Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1991, Síða 14
14
LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 1991.
Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLÚN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11,105 RVlK, SlMI (91J27022 - FAX: (91)27079
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1100 kr.
Verð í lausasölu virka daga 105 kr. - Helgarblað 130 kr.
Ráðherra ræktar spiUingu
Ólafur Ragnar Grímsson íjármálaráðherra er ekki
sammála Ríkisendurskoðun, sem segir, að hann hafi átt
að gæta betur hagsmuna ríkissjóðs við sölu Þormóðs
ramma á Siglufirði. Fjármálaráðherra hefur raunar
aldrei verið sammála gagnrýni, sem hann hefur sætt.
Fjármálaráðherra var ekki heldur sammála Ríkis-
endurskoðun á sínum tíma, þegar hún átaldi hann fyrir
að gefa eftir opinber gjöld Tímans og Svarts á hvítu,
þegar hann gekk sem harðast fram í að loka fyrirtækj-
um, sem ekki voru í sömu stjórnmálanáð og þessi tvö.
Fjármálaráðherra er auðvitað ekki heldur sammála
Umboðsmanni alþingis, sem hefur látið fara frá sér
óþægilegar álitsgerðir, sem ráðherrann telur sína menn
ekki hafa tíma til að svara. Ráðherrann hefur reynt að
fá Alþingi til að draga úr fjárveitingum til umbans.
Næst má búast við, að fjármálaráðherra geri tilraun
til að fá Alþingi til að minnka fjárveitingar til Ríkisend-
urskoðunar eins og Umboðsmanns. Það væri í stíl við
fyrri vinnubrögð hans á því sviði. Hann er afar ósáttur
við, að stofnanir Alþings kássist upp á ráðherra.
Fjármálaráðherra seldi Þormóð ramma til alþýðu-
bandalagsmanna án þess að gæta jafnræðissjónarmiða.
Hlutabréfm voru aldrei auglýst formlega til sölu. Þess
vegna voru ekki heldur til neinir almennir útboðsskil-
málar, sem allir lysthafendur ættu að fara eftir.
Verðgildi hlutabréfa finnst aðeins á þann hátt, að þau
séu boðin til frjálsrar sölu með opinberlega birtum skil-
málum, svo að allir geti boðið í þau á sömu forsendum.
Verðgildi hlutabréfa fmnst ekki í deilum milli endur-
skoðenda um, hvaða reikningsaðferðir.séu beztar.
Stjórnmálaandstæðingar ráðherrans á Norðurlandi
vestra hafa vakið athygli á, að verðmæti aflans í vinnslu
hjá Þormóði ramma væri eitt út af fyrir sig meira en
allar skuldir fyrirtækisins, auðvitað fyrir utan eign þess
á þremur togurum og fiskiðjuverinu á Siglufirði.
Endalaust má svo deila um, hvort endurskoðunar-
reglur séu réttari hjá Þormóði ramma eða Ríkisendur-
skoðun. Þær eru samt ekki kjarni málsins. Hann felst
í, að ráðherra vék sér undan því að láta fyrirtækið í
sölu á fijálsan, opinn og almennan jafnræðismarkað.
Fjármálaráðherra tók fram, að Ríkisendurskoðun
væri ekki dómstóll, þegar hún amaðist við, að hann
skyldi strika út opinber gjöld Tímans og Svarts á hvítu.
Það er út af fyrir sig rétt, en er þó haldlítið, því að í
báðum tilvikum var mismunað með ráðherravaldi.
Þegar fjármálaráðherra víkur átta milljónum að einu
gæludýri flokks síns, 23 milljónum að öðru og meira en
hundrað milljónum að hinu þriðja, getur hann auðvitað
í hvert skipti útvegað sér langsótta útúrsnúninga, sem
hann teflir fram gegn athugasemdum eftirlitsmanna.
Þegar íjármálaráðherra hélt flokksbræðrum sínum
fræga veizlu í Ráðherrabústaðnum, sagði hann, að veizl-
an hefði verið haldin til að fagna sigri íslendinga í land-
helgisdeilunni, sem vannst tíu árum áður en veizlan var
haldin og var ekkert einkamál Alþýðubandalagsins.
Ólafur Ragnar Grímsson er ekki einn um misbeitingu
ráðherravalds, þótt hann gangi fram í því af óvenjuleg-
um ofstopa. Misbeiting ráðherravalds er svarti blettur-
inn á íslenzka lýðveldinu og minnir mjög á þriðja heim-
inn. Þormóður rammi er bara hluti þessarar harmsögu.
