Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1991, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1991, Síða 23
22 JLAIIGARDAGUR 26. JANÚAR 1991. Fjölmiðlapar í fréttaleit: í snertingu við heimsviðburðina - Þórir Guðmundsson kominn heim úr ellefu mánaða ferðalagi Hamborg• Berlln tVar*$inst Íaill.L.:íS:@í: p •Dresden ^tTMuncheo9* .Búdapest Genf • Vín*Zagreb .;.:í Ijúbttana* . ,fj£MM§s Betgrod Pristma Pokhara ••Katmandú Deihl Chltwanþjóögaröurinn Varanasi Chiang M, ii Bangkok í ellefu mánuði Til Sydney Þetta kort sýnir viökomustaði fréttaparsins á undanförnum ellefu mánuðum. Adda Steina Björnsdóttir og Þórir Guðmundsson hafa þvælst um Austur- Evrópu, Sovétrikin, Indland, Thailand og Ástraliu á undanförnum ellefu mánuðum og sent fréttir heim til íslands. „Ég var búinn að ganga með í maganum í mörg ár að fara í ferðalag sem þetta. Þegar ég kynntist konu minni, Öddu Steinu Bjömsdóttur, kom í ljós'að hún hafði sama áhuga- mál. Við höfðum þess vegna stefnt að því um alllangt skeið að láta drauminn rætast,“ segir Þórir Guð- mundsson, fréttamaður á Stöð 2, sem kom frá Astraiíu sl. mánudag eftir ellefu mánaða ferðalag um Austur- Evrópu, Indland, Thailand, Þýska- land, Sovétríkin og Ástralíu. Þórir fór eingöngu í ferðalagið sem frétta- maður og sama má segja um eigin- konu hans, Öddu Steinu, sem sendi fréttir til Ríkisútvarpsins þennan tíma. Adda Steina kemur þó ekki heim fyrr en í lok febrúar þar sem hún situr nú kirkjuþing í Sydney en hún er guðfræðingur að mennt. Þór- ir flýtti hins vegar heimferðinni vegna Persaflóastríðsins. „Við voram búin að skipuleggja þessa ferð frá þeim degi sem við kynntumst," segir Þórir er hann var spurður um aðdragandann. „Ég hef einu sinni áður farið í svona ferðalag en þá til Indlands, Thailands, Evrópu,. Japans, Hong Kong og Bandaríkj- anna. Þá var ég í sex mánuði en þaö var árið 1984. Sú ferð endaði reyndar í Los Angeles þaðan sem ég flutti fréttir fyrir DV. Mig langaði alltaf aftur og það passaöi mjög vel þegar við Adda Steina kynntumst að hún hafði verið að skipuleggja eins ferð í huganum í langan tíma. Það má segja að þessi ferð hafi verið skipulögð á þremur áram,“ segir Þórir. Ferðinni frestað Hann segir að nauðsynlegt sé að undirbúa ferð sem þessa vel áður en farið er en tekur þó fram að ekki sé hægt að skipuleggja hana að öllu leyti. „Við voram búin að ákveða fyrst að byrja í Asíu en smám saman breyttist það í Austur-Evrópu vegna þess hversu mikið var að gerast þar. Reyndar ætluðum við að vera þar fyrir einu og hálfu ári þegar allar lýðræðisbyltingamar áttu sér stað. Tímasetning fararinnar var alltaf haustið 1989 en sumarið áður ákváð- um við að fresta ferðinni til áramóta og safna okkur meiri peningum. Vegna þess misstum við af sjálfri byltingunni en komum í staðinn í kjölfar hennar og gátum því fylgst með framhaldinu - hvað tæki við hjá fólkinu eftir aö kommúnisminn væri niöurlagður." Þórir og Adda Steina ákváðu að leggja til hliðar og eiga varasjóð þeg- ar haldið yrði af stað. Þau höfðu ný- verið keypt sér íbúö en vora að ljúka afborgunum af henni þegar ferðalag- ið átti að hefjast. „Við höfðum bæöi ferðast sem bakpokaferðalangar og höfðum ekki áhuga á að gera það aftur. Okkur langaði heldur ekki að verða staurblönk einhvers staðar úti í heimi og þess vegna söfnuðum við tvö hundraö þúsund krónum til að hafa í bakhöndinni. Það kom síðar í ljós að þessir peningar, sem við spör- uðum, vora ekki beint nauðsynlegir. Við gátum haldið okkur uppi á þeim launum sem við öfluðum með vinn- unni,“ segir Þórir. í niðumíddri íbúð Feröin hófst í febrúar á síðasta ári