenging af embættinu, stjóm-
tæki þess. En á seinni hluta 19. aldar koma til frjáls
félög sem starfa einkum að menntunarmálum. í lok
nítjándu aldar verða aftur skil, þá koma til fjöldahreyf-
ingar, Góðtemplarareglan og verkalýðsfélög, jafnframt
því sem ýmiss konar félögum fjölgar.
Sjö félög
em hér einkum til umræðu, þau sem mest störfuðu,
því auðvitað urðu mörg félög skammæ.
Kvöldfélagið starfaði frá 1861-1874. í því voru einkum
ungir menntamenn. Það ræddi landsins gagn og nauð-
synjar. Félagið var leynilegt en félagsmenn töluöu og
skrifuðu í eigin nafni fyrir baráttumálum þess, t.d. að
reisa Ingólfi Arnarsyni minnisvarða. Það var nú ekk-
ert smámál þegar þjóðernisstefnan var að grípa íslend-
inga.
Iðnaðarmannafélagið starfaði allt frá 1867, einkum
að menntun iönaðarmanna.
Lestrarfélag Reykjavíkur starfaði frá 1869 og til 1933.
Þetta virðist hafa verið fínasti klúbbur landsins enda
takmarkaður aðgangur, lengst af við 36 manns, síöar
við 52. Tilgangur félagsins var að kaupa erlendar
bækur, sem gengu milli félagsmanna, en þær voru svo
seldar á uppboði innanfélags þegar félagsmenn höfðu
lesið þær. Fróðlegt hefði veriö að vita hvers konar
bækur það voru en því miður er aðeins sagt að þaö
skyldu vera „helstu rit“ Norðurlanda, Englands,
Frakklands og síðar Þýskalands. Ekki kemur fram
hvort heimildir eru nákvæmari, t.d. um bókatitla.
Thorvaldsensfélagið var ámóta fínt, en fyrir konur,
sem lengst af voru ekki í Lestrarfélaginu. Thorvalds-
ensfélagið var stofnað 1875 til að lagfæra Austurvöll
en helsta starf þess var að halda uppi handavinnu-
skóla.
Hið íslenska kvenfélag var stofnað 1894 til að koma
upp íslenskum háskóla. Það var miklu alþýðlegra.
Loks er að nefna Sjómannaklúbbinn, 1875-78.
Fræðslustarf
Það kemur fram að allt þetta félagsstarf var fremur
slitrótt, t.d. fullorðinsfræðslan sem varð ein helsta
starfsemi félaganna. Mjög mikil þátttaka í fyrstu en
eftir fáein ár lognast þetta út af. Ekki gefur Hrefna
skýringar en mér dettur í hug, út frá reynslu minni
af öldungadeild, að þetta beri einfaldlega aö skýra með
uppsafnaðri þörf. Þegar stofnað er til slíks skólahalds
rjúka þeir til sem mestan hafa áhugann en eftir fáein
ár er þeirri þörf svalaö og segir ekki til sín fyrr en
eftir nokkur ár. Það væri þó auðveldara að glöggva
Bókmenntir
Örn Ólafsson
sig á þessu ef Hrefna hefði haft einum lista meira,
nefnilega í tímaröð, um hvaða námskeið buðust í
hvaða greinum og í einum dálkinum hvaða félög stóðu
fyrir hverju. Þá sæist betur í hve miklum mæli þessi
félög sóttu á sömu mið. Af IV. kafla ritsins er svo að
sjá sem fullorðinsfræðsla hafi í rauninni boðist flest
árin á síðasta þriðjungi 19. aldar, þar hafi eitt félag
tekið við af öðru. Reglulegt skólahald á vegum bæjarfé-
lagsins kemur svo í staö þessa í lok 19. aldar. Hrefna
segir um fullorðinsfræðsluna (bls. 72):
„Athyglisvert er að bera saman þær greinar sem
Kvöldfélagsmenn ræddu um að væru almenningi
nauðsynlegar og hvaða greinar voru vinsælastar í
sunnudagaskólunum. En það voru einmitt grunn-
greinarnar, réttritun, reikningur og skrift. Nokkuð var
einnig sótt í dönsku- og enskukennslu. En áhuginn
var mjög takmarkaður á landafræði og íslandssögu
og féllu þær greinar iðulega niður þótt ætlaö hafi ver-
ið að bjóða kennslu i þeim. í skólum félaganna voru
mest kenndar þær námsgreinar sem síðar urðu skyld-
unámsefni í barnaskólum. Þeir sem sóttu þessa
kennslu höfðu að öllum líkindum fæstir átt þess kost
að sækja barnaskóla."