íslendingum er minnkun að því sem sjálfstæðri þjóð
að hafa ekki komið upp viðskiptaháttum, sem þrengja
að svigrúmi ráðherra til ræktunar á spillingu.
Jónas Kristjánsson
Önnur lota loft-
hemaðar beinist
gegn íraksher
Herferð fjölþjóðaliðs undir
bandarískri forustu gegn írak er
farin í skjóli samþykktar Öryggis-
ráðs Sameinuðu þjóðanna um að
heimilt sé að beita þeim ráðum sem
þörf gerist til að aílétta hernámi
Iraks á Kuvæt. Eftir viku hernað
er ljóst að hemaðaráætlun banda-
rísku yflrherstjórnarinnar, sem
ræður framvindu hernaðaraðgerð-
anna sem hún hefur yfir að segja,
gerir ráð fyrir að frelsun Kuvæts
komi nær lokum stríðsins en upp-
hafi.
Fram til þessa hefur atlagan að
írak nær einvörðungu falist í loft-
hernaði. Flugsveitir frá sex ríkjum
taka þátt en árásarmátturinn er að
minnsta kosti að níu tíundu hlut-
um bandarískur. Eins og vænta
mátti var fyrst í stað einkum ráðist
á loftvamir íraka, fjarskiptakerfi
og stjómstöðvar. Þá tóku við árásir
á hergagnaverksmiðjur, sér í lagi
þær sem taldar eru framleiöa gas-
sprengjur og sýklavopn, aflstöðvar
og olíuhreinsunarstöðvar.
En jafnframt var frá upphafi
haldið uppi árásum á tvær þyrp-
ingar íraska hersveita. Önnur er
sú sem búið hefur um sig í Kuvæt
og beinir vopnum yfir landamærin
við Saudi-Arabíu að liðinu sem þar
hefur drifið saman undanfarna
mánuði. Þessar sveitir skipa írakar
er gegna herskyldu mestan part,
og þykja þær ekki til stórræða.
Hitt skotmark loftárása á herlið er
Forsetavörðurinn, blómi íraks-
hers. í honum em fimm herdeildir
og hefur frá því skömmu eftir að
sjá mátti að eftirmál gætu sprottið
af hemámi Kuvæts haldið sig í
Suður-írak, skammt þaðan sem
landamæri þess, Kuvæt og Saudi-
Arabíu koma saman. Var bersýni-
lega ætlun Saddams Husseins að
hafa þetta einvalalið sitt til taks á
hentugasta stað til að geta sent það
á vettvang eftir þörfum þangað sem
þörf þætti brýnust á líklegri vígl-
ínu.
Setuhðið í Kuvæt og Forsetavörð-
urinn munu til samans vera eitt-
hvað á sjöunda hundrað þúsund
manns. Slíkur grúi þarf mikla að-
drætti, vistir, skotfæri, varahluti í
vopn og hvaðeina. Næsta skref í
lofthernaðinum gegn írak er að
reyna að rjúfa aðdráttaleiðir þessa
herafla eins og kostur er og valda
jafnframt sem mestum usla í liðinu
sjálfu með beinum árásum á her-
búðir og byrgi.
Colin Powell, forseti yfirherráös
Bandaríkjanna, lýsti þessari hern-
aðaráætlun opinskátt á fundi með
fréttamönnum í vikunni. Hann
boðaði að yfirráð í lofti yfir írak
Erlend tídindi
Magnús Torfi Ólafsson
yrðu fyrst og fremst notuð til að
„króa af og drepa“ (cut off and
kill). Og ekki var laust við að hlakk-
aði í hershöfðingjanum: „Við eig-
um verkfærakistu sem er full af
verkfærum, og við höfðum þau öll
með okkur til veislunnar."
Von Powells og samstarfsmanna
hans er að yfirráðin í lofti geri flug-
hemum, sem þeir hafa til umráða,
fært að þjarma svo að íraska land-
hemum, bæði þeim hluta hans sem
mannar framvarðlínu og varalið-
inu í Forsetaverðinum, að land-
herinn, sem safnast hefur saman í
Saudi-Arabíu, sleppi sem fremst
má verða við að þurfa að hrekja
íraksher úr Kuvæt með atlögu
vélahersveita að víggirtum stöðv-
um. Draumur Bandaríkjastjórnar
um frægan sigur á írak án stór-
fellds manntjóns í eigin liði veltur
á því hversu þessi hernaðaráætlun
stenst.
