Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1991, Page 11
iesi
xmh\, æ guoAgsrAOUAJ
ARDAGUR 26. JANUAR 1991.
11
Nýaldarstefna:
Guðspeki o g gamlar
lummur í nvjum búningi
„Það er ljóst að bein tengsl eru
milli þess sem kallað er nýaldar-
stefna og guðspeki og spíritisma
sem komu fram í kringum alda-
mótin. Grundvallarhugmyndir
þeirra eru eins. Allar eru innhverf,
mannmiðlæg algyðistrúarbrögð
sem leggja áherslu á manninn sjálf-
an sem miðpunkt alls. Fólk sækir
styrk og afl inn í sjálft sig og reyn-
ir stundum að komast inn í raðir
kristinna í dulargervi.
Nýöld er hér notað sem heiti yfir
ýmsar hreyfingar ú nútímanum
sem eiga það sameiginlegt að telja
lausnina á vanda mannsins að
finna í honum sjálfum og afneita
guðdómi Krists. Bæði guðspeki og
nýaldarstefna byggjast á fornum
indverskum trúarbrögðum með
áherslu á mikilvægi einstaklings-
ins.“
Þetta er ein af niðurstöðum Jón-
asar Gíslasonar, vígslubiskups og
prófessors við guðfræðideild Há-
skóla íslands, í erindi sem hann
flutti um nýöldina á íslandi á evr-
ópskri ráðstefnu í Árósum þar sem
guðfræðiprófessorar víða að fjöll-
uðu um nýjar trúarstefnur.
Undirfölsku flaggi
- Hvað áttu við þegar þú talar um
að nýaldarsinnar reyni að komast
inn í kirkjuna í dulargervi?
„Ég á til dæmis við það þegar
hópur þessa fólks reyndi að haida
því fram í haust að það hefði átt
upptökin að sérstakri bænastund
sem efnt var til vegna deilna við
Persaflóann. Þetta var gert að
frumkvæði kirkjunnar en í fjöl-
miðlum reyndu nýaldarsinnar að
telja fólki trú um að þetta væri
runnið undan þeirra riíjum," sagði
Jónas í samtali við DV.
„Þetta kemur einnig fram í því
að margir nýaldarmenn neita að
þeir séu það. Þetta fólk siglir oft
undir folsku flaggi og reynir að
villa á sér heimildir til þess að
breiða yfir að kenningar þess eru
í grundvallaratriðum andstæðar
kristinni kenningu,“ segir Jónas.
Fólker heila-
þvegið og brenglað
- Nú hefur því verið haldið fram
að fólk hafi beðið tjón á sálu sinni
á námskeiðum sem nýaldarsinnar
hafa staðið fyrir. Veist þú dæmi
þess að þetta eigi við rök aö styðj-
ast?
„Það eru mörg dæmi um fólk sem
hefur verið afskaplega illa á sig
komið andlega eftir afskipti óvand-
aðra manna sem eru að fikta í hlut-
um sem þeir þekkja alls ekki nógu
mikið. Fólk er gjörsamlega heila-
þvegið og brenglað og það er í
mörgum tilfeflum mikið starf að
koma því á réttan kjöl á ný.
- Er í ljósi þess hægt að segja að
fólki stafi hætta af starfsemi nýald-
arsinna?
„Já, það má í mörgum tilfellum
segja það.“
Guðspekingum
mistókst
Jónas rekur í erindi sínu meðal
annars sögu guðspekikenningar-
innar sem átti miklu fylgi að fagna
á Vesturlöndum í byrjun aldarinn-
ar. Þegar frú Blavatsky, sem var
einn af máttarstólpum hreyfingar-
innar, dó tók Annie Besant við sem
leiðtogi. Tilraunir hennar um 1929
Séra Jónas Gíslason telur ekkert nýtt í kenningum nýaldarmanna og
að þær samræmist í grundvallaratriðum ekki kristinni trú. DV-mynd GVA
til þess að kynna Indverjann
Krishnamurti fyrir heiminum sem
nýjan Messías mistókust gjörsam-
lega og eftir það bar lítið á starfi
hreyfingarinnar. -
Um 1962 urðu þáttaskil þegar
„guðspekingar stofnuðu Findhorn-
samfélagið í Skotlandi sem varð
miðstöð nýrrar vakningar í starf-
semi þeirra. Síðar segir Jónas:
Lauma sér inn í
líknarhreyfingar
„1975 komu guðspekingar fram á
sjónarsviðið og hófu áróður fyrir
nýöldinni. Þeim boðskap hefur ver-
ið vel tekið og eiga þeir stuðnings-
menn í öllum heimshomum. Ný-
aldarmenn fullyrða að áhangendur
skipti tugum þúsunda og þeir
reyna að lauma sér inn í ýmsar
líknarhreyfingar heimsins með það
fyrir augum að koma á nýju heims-
skipulagi. Fólk áttar sig oft ekki á
því að þó að nýaidarhreyfingin
virðist laus í reipunum er öflugt
skipulag meðal þeirra sem leiða
hreyfinguna í heiminum.