Það er ein merkasta niðurstaða þessarar rannsóknar
að félögin eru nokkuð svipuð á sama tíma, hvert sem
yfirlýst markmið þeirra er. Hrefna segir (bls. 101):
„í heild virðast félögin á hverju skeiði um sig hafa
átt margt sameiginlegt, þótt þau ynnu kannski að ólík-
um málum. Þau áttu rætur sínar í svipuðum jarð-
vegi. Þannig má nefna bindindisfélag, stofnað 1873, sem
segja má að hafi átt meira skylt við Þjóðvinafélagið
sem hafði sjálfstæði landsins á dagskrá en Góðtempl-
araregluna sem starfandi var síðar og barðist fyrir
bindindi. Bindindisfélagið vildi bindindi á sterka
drykki svo lengi sem íslendingar réðu ekki fjármálum
sínum sjálfir."
Hér er sérstakur kafli um samantekt um félagsstarf-
semi á Norðurlöndum á sama tíma. Aftan við texta
eru ýmsar skrár og töflur með nánari fróðleik, t.d. um
öll félög tímabilsins, og um formenn og félagsmenn
helstu félaga. Þetta er fróðlegt rit um merkisefni. Ég
óska þess eins aö næst verði höfundur svolítið djar-
fari í að velta fyrir sér ýmsum skýringartilgátum á
efninu.
Hrefna Róbertsdóttir: Reykjavíkurfélög.
Ritsafn Sagnfræðistofnunar 26, 1990, 167 bis.
Andlát
Ingólfur Tómasson, Lönguhlið 25,
lést á Landspítalanum að morgni 14.
janúar.
Jarðarfarir
Guðrún Guðjónsdóttir frá Seli í
Grímsnesi, til heimilis aö Efstasundi
31, andaðist þann 11. janúar sl. Útför
hennar verður gerð frá Langholts-
kirkju föstudaginn 18. janúar kl.
13.30.
Elín Margrét Jónsdóttir, Borgar-
braut 37, Borgarnesi, lést á heimili
sínu sunnudaginn 13. janúar. Útförin
fer fram frá Borgarneskirkju laugar-
daginn 19. janúar kl. 14.
Jón Sigurðsson, Skúfsstöðum, and-
aðist í sjúkrahúsinu á Sauðárkróki
aðfaranótt 13. janúar. Jarðarförin fer
fram frá Hólum í Hjaltadal laugar-
daginn 19. janúar kl. 14.
Útför Bjarna I. Karlssonar rafeinda-
virkja, Ystaseh 1, fer fram frá Selja-
kirkju föstudaginn 18. janúar kl.
13.30.
Páll H. Árnason, Heiðarvegi 38, Vest-
mannaeyjum, sem andaðist 12. jan-
úar í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja,
verður jarösunginn frá Landakirkju
laugardaginn 19. janúar kl. 11.
Gunnar S. Guðmundsson trésmiður,
áður Karfavogi 33, lést á Droplaugar-
stöðum 12. janúar. Jarðarförin fer
fram frá Dómkirkjunni í dag,
fimmtudaginn 17. janúar, kl. 15.
Þórður Jónsson, Stillholti 15, Akra-
nesi, lést í Sjúkrahúsi Akraness 11.
janúar sl. Minningarathöfn verður í
Akraneskirkju föstudaginn 18. jan-
úar kl. 11. Jarðsett verður að Melstað
laugardaginn 19. janúar kl. 14.
Útför Guðrúnar Kristjánsdóttur,
Hlíðarhjalla 6, áður Smárahvammi,
Kópavogi, fer fram frá Bústaðakirkju
föstudaginn 18. janúar kl. 13.30.