er Adda Steina flaug til Kóreu til að sitja kirkjuþing en hún situr nú ' framhald þess þings. Þórir flaug hins vegar til Þýskalands og frétta- mennskan byijaði í Berlín í kosning- unum sem fram fóra í mars. „Við bjuggum þar í mjög undarlegri og niðumíddri íbúð uppi á fimmtu hæð í úthverfi Austur-Berlínar. Þetta var fátækt verkamannahverfi og ein stærsta vörulestarstöð beint fyrir utan. Þar vorum við í íbúð sem Herr Magnúsdóttir átti á þeim tíma. Hann er Þjóðverji sem hafði sloppið út úr Austur-Þýskalandi með því að kvæn- ast íslenskri stúlku á pappíranum. Unnusta hans haföi hins vegar gifst íslenskum strák í sama tilgangi. Hann hélt eftimafni íslensku stúlk- unnar og heitir því Herr Magnús- dóttir eins og stendur á dyrabjöll- unni á þessum ágæta hanabjálka. Ég komst í samband við þennan mann í gegnum kunningja sem ég átti í Berlín.“ Þórir segir að þau hafi ekki bókað sig á nein hótel fyrirfram. Reyndar segist hann hafa það fyrir reglu. „Einu hótehn, sem hægt er að panta, eru þessi venjulegu vestrænu lúxus- hótel sem era bæði dýr og leiðinleg. Mér fmnst skemmtilegra aö vera á litlum sjarmerandi gistihúsum sem hafa ekki einu sinni telex. Langbesti ferðamátinn er að láta ferðina ráð- ast.“ Fóru meó Skóda til Tékkó Áður en þau hjónin héldu utan festu þau kaup á Skoda Rapid og létu senda hann út. Þórir segist hafa búist við að best væri að ferðast á austur- evrópskum bíl þar sem ferðinni var heitið á þær slóðir, t.d. vegna vara- hlutakaupa og þess háttar. Hann seg- ir þaö hafa verið algjöran misskiln- ing. „Eini staðurinn, sem ekki er hægt að kaupa varahluti í Skoda, er í Austur-Evrópu. Þeir framleiða ekki nógu mikið af varahlutum og anna því engan veginn eftirspuminni. Ég braut sólskyggnið, sem er innan á framrúðunni, og eftir árangurslausa leit um Tékkóslóvakíu, þar sem bíll- inn er framleiddur, og önnur lönd fann ég þetta loks á markaði í Pól- landi. Þá vorum við reyndar búin að panta það héðan en afpöntuðum aft- ur. Síðan var bensínlokinu stolið en það var hvergi fáanlegt þannig að þaö fengum við frá íslandi." Þórir segir að ódýrara hefði verið aö kaupa Skodann fyrir austan en hins vegar var biðlistinn sjö ár. „Menn þurfa að bíða eftir nýjustu Lödunni í tvö hundruðár, biðhstinn var shkur,“ segir Þórir og hlær. Þetta segist hann hafa vitað áður en í ferð- ina var farið. Þórir segir það hafa verið freistandi að selja bílinn áður en heim var haldiö en í ljós kom að Rapid-bílamir eru ekki framleiddir fyrir innanlandsmarkað í Ungverja- landi og því óþekktir. Skódinn er því á heimleið með Brúarfossi." í snertingu við heimsfréttimar Þórir segir að þessi ferð hafl ein- göngu verið farin í þeim tilgangi aö kynnast þeim löndum sem hann hef- ur atvinnu af að skrifa um. „Það má segja aö við höfum notað frétta- mennskuna á vissan hátt til þess að halda okkur uppi og gera okkur þetta kleift." Þórir segir þáð ekkert erfitt að setja sig inn í aðstæður á hveijum staö og fréttaöflun hjá honum sé svipuð og hjá fréttamönnum í innlendum frétt- um hér á landi. „Þegar ég kem á nýjan stað byija ég oftast á að ræða við óháða blaðamenn, sem hafa fylgst með ástandinu, en venjulega era einhver blöð gefm út á ensku. Annars skiptast viðmælendur í fjóra hópa: blaðamenn, stjórnarsinna, stjórnarandstæðinga og almenning. Skemmtilegast er að tala við almenn- ing og maður fær mest út úr því. Ég get nefnt dæmi frá Póllandi. Við fór- um á Skódanum um þvert og endi- langt Pólland og ræddum við menntamenn sem sögðu okkur und- an og ofan af ástandinu í landinu, sem var mjög fróðlegt, en það var ekki fyrr en við töluðum við ellilíf- eyrisþega í Gdansk, sem sögöu okkur mjög bitrir frá því að sennilega yrðu þeir að eyða síðustu ævidögunum í fátækt vegna efnahagsaðgerða stjómvalda, að við fengum einhveija mynd af því sem var að gerast í raun- inni.