Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1991, Qupperneq 25
Fé-
græðgi
eða hug-
sjón?
Fjöldi móta fyrir yngstu aldurs-
flokkana hefur aukist tnikiö siö-
ustu ár og er það af hinu góöa.
Fyrir tveimur til þrenmr árum
var varla hægt að fá menn til aö
halda „töm“ fyrir yngstu aldurs-
flokkana en nú er aftur á móti
öldin önnur, menn keppast \dð
að lialda mót, en sá leiöinlegi
böggull fylgir skammrifí að verð
sem hvert félag þarf aö greiöa til
aö taka þátt er miklu hærra en
fyrir venjulegan yngri flokk. Vek-
ur þetta nokkra f urðu því í reglu-
gerö HSÍ segír að greiðsla fyrir
liö í vngri llokki skuli veröa kr.
750.
DV hefur fregnað aö nokkur
félög hafi tekið þá ákvöröun af
þessum sökum aö haetta eða
minnka mikið þátttöku í þessum
mótum. .
Sem dæmi um verðlagninguna
hafa þátttökugjöld verið allt aö
kr. 9.000 en flokkar, sem hafa
helmingi lengii leiktima, greiða
kr. 3.750 fyrir sama leikjafjölda.
Því miður hefur það ekki fylgt
þessum mótum að alltaf sé vand-
að til þeirra eins og kostur er,
dómarar era leikfélagar úr öðr-
um yngri ílokkum og leiktími
styttur, svo dæmi séu tekin.
Flestir umsjónaraðilaimá hafa
fengiö fyrirtæki til að greiða ýms-
an kostnað af mótunum og ætti
því þátttökugjaldið að vera lægra
en í öðrum flokkum ef eitthvað
er.
Er vonandi aö forráðamenn fé-
lagamra sjái að sér í þessum efn-
um og hafi að leiðarljósi að cfla
handboltann en hætti að reyna
aö hafa hann að féþúfu.
LAUGARDAGUR 26. JANUAR 1991.
tn.ir cf a f n/ / ] i>( QHA / iIJ / A
Valur 80 ára:
Handbolti unglinga
Reykjavíkurmóti 2. flokks loks lokið:
Valur meistari
Reykjavíkurmóti 2. flokks karla
1990 lauk nú loks í lok janúar með
leikjum Fram gegn ÍR og Val. Töfin
á því að ekki hefur verið hægt að
ljúka þessari keppni er sú að ÍR-ingar
kærðu framkvæmdaraðila að einum
leikjanna þar sem leikur Fram og ÍR,
sem lauk með ijögurra marka sigri
Fram, var 10 mínútum of stuttur.
Liðimum var gert .að leika leikinn
aftur og fór hann fram í Laugardals-
höll síðastliðinn sunnudag.
Skemmst er frá því að segja að Fram
vann yfirburðasigur á ÍR að þessu
sinni, 23-12, og var viðureign Fram
og Vals því úrslitaviðureign mótsins
að þessu sinni þar sem Framarar
voru taplausir en Valsmenn höfðu
aðeins tapað fyrir Víkingum.
Leikgleðin
færði Val sigur
Leik Vals og Fram í Reykjavíkur-
mótinu verður ekki lengi minnst fyr-
ir góðan handknattleik, þrátt fyrir
að að flestra áliti fari þar tvö bestu
hð þessa aldursflokks. Enginn leik-
manna skar sig úr að getu og má
segja að leikgleðin hafi fært Val sigur
í þessum leik
Valsmenn byrjuðu leikinn mun
betur og náðu strax tveggja marka
forustu sem þeir héldu út fyrri hálf-
leikinn, en staðan í hálfleik var 9-7,
þeim í vil eftir að þeir höfðu verið
búnir að ná fjögurra marka forskoti,
9-5, undir lok hálfleiksins.
í seinni hálfleik reyndu Framarar
aht sem þeir gátu til að jafna leikinn
og tókst það í tvígang undir lok hans
en Valsarar voru sterkari á enda-
sprettinum og tryggðu sér eins
marks sigur, 17-16, og þar með
Reykjavíkurmeistaratitilinn 1990 í 2.
flokki karla.
Reykjavikurmeistarar Vals í 2. flokki karla 1990. Valur tapaði aðeins einum leik að þessu sinni og var það gegn
Víkingi, en Valur mætti ekki vegna mistaka til þess leiks.
Mörk Vals: Valgarð Thoroddsen 6,
Óskar Óskarsson 4, Ólafur Stefáns-
son 3, Dagur Sigurðsson 3 og Sveinn
Sigfinnsson 1.