í stríðinu gegn írak beita Banda-
ríkjamenn úr lofti hátæknivopn-
um, bæði flugskeytum, flugvéla-
gerðum og geislastýrðum eldflaug-
um og sprengjum. Á flest þeirra
reynir nú í fyrsta skipti í hernaði.
Vopn þessi hafa yfirleitt reynst
áreiðanlegri en búist var við. Eftir
er að sjá hvort þau duga til þess
sem aldrei hefur tekist áður, að
vinna bug úr lofti á öflugum land-
her, sem hefst við í víggirðingum
en er ekki á hreyfingu.
Á þetta verður nú látið reyna, í
öðrum þætti styrjaldarinnar gegn
írak. Bandarískir ráðamenn forð-
ast að láta nokkuð uppi um hve
lengi þeir búast við að loftsókn sín
gegn íraksher þurfi að standa til
að hún beri árangur. En undir niðri
virðast þeir ætla sér einhverjar
vikur.
Saddam Hussein túlkar fyrir þjóð
og her íraks þessa hernaðaraðferö
óvinanna svo að þeir áræði ekki
að ráðast beint á íraska landher-
inn, en til langframa komist þeir
ekki hjá því, og þá muni stríðs-
gæfan snúast. Úrslitaatriði í þeim
kafla stríðsins, sem í hönd fer, virð-
ast því einkum tvö. Annars vegar
geta flugsveitanna, einkum hinna
bandarísku, til að rjúfa aðdrátta-
leiðir setuhðsins í Kuvæt og For-
setavarðarins. Hins vegar hvað eft-
ir er hjá íraksher af þrautseigjunni
sem hann sýndi í átta ára stríði við
íran.
Meginmarkmið Bandaríkja-
stjómar í stríðinu er að lama til
frambúðar hemaðarmátt íraks.
Eftir viku lofthemað, hinn harð-
asta sem um getur, er þar land-
herinn einn eftir, fyrir utan eld-
flaugar sem komast fæstar í mark
og eru þar að auki ógnarvopn gegn
óbreyttum borgurum en ekki
skeinuhættar herjum.
Takist svo að svelta og sprengja
íraksher í upplausn þýðir það ekki
bara að Kuvæt verður sjálfstætt á
ný án stórfelldra mannfórna af
hálfu sóknaraðila. Um leið væri úr
sögunni það afl sem haldið hefur
saman sundurleitu ríki ólíkra þjóð-
erna og trúflokka.
Enn verður mönnum því hugsað
til þess hvort Saddam Hussein hef-
ur tekist að undiroka svo alla for-
ustu hersins að þar treysti sér eng-
inn til að reyna að taka fram fyrir
hendur honum og afstýra því að
hann steypi írak í frekari þrenging-
ar en orðið er.
Vandinn er sá að þær stjórnir
nágrannaríkja, sem reynt hafa að
afla sér ítaka á launí írak, stjómir
Sýrlands og írans, era eins vísar
til að gera það í eigin útþenslu-
skyni og til að losa sig við háskaleg-
an valdhafa í aðhggjandi ríki. íra-
skir þjóðernissinnar era því ekki
líklegir til að leita sér trausts og
halds í Damaskus eða Teheran.
Engum dettur í hug að fiölþjóða-
Uð undir bandarískri forustu taki
sér fyrir hendur að hertaka írak
og skipa þar málum, eftir að tekist
hefur að bijóta valdakerfi Saddams
á bak aftur. Ljóst er hins vegar að
það er meginmarkmið George
Bush Bandaríkjaforseta, og frelsun
Kuvæts aðeins leið að markinu.
Bandarískir fréttamenn eru
teknir að hafa orð á því að stjóm
Saudi-Arabíu æth sér að hjálpa
nýjum stjómendum í Bagdad við
að halda írak saman að sigri unn-
um á Saddam, og séu Saudar tekn-
ir að senda völdum íröskum hers-
höföingjum boð þess efnis.
Magnús Torfi Ólafsson
Skriðdreki (rá 1. fótgönguliðsherdeild Bandaríkjahers dregur vörubíl upp úr leðjunni á miðvikudag eftir að
nokkurra daga úrfelli hafði breytt eyðimörfcinnl f kvlksyndl. Símamynd Reuter