“ Með tökumann sérvið hlið Hver frétt, sem Þórir sendir hingað heim, á sér langan aödraganda. Hann segist byrja á því að kynna sér við- komandi land og fer þá inn á bresk eða amerísk bókasöfn, síðan þarf að lesa öll blöð, sem koma út á ensku, og loks að ná tali af fólki. „Það er einnig nauðsynlegt að vita bak- grunninn og hafa kynnt sér hann vel svo maður sé ekki eins og bjáni. Varðandi tæknimálin hafa orðið því- líkar framfarir að þau eru auðleyst. Við tókum með okkur myndatökuvél frá Stöð 2 og gæðin eru nánast þau sömu og á margfalt dýrari tækjum sem notuð eru í upptökuverum. Það virkaði mjög vel því Adda Steina tók þær myndir sem ég gat ekki tekið og síðan var ég hennar upptökumaður fyrir útvarpið. Þetta var mjög gott samstarf og við vorum álls ekki í samkeppni. Við sjáum mismunandi hluti og þess vegna verður aldrei um endurtekningu að ræða hjá okkur. Þetta samstarf hefur því lukkast mjög vel. Adda Steina tekur frekar eftir fari fólks og upplifir atburðina, þessa skondnu og skemmtilegu sem koma oft fyrir mann á svona ferða- lögum, á meðan ég lifi mig inn í póli- tík og efnahagsmál og þess háttar leiðinlegri mál.“ Ekki mikil breyting Þórir hefur ekki sent efnið beint heim í gegnum gervihnött heldur eru myndspólurnar sendar með næstu flugvél heim tfl íslands. Með því að taka upp efnið sjálf og senda það flug- leiðis sparast stórar fjárhæðir. Verst þótti fréttamanninum að geta ekki sent allar fréttir heim til íslands enda var af nógu að taka. En almenningur hér á landi hefur þó aðeins áhuga á heimsmálunum upp að vissu marki, þó Þórir telji hann meiri en í mörgum öðrum löndum. Þórir hafði ekki áður dvahð í mörg- um af þeim austantjaldslöndum sem hann heimsótti nú. Þó uppliföi hann breytinguna í Búdapest þar sem hann hafði dvalið áður. „Þessi breyt- ing er ekki svo ægilega mikil. Fólk hefur alist upp í að vinna hjá ríkinu og verslunarmenn hafa ekki þurft að þjóna viöskiptavinum og láta sér ekki koma í hug að gera það. Breyt- ingin verður ekki fyrr en hjá næstu kynslóð. Ungveijar finna mikið fyrir að þeir voru í 150 ár undir Tyrkjum og finnst þeir aldrei hafa borið sitt barr síðan. Síðustu fimmtíu ár hafa þeir verið undir Rússum og ná sér ekkert fljótt eftir það.“ Aðalstöðvar í Búdapest Aðalstöðvar Þóris og Öddu Steinu voru í Búdapest þar sem þau leigðu sér litla íbúð. Þau greiddu tuttugu þúsund krónur á mánuði í leigu á meðan þau greiddu í gjaldmiðh landsins en leigan lækkaði niður í tólf þúsund þegar þau breyttu yfir í LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 1991. 35' Þórir Guðmundsson, fréttamaður á Stöð 2, flýtti ferð sinni heim um einn mánuð vegna Persafióastríðsins. Eiginkona hans, Adda Steina Björnsdóttir guðfræðingur, situr kirkjuþing um þessar mundir i Ástralíu. Þórir hefur hins vegar snúið sér að stríðsfréttaskrifum. DV-mynd GVA gjaldeyri. Frá Búdapest óku þau síð- an í allar áttir eftir því sem fréttimar gerðust hveiju sinni. Stundum varð þó að taka lest eða fara flugleiðis. „Við komumst til Litháen sl. sumar en það var stuttu eftir að Sovétmenn felldu niður viðskiptabannið á Lit- háa. Við fundum vel fyrir þeim breytingum sem voru að gerast þar. Einnig fannst mér mjög athyglisvert að koma til Jórdaníu en það var stuttu eftir innrás íraka í Kúvæt og við sáum flóttamannastrauminn koma þaðan. Mér fannst á þeim tíma ástand þeirra það langmerkilegasta og athyghsverðasta sem var að ger- ast á þeim slóðum á þeim tíma. Mig langar hins vegar ekkert að vera nálægt stríðssvæðum núna því fréttamenn þar hanga inn á herbergj- um og fá aðeins tækifæri tvisvar, þrisvar á dag að spyija talsmenn hinna og þessara heija spjörunum úr en sjá ekki neitt. Það verður hins vegar athyghsvert að vera á þessum stöðum þegar stríðinu lýkur.