Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1991, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1991, Page 13
LAUGARDAGUR 26. JANUAR 1991. 13 Bridge Eggert Benónýsson Nýlega lést góður vinur minn og fyrrverandi bridgefélagi, Eggert Benónýsson útvarpsvirkjameist- ari. Við Eggert kynntumst fyrst árið 1955 og ári síðar urðum við íslands- meistarar í sveitakeppni með Brynjólfi Stefánssyni, forstjóra Sjóvá, Kristjáni Kristjánssyni söngvara og Ólafi H. Ólafssyni, síð- ar lækni. Eggert var þá að vinna sinn 3ja íslandsmeistaratitil á fimm árum, en á næsta áratug unnum við íslandsmeistaratitilinn sex sinnum saman, þar af þrisvar sem fastir makkerar. Á þessum árum vann Eggert tvisvar íslandsmeistaratitilinn í tvímenningskeppni, árið 1958 með Stefáni Stefánssyni og 1962 með Þóri Sigurðssyni. Eins og að líkum lætur var Egg- ert viðloðandi landslið íslands í tvo áratugi. Hann spilaði margoft á Norðurlandamótum, þrisvar sinn- um á Evrópumótum og einu sinni á ólympíumóti. Leiðir ókkar Eggerts í landsliði lágu fyrst saman árið 1958, en þá vorum við fulltrúar íslands á Evr- ópumótum í Osló. Frammistaðan var nú heldur kién, en við náðum þó að vinna einn stærsta sigur ís- lenskrar bridgesveitar fyrr og síðar þegar við sigruðum „bláu sveit- ina“, ítalina sem næstu 10 árin héldu Evrópumeistarartitlum og heimsmeistaratitlum í jámgreip- um sínum. Þessi leikur er mér enn- þá minnisstæður því ítahmir vom „burstaðir“, þ.e. við sigruðum 2-0, sem jafgilti 20 gegn mínus 5 eftir þeirri stigagjöf sem notuð var til skamms tíma. Eggert spilaði þá við Stefán heitinn Stefánsson og varð eitt spil frá leiknum heimsfrægt eftir að hinn kunni bridgemeistari Harrison Gray skrifaði um það. Við skulum skoða þetta spil því það sýnir glöggt keppnisskap og sagnhörku Eggerts. Þaö kom hins vegar í hlut Stefáns Stefánssonar að spila spilið, sem hann leysti frá- bærlega. V/0 * K832 V - ♦ 853 + 985432 ♦ 4 ¥ DG108753 ♦ D42 + K6 N V A S ♦ ÁG109 V Á94 ♦ Á1076 + ÁD * D765 ¥ K62 ♦ KG9 + G107 Með Belladonna og Avarelli n-s en Eggert og Stefán a-v gengu sagn- ir á þessa leið: Vestur Norður Austur Suður pass 3hjörtu dobl pass 4lauf pass 4hjörtu pass 4spaðar pass 5spaðar! pass pass pass • Útspilið var tígultvistur sem var drepinn á ás. Þá kom hjartaás og tígli kastað. Þá var hjarta trompaö, laufadrottningu svínað og laufás Frá ólympíumótinu í Frakklandi. Fyrsti leikur íslands var gegn Portúgal. Við Eggert erum hér að spila við Texeirabræður og tryggur stuðningsmaður sveitarinnar, Jakob R. Möller, horfir á. dirfsku hans viðbrugðiö. Þetta gerði hann að hættulegum and- stæðingi fyrir hvern sem var og varð ég vitni að því hve hann slapp oft ótrúlega vel frá dirfskubrögöum sínum, sérstaklega gegn útlending- um sem ekki þekktu til. Það var engin lognmolla við spilaborðið þar sem Eggert sat og oft var erfitt að lesa úr sögnum hans, bæði fyrir makker og and- stæðingana. En skemmtilegur spilafélagi var Eggert, þótt hann gæti verið hvassyrtur, þegar ungl- ingurinn á móti honum las ekki allar gerðir hans rétt. Eggert starfaði mikið að félags- málum bridgehreyfingarinnar á löngum æviferh sínum. Árið 1953 gaf hann út og ritstýrði fyrsta bridgetímariti á íslandi. Hann sat í stjóm Bridgefélags Reykjavíkur í nokkur ár bæði sem formaöur og meðstjórnandi. Fyrir nokkrum árum var hann gerður að heiðurs- félaga í Bridgefélaginu ásamt því að vera sæmdur guiimerki félags- ins. Einnig stjórnaði hann Bridge- sambandi íslands og sat í stjóm