Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1991, Side 2
2
FÖSTUDAGUR 1. MARS 1991.
Fréttir
Sjópróf í Noregi vegna Miröndu sem sökk fyrir utan Sandgerði:
Skipstjóra ber ekki saman
við frásögn sjónarvotta
útgerðin hefur beðið D V um frétt og graf vegna óhappsins
Fulltrúi útgerðar norska skipsins
Miröndu segir það ekki rétt að skip-
stjórinn hefði neitað að taka lóðs í
Grindavíkurhöfn skömmu áður en
gat kom á skipið með þeim afleiðing-
um að það sökk um 6 mílur vestur
af Sandgerði í lok janúar:
„Lóðsinn sagði að hann myndi ekki
fara meö þar sem hann myndi þurfa
að fara af í Vestmannaeyjum. Hann
sagði að það væri í lagi fyrir skipiö
að fara út úr höfninni. Það er ekki
ólöglegt aö sigla án hafnsögumanns
í Grindavík. Þaö er hins vegar at-
hyglisvert að lóðsinn og sjónarvottar
segi annað," sagði Geir Hjönnöy,
fulltrúi Kristiansund Shipping, sem
gerði Miröndu út viö DV í gær.
Sjópróf hafa farið fram vegna Mir-
öndu í Noregi. Samkvæmt upplýs-
ingum frá útgerðinni stangast fram-
burður skipstjórans á við það sem
hafnsögumaður í Grindavík og vitni
hafa sagt hér á landi. Útgerðin hefur
óskað eftir að DV sendi afrit af frétt
og afstöðuteikningu blaðsins til Nor-
egs - þar kom atburðarás greinilega
fram samkvæmt frásögn hafnsögu-
manns og vitna í Grindavík.
Bjarni Þórarinsson, hafnsögumað-
ur í Grindavík, sagði við DV skömmu
eftir strandið að hann hefði verið
búinn að gera sig kláran til að fara
með skipið út úr höfninni. Skipstjór-
inn hefði hins vegar beðist undan því
þar sem hann taldi að þaö myndi
teQa skipið að koma við í Vestmanna-
eyjum. „Ég var meira að segja búinn
að setja vindla í vasann til að hafa
með mér i nesti þegar skipstjórinn
Með tækjunum sem eru í þessum bát voru teknar myndir af flaki Miröndu
sem liggur á 86 metra dýpi skammt vestan við Sandgerði.
Skipstjórinn á Miröndu beygði of snemma í bakborða í innsiglingarrennunni:
Skylda ætti ókunn-
uga til að taka lóðs
- segjasiglingamálastjórioghafhsögumaðurinníGrindavík
Skipstjórinn á norska tklplnu Mi-
röndu, sem sökk við Stafncs um helg
ina, beygði of snemma i bakborða (i
austur) þegar bann sigldi skipinu út
um svokallaða rennu við innsigling
una I Grinda víkurhöfn á laugardags-
kvöldið. Samkvæmt fyrirnualum
hafnsögumanns átti sklpstJórlnn að
balda i beinni línu eftlr rauðum sigl-
lngaljósum i landi aö bauju fyrir utan
sem einnlg logaöi rautt á. Hann átti
aö bcygja á bakboröa þegar 50 metrar
væru eftir aö baujunnL Sklpstjórinn
beygöl hins vegar mun fyrr. Þetta
kom fram hjá Bjama Þórarirusyni,
hafnsógumanni i Grindavtk, og fleiri
sjónarvottum sem DV ræddi við.
„Ég ætlaði að fara að kalia I skip-
stjórann þegar skipiö sveigöl i bak
boröa. Siöan gaf hann vélinni mikiö
inn og beygöi skarpt i stjómboröa
og fór aftur inn á rétta striklö. Viö
þetta befur botninn rekist I rennuna
austan megin. En eftir þetta fór hann
hins vcgar rétt aö öllu. Hann beygöi
svo i bakboröa b)á baipunní og fór
líka rétt aó þegar hann beygöi í
stjómborða cftir hvitu Ijósunuin,"
sagði Bjami hafnsögumaóur i sam-
tali viö DV í gær. Undir þetta tóku
fleiri racnn, scm DV ræddi við. og
horföu á það þegar skipstjórínn
beygöi út af slcfnunni á röngum staö,
rétt fyrir utan hafnannynniö.
Bjami telur aö skylda eigi ókunn-
uga til aö taka hafnsðgumann meö
þegar siglt er inn og út um höfnina
f Gnndavík. Magnús Jóhannesson
siglingamálastjóri tók 1 saraa streng
Frétt DV og graf sem útgerð Miröndu hefur beöið um.
afþakkaöi að ég kæmi meö,“ sagði
Bjarni í samtali við DV.
Skipstjóri Miröndu sagði við sjó-
próf að skipið hefði tekið niðri vegna
öldugangs. Bjarni og íleiri sjónar-
vottar hafa á hinn bóginn sagt að
skipstjórinn hefði beygt of snemma
í bakborða, stuttu eftir að skipið
sigldi út úr höfninni - og sjógangur
heföi ekki verið mikill.
Fyrirtækið sem tryggði Miröndu
óskaði eftir að teknar yrðu neðan-
sjávarmyndir af ílaki skipsins þar
sem það liggur á hafsbotni skammt
vestan við Sandgerði. Fyrirtækið
Djúpmynd hefur þegar tekið myndir
af flakinu. Þær sýna að skipið liggur
kjölrétt á grófum botni í kanti við
togslóð. Dýpið á þessum stað er 86
metrar. Stórir grjóthnullungar eru á
botninum en stutt frá er leirbotn.