“ Lentu í hasar Þórir sagði að erfiðleikar hefðu ekki veriö miklir á meðan á ferðalag- inu stóð, að minnsta kosti ekki þegar htið væri til baka. „Við lentum ein- stöku sinnum í hasar, eins og þegar við voram rekin burt með byssu- kjöftum frá Tirgu-Mures eftir ólæti mihi Ungveija og Rúmena þar. Við þurftum að gista hjá sveitafólki í Kosovo eftir að hafa verið á útifundi með albanskættuðum íbúum Kosovo í Júgóslavíu vegna þess að serknesk herlögregla haföi umkringt svæðið og gerði allar myndavélar upptækar. Við þurftum þess vegna að gista hjá þessu fólki sem reyndar bannaði okkur að fara burt. Það er mjög gott fyrir erlenda blaðamenn að ná sam- bandi við fólk, sérstaklega á stöðum þar sem maður hefur rætt við kúgaða minnihlutahópa. Eini möguleiki þeirra til að koma málefnum sínum á framfæri er að ræða við útlenda blaðamenn. Það var mjög spennandi að fara inn og út úr Sovétríkjunum, Litháen, enda var það hálfgert um- sátursástand sem Landsbergis for- seti var í þá. Að vísu vora ekki her- menn á götunum en maður fann fyr- ir þeim og fólkið sagði manni að KGB væri alls staðar. Okkur var sagt að þeir vissu vel að við værum að ræða við forsetann, enda voru við hálftitr- andi er við fóram aftur úr landinu, en við sluppum. Við héldum að það sama kæmi fyr- ir okkur á Indlandi en múshmar og hindúar voru þá að beijast um yfir- ráð yfir mosku. Hindúar vildu byggja musteri þar sem moskan er núna og sögðu að guðinn Rama hefði fæðst þar. Þetta voru átök sem leiddu th dauða fjölda manna. Við komum nokkru eftir átökin en á staðnum voru mörg þúsund hermenn. Ég held ég hafi aldrei séð jafnmarga hermenn á einum stað. Við vorum að læöu- pokast með myndavél en það var óþarfi því hermennirnir brostu bara th okkar og reyndar leiddu okkur áfram.“ Rúmenía eftirminnilegust Þórir segir að eftirminnilegasti staðurinn sé Rúmenía. „Það var nöt- urlegt að koma þangað. Ástandið í landinu er ömurlegt, hvergi neitt th og drungi og vofa Ceausescus er enn- þá yfir öhu. Fólkið er dauðhrætt. Adda Steina fór inn í bókasafn th aö hringja en hún ætlaði að leita að eina bankanum í landinu sem skipti feröatékkum. Bókasafnsvörðurinn spurði Öddu spjörunum úr, hver hún væri og erindi hennar. Síðan gaf bókasafnsvörðurinn þær skýringar að ef hún yrði spurð væri betra að vera með aht á hreinu. Fólkið býst við að leynhögreglumenn séu alls staðar á sveimi og telja því betra að hafa aUt sitt klárt. Þó slíkt megi ekki lengur samkvæmt lögum og reglum þá býr hræðslan enn í fólkinu. Á öUum öðrum stöðum, sem við komum tU, var einhver von um að hlutimir ættu eftir að batna. Þar sem maður fann fyrir einhverri von í Rúmeníu vora væntingarnar svo miklar að þær geta aldrei ræst. Það er enginn grandvöllur fyrir betra lífi í Rúmeníu. Valdamenn hugsa eins og fyrirrennarar og hafa reyndar verið áður við völd. Forsetinn er fyrrum hægri hönd Ceausescus og forsætisráðherrann var orðaður við dóttur Ceausescus á sínum tíma. AUt sem Ceausescu lét gera var afar groddalegt, eins og að láta rífa mörg gömul hús og byggja mikh steinhýsi sem kostuðu óheyrilegar fjárhæðir. Hann lét rífa tuttugu þúsund hús í miðborg Búkarest, þar á meðal falleg bænhús og kirkjur, tU að byggja svo- kallað alþýðuhús sem er stærsta bygging í heimi. í einu herberginu