Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1991, Blaðsíða 12
12
FÖST-UDAGUR 1. MARS 1991.
Spumingin
Ferðu oft á mynd-
listarsýningar?
Oddný M. Jónsdóttir nemi: Nei, aldr-
ei.
Guðmundur Daníelsson: Nei, það
geri ég ekki.
María Pétursdóttir og Maríanna
Jónsdóttir: Nei, almáttugur aldrei.
Sólveig Sigurðardóttir: Nei, mjög
sjaldan.
Guðmundur Baldursson tæknifræð-
ingur: Nei, helst aldrei.
Gréta Birgisdóttir húsmóðir: Nei.
Lesendur
Er móðurmáls-
ástin yf irskin?
J.E. skrifar:
Nú eru alþýðubandalagsmenn á
fullu að semja nýtt frumvarp til út-
varpslaga. Þeir vilja banna með öllu
endurvarp á beinum útsendingum
frá erlendum fréttastofum, nema
þær séu þýddar jafnóðum á íslensku.
Þetta er réttlætt með eins konar
móðurmálsást. - Afleiðingin yrði
hins vegar í fyrsta lagi sú að sbkar
útsendingar yrðu fáar og stuttar
vegna hins mikla kostnaðar við að
þýða þær jafnóðum. Þýöinguna yrði
svo að tala inn á útsendinguna. í
öðru lagi er slík þýöing ákaflega
hvimleið, venjulega vantar eitthvað
í þýðinguna og oft er vitlaust þýtt og
einnig heyrist illa hvað sagt er á hinu
erlenda máli.
íslendingar verja miklu fé til að
kenna börnum og unglingum erlend
tungumál, enda kunna flestir íslend-
ingar t.d. ensku. Með hlustun á er-
lent efni læra menn erlend mál enn
betur, bæði orðaforða og ekki síður
framburð, og auka þannig við það
sem kennt er í skóla. En nú hefur
komið í ljós að einmitt þeir íslending-
ar, sem mest kunna í erlendum mál-
um, eru líka bestir í íslensku. - Allt
tal um að íslenskan sé í hættu er því
þvaður eitt.
„Góður fréttamaður gefst ekki upp
vísu eða með útúrsnúningi...“
Ég held að einokunartilburði
vinstri manna Ríkisútvarpsins megi
rekja til einhvers annars en ástar á
islensku máli. Æth megi ekki rekja
þá fremur til þess að þeir vilja fá frið
fyrir erlendum fréttastofum til að
geta sagt íslendingum heimsfréttirn-
ar eins og þeir vilja hafa þær! Minni
ég t.d. á margendurteknar fréttir er-
lendis 25. febr. sl. af fjöldamorðum
íraskra hermanna á íbúum Kúvæt-
borgar en þær fréttir sniðgengnar í
honum er svarað með hálfkveðinni
íslenska útvarpinu.
Það er einnig hklegt að sumum ís-
lenskum stjórnmálamönnum og
fréttaspyrjendum þyki óþægilegt að
íslendingar kynnist of vel hinum
vönduðu vinnubrögðum erlendra
fréttaspyrla og svörum alvöru
stjórnmálamanna við spurningum
þeirra. - Góður fréttamaður gefst
ekki upp ef honum er svarað með
hálfkveðinni vísu eða með útúr-
snúningi eins og tíökast hér á landi.
„Höggormstennur naga
nett“ - svar til Regínu
onthe
Block“
B.B. skrifar:
Ég er mjög mikill aðdáandi
hljómsveitarinnar New Kíds on
the Block og ég myndi gjarnan
vilja að önnur hvor sjónvarps-
stöðin sýndi tónleika með þessari
hljómsveit. - Mér finnst allt of
htið vera sýnt af henni hér á
iandi. Þó er þaö helst að Stöð 2
hafi sýnt eitthvað.
Þar sem margir njóta ekki góðs
af Stöð 2 íinnst mér að Sjón-
varpið ætti að sýna tónleika með
hljómsveiíinni. - Og ennfremur.