Mörk Fram: Karl Karlsson 6, Gunnar
Kvaran 4, Andri V. Sigurðsson 2,
Ragnar Kristjánsson 2, Jón A. Finns-
son 1 og Páh Þórólfsson 1.
Framkvæmd
til skammar
Það vakti athygli eftir úrslitaleik
2. flokks að stjórnarmenn HKRR
sáust ekki á leikstað né hafði verið
séð fyrir því að koma verðlaunum á
staðinn og fór því engin verðlaunaaf-
hending fram að þessu sinni.
Það er vonandi að HKRR sjái sér
fært að afhenda verðlaunin hið
fyrsta og ljúki þar með hinu langa
Reykjavíkurmóti þessa flokks með
nokkurri sæmd.
Vel heppnað afmælismót
80 ára afmælismót Vals fór fram í
íþróttahúsi Vals að Hhðarenda fyrr
í þessum mánuði. Leikið var í þrem-
ur aldursflokkum, 5. flokki karla og
kvenna og 6. flokki karla og var
keppni oftast jöfn og spennandi.
Víkingar sterkir
í 6. flokki karla
Víkingar, sem fyrir skemmstu báru
sigur úr. býtum á HK-mótinu, unnu
einnig Valsmótið með fuhu húsi
stiga.
Víkingar voru í riðh með Val B,
Umsjón:
Heimir Ríkarðsson
og Lárus H. Lárusson
KR og Fjölni og höfðu nokkra yfir-
burði í riðlinum enda með mjög
sterkt hð.
í hinum riðhnum léku ÍR, Fram,
Stjarnan og ÍR og er skemmst frá því
að segja að ÍR sigraði og hefur það á
að skipa mjög skemmtilegu baráttu-
liði.
ÍR og Víkingar léku til úrslita og
sigraði Víkingur í þeirri viðureign,
14-13, en það var fyrst eftir fram-
lengdan leik sem Víkingar náðu að
tryggja sér sigurinn. Staðan í hálfleik
var 4-3, Víking í vil, en eftir venju-
lega leiktíma var staðan 7-7.
KR og Valur léku um þriðja sætið
og það var Valur sem sigraði, 5-2,
fyrst og fremst eftir að hafa sýnt
mjög öflugan varnarleik í seinni hálf-
Lið KR og Fram í 5. flokki karla uröu bæði i verðlaunasætum, KR varð i
2. sæti eftir að hafa unnið sinn riðil og Framarar tryggðu sér 3. sætið með
því að vinna HK í framlengdum leik, 3-7.
Stjarnan tapaði úrslitaleiknum í 5. flokki kvenna sem var gegn KR, 3-4, en
leikur þessi var ágætlega leikinn og hafa bæði félögin skemrhtilegum liðum
á að skipa.
leik því staðan í hálfleik var 2-2.
Grótta sigraði í
5. flokki karla
Gróttustrákarnir léku í riðli með
Fram, Stjörnunni og Val A, og urðu
öruggir sigurvegarar riðilsins.
í hinum riðhnum léku Valur B, KR,
HK og UMFA. Skemmst er frá því
að segja aö KR sigraði í þeim riðh
og HK varð í öðru sæti.
Úrshtaleikurinn var því mhh KR
og Gróttu og má segja að þar hafi
Gróttumenn verið í hlutverki kattar-
ins en KR-ingar í hlutverki músar-
innar. Aht frá í byijun leiksins léku
Gróttumenn eins og þeir sem valdið
höfðu og í hálfleik var staðan 8-3.
Lokastaða varð síðan 12-8 og voru
Gróttumenn svo sannarlega vel að
fyrsta sætinu komnir.
Fram og HK léku um þriðja sætið
og sigruðu Framarar þar í baráttu-
leik, 8-7. Framlengingu þurfti til að
knýja fram sigurvegara í þessum leik
en jafnt var á flestum tölum og eftir
venjulegan leiktíma var jafnt, 5-5.
KR með sterkt lió í
5. flokki kvenna
Það voru sex hð sem léku 15. flokki
kvenna. í öðrum riðhnum léku Valur
A, Fjölnir og KR og í hinum riðlinum
léku Valur B, Stjarnan og UBK.
í riðlunum sigruöu Stjarnan og KR
og léku þessi hð því til úrslita. KR-
ingar báru sigurorð af Stjörnunni í
þessum úrshtaleik, 8-A, eftir aö stað-
an í hálfleik haföi verið 3-1, KR í vil.
Það voru síðan hð UBK og Vals B
sem léku um þriðja sætið og unnu
Valsmenn þann leik, 4-3.