töldum við 98 kristalsljósakrónur, þar af eina á stærð við geimskip eins og maður sér í bíómyndum. Þá má geta þess að hann krafðist þess af fólkinu að það stæði í sömu sporum í klukkutíma áður en hann kæmi akandi eftir götu og klukkutíma eft- ir. Það var allt hálfbijálað sem þessi maður gerði og þó svo sé ekki lengur þá er þetta guðs volað land. Þarna vorum við í tíu daga og það er langur dvalartími í Rúmeníu. Landið er þó mjög faflegt og margt af því fólki, sem við hittum, var yndislegt, sérstaklega bændumir. Hins vegar var mennta- fólkið óþolandi hrokafullt." Jól í Thailandi Um jólin voru þau Þórir og Adda Steina í Thailandi. „Þetta vora ein- manaleg jól,“ segir Þórir. „Við feng- um okkur jólamat á afar fínu hóteli á Norður-Thailandi þar sem allt mor- aði í einmana sálum sem voru fjarri heimabyggðum." Áður höfðu þau verið á Indlandi þar sem þau ætluðu til Kasmír, Amritsar, þar sem Þórir talaði við Bhindranvale í Gullna hof- inu rétt áður en hann var myrtur fyrir nokkrum áram. „Einnig ætluð- um við til Agra þar sem er grafhýsi sem Indlandskeisari byggði fyrir konu sína. Við komumst ekki til Kasmír vegna þjóðernisátaka þar sem tvö þúsund manns höfðu fallið í blóðugum bardögum. Við höfðum heyrt mjög ljótar sögur af framgöngu hersins og þangað þýddi ekkert að fara með myndavél. Við komust ekki til Amritsar þar sem sikkar vora að drepa tuttugu til þijátíu manns á hveijum degi. Við ætluðum að taka ákveðna lest til Amritsar en hættum við og tókum rútu til Delhí og þegar þangað kom fréttum við að búið væri að sprengja upp teinana, sem við hefðum farið um, og lestin fór út af. Við komumst ekki heldur til Agra vegna þess að þar vora hindúar og múslímar að beijast. Undanfarin þrjú ár hafa verið mjög óróasöm á Indlandi og það má geta þess að á þeim dögum, sem Persaflóastríðið hefur staðið, hafa færri fallið þar en á einni viku á Indlandi." Hittu sama fjölmiðlafólkið Þórir segir að það sé einstakt að fá tækifæri til að fara í ferð sem þessa og segist afar þakklátur. Þau Adda Steina voru ekki eina fjölmiðlaparið í þessum hugleiðingum. Þórir segir að fullt af fólki frá mörgum löndum hafi verið að gera það sama. „Við hittum sama fólkið í hinum og þess- um borgum. í Rúmeníu var breskt fjölmiölafólk sem smyglaði sér inn í landiö og var búið að vera þar í þrjá mánuði. Þau höfðu áður unnið við smáblöð í Bretlandi en vegna þess að þau vora í Rúmeníu fengust samningar við stóra blöðin. Við hitt- um þetta fóik og fjölmiðlamenn frá öðrum löndum, t.d. Bandaríkjunum og Kanada, í Búkarest, en þar gistu allir fjölmiðlamenn á sania hótelinu. Síðar hittum við það við kosning- amar í Tékkóslóvakíu. Þetta var fólk sem hafði unnið á fjölmiðlum en orð- ið leitt á daglegu þrasi og langaði að gera eitthvað nýtt - alveg eins og við,“ segir Þórir. - Stefniðþiðáannaðsvonaferðalag? „Ekki heils árs ferðalag en við ætl- um að heimsækja aftur alla þá staði sem við komum á núna. Þegar maður er búinn að vera stuttan tíma á ein- hverjum stað kynnist maður honum, fær mikinn áhuga og vill meira,“ segir Þórir Guðmundsson fréttamað- ur og bætir við: „Ef það er eitthvað eitt sem kom út úr þessari ferð var það hvað þjóðernisrembingurinn er alls staðar til og hvað hann getur eitrað fyrir samskiptum manna. Á sumum stöðum verður þessi remb- ingur til út af öfund en stundum sér maður að það eru ekki efnahagsmál- in, sem þama koma til, heldur mein- fýsi. Mér fannst ég finna sérstaklega fyrir þessu í Kosovo þar sem er virki- lega friðsælt fólk sem troðið er á vegna rembingsins í yfirvöldum.“ -ELA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.