Væri ekki möguleiki að fá hljóm-
sveitina hingað til íslands til
hijómleikahalds? - Ég veit aö fyr-
ir það myndu margir þakka.
Stefán Jónsson skrifar:
Ef þær heyra illa frétt
eðli dýrs er vakið.
Höggormstennur naga nett
náungann í bakið.
Þetta gamla vísukorn kom mér í
hug þegar ég las kjallaragrein Regínu
Thorarensen í DV þann 25. febr. sl.
- Við lesturinn gat ég ekki varist
þeirri hugsun að mikill væri sorinn,
sem kraumaði í sálarkirnunni, og
mætti helst líkja því viö leirhverina
í Námaskarði en þeir eru þó að því
leyti skárri að þeir halda óþverran-
um í sér en menga ekki umhverfið
með slettum í allar áttir.
Þar sem frúin mun komin á efri
ár væri ekki úr vegi fyrir hana að
fara nú að huga að sáluhjálpinni og
vil ég því benda henni á að taka helga
bók sér í hönd því vera má að þar
finnist plástur á bæklað sálartetur.
Einnig má finna þar ýmis gullkorn
ásamt heilræðum, t.d. þeim er svo
hljóða: „Dæmið ekki svo að þér verð-
ið ekki dæmdir" - og einnig: „Með
þeim mæli, sem þér mælið öðrum,
mun yður mælt verða.“
Að endingu vil ég lýsa undrun
minni á því að DV skuli ata síður
sínar þeim auri, sem oftast kemur frá
þessari frú, og Ijúka skrifum mínum
með annarri gamalli vísu:
Lastaranum líkar ei neitt,
lætur hann ganga róginn,
finni hann laufblaö fölnað eitt
fordæmir hann skóginn.
Margvísleg umferðarbrot
K. Sn. skrifar:
Stundum finnst mér sem lögreglan
hér á Reykjavíkursvæðinu einbeiti
sér nánast eingöngu aö því að upp-
ræta, fækka eða reyna aö koma í veg
fyrir tvenns konar brot ökumanna;
hraðakstur og ölvunarakstur. Marg-
víslegum öörum brotum, og smærri,
virðist lögreglan sinna lítt eða ekki.
Ég vil nefna dæmi um þetta. - Eig-
andi ökutækis setur undir bifreið
sína yfirstærð hjólbarða án þess að
fá sérskoðun á henni. Hjólbarðarnir
ná út fyrir aurbretti og jafnvel vantar
alveg aurhlífar eða þær eru þeirrar
stærðar sem passaði fyrir réttu hjól-
barðana. - Þessir bílar aka um göt-
urnar í vætutíö, nánast eins og
mykjudreifari sé á ferð.
Okumenn aka meö aftaníkerrur
sem eru ekki með tilskihnn ljósabún-
að. - Ökumenn aka innanbæjar með
neyðarþokuljós kveikt að aftan. -
Ökumenn aka með ljós á aukalugtum
að framan kveikt en auk þess eru þau
oft vanstiht og blinda aðra vegfar-
endur. - Meö þessi ljós er ekið innan-
bæjar og þá jafnframt með lága geisl-
ann á aðalljósunum. - Ökumenn
stöðva bifreiðar á miðri akbraut til
þess að spjaha við kunningja og al-
gengt er að sjá ekiö gegn einstefnu-
merkjum.
Sé öllum þessum smábrotum htið
sinnt eða ekki veldur það þvi að öku-
mönnum finnst minna um þótt fram-
in séu einnig hin alvarlegri brotin.
Með þessari athugasemd er ég ekki
að fara fram á strangar lögregluað-
gerðir, ásamt meðfylgjandi sektum,
heldur hitt að lögreglan okkar stöðvi
brotlega ökumenn, bendi þeim á
brotið og gefi aðvörun. - Ef þaö dreg-
ur ekki úr þessum smábrotum ætti
að beita sektum.
DV
Draga þarfúr
netaveiðum
Kári hringdi.