Nýaldarleiðtogar hafa sérstök
kenniorð til þess að bera kennsl
hver á annan. Þeir nota oft regn-
bogann sem tákn fyrir málstað
sinn.
Þrjár
meginkenningar
Meginkenningar nýaldarsinna
byggjast á þremur eldri kenning-
um. Hrörnunarkenningin átti
nokkru fylgi að fagna á sjötta ára-
tugnum. Fólk taldi heiminn á
barmi kjarnorkustríðs eða um-
hverfisslysa og óttaðist að maður-
inn hefði tæmt auölindir jarðar.
í kjölfar þessara kenninga kom
nýaldarboðskapurinn með loforð
um betri og bjartari framtíð þegar
öld vatnsberans hæfist. Stjörnu-
spekingar boðuðu aldamót þar sem
öld fiskanna lyki og öld vatnsber-
ans tæki við.
Þá er ótalin kenningin um horfna
menningu. Hún byggðist á því að
forn menningarríki á jörðinni
hefðu liðið undir lok og fólk hefði
yfirgefið jörðina í geimskipum til
að forða sér frá útrýmihgu. Það
muni nú snúa aftur í geimskipum,
sem við köllum fljúgandi furðu-
hluti, til þess að bjarga jarðarbú-
um.“
Jónas telur höfuðástæðu fylgis
við kenningar nýaldarmanna vera
þá'að mörgum hafi fundist að bjart-
sýni vísindahyggjunnar um alda-
mót og efnishyggja hafi beðið skip-
brot. Því hefur ungt fólk á Vestur-
löndum í auknum mæh leitað til
trúarbragða. Margir hafa ekki leit-
að til kristindómsins vegna þekk-
ingarleysis, þ.e. þeir telja sig þekkja
kristindóminn en þekkja hann í
raun ekki. Hann segir ennfremur:
Fólk gabbað til þess
að taka þátt í fornum
trúarathöfnum
„Margt ungt fólk á Vesturlöndum
hefur leitað til Austurlanda og Ind-
lands og ýmis trúarbrögð úr þeim
heimshluta eiga vinsældum að
fagna á Vesturlöndum. Fólki finnst
það finna eitthvað nýtt í þessum
trúarkenningum en gleymir því að
trúarbrögð þessi er ævaforn og
hafa gjörsamlega brugðist við að
leysa vandamál samfélaganna sem
þau hafa mótað.
„Gúrúar" eru vinsælir og tals-
vert hlustað á kenningar þeirra
sem eru oft fomar indverskar
kenningar í nýjum klæðum. Fólk
tekur ómeðvitað þátt í tilbeiðslu
indverskra guða sem er dulbúin
sem aðferð til þess að minnka
stress Vesturlandabúa og beina
þeim til heilbrigðs lífs. Til að full-
komna dulargervið eru bænir og
möntrur á fornindversku sem fáir
eða enginn skilur.
Innhverf íhugun er gott dæmi um
það hvernig fólk er gabbað til þess
að taka þátt í shkri tilbeiðslu."
Fremur heiðnar
kenningar
en kristnar
Jónas bendir á að kenningar ný-
aldarsinna séu í eðh sínu frekar
heiðnar en kristnar og bendir á trú
á náttúruvætti og athafnir eins og
eldgöngur máli sínu til stuðnings.