Útför Egils Ástbjörnssonar, Álfta-
mýri 22, fer fram frá Langholtskirkju
föstudaginn 18. janúar kl. 15.
Fundir
Aðalfundur Framkvenna
verður haldinn fimmtudaginn 24. janúar
kl. 20.30 í Framheimilinu við Safamýri.
Vepjuleg aðalfundarstörf.
Stjómin.
Digranesprestakall
Kirkjufélagsfundur verður í safnaðar-
heimilinu við Bjarnhólastíg í kvöld, 17.
janúar, kl. 20.30. Auk venjulegra fundar-
starfa verður spiluð félagsvist. Kaffiveit-
ingar og að lokum helgistund.
Fjörufuglar að vetrarlagi
Fjórði rabbfundur um náttúru íslands
verður haldinn á vegum Náttúrufræði-
- stofu Kópavogs og Náttúruverndarfélags
Suðvesturlands í Náttúrufræðistofu
Kópavogs í dag, 17. janúar, kl. 21. Að
þessu sinni verður fjallað um þær teg-
undir fugla sem unnt er að skoða viö
strendur landsins um þetta leyti. Þegar
grannt er skoðað eru það furðu margar
tegundir. Hamir fugla munu Iiggja
frammi til aö auðvelda greiningu. Reynd-
ir fuglaskoðaðar verða á fundinum. Á
laugardaginn, 19. janúar, verður gengið
á fjörur og fuglalífið skoðað. Mæting við
Olíustöð Skeljungs í Skerjafiröi kl. 13.30.
Fyrirlestrar
Hugefli og sæigætisát
Fyrirlestur og videosýning verður
fimmtudaginn 17. janúar kl. 20.30 að
Brautarholti 8 (rétt við DV og Japis).
Garðar Garðarsson mun kynna nýjar
hugmyndir og möguleika nokkurra
öflugustu „mannræktar“-aðferða sem
völ er á í dag, þ.e.a.s. dáleiðslu, gestalt
og Neuro Linguistic Programming (NLP).
Einnig verður sýnd mynd um konu sem
losnar við margra ára sælgætisfíkn
(súkkulaði) á 15 mínútum með notkun
NLP tækninnar. Boðið verður upp á veit-
ingar. Aðgangseyrir 900 kr. og öllum opiö.
Tilkyrmingar
Félag eldri borgara
Opið hús í Risinu, Hveríisgötu 105, í dag,
fimmtudag, kl. 14 hefst félagsvist. Leik-
fimi fellur niður sem vera átti kl. 17. Kl.
20.30 dansleikur.
Tónleikar
Jazzkvartett debuterar
í kvöld, 17. janúar heldur Jazzkvartett
Sigurðar Flosasonar tónleika á Púlsinum
að Vitastíg 3. Þetta eru fyrstu tónleikar
kvartettsins á íslandi en í fyrrasumar tók
hann þátt í alþjóðlegri keppni ungra
djassleikara 1 Belgíu, en sú keppni er
haldin árlega á vegum alþjóða djasssam-
bandsins. Kvartettinum var boðið til úr-
slitakeppni og hafnaði í áttunda sæti, en
alls tóku þátt í keppninni 90 hljómsveitir
frá 20 löndum. Meðlimir hljómsveitar-
innar eru Sigurður Flosason, sem leikur
á alto saxófón, Kjartan Valdimarsson á
píanó, Þórður Högnason á kontrabassa
og Matthías Hemstock. Sérstakur gestur
á tónleikunum verður gítarleikarinn
Hilmar Jensson en þeir Matthías og
Hilmar eru við nám á Berklee Collage
of Music í Boston. Kvartettinn leikur ein-
ungis frumsamið efni, en eftir hlé verður
flutt tónlist eftir Omette Coleman, Hilm-
ar Jensson og fleiri. Tónleikamir hefjast
kl. 21.30.
Tapaðfimdið
Lyklaveski tapaðist
Grátt lyklaveski tapaðist í síðustu viku á
leiöinni frá strætisvagnabiðstöðinni við
Borgarleikhúsið að Hamrahlíð 17.
Finnandi vinsamlegast hringi í Elsu s.
689060 milli kl. 9 og 19.