Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1991, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1991, Blaðsíða 9
FOSÍUDÁGURT' M Afts’ lð9T 9' Líkhúsinfull affórnarlömbum íraskra hermanna íbúar Kúvætborgar og sjúkrahúss- læknar greindu frá því í gær að írak- ar hefðu aukið hryðjuverk sín síð- ustu tvær vikurnar áður en þeir hörfuðu. Sögðu þeir fólk hafa verið gripið á götum úti og flutt til skóla eða lögreglustöðva þar sem því var misþyrmt og það síðan drepið. Venjulegast var það skotið í höfuðið. Oft kom það fyrir að írösku her- mennirnir fóru með þá sem þeir gripu heim til viðkomandi og skutu þá fyrir framan fjölskyldur þeirra. Einnig var algengt að líkum var fleygt út á götur öðrum til viðvörun- ar. Sögðu hermennirnir að enginn mætti snerta líkin næstu tólf klukku- stundirnar. Á einu sjúkrahúsi kvaðst læknir hafa fengið svo mörg lík að hann hefði hætt að telja þau. Embætt- ismenn sjúkrahússins sögðu hundr- uð líka hafa verið flutí þangað frá því að írakar gerðu innrásina. Lík- húsin eru nú full af fórnarlömbum írösku hermannanna. Sjá mátti merki um hryllilegar misþyrmingar. Reuter George Bush er vinsælasti forseti Bandaríkjanna síöustu 50 árin. Símamynd Reuter George Bush nærfáheyrðum vinsældum í nýrri bandarískri skoðanakönn- um kemur fram að George Bush for- seti hefur náð fáheyrðum vinsældum fyrir framgang sinn gegn írökum og forystuna fyrir bandamönnum í stríðinu við þá. Fram kom að 85% aðspurðra töldu að forsetinn hefði staðið vel að verki. Aðeins 11% lýstu yfir andstöðu við Bush. í janúar lýstu 77% Bandaríkja- manna sig sátta við stefnu forsetans og í desember voru 57% á sama máli og hann. Niðurstaðan nú sýnir að Bush er vinsælasti forseti Bandaríkj- anna allt frá lokum síðari heims- styrjaldarinnar. Eftir að sigur vannst í Persaflóa- stríðinu er Bush næsta viss um að hljóta góða kosningu þegar forseta- kosningar verða haldnar á næsta ári. Aö mati sumra Bandaríkja- manna hefur Bush tryggt stöðu sína meðal fremstu forseta Bandaríkj- anna í sögunni. Hann á þó enn eftir aö sýna ráðkænsku sína á friðartím- um og heima eru efnahagsmálin hon- um þung í skauti. Reuter og NTB Kenndu Abu Nidal meðferð efnavopna Austur-þýska öryggislögreglan kenndi skæruliðaleiðtoganum Abu Nidal og íraska hernum meðferð efnavopna. Bandaríska sjónvarps- stöðin ABC greindi frá þessu í gær- kvöldi. Nidal er sakaður um að bera ábyrgð á fjöldamorðum á flugvöllum í Róm og Vín árið 1985. Sjónvarpsstöðin sýndi viðtal viö Þjóðveija sem huldi andlit sitt. Kvaðst maðurinn hafa þjálfað íraka og Palestínumenn. Útlönd Félagi í andspyrnuhreyfingunni í Kúvæt sparkar upp dyrum á leikskóla í leit að írökum og mönnum sem unnu fyrir þá. Simamynd Reuter Kúvætar drepa íraska hermenn Kúvæskir hermenn drápu tutt- ugu og tvo íraska hermenn og handtóku átta þegar þeir réðust inn í tvö hús í úthverfi Kúvætborgar í gær. Aö þvi er sagði í útvarpsfréttum í Saudi-Arabíu í morgun voru þrjá- tíu íraskir hermenn í felum í hús- unum og vildu þeir ekki gefast upp samkvæmt fyrirmælum kúvæsku hermannanna. Kúvæsk hjúkrunarkona skýrði frá því í gær aö hún hefði drepið um tuttugu særöa íraska hermenn með banvænum stunguskömmt- um. Konan, sem er tuttugu og fjög- urra ára og ekki vill segja til nafns, hafði unnið sem sjálfboðaliði á sjúkrahúsi í Kúvæt frá því að írak- ar gerðu innrás í landið í ágúst síð- astliðnum. Hún sagði að hermenn-. irnir, sem hún drepið, heföu særst í átökum við kúvæska andspyrnu- menn. Andspyrnuhreyfingin í Kúvæt leitar nú manna sem grunaðir eru um.samvinnu við íraka. í gær voru meöal annars þrír Kúrdar, einn Palestínumaður og nokkrir Súdan- ir handteknir. Félagar í and- spyrnuhreyfmgunni hafa nú tekið að sér eftirlitsstörf í Kúvæt og stjórna jafnvel umferðinni í íjar- veru lögreglu og hersins. Skothríð heyrist stunduin í borginni þegar þeir reyna að grípa menn grunaða um samvinnu viö íraka. Reuter TIG Productions í samvinnu við Majestic Films International kynna Kevin Costner í „Dances with Wolves“, Mary I McDonnell, Graham Greene, Rodney Grant. Tónlist: John Barry. Kvikmyndataka: Dean Semler A.C.S. Klipping: . Neil Travis, A.C.E. Handrit: Michael Blake. Framleiðendur: Jim Wilson og Kevin Costner. Leikstjóri: Kevin Costner. n i MYNDIN ER TILNEFND TIL12 ÓSKARSVERÐLAUNA! t*/ ' 1 Þar á meðal sem: Besta mynd ársins # Besti leikari í aðalhlutverki Besti leikstjórinn • Besti leikari í aukahlutverki • Besta leikkona í aukahlutverki s * i a. „Stórfenglegt þrekvirki í alla staði hjá Costner sem ótrauður sigldi á móti straumnum og uppskar eina af bestu myndum ársins.“ + + + + SV.-MBL. „Dances with Wolves“ - mynd sem allir verða að sjá! Sýnd í A-sal kl. 5 og 9. Sýnd í B-sal kl. 7 og 11. „Ég mæli eindregið með því að fólk láti sjá sig og fjölmenni á þessa stórmynd því það er ekki á hverj- um degi sem mynd á borð við þessa er á boðstólum." ★ ★ ★ ★ AHK.-Tíminn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.