þess. Ég sendi vinum hans og vanda- mönnum samúðarkveðjur. Stefán Guðjohnsen Bridge Stefán Guðjohnsen tekinn. Síðan var hjarta trompað og lauf trompað. Tígull var næstur og suður drap með kóng. Hann trompaði nú út og tían í blindum átti slaginn. Þá kom tígull, tromp- aður með kóng og lauf, gefið í blind- um, en suður varð að trompa og spila síðan upp í trompgaffalinn. Á þessum áram vorum við Egg- ert einungis sveitarfélagar en spil- uðum svo til aldrei saman. Árið 1967 spiluðum við saman sem mak- kerar í landsliðinu á Evrópumeist- aramótinu í Dublin og náði sveitin 5. sæti eftir heldur laka byijun. Seinni hluta mótsins unnum við hins vegar alla leiki nema tvo og áttum um tíma möguleika á verð- launasæti. Ári síðar vorum við makkerar á ólympíumótinu í Frakklandi þar sem ísland náði 10. sæti sem var einn besti árangur landshðsins um árabil. Eggert haföi þá nýlega náð sextugsaldri og spilaði betur en nokkm sinni fyrr. Það var mikill styrkur að hafa Eggert sem sveitarfélaga og keppn- isskapið og baráttuþrekið var ódrepandi. Aldrei gafst hann upp þó á móti blési og ég minnist sérs- taklega þess að þegar misjafniega gekk á erfiðum mótum sagði Egg- ert: „Nú fara andstæðingamir að þreytast og þá verður mikið af stig- um á lausu." Eggert var náttúruspilari og í sókn og vörn var hann flestum fremri. í sögnum fór hann sjaldn- ast troðnar slóðir og var sagn- Rannsóknaráð Bridgefélag Akureyrar: Sigurður og Sverrir efstir Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii: Sverrir Þórisson og Sigurður Thor- arensen em efstir þegar 5 umferðir hafa verið spilaðar í Akureyrarmót- inu í tvímenningi í bridge. Alls taka 28 pör þátt í mótinu og spila 5 spil miÚi para. Staða efstu paranna eftir 5 umferðir er þessi: 1. Sigurður Thorarensen - Sverrir Þórisson 82. 2. Haukur Jónsson - Haukur Harðarson 78. 3. Ævar Ármannsson - ■ Hilmar Jakobsson 64. 4. Anton Haraldsson - Jakob Kristinsson 60. 5. Magnús Aðalbjörnsson - Gunniaugur Guðmundsson 40. 6. Sigfús Hreiðarsson - Ármann Helgason 34. 7. -8. Reynir Helgason - Jón Sverrisson 25. 7.-8. Sveinbjörn Sigurðsson - Haukur Jónsson 25. 9. Ormarr Snæbjörnsson - Sturla Snæbjörnsson 17. 10. Gunnar Berg - Kristján Guðjónsson 15. Næstu 5 umferðir verða spilaðar nk. þriðjudag aö Hamri, félagsheim- iii Þórs, kl. 19.30. auglýsir styrki til rannsókna og tilrauna árið 1991 Umsóknarfrestur er til 1. mars nk. Umsóknareyðublöð fást á skrif- stofu ráðsins, Laugavegi 13, sími 21320. • Um styrk geta sótt fyrirtæki, stofnanir eða einstaklingar. • Styrktarfé skal varið til rannsókna og þróunar á nýrri tækni og afurðum sem talin er þörf fyrir næsta áratug. • Mat á verkefnum, sem sótt er um styrk til, skal m.a. byggt á: - líklegri gagnsemi verkefnis, m.a. markaðsgildi niðurstaðna, sem sóst er eftir - gildi fyrir eflingu tækniþekkingar eða þróun atvinnugreina hér á landi - hæfni umsækjenda/rannsóknamanna. Forgangs skulu að öðru jöfnu njóta verkefni sem svo háttar um að: - fyrirtæki leggja umtalsvert framlag til verkefnisins - samvinna fyrirtækja og stofnana innanlands er mikilvægur þáttur í framkvæmd verkefnisins - samstarf við erlend fyrirtæki og rannsókna- og þróunarstofnanir er mikilvægt - líkindi eru á skjótum og umtalsverðum árangri fyrir atvinnurekstur. Heimilt er einnig að styrkja verkefni sem miða að uppbyggingu þekk- ingar og færni á tæknisviðum sem talin eru mikilvæg fyrir atvinnuþró- un hér á landi í framtíðinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.