Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1991, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1991, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 1991. Erlendbóksjá og aðdáandi Michael Frayn er höfundur margra gamanleikrita sem náð hafa umtalsverðum vinsældum í Bretlandi og víðar. En þótt leik- ritin séu kunnust verka Frayns hefur hann einnig samið skáld- sögur. The Trick of It er þó fyrsta skáldsaga hans í meira en einn og hálfan áratug. Sagan er að formi til röð bréfa frá breskum bókmenntakennara. Sá hefur um árabil sökkt sér ofan í verk rithöfundar nokkurs, JL, með það í huga að semja um hana og verk hennar langþráða bók. Reyndar virðist hann vita meira um skáldverk JL en hún sjálf. Kennarinn tekur skyndilega upp á því að bjóða JL að koma í heimsókn í háskólann og ræða við nemendur sína. Hann á ekki von á því að hún þekkist boðið, en það gerir hún og kemur í heimsókn. Það hefur ófyrirséðar afleiöingar í fór með sér fyrir sögumanninn. Frayn þræðir hér fimlega ein- stigið milh gamans og alvöru. Þess vegna er þessi stutta skáld- saga í senn fyndin og sorgleg. THE TRICK OF IT. Höfundur: Michael Frayn. Penguin Books, 1990. mm RUSSELL A POLiTICAL UFE *'■ i V \Mmmm Russel og stjómmálin Breski heimspekingurinn Bertrand Russel, sem fæddist árið 1872 og lést tæpri öld síðar, 1970, var alla tíð umdeildur mað- ur. Hann lýsti afdráttarlaust skoðunum sínum á þjóðfélags- málum - viðhorfum sem voru oftar en ekki í andstöðu við ríkj- andi hefðir og sjónarmið vald- hafa. Hann tók þátt í pólitísku andófi allt frá því hann beitti sér sem friðarsinni á dögum fyrri heimsstyrjaldarinnar þar til hann lést í miðju andstöðunnar gegn Víetnamstríðinu. I þessari bók er fjallað á skil- merkilegan hátt um hlut Russels í stjómmálaumræðu aldarinnar og helstu bækur og rit sem hann ■sendi frá sér um þau efni. Ætt- menni hans höfðu um árabil ver- iö í fararbroddi frjálslyndra stjórnmála í Bretlandi en sjálfur varð hann frjálslyndur sósíahsti og eindreginn andstæðingur stríðs og vopnabúnaðar, ekki síst kjamorkuvopna. Þá varð hann opinskár gagnrýnandi sovéska kommúnismans á þeim tíma þeg- ar margir menntamenn litu bjartsýnir til roöans í austri sem fyrirheit um fyrirmyndarlandið. BERTRAND RUSSEL: A POLITICAL LIFE. Höfundur: Alan Ryan. Penguin Books, 1990. Er náttúran liðin undir lok? Sú iðja hefur löngum verið vinsæl að spá fyrír um hörmungar og heims- endi. Sumir hafa gengið hreint til verks og spáð því að heimurinn far- ist á tilteknum degi. Það hefur auð- vitað ekki enn gerst, að því er best er vitað, en spámennirnir hafa gjam- an á hreinu skýringar á því hvers vegna tilveran er ekki löngu úr sög- unni og spá svo bara nýjum heims- endi einhvem tíma seinna. Síðustu áratugina hafa margir vís- indamenn verið að spá - að vísu ekki heimsendi í venjulegum skilningi heldur gmndvallarbreytingum á lífsskilyrðum manna og reyndar alls lífs á jörðinni. Skemmst er að minn- ast skýrslu um takmörkun vaxtar sem olli miklu fjaörafoki fyrir all- mörgum árum. Þær spár um sam- drátt og auðhndaskort, sem þar voru settar fram í nafni vísindanna, hafa hins vegar ekki gengið eftir frekar en heimsendisspár sérvitringanna. Spár vísindamanna Allra síðustu árin hafa spádómar vísindamanna um verulegar lofts- lagsbreytingar á jörðinni vakið mikla athygh og umræður. Meginkenningin er sú að vegna athafna mannkynsins muni hiti á jörðinni fara hækkandi á næstu árum með alvarlegum afleiðingum fyrir efnahag íjölmargra ríkja auk þess sem heimskautaís og jöklar muni bráðna og