Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1991, Page 18
18
LAUGARPAGUR 26. JANÚAR 1991.
Veiðivon
Þeyst á vélsleða eftir ísnum á Ólafsfjarðarvatni.
Það er ýmislegt hægt að veiða, kola, bleikju og laxaseiði.
Bleikjan og kolinn
tóku beituna grimmt
„Þetta var geysilega
skemmtilegt, að renna
þarna fyrir fisk af ýmsum
gerðum og stærðum," sagði
Björn G. Sigurðsson, for-
maður Dorgveiðifélags ís-
lands, í vikunni en hann og
Guðmundur Stefán Marías-
son heimsóttu Ólafsfjarðar-
vatn fyrir fáeinum dögum.
Með tilkomu ganga gegnum
Ólafsfjarðarmúlann er ver-
ið að tala um allt annað að
vetri til en áður hefur verið.
„Aöstaðan er góð þarna í
og við vatnið og veiðileyfið
er aðeins selt á 500 krónur.
Veiðimenn hafa verið að fá
góða veiði þarna, hópur sem
var þarna fyrir fáeinum
dögum veiddi 25 silunga,
mest bleikju. Hótelið lánar
bor og leigir stangir til veið-
anna,“ sagði Björn enn-
fremur.
„Það er gaman að reyna
eitthvað nýtt og renna fyrir
fleiri fisktegundir," sagði
Guðmundur Stefán Marías-
son um Ólafsfjarðarvatn
sveiöina.
Áhugi á dorgveiði er mik-
ill þessa dagana en veður-
guðirnir hafa verið erfiðir
dorgurum síðustu vikur.
Ferðaþjónusta bænda hefur
líka boðið upp á dorgveiði í
næsta nágrenni nokkurra
bæja. Hefur þessu verið vél
tekið af dorgurum víða um
land.
-G.Bender
DV-myndir Guðmundur Stefán
• r ac
Þjodar-
spaug DV
Erflðir tímar
„Þetta eru erfiöir timar,“ sagði
óvinsæll tannlæknir. „Ég hef
bara ekki séð kjaft í dag.“
Nítján böm
Maður nokkur, sem átti nítján
börn, var að því spurður hvort
þetta hefði ekki oft verið ansi
gaman.
„0, blessaður vertu, maður,“
svaraði hann. „Þaö er lítið annað
en tilferðina eina upp úr svona
að hafa.“
Eitthvað slöpp
Maöur nokkur var spurður að
því hvað hrjáði konu hans. Hann
svaraði:
„Það er eitthvert sinnuleysi,
dálítið minnisleysi og vænn
skammtur af skilningsleysi."
Snúran
Á fyrstu dögum landssímans
hringdi kona niður á símstöðina
í Reykjavik og sagöi:
„Snúran á símanum mínum er
svo fjandi löng og óþægileg. Viljið
þið ekki gera svo vel að vefja eilít-
ið upp á hana, þarna ykkar meg-
in
Ógifta konan
Bæn ógiftu konunnar:
„Ég bið ekki um neitt handa
sjálfri mér en vinsamlegast sendu
foreldrum mínum tengdason."
snemma dags
„Mér fmnst sem ég yngist um
txu ár þegar ég raka mig svona á
morgnana," sagði eiginmaðurinn
við konu sína.
„Viltu þá ekki heldur raka þig
á kvöldin, Brynleifur minn,“
svaraði konan af bragði.
Tekur þú ennþá þúsundkall fyrir klippingu og rakstur? Nafn:.........
Heimilisfang:
Myndirnar tvær 'virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
flmm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum liðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1. Sharp útvarpstæki með seg-
ulbandi að verðmæti kr. 8.500.
2. Sharp útvarpstæki með seg-
ulbandi að verðmæti kr. 8.500.
Vinningarnir koma frá versl-
uninni Hljómbæ, Hverfisgötu
103, Reykjavík.
Merkið umslagið með
lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 90
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir áttu-
gustu og áttundu getraun
reyndust vera:
1. María Hansen,
Skagfirðingabraut 31, 550
Sauðárkróki.
2. Agnes Ágúsdóttir,
Háaleitisbraut 113, 108
Reykjavík.
Vinningshafar fyrir áttugustu
og sjöundu getraun reyndust
vera:
t
/