Fulltrúar Det Norsk Veritas hér á
landi hafa fengiö myndbandsspólu í
hendur með myndum af flakinu á
hafsbotni. Ætlunin var að freista
þess aö ná myndum af gatinu sem
kom á skipið í innsiglingarrennunni
við Grindavíkurhöfn. Ekki tókst að
ná myndum af sjálfu gatinu vegna
lélegra skilyrða. Eigi að síður kom
greinilega í ljós aö skipið liggur kjöl-
rétt. Talið er gatið sé á afturhluta
skipsins aö neðanverðu á móts við
vélarrúm. Farið verður í annan
myndaleiðangur síðar.
-ÓTT
Stuðningsmenn Davíðs Oddssonar hafa opnað kosningaskrifstofu í Heklu-
húsinu viö Laugaveg. Þar stjórnar Friörik Friöriksson starfinu sem meöal
annars felst í því aö hringja í landsfundarfulltrúa.
Stuöningsmenn Þorsteins Pálssonar hafa opnaó skrifstofu í húsinu númer
7 vió Suðurgötu. Þar stjórnar Viglundur Þorsteinsson aögerðum. Hringja
menn meðal annars i landsfundarmenn. DV-myndir Brynjar Gauti
Háskóli íslands:
Naf n forseta blandast
í kosningabaráttuna
„Þess skal getið aö það var ekki
með vitund eða samþykki forseta
íslands að ávarpið skyldi birt í
Vökublaðinu svo skömmu fyrir
kosningar til stúdenta- og háskól-
aráðs þann 12. mars næstkomandi.
Umrætt Vökublað er helgað af-
mæli Háskóla íslands sem veröur
80 ára þann 17. júni næstkomandi.
Tímasetning þessarar hátíðarútg-
áfu hiýtur að skoðast sem innlegg
í kosningabaráttu Vöku. Það er
harmað aö gerð hafi verið tilraun
til að notfæra sér nafn forseta ís-
lands í kosningabaráttunni með
þessum hætti,“ segir í tilkynningu
sem talsmenn Röskvu segja aö birt-
ast muni í kosningablaði þeirra er
kemur út eftir viku.
Það hefur vakiö athygli þeirra er
séð hafa nýjasta blað Vöku, félags
lýðræðisinnaöra stúdenta í Há-
skóla íslands, að í því skuli birt
ávarp frá forseta íslands þar sem
hann færir skólanum árnaðaróskir
í tilefni 80 ára afmælis hans, þar
sem mjög skammt er til kosninga
hjá stúdentum.
Samkvæmt upplýsingum Sigríð-
ar Hrafnhildar Jónsdóttur, deild-
arsérfræðings á skrifstofu forseta
íslands, var þess farið á leit við
skrifstofu embættisins aö forseti
sendi kveðju til Háskóla íslands í
tilefni af 80 ára afmæli skólans og
ætti kveðjan að birtast í sérstöku
afmælisblaði stúdenta.
„Starfsmenn forsetamembættis-
ins skildu beiðnina á þann hátt að
um almennt hátíðarblað stúdenta
væri að ræða í tilefni af afmælinu
sem væri eins konar gjöf stúdenta
til skólans. Erindið var kynnt fyrir
forseta í samræmi við þær upplýs-
ingar. Okkur á skrifstofu forseta
var ekki kunnugt um að þetta væri
eitthvert sérstakt Vökublað, heldur
töldum við samkvæmt þeim upp-
lýsingum sem við höfðum fengið
að blaðið ætti að bera yfirskriftina
„Háskóli íslands 80 ára“ og gátum
við ekki tengt þann titil neinni pól-
itískri fylkingu innan skólans.
Þótti forseta því sjálfsagt aö þessi
að æðsta menntastofnun landsins
fengi afmæliskveöju á þessum
tímamótum,“ segir Sigríður.
Það má svo bæta því við að sama
afmæliskveðja forseta íslands til
Háskólans mun birtast í öðrum
blööum stúdenta æski' þess þeir á
annað borö.
Innan Háskólans takast á tvær
andstæðar fylkingar í pólitík. Ann-
ars vegar Röskva, samtök félags-
hyggjufólks, og hins vegar Vaka
sem er eins og áður sagði félag lýð-
ræðissinnaðra stúdenta.
Eftir að umrætt Vökublað kom _
út höfðu Röskvumenn samband við
forsetaembættið og báðu um skýr-
ingar á þvi hvers vegna forsetinn
birti ávarp sitt í Vökublaöinu.
„Það voru mjög margir, þar á
meðal forsetinn,. svo og sumir
þeirra sem auglýstu i Vökublaðinu,
sem töldu að allir stúdentar innan
Háskólans stæðu í sameiningu að
útgáfu þessa blaðs sem Vaka helgar
80 ára afmæli skólans. Þeir hinir
sömu urðu því undrandi þegar þeir
komust að því aö það væri annað
pólitíska félagið i Háskólanum sem
stæöi aö blaðinu og væri að gefa
það út í áróðursskyni,“ segir Stein-
unn Óskarsdóttir sem situr í stúd-
entaráöi fyrir hönd Röskvu.
Haft var samband við Baldur
Þórhallsson, ritstjóra Vökublaös-
ins. Hann kvaðst ekki vilja tjá sig
um málið.
-J.Mar