Sem dæmi um fjölbreytnina minnir
hann á viðtal í Vikunni við stúlku
sem kvaðst vera meðlimur í söfn-
uði djöfladýrkenda og segist hafa
heyrt að meðlimir slíkra safnaða
og fleiri stundi bölbænir sem beint
er gegn kristnum söfnuðum.
Hann telur að ein af ástæðunum
fyrir velgengni nýaldarsinna sé að
margt fjölmiðlafólk sé hallt undir
stefnu þeirra og jafnvel beinir þátt-
takendur.
í niðurstöðum sínum segir Jónas
að á þeim áratug, sem framundan
er áður en fagnað verður 1000 ára
afmæli kristnitöku á íslandi, muni
íslenska þjóðkirkjan kappkosta að
koma á eflingu safnaðarlífs og það
sé hennar baráttuaðferð gegn ný-
aldarsinnum.
Við þurfum ekki að
berjastfyrirGuð
- Nú gagnrýndi Guörún Berg-
mann, fulltrúi nýaldarsinna, kirkj-
una nokkuð í viðtali í DV á dögun-
um og sagði hana vera staðnaða.
Hveiju viltu svara þessu?
„Menn verða að gera skýran
greinarmun á innihaldi og umbúð-
um,“ segir Jónas. „Innihaldið er
fagnaðarerindið og það er kjarni
kristinnar trúar. Bibhan, sem er
reyndar ekki ein bók eins og marg-
ir virðast halda, heldur heht bóka-
safn, er skrifuð fyrir annað sam-
félag en við þekkjum í dag.
Hitt er svo annað mál að kirkjan
þarf kannski ekkert að vera að
berjast við nýaldarsinna. Við eig-
um ekki að vera að berjast fyrir
Guð, hann þarf þess ekki. Við eig-
um að boða fagnaðarerindið. Ýmsir
sem virðast snúa baki við kristinni
trú og yfirgefa kirkjuna koma flest-
ir aftur fyrr eða síðar.“
Munur á nýöld
og kristni
Nýöld: Guð er ópersónulegt al-
heimsafl.
Kristni: Guð er persónulegur.
Hann er skapari himins og jaröar.
Nýöld: Syndin stafar af fáfræði.
Maðurinn fær ekki skhið guðlegt
eðli sitt.
Kristni: Syndin varð til þegar mað-
urinn sneri baki við Guði og gengur
því þvert á vilja hans.
Nýöld: Endurlausn þýðir að mað-
urinn viðurkennir guðlegt eðli sitt
með hugleiðslu og fórnum og bjarg-
ar sjálfum sér.
Kristni: Jesús Kristur frelsaði
mannkyn allt frá syndum og dauða
með fórnardauða sínum á krossin-
um.
Nýöld: Jesús Kristur er .einn af
mestu hugsuðum heimsins sem
kom til þess að aðstoða manninn
við að leysa vanda sinn.
Kristni: Jesús er sonur Guðs. Hann
er eini vegurinn og leið mannkyns
til björgunar. Hann er bæði maöur
og guð og mun koma aftur th að
dæma lifendur og dauða.
Nýöld: Bænin er íhugun sem kem-
ur manninum í samband við al-
heimsaflið.
Kristni: Bænin er samtal kristins
manns við Guð sinn í Jesú nafni.
Hún krefst einskis af Guði heldur
spyr um vilja hans og segir: Verði
þinn vilji.
Þessar skhgreiningar, sem fengnar
eru úr fyrrnefndu erindi Jónasar,
sýna ef til vill betur en margt ann-
að hve lítið svokölluð nýaldar-
stefna og kristin trú eiga sameigin-
legt.
-Pá
* -
Fiug
er framtíðiH
Lærið að fljúga hjá
fullkomnum flugskóla.
* Bjóðum kennslu til
einka- og atvinnuflug-
mannsprófs.
* Fullkomin 2 hreyfla
flugvél til blindflugs-
kennslu.
* Flughermir
Greiðsluskilmálar og
fyrirgreiðsla.
Gamla Flugturnlnum
Reykjavikurttugvelli
101 Reykjavik
Simt 91-28122
Kt. 651174-0239