Ég tel það hiö mikilvægasta mál
að við íslendingar drögum úr
netaveiðum báta vegna þess að
sá fiskur, sem í net veiöist, er
mun verðminni en sá sem næst
að landi með öðrura veiðarfær-
umt t.d. með línu eða trolli.
Éghefveriðtilsjós árum saman
og að sjálfsögðu stundað hinar
ýmsu veiðiaðferðir, en ég veit að
ahir geta verið sammála um að
línufiskur t.d. er ekki sambærí-
legur við netafisk. Linan er auk
þess ódýrara veiðarfæri, og þar
að auki er þar um að ræða ís-
lenska framleiðslu að mestu. Þeír
sem ekki þekkja til geta spurt sig
hvers vegna fisksalar auglýsa
gjaman „nýjan hnufisk“ sérstak-
lega - aldrei netafisk. Netaveiðar
eru skaðlegar fyrir þjóðarbúið.
Framboð Davíðs
ekkitímabært
Einar Magnússon skrifar:
Ég er einn þeirra sem kaus
Sjálfstæðisflokkinn í síðustu
borgarstjórnarkosningum og
ekki síst vegna þess að Davíð
Oddsson var þar fremstur í flokki
- b^rgarstjóri til fíögurra ára.
Ekkí vissi ég á þeirri stundu að
hann ætlaði ekki að gegna því
starfi nema fram á vorið. - Það
er enn ekki heilt ár síðan!
Ég tel að framboðs Daviðs borg-
arstjóra til formanns Sjálfstæðis-
flokksins nú sé ekki tímabært,
langt í frá, eða þremur árum of
snemmt. Hann verður að skila
borginni af sér að kjörtímabili
loknu og getur þá, ef honum býð-
ur svo hugur, látið til skarar
skríða með formannskjör, eftir
að fundinn hefur verið arftaki
hans sem borgarstjóri. - Davíð
skilur því ekki vel viö borgina ef
hann færi úr sinni stöðu nú.
Pistm
frá Ameríku
Kristjón hringdi:
Ég var að hlusta á þátt i útvarp-
inu, sem var endurtekinn frá þvi
fyrr um daginn. Þátturinn „Að
utan“ var fluttur af fréttaritara
Ríkisútvarpsins í Bandaríkjun-
um. Þetta virtist ekki símtal eins
og oftast áður þegar fréttaritari
hringir inn pistla sína, heldur
frekar að þetta væri talað inn á
spólu. - Pistilhnn var svo gegn-
sýrður af hinu neikvæða í garð
bandarísku þjóðarinnar aö mér
blöskraði.
Þama var eins og að likum læt-
ur notast við Persaflóastríðið og
viðhorf fólks þar vestra gagnvart
því. Og þótt fréttaritari skýrði frá
mikilli samstöðu þjóðarinnar þá
þótti honum við hæfi að bæta við
öðram þáttum sem gerðu þessa
samstöðu lítilvæga í eyrum
þeirra sem hlýddu. - Þar með
náði þátturinn thgangi sínum.
Formannsstaða
ekkiföstíhendi
Margrét Guðmundsdóttir skrifar:
í komandi kosningum um for-
mann Sjálfstæðisflokksins er það
áberandi að þeir tveir menn, sem
nú munu berjast um titilinn, eru
þess fuhvissir, að því er virðist,
að engir aðrir komi til greina í
formannsstöðuna. - Núverandi
formaður verður t.d. að átta sig á
því að honum má ekki vera for-
mannsstaðan :of föst í hendi.
Hann raátti gei-a r áð fyrir að ein-
hver annar yrði í framboði gegn
honum, þótt Davíð Oddsson væri
ekki th staðar.
Ég hcld aö formaður Sjálfetæð-
isflokksins verði raunar alltaf að
gera ráö fyrir mótframboði. -
Mótframboð Davíðs Oddssonar
kom því ekki flatt upp á nokkurn
mann og hefði ekki átt að koma
Þorsteini það á óvart heldur.