höf stækka og færa láglendi í kaf. Áhyggjur manna af umhverfinu eru að sjálfsögðu að hluta til byggðar á raunverulegum hættum sem að steðja. Gegn þeim þurfa einstakling- ar, þjóðir og samfélag þjóða heims að snúast af krafti. Um það geta vafa- laust alhr verið sammála. Hins vegar hefur umhverfismála- umræða síðustu ára, ekki síst í Bandaríkjunum, dregið nokkuð ljósa f markalínu milli tveggja gjörólíkra grundvallarviðhorfa til lífs á jörð- inni. Staða mannsins Þessi markalína kemur í ljós þegar spurt er hvort hagsmunir og velferð mannsins eigi að skipta meira máh en „ósnert" náttúra eða yfirleitt ann- að líf á hnettinum. Flestir svara shkri spurningu að sjálfsögðu játandi. Forsenda manns- lífsins hefur verið og er að maðurinn geti nýtt auðlindir náttúrunnar, þeg- ar best lætur af skynsemi og fram- sýni. Þess vegna hefur inaðurinn frá alda öðli lagt áherslu á að virkja náttúruöflin og nýta í sína þágu auð- lindir jarðar. Það eru hins vegar ekki allir á þess- ari skoðun. Ýmsir þrýstihópar leggja á það áherslu að aht líf sé jafnrétt- hátt. Þess vegna sé jafnmikilvægt - ef ekki enn mikilvægara - að varð- veita gamalt rauðviðartré í Kalifor- níu og mannslíf. Slíkir hópar telja þá iðnvæðingu, sem ahsnægtaþjóðfélag nútímans byggir á, hinn mesta skaðvald og vilja snúa klukku framþróunarinnar aftur á bak. „Hrein" náttúra Þessari umræðu eru gerð ágæt skil í hugvekju Bill McKibbens, The End of Nature, þótt hann sé verulega hall- ur undir áðurnefnd öfgasjónarmið. Hann er einnig talsmaður þess við- horfs að „náttúran" sé í reynd liðin undir lok. Með því á hann við að ekki sé lengur th sá staður á jarðríki þar sem maðurinn hafi ekki einhver áhrif á umhverfið. Algjörlega sjálf- stæð og „ósnert“ náttúra sé því úr sögunni. Héma er í raun komið að annarri hlið spurningarinnar sem áðan var rakin. Hefur það eitthvert gildi í sjálfu sér að náttúran sé varin gegn öhum tengslum við manninn eða verk hans? Með öðrum orðum: hvers virði er náttúrufegurð sem enginn fær að njóta? Það er hollt að velta þessum spurn- ingum fyrir sér og kynnast óhkum viðhorfum th stöðu mannsins í lífrík- inu. Shk ágreiningsmál munu vafa- laust setja svip sinn á þjóðfélagsum- ræðu á Vesturlöndum og reyndar víðar á komandi árum. Þessi hug- vekja er vel og skipulega unnið inn- legg í þá umræðu frá sjónarhóh rót- tæks umhverfisverndarsinna sem reyndar sýnir fram á það í leiðinni að hann sjálfur hagi lífi sínu í sam- ræmi viö skoðanir sínar. Það er til fyrirmyndar. THE END OF NATURE. Höfundur: Bill McKibben. Penguin Books, 1990. Metsölukiljur Bretland Sköldsögur: 1. Danietle Steel: DADDY. 2. P.D. James: DEVICES AND DESiRES. 3. Oick Francie: STRAIGHT. 4. Catberine Cookson: THE BLACK CANDLE. 5. Colin Forbes: SHOCKWAVE. S. Urnborto Eco: FOUCAULT’S PENDULUM. 7. Noel Barber: DAUGHTERS OF THE PRINCE. 8. Jonniíer Lyncb: THE SECRET DIAHY OF LAURA PALMER. 9. Dean fl. Koontz: THE BAD PLACE. 10. Terry Pratchett: GUAROSi GUARDSI Rii almenns eðlis: 1. Roeemary Conley: COMPLETE Hlp « THIGH DIET. 2. Peter Mayle: A YEAR IN PROVENCE. 3. Cleeae & Skynner: FAMILIES AND HOW TO SURVIVE THEM. . 4. Roeemary Conley: INCH-LOSS PLAN, 5. Hannah Hauxwell: SEASONS OF MY UFE. S. Denls Healey: THE TIME OF MY LIFE. 7. Roeemary Conloy: DIET AND FITNESS ACTION PACK. 8. THE 1991 GOOD PUB GUIDE. 9. EGON RONAY: CELLNET GUIDE TO HOTELS « RESTAURANTS 1991. 10. Tom Jaine: THE GOOD FOOD GUIOE 1991. (Byggt á The Sunday Tlmes) Bandaríkin Skáldsögur; 1. Mlchael Blake: DANCES WITH WOLVES. 2. Stephen King: MISERY. 3. Tom WoHe: THE BONFIRE OF THE VANITIES. 4. Umberto Eco: FOUCAULT’S PENDULUM. 5. Dean R. Koontz: THE BAD PLACE. 6. Stephen Klng: THE DARK HALF. 7. Tony Híllerman: TALKING GOD. 9. Danlelle Steel: DADDY. 9. Peier Straub: MYSTERY. 10. Philip Frledman: REASONABLE DOUBT. 11. John le Carré: THE RUSSIA HOUSE. 12. V.C. AndrewB: DAWN. 13. John Saul: SLEEPWALK. 14. stepben King; 15. Len Deighton: SPY LINE. Rit almenns eðlis: 1. Robert Putghum: ALL I REALLY NEED TO KNOW I LEARNED IN KINDERGARTEN. 2. Cleveland Amory: THE CAT WHO CAME FOR CHRISTMAS. 3. Clltt Stoll: V THE CUCKOO’S EGG. 4. Thomas L. Friedman; FROM BEIRUT TO JERUSALÉM. 5. M. Scott Peck: THE ROAD LESS TRAVELED. 6. Lynn Goldsmlth: NEW KIDS ON THE BLOCK. 7. stephen Hawking: A BRIEF HISTORY OF TIME. 8. Mlchael Lewis; LIAR’S POKER. 9. Louls L’Amour: EDUCATION OF WANDERINQ MAN. 10. Jill Ker Conway: THE ROAD FROM COORAIN. (Byggt á Now York Times Book Resicw) Danmörk Skáldsögur: 1. André Brlnk: EN KÆDE AF STEMMER. 2. Jean M. Auel: MAMMUTJÆGERNE. 3. Jean M. Auel: HESTENES DAL. 4. Isabel Allende: EVA LUNA. 5. Jean M. Auel: HULEBJORNENS KLAN. 6. Helle Stangerup: CHRISTINE. 7. isabel Allende: ANDERNES HUS. 8. A. de Saint-Exupéry: DEN LILLE PRINS. 9. Seattfe: VI ER EN DEL AF JORDEN. 10. ScoH Turow: MÁSKE USKYLDIQ. (Byggt é Politlken Sondag) Umsjón: Elías Snæland Jónsson Sögur úr Gúlaginu Alexander Solsjenitsyn er kunnastur þeirra manna sem rit- að hafa um lífið í sovéska Gúlag- inu. Hann er hins vegar langt í frá eini sovéski-rithöfundurinn sem hefur smíðað úr reynslu sinni sem pólitískur fangi komm- únista magnaðan skáldskap. Varlam Shalamov, sem lést árið 1982, samdi áhrifamiklar smásög- ur um nöturlega tilveru í fanga- búðunum í Kolyma í Síberíu, en 2-3 milljónir fanga létu lífið í þrælkunarbúðum þar að mati Robert Conquest. Shalamov var sendur til Síberíu árið 1937 og slapp ekki þaðan fyrr en nærri einum og hálfum áratug síðar, árið 1951. Eftir dauða Stal- íns fékk hann að búa í Moskvu þar sem honum tókst um síðir að fá ljóð sín útgefin. Smásögurnar um fangalifið birtust hins vegar fyrst erlendis. Þessar yfirlætislausu og raun- sönnu sögur færa lesandann inn í ótrúlegan heim mannvonsku og grimmdar í afar harðbýlu landi þar sem dagur og nótt hinna ógæfusömu snýst um aö eitt að reyna að halda Hfi til næsta dags. KOLYMA TALES. Höfundur: Varlam Shalamov. Penguin Books, 1990. Helförin og sagnfræðin Skipulögð útrýming gyðinga í Evrópu á valdatíma þýsku nas- istanna er einn óhugnanlegasti glæpur í sögu mannkynsins. í þessari athyghsverðu bók er reynt að gefa nokkra mynd af því hvaða meðferð helforin mikla hefur fengið hjá sagnfræðingum ýmissa landa síðustu áratugina. Fjallað er í sérstökum köflum um afmarkaða þætti svo sem gyð- ingahatur í Þýskalandi og for- sögu hinnar „endanlegu lausn- ar“, um afstööu íbúa og stjóm- valda í þeim ríkjum sem stóðu með nasistum eða vora hemum- in af þeim til útrýmingar „eigin“ gyðinga, um fómarlömþin og skipulagða mótspyrnu gyðinga, um afstöðu þeirra sem horfðu á svo sem frjálsra evrópskra þjóða, hlutlausra ríkja og stofnana eins og kaþólsku kirkjunnar, og loks um hvemig staðið var að málum þegar leið að lokum stríðsins. Höfundurinn bendir á að nú orðið sé fyrst og fremst á sagn- fræðinga að treysta að koma á framfæri þekkingu á helförinni miklu og að könnun hans leiði í ljós að þótt margt megi betur fara séu sagnfræðingamir yfirleitt trausts verðir. THE HOLOCAUST IN HISTORY. Höfundur: Michael R. Marrus. Penguin Books, 1989.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.